Alþýðublaðið - 18.05.1945, Page 4
4 __________ • _________ ALÞYÐUBLÆDIP Fcistttdagur 18. mai 194&
Niðurlag á grein Jénasar Guðmundssonar:
Dauði Mósesar.
Otgefandi Alöýðuflokkurinn
Ritstjóri: Stefán Pétnrsson.
Ritstjórn og afgreiðsla í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu
Símar ritstjórnar: 4901 og 4902
Símar afgreiðslu: 4900 og 4906
Verð í lausasölu 40 aura.
Alþýðuprentsmiðjan h. f.
Endurnfjunin á sviði
aivinnulífsins
ENDURNÝJUN atvinnuveg
anna, sem núverandi rík-
isstjórn hefir efst á stefnuskrá
sinni, er að vonum mjög gerð
að umræðuefni um þessar mund
ir. Leikur það heldur ekki á
tveim tungum, að brýna nauð-
syn beri til þess, að atvinnu-
tæki okkar séu endurnýjuð sem
fyrst og jafnframt efnt til
hverra þeirra nýjunga á vett-
vangi atvinnulifsins, sem til
heilla horfa að beztu manna yf-
irsýn. Skiptir öllu máli, að rétt-
ur grundvöllur sé fundinn fyrir
hinar fyrirhuguðu framkvæmd
ir og hin miklu verkefni, sem
úrlausnar bíða á sviði atvinnu-
málanna, tekin föstum tökum.
*
Hin fyrirhugaða nýsköpun
atvinnuveganna var eitt þeirra
skilyrða, sem Alþýðuflokkur-
inn setti fyrir þátttöku sinni í
ríkisstjórninni- Fór því þó alls
fjarri, að þar væri um að ræða
nýtt stefnuatriði af hálfu Al-
þýðuflokksins, því að hann hef
ir allt frá öndverðu barizt fyr-
ir hvers konar heillavænlegri
nýbreytni á sviði atvinnulífsins
enda jafnan verið fyrst og
fremst málsvarf verkamanna,
sjómanna og launþega, sem eiga
allt sitt undir því, að atvinnu-
lífið í landinu sé blómlegt og
farsælt.
Nýsköpun íslenzkra atvinnu-
vega er raunverulega löngu haf
in, þótt enn fari því fjarri, að
viðunandi lausn sé fengin á
þessu merkasta máli samtíðar-
innar. Síðasti áratugur var
•tími mikilla athafna og fram-
fara á íslandi, þótt oft væri hart
x ári og erfitt um framkvæmd-
ir. Hefir Alþýðuflokkurinn öll
um öðrum stjórnmáláflokkum
fremur haft forustu um þessa
sókn á sviði atvinnumálanna
eins og bezt sézt ■ af þeim á-
xangri, sem náðist á árun-
um 1934—1938, meðan Har-
aldur Guðmundsson var at-
vinnumálaráðherra. Það, sem
fyrir Alþýðuflokknum vakti,
með skilyrðinu um nýsköpun
atvinnuveganna, sem núver-
andi rikisstjórn hefir efst á
stefnuskrá sinni, er því það, að
halda áfram því starfi, sem
hann hafði þegar hafið, og
fýlgja fram þeirri stefnu í at-
vinnumálunum, sem hann hafði
þegar markað. Og þótt ógerlegt
muni verða að fá alla til þess
að verða á einu máli um einstök
atriði þessa, mun það flestra
manna mál, sem einhvers meta
hag og heill lands og þjóðar, að
þessari stefnu beri að fylgja,
-ef íslendingar vilja ekki verða
■eftirbátar annarrrá þjóða og
standa höllum fæti í lífsbarátt
unni á komandi árum-
•
Nýlega er út komin skilmerki
leg greinargerð um störf fiski-
málanefndar á þeim tíu árum,
sem liðin eru frá stofnun henn-
ar. Hefii' Arnór Sigurjónsson
AÐ hefur komið greinilega
fram að ósjálfrátt finna
margir nú til þess þegar Roose-
velt er dáinn, hversu honum
svipaði um margt til Mósesar
hins mikla brautryðjenda ísra-
elsþjóðarinnar. Þetta kemur
fram í fjölda ummæla einstakra
manna og blaða. Menn finna
sérstaklega til þess hversu líkt
það er, að Móses dó er hann var
svo nálægt kominn landamær-
um Kanaanslands, að hann sá
inn i ,,hið fyrirheitna land“, en
Roosevelt deyr „við dyr hins
nýja heims“ eins og Hákon Norð
mannakonungur orðaði það í
skeyti sínu til hins nýja forseta
Bandaríkjanna. Annars er þetta
skeyti Hákonar konungs hið at-
hyglisverðasta því það túlkar
bezt af öllu, sem ég hef séð, og
í styztu máli, tilfinningar allra
hinna norrænu og engilsaxnesku
þjóða við fráfall Roosevelts.
