Alþýðublaðið - 12.04.1945, Qupperneq 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Fimmtudagnr 12 ágúst 1945
Bandarfkjamenn komnir a$ Saxelfi norðan
mmí
Mynd þessi er af þýzka vasaorrustuskipinu „Admiral Soheer“,
sem nú hafir verið sökkt í loftáms. Yfir sj'óliðunum, sem sjást á
afturþilfari skipsins, gína fallhyssukjaftarnir, með 11 þumlunga
hlaupvádd. Skip þetta var mjög hraðskreitt og þótti hin mesta
dvergasmíð. Það hét í höfuðið á flotaforingjanum, sem stjórn-
aði þýzka flotanum í sjóorrustunni miklu við Jótland í fyrri
heimsstyrjöldinni.
Ætla Þjóðverjar að verjast til þraut-
ar í Suður-Þýzkalandi og Austurríki?
Samsæri innan þýika fiughersins — 120
fliiglifósformgjar lífláfnir
ÞESS var getið í fréttum frá London í gærkveldi, að
margt benti til þess, að Þjóðverjar hafi í hyggju að
verjast til þrautar í Bajaraötpum eða Austurríki, einkum í
grennd við Salzburg. FÍugmenn bandamanna segja, að
feikná langar bifreiðalestir' hafi sézit á vegum í áttina til
Berchtesgaden, bústaðar Hitlers, og fregnum frá Svis’s ber
saman um, að þar haf i -verið safnað saman ógrynni hergagna
og vista. !
Eip aðeins 95 kílómetra ó-
farna þar fil Berlínar
Amerískar hersveitir komnar inn í Braun-
schweig, Bretar við úíhverfi Bremen og
Patton hefir iekið Koburg
O EINT í GÆRKVELDI var skýrt frá því í Lundúnaút-
^ varpinu, að hersveitir úr 9. her Simpsons væru aðeins
1—2 km. frá Saxelfi, norðan Magdeburg og var búizt við, að
þær kæmust að fljótinu í hótt. Hafa hersveitir þessar sótt
fram um 80 km. (austur fyrir Braunschweig, en þar geisa nú
götubardagar, en fátt verið isagt af ferðum þeirra fyrr en
nú. Þaðan eru ekki nema iim 95 km. til Berlínar og rúmlega
150 km. til framsveita jZhukovs.
Hersveitir Montgomerys sækja að Bremen og voru er
síðast fréttist um 6 km. frá borginni. Hersveitir, sem sækja
að Bremen úr suðri og suðaustri, voru í gærkveldi ekki nema
um 85 bm. frá Hamborg. Brezki heririn, sem sækir að Emd-
en, átti í gærkveldi um 19 km. ófarna til Norðursjávar.
Amerískt lið, sem flutt var loftleiðis hefur nú EsSen í Ruhr
algerlega á sínu valdi.
Þriðji her Pattons sækir áfram iaf miklum hraða, en af ör-
yggisástæðum segir fátt af ferðum hans. Vitað er, að hann sækir
áfram í þremur aneginfylkingum og miðar þeim öllum vel áfram.
Koburg er á valdi OBandaríkjamanna, en þaðan eru ekki nema
rúmir 75 km. til landamæra Tékkóslóvakíu.
j Hm oirúlega sókn
HIN MIKLA SÓKN Banda-
ríkjamanna og Breta á vest-
urvígstöðvunum undanfar-
mánuð hefir verið með ó-
dæmum hröð og fáum mun
(hafa dottið í hug, að hún
myndi verða með þeim hætti,
;sem raun ber vitni og erlend
.ar fyéttir greina frá á degi
hverjum. Hér er ekki um að
ræða neinn einstakan her, úr
valssveitir eða sérstaklega
æfðar víkingasveitir. Ómögu
legt er ' að fullyrða, hvort
sókn vélahersveita Pattons,
sem nú hafa umkringt Krfurt,
inni í miðju Þýzkalandi sé
hraðari eða eftitektarverðari
en sókn 9. hers Simpsons,
sem tók 'Hannover, þýðingar
mestu borg Þýzkalands á
svæðinu milli Hollands og
Berlínar, eða sókn Montgo-
merys, sem nú mun kominn
að útvirkjum Bremen, hinn
ar miklu hafnarborgar Þjóð
verja við Norðursjó.
