Alþýðublaðið - 01.02.1946, Qupperneq 7
í’östudagur 1. febrúar 1946
ALt»YÐUBUÐIÐ
T
♦——---------------------------♦
Bærinn í dag. I
i
♦-----------------------------♦
Næturlæknir er í Læknavarð-
atofunni, sfcni 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó
tóki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sfeni 1633.
ÚTVAEPIÐ:
20.00 Útvarpssagan: ,,Stygge
Krumpen" eftir Thit Jen-
sen, XIII (Andrés Björns-
son).
21.00 Píanókvartett útvarpsins:
op. 16, eftir Beetlhoven.
21.15 Dagskrá bindindisfélaga í
skólum:
a) Ávörp og ræður (Hjalti
Þórðarson, forseti sambands
sins, Ssuninnuskólanum, Vil
hjálmur Sigurbjörnsson,
son, Kennaraskólanum,
Elin DungaJ, Kvennaskól-
anum.
b) Tónleikar( plötur).
22.00 Fréttir.
22.05 Symfóníutónleiikar( plötur):
a) FiðMkonsert nr. 1. eftir
Paganini.
b) Ófullgerða symfónían
eftir Schubert.
Misprentazt
hafði í grein um leiksýningu
menntaskólans í blaðinu í gær:
Guðmundsdóttir fyrir Guðmanns-
dóttir og Viihjálmsdóttir fyrir Vil-
hjálmsson. Leiðréttist þetta. hér
með.
Hín nýja bæjarsljórn
ísafjarðar,
Framh. af 2. síSu.
sjá út nýjan bæjarstjóra, en
hann neitaði eindregið að verða
við þeim tilmælum. Er talið, að
fulltrúa bæjarstjóra, Páli Guð-
mundssyni, verði falið að gegna
embættinu, unz nýr bæjarstjóri
hefur verið ráðinn.
Albýðuflokkurinn á ísafirði i
efndi til fundar í gærkvöldi, og i
var bann mjög fjölsóttur. Er
mikil óánægja ríkjandi á ísa-
firði yfir samvinnu kommún-
Ista og íhaldsmanna og abnenn-
ur áhugi fyrir því að efla Al-
þýðuflokkinn sem mest.
Félagslíf.
13 uðspekif élagið.
Reykjavíkurstúkufundur verður
í kvöld. Hefst hann kl. 8.30 í
húsi félagsins. Sigurður Ólafs-
son flytur ræðu um menning
og skyldur. Gestir eru vel-
ikomnir.
V A L U R
Skáðiaf'erð á iLaugiardia,g kl. 7
Oig suainiudagisimoirguin. kJ. 9. —
ÍFarmiðar seldir i Hemabúðiinni
M. 10—2 á Lauigairdiag. — Lagt
af stað firá Anniahh'vo'li,
. Í S.Í. H. K. R. R.
Landsmót í ihandkniattleilk
fetr fram í Ibyirjiun. mlairz.
OÞaai félöig, er 'VÍLdu taika að
sér að sjá um mótiið, itilkynin.i
það mðainiu fyair 7. felbxúar n.k.
í. R. Skíðadeildin.
SMðaferð að Kolviðarhóli á
laugardag kl. 2 og kl. 6; á sunnu
dag kl. 9 f. h. — Farmiðar eru
seldir í verzl. Pfaff kl. 12—3 á
laugardag.
Mlnningarorð:
Jón Pálsson bankaféhirðir
Líkami jóns pálssonar
verður greftraður í ,dag. i
Jón Pálsson var fæddur i
Syðra-Seli, Stokkseyrarhreppi i
Árnessýslu, 3. ágúst 1865.
Foreldrar hans, Margrét
Gísladóttir og Páíl Jónssön, |
voru mestu merkishjón, valin- j
kunn, vel ættuíg og af söng- j
mönnum komin.
Páll var atorkumaður mikill. j
Stundaði hann búskap og sjó- j
mennsku jöfnum höndum.
Hreppstjóri var hann um skeið.
