Alþýðublaðið - 23.05.1945, Page 2
ALÞYÐURLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. maí 194S>
FramboSsíresiur fil forseiakjörs fUrannhm:
Sveinn Björnsson.
Saiiife Sækna
hús í Rlykjavík
.......——,rT—
fi því eiga lika að vera íæknisigastofur þeirra
Fpsfa farþegaflug
hins nýja fiugbáis
FEugfélags íslands
HINN nýi Catalinaflug-
bátur Flugfélags ís-
lands fór í fyrsta farþegaflug
sitt í gœr. Lagði hann af stað
kl. 4 áleiðis til Reyðarf jarð-
ar, en þaðan átti hann að fara
til Akureyrar og þaðan hing
að til Reykjavíkur í gær-
kveldi.
22 menn voru með í þess-
ari fyrstu för. Flugstjóri er
Öm Johnson, en Jóhannes
Snorrason, er loftskeytamað
ur og vélamaður.
Lögregluþjonn slasasi
TKAÐ slys vildi til hér skammt
** fyrir innan bæinn laug-
ardaginn fyrir hvítasunnu að Ar
mann Sveinsson, lögregluþjónn
féll af mótorhjóli og slasaðist
allmikið-
Var Ármann á eftirliítsferð
um, veginn, er slysið varð. Veg
urinn var mjög ósléttur og mun
mötorhjólið hafa lent niður í
hplu, éri við það kastaðist lög-
regluiþj. af því og lá meðvit-
undarlaas á veginum þegar að
var komið. Var Ármann strax
fluttur á Landsspítalann og er
3»ú taiinn úr allri hætti*.
fh^ RÍR læknar hér í Reykja
vík hafa nýlega snúið
sér til bæjarráðs og farið
þess á leit að þeir fengju lóð
við Hringbraut, hjá Grænu-
borg, undir sjúkrahús og
lækningastofur, 'sem þeir
ætla sér að byggja þar,
Þessir læknar eru Bjarni
Bjarnason, Jónas Sveinsson og
, Eyþór Gunnarsson.
Alþýðublaðið sneri sér í gær
til Bjarna Bjarnasonar og spurði
hann um þessa fyrirhuguðu
byggingu.
„Við getum eiginlega ekkert
sagt um málið á þessu stigi.
Ætlun okkar er að læknar, sam
einist um að koma þarna upp
veglegu stórhýsi og að í því
verði bæði sjúkrastofur og lækn
ingastofur; er hugmyndin að
læknar stofni hlutafélögu um
þessa byggingu-
Bséjarráð íhefir enn ekki af-
greitt beiðni okkar um lóðina,
en við leggjum alla áherzlu á
að fá einmitt þessa lóð. Lækn-
ingastofur geta læknar ekki
haft lengra frá Miðbænum.“ *
Bæjarráð mun nú hafa þetta
mál til athugunar. Lengi hefir
verið skortur á sjúkrahúsum hér
í bænum. Mun því öllum þörfin
fyrir nýju sjúkráhúsi ljós.
Lú'ðrasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli í fevöld kl.
9 ef veður Leyfir. — Alls mun
lúðrasveitin leika 9 lög eftir ýms
þiekkt tónskáld. — Stjórnandi er
Aibert Klahn.
Áheit á Straudakirkju.
Afhent blaðinu kr. 4.00 frá Þ.
eg M.
^ VEINN BJÖRNSSON
verður sjálfkjörinn for-
séti Islands næstu fjögur ár,
með því að framboðsfrestur
er nú út runninn án þess að
framboð hafi borizt frá nokkr
rnn öðrum.
Dómsmálaráðuneytið til-
kynnti þetta í gær í eftirfarandi
yfirlýsingu:
„Hinn 20. þ. m. var útrunn-
inn frestur um framboð til for-
setakjörs. Kosning fer ekki
fram þar eð aðeins einn maðxir,
Sveinn Björnsson, núverandi
forseti, var boðinn fram og
hafði hann léð samþykki sitt til
þess að vera í kjöri. Fxxllnægt
var ölliun skilyrðum um fram-
hoðið og barst dómsmálaráðxx-
neytinu í tæka tíð hámarkstala
meðmælenda úr hverjum lands
fjórðurigi eðá alls 3000 kjós-
enda, ásamt tilskildum vottorð
um yfirkjörstjórna. Sveinn
Björnsson verður þannig sjálf-
kjörinn fyrsti þjóðkjömi forseíi
hins íslenzka lýðveldis. Öli gögn
varðandi framboðið verða send
hæstarétti, sem gefur út kjör-
bréf forsetans.“
Sem kunnugt er var svo fýrir
mælt í bráðabirgðastjórnarskrá
lýðveldisins, að alþingi skyldi
kjósa forsetann í fyrsta sinn, en
aðeins til eins árs. Því næst
skyldi hann ávalt þjóðkjörinn
til fjögurra ára í senn. Átti for-
setakjör að fara fram 24. júní
n. k., en samkvæmt framan-
birtri tilkynningu dómsmála-
ráðuneytisins, kemur ekki til
þess kasta með því að Sveinn
Björnsson var einn í^kjöri og
því sjálfkjörínn.
