Alþýðublaðið - 16.02.1945, Qupperneq 7
Föstudagur 16. íebrúar 1945
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Veltuskattsfrumvarpið
Bœrinn í dag.
Næturvörður er í Læknavarð-
stöfunrii , sími 5Ö30.
NSeturvörður er í Lýfjabúðinni
Iðunni.
Næturakstur ,annast B. S. í.
sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur
19.00) Þýzkukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
20.00 Fréttir.
20.25 Útvarpssagan: „Kotbýlið
, og kornsléttan“ eftir Jo-
hann Bojer, XIV. (Helgi
Hjörvar).
21.00 Strdkkvartett útvarpsins:
Kvartett í Es-dúr eftir
Sehubert.
21.15 Erindi: Bindindismálin og
bindindissýning Stórstúk-
unnar (Ingmar Jóhann-
esson kennari).
21.40 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (dr. Björn Sig-
fússon).
22.00 Fréttir.
22.05 Symfóníutónleikar (plötur):
a) Symfónía nr. 5 eftir
Sibélius. b) Poéme d’ ex-
tase eftir Scriabine. c) Pí-
anókonsert eftir Szostakov
ice.
23.00 Dagskrárlok.
Blaðið Akranes.
1. tölublað þessa árs er nýkomið
út. Af efni þess má nefna: Sigrar
án sára, Dagur er kominn um
allt loft, Mál er að rísa á fætur,
Heimilið IV., Goðafossslysið,
kvæði eftir Hallstein Ólafsson,
Ari á Höfðanum (kveðja frá vini),
Á jólunum 1944, kvæði eftir Sn.
J. Aðfangadagskvöld, eftir G. Kald
bak, Heima og heiman, Geir Zo-
ega (?mmuiýýýf), T’ekið u>ndir
Umsagnir um hættur, Annáll Akra
nes o. fl.
Fæðingargjafasjóður íslands.
Séra Vilhjálmur Briem hefur
beðið blaðið að geta þess, sökum
fyrirspurna,' sem honum hafa bor-
izt, að öll dagblöðin í Reykjavík
hafi sýnt sjóðnum þá vinsemd að
samþykkja að taka fyrst um sinn
við framlögum til hans. Skrifstofa
biskups tekur einnig við fjárfram
lögum, enda annast hún reiknings
hald sjóðsins fyrir hönd þjóðkirk;
unnar. — Samkvæmt þessu tekur
Alþýðublaðið fúslega við fjárgjöf
um til Fæðingargjafasjóðsins.
Kvenfélagskonur í HaHgrímssókn
Þar eð sala happdrættismiða
hefur gengið’svel, hefur nefndin í
hyggju, að dráttur fari fram fyrir
afmælið. Eru konur því vinsam-
legast beðnar að gera skil á seld-
um miðum hið allra fyrsta til frú
Halldóru Ólafsdóttur, Grettisgötu
26, frú Önnu Ágústsdóttur, Bjarn
arstíg 9 og frú Jónínu Guðmunds
dóttur, Barónsstíg 80.
Berklaskoðunin.
Berklaskoðunin heldur áfram og
voru í gær skoðaðir íbúar við
Klapparstíg og Frakkastíg, sam-
tals 344 manns. í dag verða skoð-
aðir íbúar þessara gatna: Skúla-
götu, Sölvhólsgötu, Traðarkots-
sunds, Vatnsstígs, Veghúsastígs og
Vitastígs.
í dag kl. 3.30
verður haldin einkasýning í
Tjarnarbíó á kvikmynd tekinni í
Jan Mayen. Kvikmyndin er tekin
á vegum upplýsingadeildar norsku
stjórnarinnar í London. Állir
Norðmenn í Reykjavík eru vel-
komnir á sýriinguna. Mynd þessi
er frekar stutt, tekur á að gizka
20 mínútur. Síðar mun hún verða
sýnd fyrir almenning í Tjarnar-
bíó.
