Alþýðublaðið - 13.03.1945, Page 2
t*V>
ALÞÝÐUBLAPtÐ
Þriðjudagtir 13. marz 1945
Viðfal við skipbrotsmennina:
Dettifoss sökk á rúmleoa
Margir hásefanna fórusf í borðsal sfrax og
Merki fhorvaldsen-
félagsins komið á
1 markaðinn
Af óviðráðanlegum á-
STÆÐUM var .ekki Jfcægt
að koma merkj um Thorvald-
.sensfélagsins út fyrir jolin sið-
ustu eins og ætlað var, sökum
þess að merkin voru prentuð í
Englandi, en sendingin kom
ekki frarn,
Vkr því prentað nýtt upplag
af merkjum og eru þau nú kom
in. fainggð til landsins fyrir
skömmu.
Þólt iiðnír séu náíega þrír
jnánuðir frá jólum, þykir rétt
að vekja athygli manna á merkj
unum. Það sem einkanlega gef
ur merkinu gildi, er mynd af
forseta íslands, á tilefni af lýð-
veldisstofnuninni og kjöri fains
fyrsta forseta. Gaf forsetinn
góðfúslega leyfi sitt fyrir því,
að mynd hans yrði prentuð á
merkið.. En umgerðina um mynd
ina hefur Jörundur Pálsson
teiknað af smekkvísi.
Verið er að afgreiða merkin
út á land, en í Reykjavík eru |
þau seld á Thorvaldsenbazarn
um og i pósthúsinu.
Vænta má þess, að barna-
iheimili Thorvaldsensfélagsins
verði reist strax að stríðinu
loknu, ef því verður vel til
fanga þangað til.
í haust á félagið 70 ára af-
mæli og mun d því sambandi
gera sérstakar ráðstafanir til
þess að afla fé í barnauppeldis
sjóðinn.
sprengingin varð
———--—OÞ- —.
Frásögn skipsíjóra, annars stýrimanns og
tveggja farþega
/
DETTIFOSS sökk á rúmum 5 mínútum. Tundurskeyfi
mun hafa hæft skipið klukkan 8,30 um morguniiin,,
en skipið sökk klukkan tæplega 8,35. Sprengingin varð
frammi í skipinu og er talið að allmargir hásetanna sem
fórust hafi bá begar látist, en beir voru staddir í borðsal
sínum, enda var þetta matmálstími þeirra. Þeir, sem af
komust björguðust í skipsbátinn, sem var bakborðsmegin
og komust 13 í hann og á stærsta flekann, en á hann kom-
ust 17 manns Um klukkustund leið frá bví að skipið sökk
og þar til skipbrotsmönnunum var bjargað.
Þessar upplýsingar fékk Alþýðublaðið hjá .fjórum
skipbrotsmannanna: Jónasi Böðvarssyni, skipsstjóra, Ólafi
Tómassyni, öðrum stýrimanni og farþegunum Lárusi Bjarna
isyni og Theódór Rósantssyni. Eru þeir nýkomnir til lanas-
ms.
FrásÖgií Jéhasar Böðvarssonar skipsljéra
Síðasfa hlufa skíða-
mófsins fresfað í
fyrradag
SÍÐAMÓTI REYKJAVÍK-
UR, sem Ijúka átti í fyrra-
dag varð að fresta sökum rign-
ingarinnar, sem var um hel/i;
ina.
Margt fólk var þó uppi við
skálana, en skíðafæri var mjög
vont og varð því sama og ekkert
úr því að fólk færi á skíði. Var
krapaelgurinn mjög mikill og
víða höfðu safnast fyrir heil
stöðuvötn. Svo var t. d. í Jósefs
dal, þar sem mótið átti að fara
fram.
JÓNAS BÖÐVARSSON, sem
var skipstjóri á Dettifossi
síðustu ferð hans, segir svo frá:
„Ég hygg að sprengingin hafi
orðið í skipinu kl. 8,29 um morg
uninn. Eg var þá staddur uppi í
brú ásamt Davíð fyrsta stýri-
manni og tveimur hásetum. Um
leið og sprengingin varð, þu'tum
við af brúnni og niður. Ég hygg
að frá þvi að skipið fékk í sig
tundurskeytið, ief það hefir ver
ið tundurskeyti, en það lenti í
því að framan, og þar til það
sökk, hafi liðið um 5 mínútur.
Ég fór strax á bátadekkið. Þar
voru tveir bátar og það varð
fljótt ljóst að ekki myhdi verða
hægt að losa þá, þar sem sldp
ið hallaðist svo mjög bakborðs
megin. Einn bátur var því eftir
bakborðsmegin og tókst að losa
hann og í hann björguðust 13
manns. Þrír flekar voru á skip
inu. Einn þeirra fór strax við
sprenginguna, annar fór niður
með skipinu, en fólk komst á
stærsta flekann og á honum var
17 manns. Var ég meðal þeirra.
