Alþýðublaðið - 16.11.1944, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 16.11.1944, Blaðsíða 5
t Fimmtudagur 16. nóv. 1944 ALÞYÐUBLABEO S Hann kom til mín og talaði — Eg hlustaði — Fyrstu sporin í höfuðstaðnum — Daladrengur lætur móðan mása. HANN KOM TIL MÍN einn dag- inn, rjóður í kinnum í verka- mannafötum og blárri peysu og annarlegt ,kastskeyti‘ á ljósum koll inum, myndarlegur og sællegur og með bros um varirnar og rjúkandi vindil í greip sinni. Hann vildi fá grein í pistilinn minn — og það var skrítin grein, eða bréf. Ég fór að tala við hann af því að það var svo mikið líf í honum og það stóð þægilegur gustur af honum og hann talaði töluvert, en ég bara steinþagði og hlustaði: „ÉG ER AÐ NORÐAN, hef aldrei farið fyrr að heiman og aldrei til Reykjavíkur komið fyrr en nú. Þeir sögðu að hér væri líf og fjör og nóg vinna, að hér gengju brosandi og fallegar stúlkur um göturnar allan liðlangan daginn, að hér væri hægt að skemmta sér á hverjum einasta degi, eða sko á kvöldin og hér væri afskaplega mikið að gera og gott kaup.“ „ÉG FÓR, og hef aldrei farið fyrr að heiman, eins og ég sagði, ég fór til að vimia hjá auðvaldinu, vinna eins og vitlaus til að fá peninga og ný föt og; geta lesið eitthvað á milli, sko til að komast áfram. Og ég þarf ekki að segja þér, hvað ég varð hissa þegar ég sá öll þessi afskaplega stóru hús og bílana og göturnar þvers og kruss, bíóin og búðargluggana og stúlkumar. Þær eru, jú, það fall- egasta hér í Reykjavík.“ „ÉG FÓR STRAX að vinna, þegar ég hafði komið mér fyrir í „bragga" og svo ét ég, sko, út um hvippinn og 'hvappinn. Mikið voðalegt kaup hafa sumir og sumir búa í húsum sem nægja fyrir marg ar fjölskyldur og menn eyða svo afskaplega héma. Ég fór í Lista- mannaskálann og það sagði strák- \ ur að norðan við mig, sem ég hitti. „Vertu bara djarfur, þetta eru beztu stelpur. Þú skalt bara bjóða þeim upp. Það gerir ekkert til þó að þú kunnir ekki alveg að dansa.“ „FYRST GÆGÐIST ég inn í Listamannaskálann, en ég þorði ekki að fara inn fyrr' en maður kallaði til mín og sagði: „Ætlið þér að fá miða?“ Það var sko í fyrsta skipti, sem ég hef verið þéraður, Og ég keypti miða. Það var svo sem ágætt ball, en ég dans aði ekkert, kom mér ekki að því að bjóða neinni upp. Menn sátú bara þarna við borðin og drukku kaffi og öl fyrir mikla peninga. Aðgöngumiðinri kostaði 15 krón- ur. Það eru voðalegir peningar.11 „HELDURÐU NÚ EKKI að þjóð in fari að sameinast? Ég hugsa það. Þetta rifrildi er alveg hringl- andi vitlaust. Mér líkar bezt við Alþýðublaðið. Ég hef stundum fengið það að láni á næsta bæ hjá stúlku, sem fær það sent norður frá systur sinni hér, sem er gift sjómanni. Mér líkar vel við það. Ég keypti sko .þennan vindil áðan þama á horninu á móti apótek- inu, þú veizt. Hann kostaði krónu og sjötíu og fimm. Ég hef einu sinni reykt vindil áður. Það er ekkert gott að reykja þessa vindla. Pabbi tekur í nefið.“ „JÚ, ÉG HEF dálítið upp úr mér, en það er allt svo helv . . . dýrt. Ég hefði aldrei trúað því. Húsnæðið er nú ekki svo dýrt, en það er allt hitt. Ég er að reyna að eyða ekki svo að ég hafi eitthvað þegar ég fer aftur héim. Ég hugsa líka að gamli maðurinn segði eitt- hvað, ef ég væri búinn með allt þegar ég feem. Hann vildi nefni- lega ekki láta. mig fara. Það var ég og mamma gamla sem réðum.