Frh. af 2. síðu.
skattaframtal. Minnti hann á
óað, að hann hefði við fyrstu
umræðu málsins lagt áherzlu á
Dað, að hann teldi að leggja
oæri skatt þennan á veltu árs-
ins 1944 en ekki ársins 1945 og
hefði sú skoð'un sín í engu
breytzt heldur þvert á móti.
Kvað hann fylgi sitt við frum-
varpið fara eftir því, hvort
breytingartillögur sínar og
Kristins Andréssonar næðu
fram að ganga. Færði Haraldur
þessu næst rök að því, hvers
vegna hann teldi þetta atriði
skipta svo miklu máli. Hann
þenti á það, að því aðeins væri
auðið að tryggia það, að skatt
urinn kæmi ekki fram sem neyt
endaskattur, að hann yrði lagð
ur á veltu liðins árs. En þetta
taldi hann veigamikla ástæðu
fyrir því að miða bæri fremur
við veltu liðins árs.en þess, sem
nu er. Benti Haraldur á það, að
skatturinn á söluverð fisks er-
landis hefði verið lagður á veltu
ársjns 1944. Einnig minnti hann
á það, að tekjuskatturinn hefði
hin síðari ár verið eftirskattur,
svo og útsvörin hér í Reykja-
vík. Taldi hann raunar þvi ekki
að neita, að eftirskattar væru
fjarri því æskilegir, en þó væri
þeirri skattaaðferð iðulega
fylgt og væri sízt ástæða að
víkja frá henni, þegar á væri
lagður skattur, sem aðeins ætti
að gilda eitt' ár. Einnig fæi’ði
Haraldur rök að því, að auð-
veldara yrði að fyrirbyggja að
menn skytust undan skattinum,'
svo og að gera sér grein fyrir,
hversu miklar tekjur myndu af
honum fást, ef miðað væri við
liðið ár. Haraldur sagði, að sú
skoðun hefði komið fram að erf
iðara væri að veita undanþágur
frá skattinum, ef miðað yrði við
veltu ársins 1944 í stað 1945.
Þetta kvaðst hann þó ekki geta
fallizt á, því að það væri sízt
verri aðstaða til undanþága, ef
um væri að ræða veltu, sem þeg
ar væri fyrir hendi en veltu, er
ekki yrði gerð uppvfyrr en að
ári. Einnig taldi hann óskyn-
samlegt að miða skattinn við
1945 með það fyrir augum, að
fyrirtækjum gæfist þá tæki-
færi til þess að breyta rekst-
ursfyrirkomulagi sínu vegna
skattsins, því að það miðaði
einmitt til þess að gefa
skattþegnunum færi á því að
komast hjá skattinum. Taldi
Haraldur eðli skattsins fara eft
ir því, hvort hann yrði lagður á
veltu ársins 1944 eða 1945, þar
sem tryggt mætti teljast að
hann færðist ekki á neytendur,
ef miðað væri við liðið ár en sú
trygging væri hins vegar ekki
fyrir hendi, ef að hinu ráðinu
yrði 'horfið og kvað fylgi sitt vijð
frumvarpið því vera undir því
komið, hvor stefnan sigraði við
afgreiðslu máisins.
Magnús Jónsson gerði grein
fyrir skoðun þeirra, sem vilja
að skatturinn sé miðaður við
veltu ársins 1945 en ekki 1944.
— Voru röksemdir hans hinar
sömu og fram komu af hálfu
fjármálaráðherra við fyrstu um
ræðu málsins. Taldi Magnús
eftirskatta ófyrirgefanlegt sið-
leysi, og kvaðst hann harma það
mjög, að skatturinn á söluverð
fisks erlendis} s'kyldi hafa verið
lagður á veltu liðins árs. Einn
ig taldi hann það skipta miklu
máli, að fyrirtækjum gæfist
kostur á að breyta rekstri sín-
um vegna skatts þessa.
Auk þessara þingmanna
kvöddu sér hljóðs þeir (fjsii
Jónsson og Bernharð Stefáns-
son öðru sinni. Gísli mælti því
í mót af miklu kappi, áð skatt-
urinn yrði miðaður við veltu
liðins árs og Bernharð endurtók
enn einu sinni fyrri ummæli
sín um skattinn.