Skeyti konungs er þannig:
„Á þvi augnabliki, er mann
kynið stendur við dyr hins nýja
heims, tökum við á móti frétt-
inni um fráfall Roosevelts með
djúpri sorg- Hann fórnaði. lífi
sínu fyrir mannkynið. Megið
þér sem forseti njóta blessun-
ar af hans göfuga starfi.“
En Iþagai* vér gætum að, er
það býsna margt fleira en þetta,
að þessir forustumenn, Móses
og Roosevelt, deyja báðir „við
dyr ’hins fyrirheitna“ lands,
sem þeir eiga sameiginlegt. Það
er ekki ófróðlegt að gera sér
það fyllilega ljóst því vel má
vera að siðar eigi menn eftir
að þreifa á 'því betur, að hér er
í raun og veru um að ræða tvo
fonxstumenn sama fólksins, þó
langt sé bilið milli þeirra. Eg
ætla því hér á eftir að benda
á örfá atriði fleiri, en rúmsins
vegna get ég ekki rökrætt þau
eins og ég vildi og þau ættu
skilið.
*
Báðir áttu þessir menn sam-
'merkt í þvi, að þeir tóku við
forustu „þjóða“ sinna er hin
stórkostlegasta ánauð þjakaði
þær- Móses fékk það hlutverk
að sameina hinar 12 ættkvíslir
ísraels til uppreisnar gegn
„kúgurum Egiptalands11, og til
þess að segja skilið við allt
„skipulag11 þeirra og leita þess
lands, þar sem frelsi mætti
ríkja. Hann varð að leiða þessa
nýju þjóð .yfir „eyðimerkur“
og þola þar margs konar harð-
rétti unz hann náði loks að
landamærum hins „fyrirheitna
lands“.
Roosevelt fékk það hlutskipti
að sameina þær þjóðir á hnetti
vorum, sem unna frelsi og lýð-
ræði i eina sterka þjóðaheild.
Þær þjóðir, sem einkum skilja
þetla og sameinast um það, eru
hinar engilsaxnesku þjóðir,
samið skýrslu þessa, og gefur
hún glöggt ýfirlit um þróun
fiskveiðanna, markaðsleit og nýj
ungar á vettvangi þessara mála
siðasta áratug. Sannar þessi
skýrsla glögglega, hversu skyn
samleg og farsæl stefna Alþýðu
flokksins hefir' verið varðandi
fiskveiðarnar og útvegsmálxn
og forusta hans á vettvangi
þeirra skelegg og, örugg.
Sjávarútvegurinn er sá at-
vinnuvegur íslendinga, sem
afkoma þeirra og hagur bygg-
ist mest á. Þess vegna ber að
leggja áherzlu á það, að sú ný-
sköpun atvinnuveganna, sem í
ráði er, nái fyrst og fremst til
hans og þess iðnaðar, sem rek-
Norðurlandaþjóðimar og Hol-
lendingar, og hin kúgaða og of- ’
sótta Gyðingaþjóð. Margar þjóð
ir aðrar telja sig að vísu unna
frelsi og sjálfstjórn, en flestar
þeirra hafa það aðeins að yfir-
skyni en beita kúgun, andlegri
og líkamlegri, þegar því má við
koma.
Rodsevelt fékk og það hlut-
verk að leiða þessar þjóðir fyrst
gegnum hörmungar fjái'krepp-
unnar miklu og síðan í hinni,
stórkostlegustu styrjöld, sem
enn hefur geisað í heiminum-
Hann sá, að eina frelsun þess-
ara þjóða og mannkynsins alls
var að „hverfa burt“ úr því
„Egiptalandi“ ófrelsis og.kúg-
unar, sem einræðisþjóðir heims
ins hafa verið að „skipuleggja“
að undanförnu, þar sem aðeins
ríkir andleg og líkamleg áþján
og kúgun,' sem fer sívaxandi
með auknum yfirráðum þeirra.
Á þetta jafnt við um hina
kommúni.stísku sem nazistísku
„skipulagningu", þfrelsið og
kúgunin er hið sama hvaða
nafni sem það er nefnt.
*
Báðir höfðu þessir miklu leið
togar áberandi líkamsgalla.
