Alþýðublaðið - 01.02.1946, Síða 2
ALÞYÐÚBLAÐIÐ
Fttstudagur 1. febrúar 1946
Alþingi kemur sam-
an iil framhalds-
funda í dag.
ALÞINGI, sem frestað var
skttmmu fyrir jól, kem-
ur saman til framhaldsfunda
í dag, en eins og kunnugt er,
var samkomulagi reglulegs
alþingis í ár frestað frá 15.
febrúar til 1. október í haust.
Fyrir Alþingi liggja ýmis
stórmál, þegar það kemur nú
saman til framhaldsfunda, og
má meðal þeirra nefna frum-
vörpin um opinbera aðstoð
við byggingu íbúðarhúsa og
um ahnannatryggingar, sem
flutt voru að tilhlutan Finns
Jónssonar félagsmálaráð-
herra.
Skjöl fundin nn fyrlrhogaða innrás
Þjððveria á Isiaid á ðfriðaránnom?
Ameríkumaður, sem hingað er kominn frá
Nurnberg, segir að þau séu nú í höndum
herstjórna bandamannna.
—-----♦------
Dómsmálaráðherrann hefur gerf fyrirspurn,
en svar er
enn.
E
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Skálholt eftir Guðmund
Kamiban í kvöld kl. 8.
ITT AF DAGBLÖÐUM HÖFUÐSTAÐARINS, Mörg-
unblaðið, flutti í gær bá frétt, að fundizt befðu úti í
Þýzkalandi skjöl, er sönnuðu að Þjóðverjar 'hefðu á ófriðar-
árunum undirbúið og skipulagt innrás á ísl'and.
Heimildarmaður að frétt þessari er William Downey, Ame-
ríkumaður, sem verið hefur viðstaddur í Niirnberg. Kveðst hann
hafa kynnt sér skjölín um fyrirætlanir Þjóðverja um innrás á Is-
land, en þau séu til athugunar hjá herstjórnum bandamanna og
verði efalaust birt síðar.
IIUlIiiL
Fysta afrek spyrSubandsins á Isafírði:
Siprður Bjaruasoo kosinn forseti
bflejarstjórnariiiiiar!
-------♦_-----
En Sigurður Halidórsson og Haraldur Guð-
mundsson voru kosnir 1. og 2. varaforsefáS
-------4------
Fundarsköp og samþykkfir þverbrotnar!
------4-------
HIN NÝJA BÆJARSTJÓRN ísafjarðarkaupstaðar hélt
fyrsta fund sinn í fyrrakvöld og kom þá í ljós, að íhalds
menn og kommúnistar höfðu fyrirfram samið um að efna til
samfylkingar í bæjarstjórninni gegn Alþýðuflokknum, þótt
þeir byðu honum til málamynda aðild í stjórn kaupstaðar-
ins. Kaus spyrðuband íhaldsmanna og kommúnista Sigurð
Bjarnason forseta bæjarstjórnarinnar og ákvað að auglýsa
embætti bæjarstjórans. Jón Guðjónsson fráfarandi bæjar-
stjóri hefur neitað að gegna störfum bæjarstjóra til bráða-
birgða og er talið, að fulltrúi bæjarstjóra muni gegna emb-
ættinu um sinn, unz nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn.
Sigurður Bjarnason las á
bæjarstjórnarfundinum í fyrra-
kvöld upp bréf íhaldsmanna og
kommúnista til Alþýðuflokks-
ins, þar sem honum var boðið
að gerast aðili að þegar gerðum
samningi spyrðubandsins um
stjórn bæjarmála og fram-
kvæmdir bæjarfélagsins. Hanni
bal Valdimarsson las hins veg-
ar upp svarbréf Alþýðuflokks-
ins, þar sem tilboði þessu var
hafnað og rök leidd að því, að
kommúnistar og íhaldsmenn
hefðu fyrirfram ákveðið að
stjórna bænum í sameiningu og
það væri aðeins gert til að sýn-
ast að bjóða Alþýðuflokknum
að gerast aðili að samningi
þeirra. En eins og áður hefur
verið frá skýrt hér í blaðinu í
fréttaskeyti frá ísafirði eru í
samningi þessum aðeins ráð-
gerðar framkvæmdir, sem Al-
þýðuflokkurinn hefur verið að
framkvæma eða undirbúa, auk
þess sem bar vantar flest kosn-
ingaloforð íhaldsins. Einnig var
í samningnum ákveðið að fá
verkfræðing sem bæjarstjóra og
þar með að, láta Jón Guðjóns-
son, sem getið hefur sér mikinn
og góðan orðstír sem bæjar-
stjóri, fara, en hann var bæj-
aiístjóraefni Alþýðuflokksins.
Hafði fjölmennur fundur full-
trúaróðs Alþýðuflokksins hafn-
að þyí, að Alþýðuflokkurinn
gerðist aðili að þessum málefna
samningi íhaldsmanna og komm
únista, sem þeir þóttust vilja
að Alþýðuflokkurinn sam-
þykkti eftir á. Liggur í aug-
um uppi, að samvinna komm-
úista og íhaldsmanna hefur ver-
ið fyrirfram ákveðin, enda
leiddi bæjarstjórnarfundurinn
það glögglega í ljós.