ALLT VESTUR- ÞÝZKALAND
er nú á valdi bandamanna, að
undanskildu litlu svæði í
Rubr, sem fyrirsjáanlegt er,
að falli í hendur bandamönn
um innan skamms. Óvígur
her bandamanna, búinn
fleiri og fullkomnari hernað
artækjum en nokkru sinni
hefir. þekkzt, brunar nú á-
fram austur og suður Þýzka
land í breiðum boga, sem ligg
ur því sem næst um Bremen,
Hannover, Erfurt, Wurzburg
og Karlsruhe og hvarvetna
hrökkva Þjóðverjar fyrir.
Varnir þeirra virðast í mol
um, viðnámsþrekið þrotið og
það eina, sem karin að tefja
bandamenn í sókninni, eru
erfiðleikar á aðflutningum
birgða og skotfæra, þar sem
vegalengdirnar eru orðnar
svo langar, en allt þarf að
flytja að.
RUHR-HÉRAÐIÐ, sem var
mesta iðnaðarhérað heims og
grundvöllurinn undir öllum
hernaðarrekstri Þjóðverja, er
úr sögunni sem vopnabúr.
Þar sem áður voru risavaxn
ar verksmiðjur eru nú rú’stir
■ einar. Fólk hefir flúið þaðan
unnvörpum, en þó verjast
þar sums staðar ofstækisfull
ir SS-menn, enda þótt úrslit
in geti aldrei orðið nema á
einn veg.
ÞAÐ HEFIR VERIÐ SAGT, að
brezki flugherinn hafi tekið
Köln og það er mikið til því.
Brezkur blaðamaður kom til
horgarinnar eftir að hún féll í
hendur bandamönnum. Hann
hafði með sér ferðalýsingu
Baedekers, en hann kannað-
ist ekki við neitt í borginni,
uema dómkirkjuna, hitt voru
rústir einar. Brezka blaðið
„Daily Mirror“ sagði svo,
ekki alls fyrir löngu, að í
samanburði við Köln og
fleiri borgir í Rínarbyggðum
og í Ruhr, væri Stalingrad
Þá hafa borizt ýmsar fréttir
frá Þýzkalandi um vaxandi ó-
ánægju og óróa innan þýzka
Ihei’sins, einkum meðal flug-
manna. Fréttaritarar banda-
manna í Þýz'kalandi segja, að
erfitt sé að gera sér glögga
grein fyrir, 'hvað hæft sé í orð
rómi og kviksögum um þetta,
en eitthvað mun þó á seiði.
Samkvæmt síðuslu fréttúm
um þessi mál hafa 102 þýzkir
flugforingjar verið teknir af
lífi, sakaðir um samsæri, eins
og það er orðað. Meðal þeirra
alls ekki illa útleikin borg,
og blaðamaðurinn, sem rit-
aði þetta, hafði líka séð Stal
ingrad.
í MESTU LOFTÁRÁS, sem
Þjóðverjar gerðu á London,
og mörgum þótti nóg um,
vörpuðu um 400 flugvélar
rúmlega 400 smálestum
sprengna á borgina. í síðustu
loftárás bandamanna á Köln,
áður en hún féll þeim í hend
ur, vörpuðu brezkar flugvél-
ar um 3000 smálestum
sprengna á borgina. Yfir 60
liðinu og margir háttsettir flug
liðsforingjar.
Kreppir ai Þjóðverj-
urn í Vínarborg
RÚSSAR halda áfram sókn-
inni í Vínarborg og hafa
Þjóðverjar nú ekki nem^ eitt
iðnaðarhverfi borgarinnar á
valdi sínu. I gær tóku Rússar
enn 2400 þýzka hermenn hönd
um í borginni og kreppa æ meir
að þeim, sem enn verj'ast.
