Alþýðublaðið - 18.05.1945, Page 3
SB^udagur 18. maií 1845.
Vandamálin, sem
viðlaka.
»AÐ ER ORÐIÐ æði langt sáð-
áh bandamenn fóru að fást
við þau vandamál, sem óhjá-
kvæmlega hlutu að gera vart
við sig að styrjöldinni lok-
ínni Vandamál þessi eru marg
þætt og flókin. Það þarf að
sjá milljónum manna fyrir
ferýnustu . lífsnauðsynjum,
vegna gripdeilda Þjóðverja
og vegna styrjaldarinnar al-
. mennt. En þessi mál verða
vafalaust leyst á viðunandi
hátt, enda hafa bandamenn
Jpegar hafizt handa um öflun
matvæla í stórum stíl og
dreifingu þeirra á megin-
landi Evrópu. Má í því sam-
bandi minna á, að þegar hef’.r
jþúsundum smálesta af mat-
vælum ver.ið komið til Hol-
lands og skip hafa verið send
til Argentínu til þess að
sækja þangað kornmat
handa Norðmönnum, sem
segja má að hafi verið rúnir
inn að skinninu á hernáms-
árunum.
EN ÞAU MÁL, sem svo mjög
veltur á, að leyst verði af
skynsemi og drengskap, eru
fyrst og fremst vandamálin
um landamæri og framtíðar
stöðu ýmissa smárdkja. Ráð-
stefnan i San Francisco er
hafin og það vona allir lýð-
ræðisunnandi menn, að á
henni fáizt sanngjörn og við-
unandi framtiðarlausn á
skipan og stöðu allra frið-
, arunnandi þjóða, að þar verði
1 Íagður grundvöllur að nýju
tog heilbrigðara skipulagi í
heiminum en verið hefir. —
Telja má víst, að þeir, sem
þá ráðastefnu sitja, geti ork
að miklu og lagt grunvöllinn
að löngu og farsælu friðar-
tjímalbilá (manhkynsins, ef
nægur skilningur og vilji er
fyrir hendi og eiginhagsmun-
ir fá ekki að ráða úrslitum
mála-
HÉR VERÐUR EKKI leitazt
við að spá neinu um það,
. sem fulltrúár hinna fjöl-
rnörgu þjóða munu aðhafast
á þessari ráðstefnu. Það er
enn of snemmt og of margt
á huldu, sem væntanlega
mun ljósar verða næstu daga
eða vikur.
EN HITT MUNU MENN vona,
að það samkomulag, sem end
anlega næst þar, verði ekki
aðeins samkomulag stórveld
anna, heldur einnig samkomu
lag, þar sem réttur þeirra,
er minna mega sín, réttur
hinna mörgu smárikja verði
fyllilega virtur og tillit tekið
til hagsmuna þeirra og óska
-Takizt það, er óhætt að fuii
yrða, að hinn stríðsþjakaði
Sheimur muni blessa starf
þeirra, er þar lögðu hönd á
plóginn.
AÐ VÍSU ER ÝMISLEGT, sem
ekki er sérlega heppilegt til
farsæls starfs og samkomu*
lags í sambandi við vanda-
málin, sem ráðstefnan mun
væntanlega fjalla um. Til-
ALÞYDUetAOIP
Anthony Eden segir brezka þinginu:
Ný og alvarieg vandamál eru kom-
in lil sðgunnar
Það er Anthony Eden, utanríkismálaráðherra Churchills, og
Bidault, utanríkismálaráðherra de Gaulle.
Hákon konungur og Mygaards-
vold ávörpuSu þjóð sína 17. maí
Þeir töluðu báðir í útvarp frá London.
HÁKON KONUNGUR ávarpaði norsku þjóðina síðdegis í gær,
á þjóðhátíðardaginn, og var ávarpi hans útvarpað frá
London. Á eftir honum flutti einnig Nygaardsvold forsætisráð-
herra ávarp til landa sinna í útvarpið. Og loks flutti það kveðjur
til allra norskra bama frá börnum Ólafs ríkisarfa og könu hans
Martha.
Japanir svartsýnir á
úrsliiin á Okinawaey.
Ný hrikaleg loffárás
á Nagoya.
AÐ var opinberlega látið
í Ijós í Tokio í Japan í
gær, segir í fregn frá London,
að engin ástæða væri til bjart-
sýni í sambandi við bardagana á
Okinawaey.
Aðrar fregnir hermdu, að
Bandaríkjamenn væru að brjót
ast inn í höfuðborg eyjarinnar
Naba, þrátt fyrir hinn harðvit-
ugu vörn Japana.
Ný 'hrikaleg loftárás var geðr
í gær á Nagoya í Japan, aftur
af um það bil 500 risaflugvirkj-
um.
Hákon konungur sagði, að
Norðmenn gætu nú aftur hald-
ið 17. maí hátíðlegan, því nú
væru þeir frjálsir, og bað þá
að þakka guði fyrir það.
Hann sagði, að Norðmenn
hefðu 1 stríðinu alltaf komið
fram eins og gamalli menning-
arþjóð sæmdi, og einmitt þess
vegna stæði r.ú nýr ljómi af
iþeim.
Hann þakkaði öllum Norð-
mönnum fyrir hetjulega bar-
áttu, á kaupskipaflotanum, í
hernum, á herskipaflotanum, í
lofthernum, á heimavígstöðv-
unum og í fangelsum og fanga-
búðum og minntist allra þeirra,
sem látið hefðu lífið fyrir fóst-
urlandið. Og hann þakkaði
þeim ríkjum, sem hjálpað
hefðu Norðmönnum í barátt-
unni, sérstaklega Stóra-Bret-
landi.