Móses var sem kunnugt er af
Biblíunni málhaltur, sbr. „mér
er tregt um málfæri og tungu-
tak.“ Roosevelt var eins og áð-
ur er sagt, ófær til gangs síðari
hluta. æfi sinnar-
Enginn veit hversu mikinn
iþátt einmitt baráttan við þessa
líkamsgalla hefur átt í því að
gera þá að slíkum mikilmenn-
um sem þeir urðu. En Víst er
um það, að sagan á fjölda
dæma um að éinmitt ýmsir lík-
amsgallar eða sjúkdómar virð-
ast stundum hafa átt mikinn
þátt í því að skapa afburða-
mennina. Fræg er sagan um
málhelti Demosþenesar og allir
Islendingar vita hversu sjúk-
dómur Hallgrims Péturssonar
veiitti sál hans sterka vængi
*
Móse átti oft við að strxöa
mikla örðugleika heima fyrir
hjá þjóð sinni. Sundrung milli
ættlbvManna, ,,hjáguðadýrkun“
margs konar og skilningsleysi
á hugsjónum þeim, sem hann
var að berjast fyrir. Ömurleg-
•ust var þó dýrkunin á „gullká'lf
inum“, sem Aron bróðir hans
hafði forustuna í og hans eigin
ættkvísl- En hann lét samt
aldrei hugfallast. Svipuð varð
saga Roosevelts. Heima í Banda
ríkjunum átti hann við ótal erf
iðleika að etja, en ekki urðu
þeir þó minni er til þess kom,
að hann tæki að sameina hinar
„frjálsu“ þjóðir heimsins. Flest
ar höfðu þær Iþá tekið upp
margs konar „hjáguðadýrkun“.
I-íeima i föðu.rlaxxdi. hæns, — hjá
t hans eigin kynkvísl — var dans
' inn kringum „gullkálfinn“ hvað
inn verður f samlbandi við hann.
Skýrslan um tíu ára starf fiski-
miálanefndar ber það með sér,
að þar er vel af stað farið og
stefnt i rétta átt- En jafnframt
ber hún það með sér, að for-
usta Aliþýðuflokksins i þessum
málum hefir verið heillarík fyr
ir 'land og þjóð.
Verði sú nýsköpun atvinnu-
veganna, sem núverandi ríkis-
stjórn hyggst að efna til, giftu-
legt framhald á starfi þVí, sem
Alþýðuflokkurixm hóf, meðan
fulltrúi hans fór með atvinnu-
málin, getur þjóðin vel við un-
að. Þá ætti framtíð hennar á
sviði atvinnulifsins að vera
vel borgið.
erfiðastur og Bandaríkin urðu
síðust allra þjóða til þess að
yfirgefa gullið sem grundvöll
heimsviðskiptánna og má raun-
ar segia að þau séu ekki að fullu
búin að því enn.
Versti ,.hjáguð“ hinna smærri
frjálsra þjóða var þó ekki „gull
kálfurinn“, heldur „Satan“ sjálf
ur í mynd og líkingu „hlutleys-
isins“- Það má segja að hinar
fornu ættkvíslir Israels hafi
oftast sýnt „hlutleysi" gagnvart
siðuim og venjum heiðinna þjóða
umhverfis sig' og því .lent í si-
feldum vandræðum með trúar-
brögð sín og siðferði. Sama
gerðu hinar „frjálsu“ þjóðir nú
tímans. Hlutleysi gagnvart á-
róðri Rússa og Þjóðverja, hlut-
leysi gagnvai't þeim sem komu
með ritinginn í ernxinni en svik
arabi'os á vör, var sá hættulegi
„Baal“, sem allar þessar þjóðir
féllu fram og tilbáðu. Hlutleysi
gagnvart „djöflinum og véla-
brögðum hans“ er vissasti veg-
ur glötunarinnar. Það . skildi
Roosevelt Bandaríkjaforseti
allra manna bezt. Þess vegna
knúði hann Bandaríkin burt
frá „hlutleysinu“ eða einangr-
unarstefnunni eins og hlutleys-
is-djöfullinn hét í Ameriku og
tók upp baráttuna gegn hinum
ill’u öflum og loks forustuna í
þeirri baráttu- Að enginn hafi
komizt til jafns við Roosevelt
FRÉTTIRNAR af óstjórn
kommúnista í Kaupfélagi
Siglfirðinga yekja mikið umtal
í blöðunUm. Þgnnig skrifar
„Siglfirðingur," blað Sjálfstæð
isflokksins á Siglufirði, 4. þ- m.:
„Eins og Siglfirðingum er kunn
ugt, brutust komxnúnistar til
valda í Kaupfélagi Siglfirðinga á
síðasta aðalfundi þess. Valdataka
iþgirra þar, Var óefað byggð á hinni
blkun.nu frekju þeirra fyrst og
fremst, en þar næst á deildaskipt-
ingu félagsmanna, sem er eins og
hún hér er í reyndinni, gagnstæð
öllum lýðræðisreglum. Hitt er víst
að ef stjórnin hefði verið kosin
með beinum atkvæðum félags-
manna eftir aðalfundinn í fyrra
var mjög róttæk og fjöldi félags-
marma er enn minnugur þess, hverj
um harðræðum og lögleysum
.fundarstjóri aðalfundarins, Óttó
Jöx^ensen beitt félagsmenn á þeim
funái, trúlega studdur af flokks-
bræðrum sínum. Mun það eins-
dæmi í sögu kaupfélaganna, að fé-
lagsmiönnum sé neitað að láta skoð
anir sínar uppi á aðalfundum og
að fundarsköp séu virt að engu
eins og þar var gert.
