Alþýðublaðið - 07.01.1945, Page 5

Alþýðublaðið - 07.01.1945, Page 5
 Sunnndagur 7. janúar 1944. ALÞYSUBLAÐIÐ Þegar Himmler kom í stað Hiflers Skemmtanir fólksins í Reykjavík og utan hennar — Álfabrennumar úr sögunni — Þjóðleg skemmtun, sem menn {sakna — Félagslíf og skemmtanir úti á landi — Gróandi x leikstarfsemi þorpanna og sveitanna — Menn ingarvottur, sem vert er að veita athygli. EE HITTI vin minn ntan af landr í fyrra kvöld og við röbbuðum lengi saman. Ég spurði hann hvort ekki væri efnt til álfa brennu heima hjá honum á gaml- árskvöld eða á þrettandanum eins og í gamla daga. Hann hristi höf- uðið sorgbitinn og svaraði: ,,Nei, blessaður vertu. Þetta er allt bú- ið. Það eru bara eintóm skröll og jass og stundum eru fengnir ein hverjir gaularar úr Reykjavík og þeir koma fullir syngja erlenda fyllirísisslagara- og allir verða fyr ir vonbrigðum.“ Alfabrennurnar fyrrum voru ágætar. Ég hygg að mörgum hafi reynst þær ógleymanlegar og ekki að eins bálkestirnir snark- andi í snjónum undir stjömubjört um himni heldur fyrst og fremst álfarnir, drottningin og kóngur- inn og söngurinn. Það var stemn- ing yfir þessu og kátína og sak- laus gleði. Stundum hefur verið efnt til álfabrennu hér, en það hef ur gengið hálf skrykkjótt. í fyrra hlóð félag köst á íþróttavellin- um, en það varð ekkert meira úr því fyrirtæki og kösturinn stóð á vellinum í margar vikur og það fauk úr honum og hentist um all- ar trissur, ÁLFÁBRÉNNURNAR voru ]pjóð legur siður, sem ekki ætti ’ að leggja niður. Þær voru líka haldn ir í Reykjavík. Nú -eru þær horfn ar, en í staðinn höfum við fengið skrílslæti, skemmdarverk, öskur óhljóð, slagmál, blóðsúthellingar og æði á gamlárskvöld. Öllu fer svo sem fram, eða hvað finst ykk ur um þetta? Skrifið mér um þetta. Mér þætti gaman að heyra álit ykkar. ALÞÝÐUBLAÐIÐ er mikið les- ið í kaupstöðum og kauptúnum landsins, sumstaðar er það fjöl- lesnasta blaðið. Eftirfarandi vil ég segja við lesendur mína þar: Það er ósköp vitlaust að vera að keppa að því að fá dýra skemmtikrafta utan átthaganna, þegar þið efnið til skemmtana. Þessir kraftar eru ákaflega dýrir og oftast nær svara þeir ekki kostnaði. Þið eigið sjálf ir að sjá um allar ykkar skemmt- anir, en það kostar starf, en ein- mitt það starf eykur samheldni ykkar. ÉG VAR fyrir nokkrum árum á árshátíð félags utan Reykjavík- uy. Félagið keypti rándýra skemmtikrafta úr Reykjavík- og það fór á sömu lund og vinur minn lýsti í samtalinu við mig í fyrra kvöld. Ég hitti engan á skemmtuninni, sem ekki var ó- ónægður. Síðan hefur þetta félag ekki keypt aðkomna skemmti- krafta, en sér nú að mestu sjálft um skemmtiatriði sín. Ég hef tek- eftir því undanfarið í þorpum og jafn vel sveitum. Þetta er mjög gott og vonandi er að hefjast í landinu viðtæk leikstarfsemi. Það er menningarvottur. ÉG HYGG LÍKA að þið kom- ist fljótt að raun urn að einmitt svona starf ber mikinn árangur fyrir allt ykkar félagslif og alla ykkar starfsemi. Ég veit að það er stundum erfitt úti á landj að efna til slikrar starfsemi, því að skil- yrði eru oft af skornum skammti, en ég held að unga fólkið geti lagt eitthvað á sig og ég er alveg sannfærður