Margrét og Páll eignuðust 12 ;
börn, tvær dætur og tíu sonu. 1
Sjö synir þeirra náðu fullorð- |
insaldri og hafa orðið ^ þjóð- j
kunnir menn, eins og ísólfur j
Pálsson, fjölhæfi snillingurinn; j
Június, frábær athafnamaður,
framsýnn og dulvitur og Bjarni,
organieikari og kennari, faðir •
Friðriks söngstjóra og kennara
í Hafnarfirði.
Jón Pálsson ólst upp við
starfsemi og siðavendni. Hann
var að eðlisfari mjög fróðleiks-
fús. Nam hann alít, sem kostur
var á, einbeittur og áhugasam-
ur. Jón hafði hlotið i vöggugjöf
ágæta greind og frábæra athygl-
isgáfu. Sönghneigð hans var rik
eins og hann átti ætt til. Bjarni
bróðir hans kenndi honum að
leika á hljóðfæri. En mikið
varð pilturinn á sig að leggja j
við nám það. Sjálfur átti hann
ekki hljóðfæri, en fékk að æfa
sig á kirkjuhljóðfærið. En í
kirkjunni var frost og fennti
inn, þegar kalt var á vetrum. ’
Og all-langt var tíl kirkjunnar.
Ungi námsmaðurinn setti ekki
fyrir sig smámuni, því að hann
átti í ríkum mæli einbeitni og
táp. Vitanlega sinnti hann
náminu i hjáverkum.
Fyrrum voru' unglingar á
barnmörgum heimilum og
stjórnsömum snemma vanin á
iðjusemi og stundagleggni. All-
ir urðu mikið á sig að leggja,
til þess að verða ekki hand-
bendi annarrá.
Margt lagði Jón á gjörva
hönd, er hann komst úr æsku.
Er það titt um menn, sem hafa
mikla , sjálfsbjargarviðleitni.
Vann hann alla algenga vinnu
í sveit, fékkst við vegagerð,
stundaði sjóróðra, var formaður
á skipi, ráðsmaður fyrir 'búi og
fórst aílt vel.
Jón var tuttugu og eins árs,
þegar faðir hans og Bjarni,
bróðir Jóns, drukknuðu, er þeir
voru að koma úr fiskiróðri í
stormi og foráttubrimi.
Eftir þetta slys, tók Jón við
bústjórn, um tveggja ára skeið,
hjá ekkju Bjarna.
Er veru hans lauk i Götu, en
þar bjó ekkjan, fluttist hann á
Eyrarbakka og varð þar kenn-
ari. Organleikarastaífi gegndi
hann bæði í Eyrarbakkakirkju
og Stokkseyrar. Hann sinnti
einnig verzlunarstörfum og var
bókhaldari hjá Lefoliiverzlun-
inni.
Ýms málefni lét Jón til sín
taka og gerðist frumkvöðull
margra framkvæmda. Hann gaf
út skrifuð sveitablöð. Ritaði
hann í þau og ýmsir aðrir á-
hugamenn. Þessi bloð vöktu
menn til umhugsunar og
bjuggu þá undir síðari fram-
kvæmdir.
Oft voru landlegudagar þarna
í sjávarþorpunum. Fóru menn
misjafnlega með þann tima.
Þótti Jóni landlegudögunum
betur varið til náms en iðju-
leysis. Stofnaði hann þess vegna
skóla, sem nefndur var Sjó-
mannaskóli Árnessýslu. Naut
skólinn lítils háttar styrks úr
sýslusjóði. Kenndi Jón sjálfur í
skólanum og tók.ekki fé fyrir.
Jón Pálsson var meðstjórnandi
sparisjóðs Árnessýslu og gegndi
Jón Pálsson
fleirum trúnaðarstörfum.
Árið 1895 kvæntist Jón Páls-
son Önnu Sigriði Adólfsdóttur.
Var hún prýðilegasti kvenkost-
ur austur þar.
Sjö árum síðar fluttu þau
hjónin til Reykjavíkur.
Varð Jón þá bókhaldari hjá
Brydesverzlun, en starfsmaður í
Landsbankanum varð hann árið
1910. Fjórum árum síðar var
honum veitt aðalféhirðisstaða
hankans. Gegndi hann féhirðis-
starfinu í sextán ár.