Kaupfélagsmenn, aðrir en komm
úriistar, báru ekki traust til hins
rauða meirihluta í stjórn félag-
síns, en að stjórn þeirra færist
þeim með slí'kum enderpum, sem
raun hefir' orðið á, datt víst eng-
um í hug. Ýmsir voru að vísu óá-
nægðir s. 1. sumar, þegar það vitn-
aðist, að Þóroddur Guðmundsson,
sem er einn í stjórninni,- var með
stuðningi og_góðu samiþykki flokks
bræðra sinna, að láta félagið kaupa
gamlar og óútgengilegar vöruleifar
af vandafólki sínu, við óeðilega
háu verði að sögn, þótt félagið
hefði nóg af slíkum úreltum vör-
Myndaspjaid
Hallvsigarslaða
af hinni fögm höggmynd
,VERNDI]ý„ eftír Einar Jónjs
son færst í bókabúðtumim.
Söímitá'eiðiis í skrifstofei
KVENNFÉLAGASAM-
BANDS ÍSLANDS, Lækjarg.
14 B og hjá fjáröfliiinæroaefxB/i
Hallveigárstaða.
í því efni, að sameina þessar
dreifðu og sundruðu bræðra-
þjóðir í baráttunni fyrir frels-
ínu, má marka. bezt af orðuna
Churdhills, forsætisráðherra
Breta, er hann minntiist Roose-
velts l'átins 1 brezka þinginu,
Hann sagði: „Með RoosevelS
fellur í valinn meisti1 vinur vor
Englendinga, sem Bandariki®
hafa nokkru sinni alið, og mesti
forvígismaður frelsisins.“
*
Áður er dð því vikið, hve
mönnum víðs vegar um heina
finnst það svipað, / hvernig
dauða þessára mikilmenna bar
að höndum. Móses hafði leitt
þjóð sína gegnum allar þreng-
ingar í meira en 40 ár og verið
henni leiðtogi á öllum sviðum,
en þegar komið var að því affi
sú von r^ettist, að stigið 3irðl
ýfir þröskuldinn inn í fyiir-
heitnalandið dó hann, einn —
aleinn á Nebo-fjalli eftir að
hafa blessað ísraelsmenn og efS:
Framh. á 6. rfðu.
• um fyrir í vöruleifum sínum, —
það heyrðust líka óánægjuraddin,
yfir kaupum félagsins á eignuni!
setuliðsiná. Félagið liggjxr enn me®
meginið af því járnaskrapi, sena
er að litlu nýtt, og það benda lík-
ur til að það fái að liggja me®
það næstu árin. En óáriægjan me@
þetta bragga-brask var ekki svo
róttækt að orð væri á gerandí.
Menn fremur kímdu að þvi og.
gerðu að því góðlátlegt grín.
Öðru máli var að gegna með
kaup stjórnarinnar á IngvarsstöS-
inni. Fullyrt er, að hún ha'fi verið
keypt af stjórninni einni, án þess
að leyta samþykkis félagsfundar.
Það virðist sjálfsagt, bæði laga-
lega, að stjórnin hefði leitað slíks
samþykkis, að annað hefði ekki
átt að geta komið til mála, og það>
var því sízt að undra, þótt óánægja
félagsmanna væri róttæk og a®
þær öldur risu hátt, enda var þa®
svo-.“
Og enxx segir Siglfirðingur:
„En það er annað og ennþá nýrra
að frétta úr herbúðurn Kaupfélag®
ins. Aðalfund félagsins átti a@
halda um þessar mundir. Stjórn-
inni .fannst það viðkunnanlegra,
svona rétt til að líta á reikningana
áður en hann væri haldinn. Þa®
gat verið að þar væri að finna
einstöku tölur, sem hægt væri að
auglýsa með dugnað stjórnarinnar
Jú, vöruinnkaup höfðu stóraukizt
i En hvernig í fjandanum stóð á
þessu, mun Þoroddur hafa hugsað,
ágóðinn sváraði ekki til þess, sem
ætti að vera selt af vörunum. —
Það kom í ljós að allveruelg vöru-
þurð reyndist í tveimur deildum
félagsins. Heyrzt hefir talað uro,
að vörurýrnunin hafi numið á ann
Framh. á 6. síðu.