Alþýðublaðið - 14.04.1945, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 14.04.1945, Qupperneq 3
3LangajPÍagM.r 14. aj»ríl 1945. ALÞTÐUBLflÐIÐ — Viðstöðulaus sókn Bandaríkjamanna: PaHon kominn framhjá Leipzig — á leið fil Dresden Hinn nýi Bandaríkjaforsefi Harry S. Truman. Truman segist munu reyna að sfjórna í anda Roosevelfs lútför hins látna forseta fer fram að ættar- setri hans, Hycie Park, á morgun Minning hans heiðruð af forustumönnum allra frelsisunnandi þjóða HARRY S. TRUMAN ■hefur unniið eið að stjómarskrá Bandaríkjianna og tékið við forsetastörfum. Við það taekifæri sagði hinn nýi forseti, að 'hann myndi leggja sig fram um að inna störf sín af hendi einis og hann áliti, að Roosevélt myndi hafa gert. Sagði Trum'an, að hann hefði beðið ráðheri-ana að gegna áfram embættum sínum eins og •áður. Hinn nýi forseti gaf í gær út tilskipun þar sem ákveð- ið er, að dagurinn í dag verði almiennur sorgardagur um öll Bandaríkin. Lík hins látna forseta var í gær flutt frá Warm Springs í Georgía, þar sem hann andaðist, til Washington. en hann verður jarðsottur á morgun í grafreit Roosevelt-ættarinnar í Hyde Park í New York-ríki. Allir helztu leiðtogar hinna spmeinuðu þjóða og annarra frelsisunnandi þjóða hafa látið í Ijós samúð sína með fjölskyldu Roosevelts og bandarísku þjóðinni, þar á meðal Georg Bretakonungur, Hákon Noregskonungur, Churchill, Stalin, Chang- Kai-Shek, De Gaulle, Nygaardsvold, Per Albin Hansson og fjöl- margir* aðrir. Hvarvetna í heiminum vakti fráfall Roosevelts forseta hina dýpstu samúð og hluttekningu. Fregnir frá London herma, að það sé eins og menn hafi enn ekki áttað sig til hlítar á því, að forsetinn sé látinn, menn finni, að þeir hafi ekki ein- ungis misst mikilhæfan stjórn málaskörung og leiðtoga, held- ur góðan vin. Georg Bretakonungur hefur sent frú Roosevelt og Truman forseta samúðarskeyti, þar sem hann segir, að stjórnvísi og Framh. á 6. síðu. Níundí herinn við Saxelfi a 160 km. svæði, báðum megin Magdeburg e Framsveifirnar ausfan við ána eiga nú 80 km. ófarna til Berlín BANDAMENN ihalda áfram sókn á öllum vesturvígstöðv- unum, víða viðstöðulítið að kalla má. Hröðust hefur sókn þriðja hers Pattons verið, en framsveitir hans hafa sniðgengið borgimar Halle og Leipzig, farið framhjá þeim að sunnan og stefna til Dresden, höfuðborgar Saxlands. Þangað em rúmir 60 km. og um 160 km. til hers Konievs í Slésíu. Sókn 9. heris Sknpsons í áttina til Berlínar gengur einn- ig mjög að óskum. Er meginhluti hans kominn að Saxelfi, bæði fyrir norðan og sunnan Magdeburg á um 160 km. breiðu svæði. Sumar fregnir segja, að bardagar séu byrjaðir í Magdeburg. Framsveitir 9. hersins eru komnar yfir Sax- elfi og eiga um 80 fcm. ótfarna til Berlínar. Vamir Þjóðverja eru enn sem fyrr mjög litlar og mæta Bandaríkjamenn lítilli mótspyrnu. Norðar á vígstöðvunum, suðaustur af Bremen, sækja sveitir úr 2. brezka hermuu áfram í áttina til Hamborgar, sem er í um 80 km. fjarlægð . Þar hafa Bretar tekið fangabúðir Þjóðverja, þar sem 60.000 manns voru í haldi. 2—3 þúsund þeirra höfðu útbrotataugaveiki og hafa fangabúðimar verið settar í sóttkví. Kanadamönnum verður vel ágengt í Hollandi. 