“ „HEYRÐU! Ég er alveg hissa á því hvað margir eru allt af á randi hérna. Göturnar eru bara alltaf fullar. Hvernig stendur á því? Ég hélt að það væri svo mikið að gera hérna að fólkið mætti ekki vera að þessu hangsi á götunum.“ „ÉG VINN við höfnina, já. Það er sóðalegt, en það er sæmilega gott kaup. Ég á verst með þjón- ustuna. Það er ekki hægt að fá neina kerlingu til að þvo af sér. Annars ætlaði nú strákur sem ég vinn með að tala við konu fyrir mig.“ „ÞAÐ ER ÁRI skrítið að ekki skuli vera hægt áð .fá þvegið af sér héma. Það er svo margt kven- fólk héma. Er ekki Alþýðuskólinn hérna núna að starfa? Ég var sko að hugsa um hann á kyöldin kannske.'1 HANN óð úr einu í annað, bráð skemmtilegur og fullur af krafti og kynngi, þessi ungi sveitamað- ur, sem kom hingað fyrir mánuði til höfuðstaðarins til þess að freista gæfunnar. Ég hugsa að það sé ekki hægðarleikur að slá hann út, jafnvel þó hin verstu öfl hér sameinuðust. Hann hefur líka auga fyrir þ.ví sem gott er hér. Hánn kvaddi mig brosandi með því að rétta bara vísifingur upp að „kastskeytinu“ og segja „Bless, ég kem kannske aftur einilivem- tíma áður en ég fer norður." Hannes á horninu. osíur írá Ákureyrí fyrirliggjandi, Samband ísl. samvinnufélaga Sími 1080. / De Gaulle undir sigurboganum Myad þeisöi ©r aif forsætiisiiáðiherra frönsku bráðaibkigaiitjór'niarininar, de Gaulls herhöfð- "ímgja. Er hann hér ataddur umdir sigiurboganum í París í liðskönaiun og var mynxiin itek- in sköm'mu eiftir endiurlaiusm borgarmnar í Isambamdi við miikiíl' Hiiáibíðaihöld, ísern til vair efnt í tiiielfmá Grenmiar. EFTIR að bandamenn höfðu haft langa viðdvöl í Lun- dúnaborg, sem mjög hefur látið á sjá af völdum hildarleiksins, hafa þeir náð Parísarborg á vald sitt og eru á leiðinni inn í Þýzka land, þar sem margir okkar sáu styrjöldina hefjast og við mun um fyrr eða síðar sjá henni ljúka .... enda þótt það verði með nokkuð öðrum hætti en Hitler og samherjar hans gerðu ráð fyrir. París myndi vera borg, sem kæmi mjög við sögu, enda þótt styrjöid g.BÍsaði eigi í námunda við hana. Enn einu sinni er Par- ísarborg miðstöð byltingar í líkingu við það, sem var árin 1792, .1830, 1848, oig 1871 . Enn sem fyrr eru dauðadóm- ar upp kveðnir þar í borg og þeim fullnægt. Enn einu sinni er franska þjóðin staðráðin í því að steypa af stóli hinu gamla og spillta. Það er enn of snemmt að spá um það, hversu henni muni tak ast þetta eða hvort henni muni takast það. Mörg íhaldsöfl eru tekin að láta áhrifa sinna gæta í Frakklandi, og það er skylt að minnast þess, að þau me^a sín vissulega mikils. * ENN hefur þeim Charles Maurras og Henri Pétain ekki verið stefnt fyrir lög og dóm, enda þótt frönsku blöðin krefjist þess af festu og ein- beittnii Margar tilraunir hafa verið gerðar til þess að bæla niður byltingu þá, sem um þessar mundir á sér stað í Frakidandi og náði hámarki sínu, þegar Þjóðverjar voru hraktir brott úr Parisarborg. En eigi að síður er orðið „bylt I ing“ á allra vönum og er endur- tekið daglega í blöðum eins og „Figaro,“ sem íhaldsmenn gefa út „PopuIaire,“ sem jafnaðar- menn halda úti og ,,Humanite,“ sem kommúnistar gefa út. Blöðin í Frakklandi eru hin einu málþing þjóðarinnar, sem leitast við að túlka skoðanir heiinar og afstöðu, meðan þing GBEINÞESSI, sem