Kommúnistinn og íhaldsmenn
irnir fjórir kusu Sigurð Bjarna-
son forseta bæjarstjórnarinnar
og Sigurð Halldórsson varafor-
seta. En að auki kusu þeir ann-
an varaforseta, og brutu með
því fundarsköp, og hlaut bæj-
arfulltrúi kommúnista, Harald-
ur Guðmundsson, þá mannvirð
ingu! Hins vegar var kosningu
bæjarstjóra frestað, þótt svo sé
fyrirmælt í samþykktum um
stjórn bæjarmála, að hann skuli
kosinn á fyrsta fundi bæjar-
stjórnarinnar, en í þess stað var
ákveðið að auglýsa embætti
bæjarstjóra og mun spyrðu-
bandið leggja áherzlu á, að hann
sé verkfræðingur, en hirða
minna um hitt, hversu hæfur
hann sé til að gegna starfa bæj-
arstjórans.
Jón Guðjónsson hafði verið
beðinn að gegna. bæjarstjóra-
starfinu áfram til bráðabirgða,
meðan spyrðubandið væri að
Framh. á 7. síðu.
Skjöiin, sem samkvæmt frá-
sögn Downeys eiga að vera í
vörzlu herstjórna bandamanna,
eru sögð sýna, að Þjóðverjar
hafi gért áætlun um innrás á
ísland. Hafi verið gengið frá
öllum undirbúningi að innrás-
inni og ekki. staðið á öðru en
fyrirskipun herstjórnar Þjóð-
verja um, að hún skyldi fram-
kvæmd. Með skjölum þessum
eiga að hafa fundizt uppdrætt-
ir af íslandi, þar sem merktir
séu staðir þeir, þar sem innrás-
arherinn átti að lenda. Einnig
hafi verið gerð nákvæm áætlun
um, hversu margir hermenn
ættu að taka þátt í innrásinni,
svo og hversu fæða ætti her-
inn og annað slíkt.
Út af þessari frétt sneri Al-
þýðuþlaðið sér i gær til Finns
Jónssonar dómsmálaráðherra.
Tjáði ráðherrann blaðinu, að
hann hefði fyrir nokkru óskað
þess, að sendiherra Bandaríkj-
anna hér spyrðist fyrir um það,
hvort bandamenn hefðu í hönd-
um nokkur skjöl, er sýndu árás
aráform Þjóðverja gagnvart ís-
landi á ófriðarárunum eða gæfu
upplýsingar um njósnarstarf-
semi þeirra hér, en svar væri
enn eigi komið við þeirri fyrir-
spurn.
Þá kvaðst dómsmálaráðherra
og hafa fengið vilyrði fyrir því,
að undangenginni fyrirspurn
með milligöngu sænska sendi-
ráðsins hér, að hinn frægi
sænski lögfræðingur Hugo Lind
berg, sem er viðstaddur réttar-
höldin í Niirnberg fyrir hönd
sænsku stjórnarinnar, reyndi að
komast fyrir þessi mál.
Fyrsti fundur hinnar
nýkjörnu hæjarsijórn-
ar er á laugardag ki. 2.
jC YRiSTI PUINDUR 'hiiimar
*• nýkjlörniu íbæjiarsitjönniair í
Reykjiavík rverðonr ihafljdiinin kl. 2
næstkiomiamdi ia.ugardaig. Á fiund
iinfum venðiur ikoainm ihorgar-
stjóri í Reykjiavík fyiritr næstu
4 ér. Ein,niig v-eriður jþá’ kosið
(bæjiarráð og í ýmsar fastiar
neifndiir bæjiaaráins.
Húnvetningamótið
verður haldið að Hótel Borg
fimmtudaginn 7. febrúar og hefst
iþað kl. 7.30 s.d. — Áskriftarlistar
liggja frammi í verzluninni Olym-
pia, hjá Eymundsen og Brynju.
Slarfsfólk A-listans!
T|/f ÆTIÐ stundvíslega á
■A skemmtuninni í Alþýðu
húsinu í kvöld kl. 8.30. Haf-
ið vasasöngbókina með ykk-
ur. Þeir, sem ekki þegar hafa
sótt aðgöngumiða vitji þeirra
á skrifstofu flokksins fyrir
kl. 3 í dag.
Tveir sænskir skíða-
kennarar koma
til Reykjavíkur
á næstunni.
HP VEIR sænskir skíðakenn-
arar eru væntanlegir hing-
að á næstunni; annar á vegum
íþróttafélags Reykjavíkur, en
hinn á vegum Fjallamanna.
Skíöaikeniniari1 ;sá, sem ÍR. fær,
ihieiiitir Geor.g Bergfors 0|g mium
ihamm kemraa hjá fóla,gimiu í vet-
uir, iem jafmframít því istem flnamn
er skiðaiþjálfiari, et (hainm eimmiig
fcaniniari í frjálisum líþróitibum.