2 milijónir fanga síðan innrásin var gerð í fyrrasumar M Fyrsta her Bandaríkjanna virðist vera falið það hlutverk að taka samgönguborgirnar Halle og Leipzig, meðan þriði herinn heldur beint áfram suð ur af þeim í áttina til Dresden. Fyrsti herinn var aðeins 15 km. fná Leipzig er síðast fréttist í gærkveldi. í sókn sinni austur á bóginn hefir hann tekið fanga búðirnar í Buchenwald, en þær voru illræmdar mjög og oft nefndar í sömu andránni og Or- anienburg og Dachau. Þar voru 20 þúsund. fangar leystir úr haldi. Þriðji herinn sækir hratt fram suður af Leipzig hefir far ið framhjá borginni og stefnir til Dresten. Hafa hersveitir Pattons farið framhjá 55 bæj- um og þorpum í sókninni. Þjóð verjar hafa ekki get-að sent nein ar flugvélar til aðstoðar hinum flýjandi hersveitum sínum, en flugvélar bandamanna eru sí- fellt á sveimi og ráðast á her- flokka Þjóðverja. Sunnar á vígstöðvunum hafa sveitir úr 7. her Pac’h brotizt yf ir Main hjá Bamberg og stefna þær til Bayjreuth og Níirnberg. Brezkar hersveitir berjast enn á ný í Arnhem í Hollandi. Þar hafa þær þegar náð mestum hluta borgarinnar, þrátt fyrir harðvítugt viðnám Þjóðverja. Kanadamenn voru í gærkveldi tæpa 15 km. frá Groeningen, stærstu borg Norður-Hollaijds. Þar hafa þær tekið fangabúðir og leyst úr haldi um 170,0 fanga. Engar breytingar hafa orðið á afstöðu herjanna við Stettin og ’her Zhukovs heldur enn kyrru fyrir í stöðvum sinum. Haimtjón í London vegna loftárása 60 þúsund ¥> AÐ var sagt frá því í Lon- don í gærkveldi, að alls hefðu 60 þús. manns farizt í loftárásum Þjóðverja á London síðan styrjö'ldin hófst, en 86 þús. hafa særzt. ONTGOMERY marskálk- ur skýrði frá því í gær, að tjón Þjóðverja á mönnum- og hergögnum á vesturvígstöðv unum væri orðið óskaplegt. sagði hann, að síðan bandamenn gengu á land í Frakklandi 6. júní í fyrra sumar, hefðu þeir tekið samtals um eða yfir 2 milljónir þýzkra fanga. Fyrst eftir að bandamenn. hófu hina miklu sókn austur yf ir Rín tóku bandamenn tiltölu lega færri fanga en nú, og vörð ust Þjóðverjar þá einatt af meira ofstæki. En nú er þáð orð inn daglegur viðburður, að þús undir þýzkra hermanna gefast upp og skeyta ekki um fyrir- skipanir nazistaforingjanna um að berjast meðan nokkur mað- ur stendur uppi. Hörð ioflárás risaflug- virkja á Tofeio AÐ var tilkynnt í London í gærkveldi, að amerísk risaflugvirki hefðu gert stórá- rás á Tokio í gærmorgun. Um 300 flugvirki tóku þátt í árás- inni, sem var beint gegn vopna- og skotfæraverksmiðjum í borg inni. Bandamenn segja fró því, að um 100 flugvélar frá 4 flug- stöðvarskipum háfi ráðizt á ým is mannvirki á Formosa. Fylgdi það fregninni, að brezk herskip hefðu skotið af fallbyssum sín um á ýmis mannvirki á eyjunni. Wien nú á valdi Rússa, eflir sex daga götubardaga £30.000 fangar feknir í bardögunum STALIN tilkynnti í gær í dagskipan, að her Tolbukins hefði nú Vínarborg algerlega á valdi sínu. Rússar tóku geysimikið herfang, en Þjóðverjar misstu alls um 130 þúsund menn í 6 daga bardögum um borgina. Meðal annars hröktu Rússar 11 þýzk skrið- drekaherfylki á flótta, eyðilögðu eða hertóku 1400 skriðdreka og 2250 fallbyssur. Sigijrs þessa var minnst með skothríð af mörgum fallbyssum í Moskva í gær. í útvarpi frá Moskva í gær var sagt, að loks væri Vínar- borg laus úr klóm nazismans, vegna hraustlegrar baráttu rússneska hersins og með að- stoð margra borgarbúa. Þá var sagt, að skemmdir hefðu ekki orðið miklar á fornum og fræg- um byggingum> Vínarborg var fimmta stærsta borgin á meginlandi Evrópu, með um 2 milljónir íbúa. Borg in er mjög mikilvæg samgöngu miðstöð og þar eru miklar olíu hreinsunarstöðvar og verksmiðj ur. Fyrir norðan og norðaustan borgina sækir her Malinovskys frarn og hefir tekið margar mik ilvægar borgir í Slóvakíu. Þá til kynna Rússar, að þeir hafi enn sökkt þúskum tundurspilli á höfninni í Pillau í Austur-Prúss landi. 1

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.