Sjónleikurinn Álfhóll
verður sýndur. í næst sá^Sasta
sinn annað kvöld kl. 8. Aðsókn að
leiknum hefur verið góð, en þar
sem æfingum er nú svo langt kom
ið á „Kaupmanninum í Feneyj-
um“ eftir Shakespeare, að bráðum
verður farið að sýna leikinn, verð
úr ekki unnt að hafa fleira sýning
ar á Álfhól.
Frá Álþýðuffokksfé-
lagi Reykjavíkur
¥ T PPÁSTUNGUR hverfis
stjórafundar um stjórn
arkjör í Afþýðuflokksfélagi
Reykjavíkur liggja frami í
skrifstofu Alþýðuflokksfé-
lagsins í Alþýðuhúsinu, fé-
lagsmönnum til sýnis.
Frestur til að stinga upp
á mönntun til viðbótar er úti,
þriðjudaginn 20. marz.
Ég hygg að u. þ. b, klukkutími
hafi íiðið frá þvi að sprenging-
in varð í skipinu og þar til okk
ur var bjargað. Eipn þeirra, er
var i brúnni með mér bjargað
ist, en tveir hurfu. Ástæðan fyr
ir þvi að svo margir hásetar
fórust mun hafa verið sú að
þeir hafi verið að bo'rða í mat-
salnum fram á, enda var þetta .
um matmálstíma þeirra. Háseti, '
sem var í klefa sínum fram á
komst af. Veður var ekki slæmt,
er þessi atburður varð, dálítill
vindur, en hann hvessti nokk-
uð meðan við vorum í sjónum,
á flekunum og í ibátunum. Ég
hygg að sumir faafi farizt vegna
þess, að þeir hafi kastað sér af
skipinu of snemma. Fólk mun
hafa óttast, að skipinu myndi
hvolfa, enda hallaðist það mjög
fljótlega.
Ég vil biðja vður að færa öll
um þeim þakkir sem hjálpuðu
okkur og sýndu okkur alúð,
skipverjunum, sem björguðu
okkur, brezka rauða krossinum
og öðrum, sem veittu okkur
hjálp og aðstoð.“
Frásögn Ólafs Tómassonar annars sfýrlmanns
O
frá:
LAFUR TÓMASSON ann-
ar stýrimaður skýrir svo
„Klukkan tæplega 8.30 um
morguninn var ég staddur í
„messanum11 og var að borða,
en ég átti áð fara að taka vakt.,
Þegar ég hafði lokið við það
tók! ég upp úrið mitt og leit á
það og vantaði þá klukkuna 1
minútu í hálf níu. Ég var að
stinga úrinu í vasann, en stóð
upp um leið, er ægileg spreng-
ing kvað við og skipið eins og
hentist til á bakborða. Með mér
i „messanum“ voru nokkrir
menn og þutum við allir út. Ég
faentist inn yfir vélarristina og
sá ég þá að menn voru að koma
upp úr vélarrúminu, voru þeir
tveir saman. Annar þeirra hafði
verið í geymslurúmi og hurðin
lokast að því, en hann barið
hana upp innan frá og komist
út. Vélstjórinn Ásgeir Magnús
son haifði þá stöðvað vélarnar í
einni svipan. Ég hljóp inn í
ganginn og 'tók belti mitt, en
síðan hentist ég upp. Ég bjóst
við að ég myndi hitta þar menn
úr lúkarnum, en 'þeir voru þar
ekki. Þá fvrst sá ég að sprengj-
an hafði hæft skipið að fram-
an, því að þar var gufa og sjó-
gangur. Ég mætti engum stjórn
borðsmegin. Fleki, sem þarna
átti að vera var horfinn. Hann
hafði bersýnilega losnað frá
skipinu við sprenginguna. Ég
hljóp nú upp á bátadekkið og
að bátnum mínum. Kann var
heill, en hann lá þannig, að ég
sá að ekki myndi þýða að reyna
að losa hann. Þarna voru fimm
menn mættir og sagði ég þeim
að ekki væri gerlegt að losa
bátinn. Ég bað þá því að koma
að öðrum bát og hljóp þangað.
Um leið sá ég að Davíð fyrsti
stýrimaður var kominn að 3.
bát og fólk fylgdi honum þang
að. Meðan ég var að reyna að
losa minn bát var ég að kalla
til fólks, en hávaði var mjög
mikill og skipið var á töluverðu
skriði. Nú komu menn til mín
og við hjálpuðumst að að losa
bátinn, en skipið hal'laðist æ
meira á þá hliðina. Við óttuð-
umst að það myndi leggjast svo
mjög, að ekki yrði við bátinn
ráðið. Ég greip þvá hnífinn minn
og ætlaði að skera á blokkina,
en á sama augnabliki fellur
annar endi bátsins í sjóinn, svo
að hann hékk uppi á öðrum end
anum. Eftir augnablik tókst
okkur þó að losa þann enda svo
að báturinn rann niður, en um
leið sló honum út frá skipshlið
inni vegna skriðsins sem var á
skipinu. Um þetta leyti sá ég
íhvar skipstjórinn þaut •milli
manna og skipaði fyrir. Allir
voru mjög rólegir og hver hjálp
aði öðrum. Engin örvænting eða
æði sást á neinum. Stúlka stóð
skammt frá mér. Hún kallaði
til min rólegri röddu: „Hvað á
ég nú að gera, Óli?“ Ég bað
hana að fylgja mér i sjóinn, því
að nú skyldum við kasta okkur
og freista að ná bátnum. Svo
kastaði ég mér út. Er mér
skaut upp var ég skammt frá
bátnum. Ég svipaðist um eftir
stúlkunni og sá að hún hafði
lent énn lengra frá bátnum, en
þetta stafaði af því að skrið
var á skipinu. Ég synti nú að
bátnum, en straumþunginn bar
hann jafnframt að skipinu og
menn voru að stökkva í hann.