er þýdd úr hinu fræga brezka blaði, Daly Herald, er eftir hinn fræga blaðamann William L. Shiper, sem skrif- aði bóldna Berlínardagbók blaðamanns. Lýsir grein þessi viðhoríimum í Frakk- landi eftir að innrás banda- manna kom til sögu og Þjóð- verjar höfðu verið hraktir þaðan brott. kosningar hafa ekki farið fram. Þau krefjast eigi aðeins ger- breytingar á vettvangi stjórn- mála landsins heldur og rót- tækra breytinga í fjármálum og félagsmálum þjóðarinnar. > Þjóðin trúir því, að þessari nýskipan verði á komið, enda hefur de Gaulle gefið henni fyr irheit um það, að svo skuli Viecnða. Qg hún tienigir mikla von ir við ályktun þings viðnáms- lireyfingarinnar, sem háð var í miarzmáinuði síða&t liðnum, og lagði áherzlu á það, að efnt skyldi til stóriðnaðar í landinu og fjármálum þess komið í ör- uggt horf. Þriðja lýðveldið er úr sögu, .en fjórða lýðveildið «r í fæðingu Bráðabirgðastjórnin lætur jafn- vel þá fyrrverandi þingmenn lýðveldisins, sem voru andvígir Þjóðverjum og Viehystjórninni, sigla sinn sjó. Gömlu flokkarnir eru liðnir undir lok nema samtök jafnaðar manna og kommúnista. Jafnvel þeir áttatíu þingmenn öldunga deildarinnar, sem voru mótfalln ir því hinn 10. júlí árið 1940, að Pétain væri veitt einræðisvald, eru hinir lítillátustu og umburð lyndustu. Þegar þeim reyndist ógerlegt fyrir isköimmiu að kjólsa sextíu fulltrúa úr hópi sínum til þess að sitja hið fyrirhugaða ráðgef- andi þing, fóru frönsku blöðin . hörðum orðum um það og töldu ! það minma á veihleika þanmi, Stem eáhkteamt hafði 'franiska lýð- ve'ldið isivo mjög fyrir stríð.. Franska viðnámshreyfingin mun fara með völd á Frakklandi þar til hinar þrjár milljónir fanga, sem dveljast nú í.Þýzka landi, hverfa heim og efnt verð ur til almennra þingkosninga. Hún mun njóta meirihlutaað- stöðu á ráðgefandi þinginu og verða bakhjarl de Gaulles og bráðabirgðastjórnarinnar. * r| E GAULLE er glæsilegur leiðtogi hins nýja Frakk- lands, og því ber að fagna, að ráðamenn í Washington virðast farnir að gera sér þetta ljóst. Yfirgnæfandi m eirihluti frönsku þjóðarinnar viðurkenn- ir hann. Hann fikrar sig áfram hægt og örugglega, og honum hefur farizt stjórn sín vel úr hendi þessa fyrstu örlagaríku mánuði eftir heimkomuna. Hann hefur ekki gert sér minnsta far um að auka vinsæld ir sínar með leikaraskap og fjálgum ræðum, en það hefur aukið virðingu almennings fyr- ir honum að miklum mun. Það, að bandamenn hafa við- urkennt bráðabirgðastjórn hans, hefur styrkt hann mjög í sessi, sér í lagi hvað varðar stefnu hans í utanríkismálum. Þess var líka fyllsta þörf, því að Frökk- um gramdist það, að þeim skyldi tekki hafa verið boðið Iþátttaka í ráðstefnum bandamanna. Frakkar munu að sjálfsögðu krefjast þess, að þeir hafi nokk- urn íhlutunarrétt um það, hver verði örlög Þýzkalands, enda er það sanngirniskrafa, þegar að því er gætt, hversu það skiptir Frakkland og frönsku þjóðina miklu máli. Og það er fyllsta ástæða til þess að ætla, að tekið verði tillit til þeirra. Þá gefur að skilja, að Frakkar hafi orðið fyrir þungum búsifj- um af völdum fjögurra ára her- náms Þjóðverja og stjórnar Vichymanna og tveggja innrása. Og því er ekki að neita, að þessi fyrsti vetur eftir endurlausn- Framh. á 6. síðu. \ í

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.