Að endingu hvatti hann
Frh. á 7. síðu.
ræða þau við
Churchill
Voflgóður um árang-
ur í San Francisco.
A NTHONY EDEN, utan-
*"*• ríkismálaráðherra Breta
sem er nýkominn til London
frá San Francisco, talaði í
neðri málstofu bre2?ka þings-
ins í gær, og iét vel yfir ráö-
stefnunni vestan hafs, en
sagði, að ný og álvarleg vanda
mál væru komin til sögunn-
ar, sum mjög aðkallandi.
Hann kvaðst þ.ó ékki geta
gert þinginu grein fyrir þeim
að þessu sinni; hann myndi
fyrst ræða þau við Churchill.
En hann gerði ráð fyrir, að
alþjóðamálin yrðu tekin til um
ræðu í þinginu innan skamms.
Eden sagði, að ráðstefnan í
San Francisco gengi vel, —
betur en hann hefði búizt við;
og hann gerði ráð fyrir því, að
þar næðist samkomulag um
hið fyrirhugaða þjóðabandalag
sem væri betra en áætlunin frá
Dumbarton Oaks.
Eden lauk miklu lofsorði á
Truman Bandaríkjaforseta og
Grew varautanríkismálaráð-
herra hans, sem hann hefði hitt
á heimleiðinni í Washingtin.
Eden vonar, að Göring
fái sinn dóm fljótlega.
/J. NTHONY EDEN svaraði í
gær fyrirspumum í neðri
málstofunni um refsingu stríðs-
glæpamanna. Hann var spurð-
ur, hvort Göring myndi ekki
fljótlega verða leiddur fyrir
rétt, og svaraði: »,Það vona ég“.
Um Ribbentrop sagði hann
að reynt væri allt, sem unnt er
til að hafa upp á honum.
Annars sagði Eden, að þessi
mál þyrftu að sjálfsögðu all-
mikinn undirbúning.
raunir rússneskra áhrifa j
manna til þess að ,,gleymu‘"
ákvörðunum Yalta-fundarins
og læða fulltrúum hinnac svo
nefndu Lublinstjórnar inn á
ráðstefnuna, þrátt fyrir yf-
irlýst samkomulag um nýja
lýðræðisstjórn í PóHandi,
bendir til þess, að miklir erf
iðleikar séu fram undan
VONANDI TEKST ÞÓ mönn-
um þeim, sem fengið hafa
svo afdrifarikt hlutverk með
höndum að afstýra vandræð
um og komast að varanlegu
samkomulagi, sem alhr freis
isunnandi me.nn geta sætt sig
við.
Leoa Blatn ræðir við
de Gauile.
FREGN frá London seint í
gærkvöldi sagði, að Leon
Blum, hinn þekkti forustumað
ur franskra jafnaðarmanna, er
Bandaríkjamenn leystu nýlega
8
Brezk flugvél yfir
norðurpél í fyrrinött
Flaug frá íslandi og
kosti til baka I gær.
Lundúnarútvarp-
IÐ skýrði frá því í gær
kveldi, að brezk Landcaster-
flugvél hefði verið yfir
norðurpólnum kl. 3 í fyrri-
nótt. Hún flaug þangað í
tilraunaskyni frá bækistöð á
íslandi og kom til haka
til sömu bækistöðvar kl.
rúmlega 12 á hádegi í gær.
Fyrirhugað er að fara nýtt
tilraunaflug yfir norðurpól-
inn og þá áfram þaðan yfir
segulskautið til Kanada.
Kona Himmlers, Leni
Riefenstahl og Max
Schmeling nú faagar.
Otto Skorzeny náð-
ist einnig í gær.
O ANDARÍKJAMENN
gerðu mikinn feng í gær,
þegar sveitum úr 7. her þeirra
tókst að hafa hendur í hári
Otto Skorzeny, yfirmanns
nazisiskra spellvirkjasveita. og
taka hann til fanga. Þeir fundn
einnig í gær konu Himmlers og
dóttur og Leni Riefenstahl
kvikmyndaleikkonu og gamla
viukonu Hitlers, allar í Austur-
ríki. En Bretar tóku í gær og
hinn fræga hnefaleikara og
fallhlífarhermann Max Schmel
ing, til fanga í Hamborg.
Skorzeny var af mörgum á-
litinn einn af hættulegustu
verkfærum nazista. Það var
hann, sem niáði Mussolíni úr
fangelsi á Ítalíu haustið 1943,
Leni Riefenstahe er þekkt
úti um heim fyrir þátt sinn í
Olympíukvikmyndinni frá
Þýzkalandi 1936. Talið var að
hún ætti þá vingott við Hitler.
Af Max Schmeling hafa fáar
sögur farið síðan 1941, að hann
var (í fallhilífaliðsárás nazista
á eyjuna Knt.
Sambúðln í Triest fer
nú batnandi.
P kveldi sagði, að samhúð-
•®- REGN FRÁ London í gær-
in milli hersveita Tito tnar-
skálks og 8. hers bandamanna í
Triest hefði batnað síðustu
dagana.
8. herinn hefir nú höfn
borgarinnar alveg á sínu valdi,
en hersveitir Titoc eru inni í
miðborginni þar sem hinar
opinberu skrifstofur eru.
úr þýzkujp fangabúðum, hafi í
gær átt langt tal við de GauIIe
í París.