Bernharð Stefánsson hafði
gert' þá breytingartillögur við
frumvarpið, að skatturinn
skyldi ekki' tekinn af andvirði
mjólkur og mjólkurafurða,
kjöts, nýs, frosins, reykts og
saltaðs, fisks, nýs, frosins og
saltaðs, að síld meðtalinni:, korn
vöru alls konar, malaðrar og
ómalaðrar og byggingarefnis
ailskonar. Var sú breytingartil
laga felld með eliefu atkv. gegn
fjórum, en breytingartillaga
Haraldar og Kristins tekinn aft
ur til þriðju umræðu og málinu
því næst vísað til þriðju um-
ræðu með ellefu atkv. gegn
fjórum.
KðmmýnisSar í ntikl-
EHÍMÍIiiia í Sjó-
mannafélagi ísa-
fjarðar
AÐALFUNDUR Sjómannafé
lags ísafjarðar var haldinn
í gær. Við stjórnarkosningu í
félaginu komu fram tveir list-
ar: A-listi, studdur af Alþýðu-
flokksmönnum, og B-listi, studd
ur af kommúnistum og íhalds-
mönnum.
Úrslit kosninganna urðu þau,
að A-listinn hlaut 83 atkvæði,
en B-listinn 38.
A B-listanum var í formanns
sæti Árni Magnússon, sem
kunnur er meðal fulltrúanna,
sem varu á Alþýðusambands-
þinginu.
Stjórn Sjómannafélagsins
skipa nú þessir menn:
Formaður: Jón H. Guðmunds
son.
Varaformaður: Bjarni Guðna
son.
Ritari: Guðmundur Pálsson.
Fjármálaritari: Steinn Guð-
mundsson.
Gjaldkeri: Ólafur Þórðarson
Meðstjórnandi: Marías Þor-
valdsson.
Þess skal getið, að í Vél-
stjórafélagi ísafjarðár verður
sama stjórn og var sl. ár, en
þar er kommúnisti í formanns
sæti. Þegar stjórnarkosning fór
fram í félaginu Voru bátar á
sjó og þarmeð flestallir starf-
andi vélstjórar.
Löp siaðíesf af forsefa
Islands í gær
P ORSETI ÍSLANDS stað
festi á ríkisráðsfundi í
Reykjavík í gær 15. febrúar
1945, eftirgreind lög, sem Al-
þingi hefur nýlega samþykkt:
1. Lög um lendiniganbætur í
Grindavók.
2. Lög um stofnun. búnaðar-
málasjóðs.
3. Fjárau'kalög fyrir árið 194.1
4. Lög um breyting á lögium
nr. 101, 30. desemher 1943, um
ilífeyrisisglóð sitarfísmanna ríkis-
ims.
5. Lög um breyting á lögum
nr. 49 .1942 ta breyting á lög-
um nr. 75, 21. jún!í 1921, um
stimpilgjöld.
aauammnsmían
Jarðarför konunnar minnar.
Steinþéru Þ©rstemsdéttur,
febrúar. Hefst 'kl. 13 með bæn að
fer fram, laugardaginn 17
heimili okkar, Unnarstíg 3, Hafnarfirði.
Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna og barnabarna.
Sigurjón Arnlaugsson.
Hér með tilkynnist að systir okkar,
Alsifeiörg Hristiáusdéttir frá llósavík
andaðist að Land.akotsspítala 15. þ. m.
Heígi Kristjánsson. Númi Kristjánsson. Stefán Kristjánsson.
Fjárhagsáæffun Hafn-
arffarðar
i Frh. af 2. síðu.
frá bænum, og eru framikvæmd
irnar því í höndium þesisara að-
ila.
Til framkvæmda í Krísuvík
leggur bærinn fram 200 þús.
krónur. Er búið að kauga girð
ingarefni og mun byrjað á því
að girða landið í vor og það
svo tekið til ræktunar strax á
eftir.
í tekjulið fjárhagsáætlunar-
innar er gert ráð fyrir sömu
upphæð í útsvarsg rei ð.slum og
í fyrra, og koma útsvörin því
ekki til með að 'hækka neitt í
Hafnarfirði.