GisthúsIiS Vaihöil
lehið fil sfarfa
Q ISTIHÚSIÐ Valhöll opn
^ aði sumarstarfsemi sína
um hvítasunnuna og hefir nú
þegar verið pantað næstum
allt rúm, sem gistihúsið ræð-
ur yfir fyrir dvalargesti. —
Nokkuð mun þó enn vera
laust af rúmi í júnímánuði.
Forstöðumaður hótelsins verð
ur í sumar Gunnlaugur Ólafs-
son, Sigurður Gröndal er yfir-
þjónn, Gísli Guðmundsson yf-
irmatsveinn, en Laila Jóhann-
esson hefir yfirumsjón með
„kalda borðinu.“
Miklar umbætur hafa verið
gerðar á gistihúsinu og útbún-
aði þess síðan í hitt eð fyrra.
Nýjungar síðan í fyrra eru það
að gistibúsið hefir fengið nýja
og stóra eldavél með olíukynd-
ingu og er hún drifin með mót-
or, sem komið hefir verið fyrir
í nýju útihúsi. Þá hafa verið
settar upp i portinu miklir ís-
skápar svo að nú er hægt að
geyma miklu betur en áður ým f
iskonar matvæli. Er þetta mik-
il unibót- Símastöðin hefir riú
tekið til stárfa í skálanum sem
byggður var fyrix nokkrum ár-
ár
Ein myndin í bókinni: Hengifoss í Fljótsdal.
Arbék htMéh§$m m
SkrifisS af ®&annari tonnar&syni skáidi og
r r
ARBOK Ferðafélags íslands fyrir árið 1944 er komin úil
og verður send félagsmönnum næstu daga. Árbókim
fjalar að hessu sinni um hérað, sem ekki er miös? kummðfc
— Fljótsdalshérað — bg er þó eitt fegursta hérað landsins
og skáldið Gunnar Gunnarsíson skrifaði um það.
Árbóldn er að þessu sinn 148
síður að stærð auk myndasíðn-
anna, en myndirnar eru fjölda
margar og hver annari fegurri,
eða alls 96 að tölu. Gunnar
Gunnarsson skiptir bókinni í
12 kafla: Fjöllin og heiðin — í
þessum kafla skrifar hann um
höfuðból, fornt. og nýtt, Herðu-
breið og fjallahringinn um
Möðrudal, í áttina til Héraðs,
vatnaskil og Heiðin, sem fólkið
flýði. Annar kaflinn heitir
Fljótsdalshérað. Lýsir höfund-
urinn þar Jökulsá, Lagarfljóti,
Selfljóti og hreppaskiptingu.
Þriðji kafli er um Jökuldal. Þar
er dalnum lýst, sagt frá legu
og landamerkjum, landnámi á
Jökuldal, stöðum, ferjum, veg-
um o. s. frv. Fjórði kafli er um
Jökuldalsárhldð. Er þar lýst veð
urlagi í 30 ár, landslagi, bæja-
röð og mörgu fleiru. Fimmti
kafli er um Tunguhrepp. Þar er
m. a. rætt uin vöntun á vegum
og brúm 'og gefin vetrarmynd
úr Tungunni. Sjötti kafli er um
Fellin. Þar er lýst Grímstorfu
og Nónásskógi, Miðbyggð veiði
vótnum, túnum og loks saga af
presti og hesti. Sjöundi kafli er
um Fljótsdal. Þar er birt m. a.
gömul ferðalýsing, lýst Hamra-
hlíð, útsýni, rætt um yngsta
kiaustrið, lýst ^ Melabyggð og
Austurbyggð. Áttundi kafli er
um Skóga, lýst Hallormsstað og
Hallormsstaðaskógi, sagt frá
bæjum, dalalífi, skepnum og
fleiru. Níundi kafli er um Velli,
lýst landnámi á Völlum, Egils-
stöðum, Fagradal, sagt frá ör-
lagaríkri ferð o. s. frv. Tíundi
kaflinn er um Skriðdal — er
þar sagt frá dalnum og lýst
gróðri qg veðurfari. Ellefti kafl
inn er um'Eiðaþinghá — og er
þar lýst Eiðum. Tólfti kaflinn
fjallar um útiriannasveit er þar
" " ‘ • " • ' #
um. Þár sem siiriaafgreiðsla var
áður er ftu aðeins skrifstofa hó-
telsine. -i’.
bupir Hu
Yelcyr við sklpin'ir
pegar k@mur
frá KaSifax
Eimskipafélag ís-
I/ANDS hefur keypt
Kötlu af Eimskipafélagi
Reykjavílrur. Katla er, ein*
og kunnugt er 2010 DW að
stærð.
Eimskipafélag íslands tek-
ur ekki við skipinu fyrr en
það kemur úr næstu ferð
sinni frá Halifax. Enn hefur
ekki verið ákveðið hvaða
nafn skipið fær.
auk legu og landsnáms lýafc
landslagi og staðháttum, veg-
um og reiðgötum, sagt frá gömi8
um draumum og loks eru niður
lagsorð.
Fram og Valur jafnir
RAM og VALUR kepptu ð
* Iþriðja sinni í gærkvöldi
til úrsliti sin á.milli í TúlinítOB
armótinu, en jafntefli vaxð en»
þá. Var Iéiknum tvíframlengí
og lauk með 1 marki gegn 1-
Marta Maria Helgason,
ekkja Jóns Helgasonar biskujp^.
andaðist cíðastliðinn. mánudag. • (