um, að þegar það fer að starfa að þessu, vaknar á- huginn fyrir starfinu og að á- nægjan verði mikil. ÞAÐ HEFUR LÍKA OFT sýnt sig, að víða úti á Iandi, jafnvel þó skilyrði séu erfið, koma fram á- gætir leikkraftar, sem sýna af- rek á leiksviðinu sem jafnast al- veg á við það bezta, isem hinir æfðustu leikara hér sýna. Það fer nefnilega ekki eftir því, hvar menn búa, hvort þeir hafi listar- hæfileika. Ég hef til dæmis heyrt um aldraðan verkamann, sem nú er að leika Sigvalda í ,,Manni og konu“, að hann geri það jafn- vel og Brynjólfur Jóhannes- son gerði hér — og er þá mjög langt til jafnað, pví að það hlut- verk varð snildarverk í meðferð Brynjólfs. Hannes á horninn. Það vakti allskonar orðrcrm, þegar Hitler Jét ekiki til sáai heyra á aifimælisdtegi bjórkjallara- uppþotsins í Múnchen 8. nóvember í haiust, en Himímler las fjórum óögum seinna npp ytfir lýisinigu frá bonum í útvarpið. Þótti það benda til iþeiss, að Gesttapo-boðull'mi væri rtatunveru kiga tekinn við atf ,,foringjanum“ og má vera að töhweitt sé tiQ. í þvi Á myntdinni sést Himonler vera að lesa upp yfírlýsinigiu Hitlers. Emil Ludwig: Hvers vegna Þjóðverjar berjast áfram Það er orðin sígild saga Eina Pepsi alla daga Bezl að auglýsa í Alþýðublaðinu. IYFIRSTANDANDI styrjöld hefir of mikið verið litið á efnislegar hliðar, en of lítið borið á sálfræðilegum sjónar- miðum, varðandi skoðanir manna á orsökum styrjáldar- innar., Árið 1925 spurði ég tvo háttsettustu 'hershöfðingjana við aðalherdeildirnar, hvort væri meira áríðandi í styrjöld: hern aðarútbúnaðurinn, eða siðferðis þrek hermannanna. Báðir þessix menn, — franski marskálkur- inn, Petain og þýzlki hershöfð- inginn von Seeckt, — gáfu sams konar svar: Siðferðisþrek her- mannanna. * í þessari styrjöld er spurn- ingin um það: Hvort verður sigurinn í stríðslok til heiðúrs fyrir Þjóðverja eða Engilsaxa? Englendingar taka lífinu létt,» — Þjóðverjar ekki. í Englandi eru íþróttirnar alþýðlegar; í Þýzkalandi er því ekki þannig farið. Hugtakið, „fair play“ („fallegur léikur“) er jafn rót gróið Englendingum eins og boðorðin tíu, og eins og alrnenn ar umgengnisvenjur. Englend- ingum er sérstaklega annt um heiður sinn; Þjóðverjum miklu síður. í Þýzkalandi hættir mönnum við að víkja heiðar- I leikanum ti'l hliðar, þegar völd- in eru fengin í hendurnar. Vald ið er viðurkennt sem æðsta rétt læti meðal þjóðarinnar. Það má hugsa sér þýzku stétt arskiptingúna líka byggingu píramídans, þar sem hver ein- stakur steinn ber annan uppi en hvílir jafnframt sjálfur á öðrum steini. Þjóðverji á það til að níðast á undirmarmi sín um og hefna sín á honum vegna þess að sá, sem ofar var settur sýndi vald sitt. Þetta er grund vallaratriði þess, að Þýzkaland býr nú við slíkt stjórnskipulag sem raun er á. ^ Ef ríkið sjálft, en ekki neinn sérstakur einstaklingur,' verður fyrir nokkurri minnstu árás, er samstarf milli þjóðanna algjör- lega útilokað. Þegar ég hlustaði á Englendinga ræða um stjórn- arfar sitt, árin áður en stríðið PFTIRFARANDI GREIN er tekin úr enska mán- aðarritinu „World Digest“, en höfundur hennar er hinn ktmni æfisagnahöfundur Em- il Ludwig, sem hefir ritað æfisögur