þýzkar iðnaðarborgir, sem
nú eru langt að baki banda-
manna í sókninni, eru rústir
einar. Þetta er skýringin á
stórsókn bandamanna þessa
dagana. Samræmdar loftárás
ir Breta og Bandaríkjamanna
um þriggja ára skeið hafa
valdið því, að skriðdreka-
sveitir og fótgöngulið sækja
nú viðstöðulítið fram á gerv-
öllum vesturvígstöðvunum.
Það er lofther bandamanna
fyrst og fremst, sem hefir
komið Þjóðverjum á kné.
Sókn Simpsons hefir verið fá
dæma hröð, en lítið frétzt af
ferðum hans af öryggisástæð-
um. Hafa hersveitir hans tekið
smábæ einn, norður af Magde-
burg, örskammt frá Saxelfi.
Hafa þær rofið bifreiðabraut-
ina milli Berlínar og Braun-
schweig og Hannover.
Á norðurhluta vígstöðvanna
herða Bretar sóknina til Brem-
en og eiga örfáa km. ófarna
þangað. Suðaustan borgarinnar
sækja Bretar í áttina til Ham-
borgar. Þjóðverjar berjast
hraustlega. en vörnin virðist
skipulagslítil og þeir hafa lít-
inn sem engan stuðning flug-
hers, en flugvélar bandamanna
eru sífellt á sveimi óg ráðast á
liðssafnað Þjóðverja hvar sem
því verður við komið. — í Hol-
landi verður Kanadamönnum
vel ágengt við ána Ijssel og þeir
hafa náð á sitt vald borginni
Deventer, um það bil miðja
vegu milli Zuidersee (Suður-
sjávar) og þýzku landamær-
anna. Talið er, að alls hafi Þjóð
verjar um 200.000 menn í Hol
landi.
Amerískar hersveitir, sem
fluttar voru loftleiðis hafa
tekið Essen, mestu borg Ruhr-
héraðs. Borgin er að mestu í
rústum eftir loftárásir banda-
manna, enda hafa fáar borgir
orðið eins hart úti. í seinustu
stórárásinni á borgina, 11. marz
s.l. var til dæmis varpað sprengj
um á borgina, sem vógu sam-
tals 45Q0 smálestir.
í Mið-Þýzkalandi hafa Banda
ríkjamenn sótt fram um 12 km.
austur fyirr Nordhausen, sem
þeir tóku í fyrradag og eru
þeir nú um 95 km. frá Leipzig.
Sunnar sækja þrjú herfylki úr
her Pattons fram og fara hratt
yfir. Þar hafa þeir tekið Ko-
burg, 75 km. frá Tékkóslóvakíu.
„Vasaorrustuskipinu"
„Admiral Scheer"
sökki í iofiárás
AÐ var tilkynnt í flota-
málaráðuneytinu brezka í
gær, að þýzka „vasaorrustuskip
ihu“ „Admiral Scheer“ hafi ver
ið sökkt í loftárás, sem Lancast-
er-flugvélar Breta gerðu á flota
höfnina Kiel s. 1. mánudag.
Orrustuskip þetta var 10.000
smálestir að stærð og vel vopn
um búið, þar á meðal fallbyss-
um irieð 11 þumlunga hlaup-
vídd. Það var af sömu gerð og
„Graf Spee“, sem Þjóðverjar
sökktu sjálfir úti fyrir höfninni
í Montevideo í Uruguay eftir
sjóorrustu við þrjú brezk beiti
skip í desember 1939, Eiga Þjóð
verjar nú eitt skip eftir af þess
ari gerð, „Lútzow“, sem áður
hét ,,Deutschland“.
„Admiral Scheer“ hafði áður
legið í Gdynia í Póllandi, en fór
þaðan er borgin féll í hendur
Rússum.
I17INSTON CHURCHILL
* " * mun flytja ræðu í neðri
málstofu brezka þingsins í
næstu viku. Er talið, að ræða
hans muni einkum eiga að f jalla
um störf þriggjamanna nefndar
innar í Moskva, sem hafði
pólska vandamálið til meðferð-
ar. Að lokinni ræðunni muniu
verða umræður, ef þingmenn
óska.
var einn hershöfðingi úr flug-