Jón var organleikari i Frí-
kirkjunni um margra ára skeið.
Fjölmörgum hefur hann kennt
að leika á hljóðfæri.
Margvislegum störfum hefur
Jón sinnt hér i Reykjavik. Hann
var í stjórn Holdsveikraspítal-
ans og Thorkillisjóðsins um ára ;
bil.
Góðtemplarareglunni lagði
hann lið sitt og hafði þar á
hendi um tima æðstu embætti.
Jón stofnaði Sjúkrasamlag
Reykjavíkur og var formaður
þess fullan fjórðung aldar. Þá
stofnaði hann og stýrði Sumar-
dvalarheimili við Silungapoll,
en Oddfellowar báru kostnað
þessarar þörfu stofnunar. Enn
kom Jón á fót félagi, sem hlaut
nafnið Fuglavinaféíag. Drengir,
á ýmsum aldri, voru í félagi
þessu. Þar var þeim leiðbeint i
mörgu nytsömu og góðu; var
þar reynt að glæða manngöfgi
þeirra og vekja veivild þeirra
til dýranna. Ferðalaga og
skemmtana urðu drengirnir
einnig aðnjótandi.
Jón Pálsson var formaður
Barnaverndarnefndar Reykja-
víkur frá því að hún tók til
starfa 1932 og fram til þess, er
leiðir skildu. Vann hann þar
mikið starf og gott eins og víðar.
Mikið hefur Jón ritað um
ævina, en fátt eitt hefur birzt
ennþá, nema blaðagreinir. Aust-
antórur komu út árið sem leið,
fyrsta hefti. Fjölbreytilegt
handritasafn liggur eftir hann
óprentað, og er líklegt, að það
verði gefið út, er timar líða.
Heimili Jóns Pálssonar var
eitt þeirra kyrrlátu heimila,
þar sem reglufesta, eindrægni
og alúð ríkti. Bæði voru hjónin
samtaka í gestrisni og um-
hyggju gagnvart komumönnum.
Frú Anna vakti kostgæfilega
yfir heill heimilis síns eins og
venja er ágætra húsmæðra. Hún
hefur verið manni sinum holl-
ráður förunautur, tillögugóð og
bætandi. Styrkti hún mann sinn
eftir mætti í öllum góðum fram-
kvæmdum. Hún var sú, er lagði
fyrst til, að Páll ísólfsson gengi
listamannabrautina. Tók Jón til-
lögu konu sinnar eins og sannmr
höfðingi. Og studdu þau hjón
piltinn rikmannlega til náms.
Nýtur nú íslenzka þjóðin ávaxt-
anna.
Jón og Anna réttu fleirum
hjálparhönd en almenningur
veit.
j
Hjartans þakkir færi ég öllum skyldum og vandalausum
fyrir auðsýnda hjálp og samúð við andlát og jarðarför bróður
mins,
isigibergs Ingibergssonar, Frakkastíg 17.
Sérstakar þakkir færi ég þeim hjónunum, Óskari J. Magnússyni
og konu hans, Oddnýju Ólafsdóttur, Njálsgötu 26, er önnuðust
og greiddu allan útfararkostnað, — svo og Markúsi Guðmunds-
syni .verkstjóra, og vinnuflokki hans, fyrir mikla peningagjöf, er
hann færði mér.
Guð launi ykkur öllum fyrir ómetanlega hjálp.
Pálína Ingibergsdóttir.
i ii iT'fninw ....
Það tilkynnist hérmeð að faðir, fósturfaðir og bróðir
okkar,
Jóhannes Biörn BJömsson
bifreiðastjóri,
lézt að heimili sínu, Mánagötu 19, 31. janúar.
Jón R. Björnsson. Ingi Pétursson.
Ragnheiður Björnsdóttir. Sesselja Björnsdóttir.
ísafold Björnsdóttir.
fiéi ibið ésksst
Ung hjón óska eftir góðri 2ja til 3ja herbergja
íbúð.