Heifur jiaÆruvel komið tifl. orðá, að
(hiainm dvelji hér fraimi á mæsta
sumar.
iSfcíðáfceniniari sá, sem Fjafl'la-
menin fá til sín, (heitir Berteil
Nordenskjold, oig miun fltann
eimfcum fcemma hjá Fjialiiamiömn-
lum sjiálíum, en ef til viill edinmig
eiltitihvaið (hjá öðúum sikíðafélögr
um; iþað hefur enm ekfci varið
ábveðið.
Sk jaldarg líma
Ármanns erí íþrólfa-
höllinni við Háloga-
land klukkan níu
SKJALDARGLÍMA ÁR-
MANNS fer fram í íþrótta-
höllinni við Hálogaland klukk-
an 9 í kvöld, ög verða keppend-
umir tíu frá þrem íþróttafélög-
um. Keppt verður um nýjan
skjöld, sem Eggert Kristjáns-
son stórkaupmaður hefur gefið,
en auk þess verða veitt tvenn
fegurðarverðlaun. Blílferðir inn
að Hálogalandi verða frá bif-
reiðastöðinni Heklu kl. 8%.
Glímukeppni þessi verður efa
laust mjög hörð og spennandi,
þvií þarna þreyta með sér leik
snjöllustu glímumenn höfuð-
staðarins svo sem Guðmundur
Ágústsson, núverandi skjaldar-
hafi og glímukóngur og glímu-
snillingur íslands, Guðmundur
Guðmundsson, sem keppt hefur
að undanförnu fyrir ungmenna
félagið Trausta, en keppir nú í
fyrsta sinn fyrir Ármann og
reyndiist nafna sínum skæður
keppinautur á Íslandsglímunni
í vor, Einar Ingimundarson,
Friðrik Guðmundsson, glímu-
kappi K. R., Guðmundur bróð-
ir hans, sem er ungur og mjög
efnilegur glímumaður, og Davíð
Hálfdánarson fyrrv. glímukappi
K. R. Einnig keppa þeir Krist-
ján Sigurðsson úr Ármanni,
Ólafur Jónsson úr K. R. og
Ágúst Steindórsson úr Umf.
Hnunamanna, en allt eru þetta
ungir og efnilegir glímumenn.
Þá keppir og Sigurður Hall-
björnsson og er betta í tíunda
sinn, sem hann tekur þátt í
skjáldarglímunni. en Sigurður
er í röð okkar snjöllustu glímu-
manna.
V erzlunarmann af él. Reykja
víkur 55 ára.
------4-----
TVIeðlfcnataSa þess orðin hátt á sautjánda
hundrað.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR á um
þessar muTiclir 55 ára afmæli. Það var stofnað 27. jan.
1891 og voru stofnendur þess nökkrir kaupsýslumenn í
Reykjavík. Á isíðari árum hefur starfsemi félagsins aukizt
mjög og eru meðlimir þess nú hátt á sautjánda hundrað.
í gær boðaði Guðjón Einars-
son, formaður Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur, blaðamenn
á sinn fund og skýrði þeim frá
helztu atriðunum í starfsemi fé-
lagsins síðast liðin fimm ár, en
á fimmtíu ára afmæli þess var
gefið út ýtarlegt minningarrit
um félagið og er þar að finna
starfssögu þess frá stofnun.
Einn helzti hvatamaðurinn að
stofnun félagskis var Þorlákur
O. Jhonsson, en fyrsti formað-
ur þess var Th. Thorsteinsson.
Frá því á fimmtíu ára afmæli
félagsins hafa þessir verið for-
menn þess: Egill Guttormsson,
Hjörtur Hansson, Oddur Helga
son og loks Guðjón Einarsson,
sem kosinn var formaður félags
ins á aðalfundi þess í haust.
Fyrir þrem árum barst félag-
inu höfðingleg gjöf frá Thor
Jensen, voru það 80 þúsund kr.,
sam eftir fyrirmælum gafand-
ams áttu að verða stofnfé að
sjóði til að styrkja verzlunar-
fólk til náms. Heitir sjóður
þessi „Námssjóður Thors Jen-
sen“. Var strax samin skipu-
lagsskrá fyrir sjóðinn og kos-
in stjórn fyrir hann. í stjórn-
inni eru Haukur Thors, Adoif
Björnsson, Hallgrimur Bene-
diktsson, Hjörtur Hansson og
Stefán Bjarnason.
Árið 1944 jókst húsbygging-
arsjóður félagsins um rúmar 70
þúsund krónur og er nú rúmar
200 þúsund krónur. Félagatal-
an jókst og mikið á því ári.
Síðasta ár má þó telja eitt
merkasta tímabil í sögu félags-
ins, þvi þá hófst í fyrsta sinn
undirbúningur að kjarasamn-
ingi milli verzlunarfólks og at-
vinnurekenda og hafa þeir nú
nýlega verið undirritaðir, eins
og áður hefur verið getið í blöð-
unum. Hafa samningar þessir
leitt af sér miklar kjarabætur
fyrir lægst launaða verzlu'nar-
fólkið.
Framh. á 7. síðú.