Skulu hér nefndir 'helztu
gjaldaliðir fjárhagsáætlúnap-
innar.
Stjórn kaupstaðarins kr.
1.818.50.00.
Barnaskólinn kr. 185.900.00.
Flenzborgarskólinn kr. 143.
700.00.
Til íþróttamála kr. 202.400.00
Löggæzla kr. 133.500,00.
Alþýðutryggingar kr. 335.
000.00.
Framfærslumál og Elliheim-
ilið kr. 366.100.00.
Til barnaskó 1 abvggingar kr.
200.000.00. Áður veitt til þeirra
framkvæmda kr. 200.000.00.
Til hafnargerðar kr. 400.000.
00. Áður veittar kr. 200.000.00.
Til framkvæmda í Krísuvík
kr. 200.000.00. Áður veittar kr.
100.000.00.
Til húsmæðraskóla'byggingar
kr. 50.000.00. Áður veittar kr.
50.000.00.
Til byggingar elliheimilis,
fæðingardeildar og sóttvarnar-
deildar kr. 100.000.00. Áður
veittar til þessarar byggingar
kr. 100.000.00, og auk þess hef
ir bæjarstjórn samþykkt að
verja ágóðanum af Bæjarbíó-
inru til þessarar byggingar eins
oig áðiur segir.
Þá er gert ráð fyrir tekjuaf-
gangi kr. 200.000.00.
Helztu tekjuliðir eru: Stríðs
gróðaskattur kr. 700.000.00 og
útsvör kr. 2.358.000.00, og er
það sama upphæð og í fyrra.
Framhald af 2. síðu.
í fyrra var keppt um lítinn
bikar, sem vannst til fuillrar
eignar á því móti, en þá bar
Menntaskólinn sigur af hólmi.
Áður hafði háskólinn unnið mót
ið þrisvar sinnum og Iðnskólinn
einnig þrisvar sinnum. og hlot-
ið sinn bikarinn hvor.
Engu er hægt að spá um úr-
slit í mótinu að þessu sinni, en
hmsvegar má búast við harðri
en skemmtilegri keppni.
Kviknar í úlfrá gléSar-
keri , |
IFYRRADAG klukkan að
byrja að ganga sjö var
slökkviliðið kvatt að Lindar-i
götu 37, en þar hafði kviknað
í út frá rafmagnsáhaldi, sem
stóð á gólfinu 'í herbergi á efri
hæð hússins, en konan sem bjó
í herberginu hafði hrugðið sér
frá, en skilið eftir straum á
áhaldinu. /
Þegar slökfcviliðið kom á vett
vang, var herbergið orðið fullt
af reyk, og legubekkur, sem
gjióð í námunda við áhald!-
ið, sem íkrveiikíunni olli, var all
mikið brunninn og ennfremur
nokikiuð af fötum sem hékk á
wagg Syrr ófan legubdkikinn.
Tiókist isiliöikikwiliðinu fljótt að
ráða niðiuriLögum eldisins ag
engar skemmdir urðu nema af
vatni og reyk.
Aðalfundur Hilara-
svefnaféfags Reykja
víkir
NÝLEGA hélt Málarasveina-
félag Reykjavíkur aðal-
fund sinn. í stjórn félagsins
voru kosnir þessir menn:
Guðjón Kristinsson, formað-
úr, Ágúst Erlendsson, varafor-
maður, Steingrímur Sigurðs-
son, ritari og Helgi Hafliða-
son, gjaldkeri. Aðstoðarritari
var kosin Guðmundur Sveinn
Mósesson. Varamenn voru kosni
ir þeir, Sveinn Sigurðsson og •
Ólafur Jónsson.
Gunnar L. Þorsteinsson, sem
verið hefur formaður félagsins
baðst undan endurkosningu.
Aæifstapr,
sem hirtast ©iga i
AlþýðuhSaðicu,
verða að
fíverfisgötu)
komnar íil Akgi'ýi-
inraskrifstofuimís'í
í Alþýðuhúsinu,
i
| %rSr kí. 1 að kvoIdL