Tilboð ásamt leiguskilmálum leggist inn á af-
greiðslu Alþýðublaðsins fyrir n. k. laugardag,
merkt ,,— Strax -— 1946“.
Þau ólu upp fósturbörn og
reyndust þeim sem beztu for-
eldrar. Guðný Torfadóttir og
Ragnar bróðir hennar komu til
hjónanna á 4. og 5. ári. Frú
Guðný hefur alla tíð verið hjá
þeim, en Ragnar fór fullorðinn
utan og dvelur erlendis. Frú
Guðný er gift Kristni Vilhjálms-
syni. Eiga þau telpu, þriggja
ára, sem ber nafnið Anna Sig-
ríður.
Litla Anna hefur verið sann-
kallaður sólargeisli á heimilinu
og eldri hjónunum til mikillar
gleði, svo barngóð og elskurík
sem þau bæði voru.
Allra sannglaðastur var Jón
Pálsson á heimiíi sinu, þegar
hann sat við hljóðfærið sitt,
lék fegurstu lögin og baðaði sál
sína i regni og sólskini tónanna.
Síðustu árin kenndi JÓn mik-
ils lasleika, en gekk þó að sínu
eins og ekkert væri, sat fundi
og ferðaðist, ef þörf krafði.
Hann lagðist rúmfastur seinast
í nóvember siðast liðnum og
andaðist á hádegi 18. þessa mán-
aðar.
Aldrei mælti hann æðruorð í
legu sinni og tók þvi ókomna
i með sigurvissu í sólbjarma trú-
arinnar og óbifanlegu trausti á
stjórnanda lifsins.
Hallgrímur Jónsson.
Verzlonarmanna-
iélag Reyfcjaríknr.
Framh. af 2. siðu.
Nú starfar félagið orðið í
þrem aðaldeildum, sem allar
heyra þó sameiginlega undir
stjórn Verzlunarmannafélagsins
sjálfs. Deildir þessar eru Skrif-
stofumannadeild, Afgreiðslu-
mannadeild og Sölumannadeild.
Hafa deildirnar allar sérstakar
stjórnir, hver fyrir sig, og í
verzlunarmannafélagshúsinu er
starfrækt skrifstofa, sem m. a.
hefur það hlutverk, að vera upp
lýsingastöð fyrir verzlunarfólk-
ið, bæði hvað viðkemur kjör-
um þess, og eins nokkurs konar
vinnumiðlun. Þangað geta kaup
sýslumenn leitað eftir starfs-
fólki, og verzlunarfólkið fengið
fyrirgreiðslu eftir því sem auð-
ið er, ef það þarf að leita eftir
atvinnu. Mun þessi starfsemi
verða aukin i framtiðinni, eft-
ir því sem þörf gerist.
Þá hefur komið til orða að
félagsheimili verzlunarmanna
verði í framtíðinni aðeins fyrir
verzlunarfólkið sjálft, og því
hagað þannig, að verzlunarfólk
inu geti sem bezt notast af því.
Blaðið Frjáls verzlun hefur
fram að þessu verið gefið út
eins og áður, en útgáfan hefur
verið ýmsum örðugleikum háð;
blaðið ekki komið reglulega út,
o. s. frv.
Nú hefur hins vegar verið ráð
iimn fesitiur ritsitjlóri blalðsiins firá
1. febrúar og verður blaðið jafn.
framt stækkað frá sama tíma.
Ritstjóri Frjálsrar verzlunar
verður Baldur Pálmason.
Núverandi stjórn félagsins
skipa: Guðjón Einarsson for-
maður, Baldur Pálmason vara-
form., Carl Hemming Sveins-
son ritari, Sveinn Ólafsson gjald.
keri og meðstjórnendur Björg-
úlfur Sigurðsson, Konráð^ Gísla-
son og Pétur Ólafsson. í vara-
stjórn eru þeir Gunnar Ásgeirs
son, Gunnar Magnússon og
Sveinbjörn Árnason.
í kvöld heldur Verzlunar-
mannafélagið hóf að Hótel
Borg í tilefni afmælisins, og
hefst iþað með sameiginlegu
borðhaldi.