Ég náði föstu taki á borðstokkn
um og i sömu svifum er gripið
i mig styrkri hendi og ég hend
ist upp í bátinn. Það var styrk
hönd, sem hafði gripið i mig,
hönd Geirs Geirssonar fjórða
vélstjóra. Eftir skamma stund
náðum við fleirum úr sjónum,
en stúlkan komst á flekann.
Skipið skreið nú áfram í boga
til bakborða og stundum var
báíurinn alveg upp við það. Eitt
sinn lgnti hann undir bátaugl-
unni, hún lagðist alveg yfir
hann svo að ekki munaði nema
feti. Við bjuggumst alveg við
að hann myndi festast i hana,
og þá hefði ekki verið að sökum
að spyrja, en það vildi okkur
lil lífs, að hún náði faonum ekki
alveg, svo að hann slapp. Við
ýttum okkur nú frá eins og við
gátum, en þó ekki of langt, ef
ske kynni, að enn' væru ein-
hverjir um borð, sem við gæt-
um bjargað. Það reyndist líka
Framhald á 7. síðu.
Aðalfundur Skogrækf-
arfélags íslands |
A ÐALFUNDUR ,Skógrækt-
arfélags íslands var hald-
inn í gær. Til viðbótar því sem
skýrt var frá í blaðinu á sunnu
daginn um Landgræðslusjóð,
var á fundinum lagt fram frunt
varp að skipulagsskrá sjóðsins.,
Urðu nokkrar umræður um
frumvarpið og bornar voru fram
við það breytingartiilögur.
Þar sem ekki vannst tími til
að ganga frá samþykkt frum-
varpsins var ákveðið að hafa
tvær umræður um það, og mun
sú síðari hafa farið fram í gær-
kveldi.
Eftir að frumvarpið að skipu-
lagsskrá Landgræðslusjóðsins
verður samþykkt verður leitaÖ;
staðfestingar forseta íslands á
henni.
Önnur mál, sem komu fyxir
fundinn voru fyrirhugaðar skipu
lagsbreytingar á Skógræktarfé-
lagi íslands. Var það mál falið
5 manna nefnd, sem kosin var
á fundinum, og skila skal áliti
fyrir næsta aðalfund. í nefnd-
inni eiga sæti þessir menn: Há-
kon Bjarnason, skógræktarstj.,
Ingvar Gunnarsson, Hafnar-
firði, Jón Pálmason, alþm.f
Helgi Tómasson, yfirlæknir og
Hermann Jónasson, alþm.
Á aðalfundinum voru enn-
fremur samþ. 2 áskoranir, önn-
ur til bæjarstjórnar Reykjavík
ur, um að hraða framkvæmd-
um í Heiðmörk, hinu fyrir-
hugaða skemmtisvæði Reykvík
inga, og hin til fjárveitinga-
valdsins um, að fjárveitingar
til skógræktar yrðu færðar í það
horf, að meira væri hægt að
gera fyrir féð, sem fengist en
hægt var fyrir það fé, sem
fékkst fyrir stríð til þessara
nota.
Úr stjórninni átti að ganga
emn maður, Guðbr. Magnússon
forstjóri, en hann var endur-
kosinn.
Eldur í grafvé!
IFYRRAKVÖLD kom upp
eldur í grafvél hafnarinnar7
þar sem hún liggur uppi í
Slipp.
Þegar slökkviliðið kom á vett
vang, var allmíkill eldur í klef-
um grafvélarinnar, en slökkvi-
liðinu tókst fljótt að kæfa hann.
Þó urðu skemmdirnar á graf-
vélinni töluvert miklar, því eld
urinn var órðinn svo magnaður,
er slökkviliðið kom.
Ekki er ennþá vitað um or-
sök að upptökum eldsins.
„Edda" nýft yflniblaS
a
SÍDASTLIÐINN laugardag
hóf nýtt vikublað göngu
‘sína á Akureyri. Nefnist blað
þetta „Edda“ og er aðallega ætl
að að flytja greinar um bók-
menntir og bókagerð á íslandi.
í þessu fyrsta blaði birtast mynd
ir af nokkrum rithöíundum og
bókaútgefendum.
Ritstjóri blaðsins er Árni
Bjarnason, Akureyri.
Félag Suðui'»esjamarma
hefur frestað skemmtifundi sín-
um, sem átti að halda þann 14.
marz, til miðvikudagsins 21. marz
kl. 9 síðdegis.