Beethowens, Roose welts Bandaríkjaforseta, Na- polenons, Lincolns og marg ar fleiri. brauzt út, komst ég að raun um það, að sumir þeirra voru með þvi og aðrir á móti því, en eng ,um fannst nauðsyn bera til þess að taka sérstakan málstað rík- isins eða hlífa forsætisráðherr anum við frjálslegri gagnrýni. I Þýzkalandi fer strax að síga Jbrúnin á öllum þorra manna, ef einhver leggur misjafnt orð í garð valdhafanna. Fólkið snýr sér undan eða glápir forviða yfir svo „skaðlegri framkomu." Þar sem sérhver embættis- maður í Þýzkalandi hefir sinn sérstaka einkennisbúning, leið- ir það af sjálfu sér ,að hver ein asti einkennisklæddur maður er álitinn réttlætið sjálft, holdi klætt, í augum alls almennings. Ekkert hefir fram að* 1 þessu ver ið eðlilegra en það, að óbreytt ur hermaður í einkennisbún- ingi léki sér að því að ganga eftir miðjum gangbrautum, — fólk vék úr vegi eins og þetta væri sjálfsagður hlutur. Fræg ur prófessor, sem mætti tveim hermönnum, myndi taka á sig allverulegan krók til þess að gefa þeim pláss til þess að kom ast framhjá sér, þar sem þeir gengju með einglyrni og skrölt andi sverð við hlið eftir gang- stéttinni. Þannig var þetta einn ig. Þegar ég var unglingm- fyr ir um hálfri öld síðan, sömu- leiðis á stjórnarárum lýðveldis ins, — og þannig er það nú í ríki Hitlers. Af þessari ástæðu eru titlar og sæmdarmerki svo mikils virði í Þýzkalandi, — en oft er það, að Þjóðverjar hljóta nafn bætur án mikilla verðleika og verða miklir af því meðal þjóðar sinnar. Ef dæma má eftir því — sem ég bezt fæ séð á mynd um frá fremstu víglímmni, get ég ekki betur séð, en að brezk ir hershöfðingjar beri aldrei heiðursmerki sín í orustum. Við sjáum myndir af Alexander og Montgomery þar sem þeir eru f brunleitum, þunnum Skyrt- um án þess að nokkuir merki sjáist um virðingarstöður þeirra. í Rússlandi hafa allmargix þýzk ir hershöfðingjar verið hand- teknir, alþaktir heiðursmerkj ,um, og hershöfðinginn sem gafst upp við töku Parísarborgar, kom með öll heiðursmerki sín framan á brjóstinu, svo að naumast sást í hann fyrir orð- um. Slíkur mismunur á þjóðum, eins og fram kemur í þessu, er annar heldur en á yfirborðinu. Hann á svo djúpar rætur með- al Þjóðverja, að þeir skera sig úr hópi annarra þjóða og á jafnvel sinn þátt í því, að stríð ið brauat út. Hit'ler vann ekki hugi Þjóð- verja eingöngu með því, að láta þá hafa nóg að gera og hærra kaup; hann blés þeim í brjóst uppspunanum um, hinn „auð mýkjandi þvingunar-samning í Versölum,“ og vakti áhuga með al fólksins í þá átt, að hefna sín með vopnunum einum. Hann beindi metnaðarfýsn Þjóðverja inn á nýjar brautir. Meðan virð ingarsætið hlotnaðist íyrir skrautlegan einkennisbúning, titla og orður, þurfti alþýða manna sömuleiðis eitthvað þvi skylt til þess að vera ánægð með sinn hlut. * Hvað Þjóðverja snertír hefir þessi styrjöld allmikið mætt á þjóðinni, — borgurunum, breytt um sem óbreyttum. Þeir voru undir það búnir hver og einn einstaklingur meðal heildarinn ar, að endurheimta fyrri vö-d og virðingu föðurlandsins. Naz istaflokkinn fylltu, til að byrja Fra. á 7. aáða.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.