Alþýðublaðið - 12.03.1946, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.03.1946, Blaðsíða 4
ALÞYeUBLABI* ihrðijuilagtu*, 12. warz: ÍSiS. pi?>X)ðnbU5i& Útgefanði: Alþýðaflokkarinn. Ritstjóri: Stefán Pétursson. Símar: Ritstjórn: 4901 og 4902. Afgreiðsla og augiýsingar: 4900 og 4906. , Aðsetur í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. Verð í lausasölu: 40 aurar. Alþýðuprentsmiðjan hf. 1914 12. man ,1946 ' 9 Alpýöoflokkorinn op AUtfðnsanbandli 30 ára 30 ára barátta. ALÞÝÐUFLOKKURINN lít- ur i dag yfir þrjátiu ára baráttu og starf. Hann var stofnaður þ. 12 marz 1916. Þrjátíu ár eru ekki . langur tími í sögu flokks eða þjóðar; en þau þrjátiu ára, sem Al- þýðuflokkurinn hefur starfað hafa þó nægt til þess að ger- breyta lifi og lífskjörum ís- lenzkrar alþýðu svo, að þeir, sem nú eru að alast upp, geta mjög litla hugmynd gert sér um, við hvaða kjör hún átti að búa, áður en Alþýðuflokkurinn ihóf baráttu sina fyrir jöfnum rétti hennar á við aðra, fyrir bættum kjörum og fyrir betra og fullkomnara þjóðfélagi. Þau eru orðin mörg, mannúð- ar-, réttinda- og hagsbótamálin, sem Alþýðuflokkurinn hefur barizt fyrir og borið fram til sigurs á undanförnum þrjátiu árum, allt frá því, að hann knúði fram lögin um sex klukku stunda og siðar átta klukku- stunda hvíld á sólarhring fyrir togarasjómennina og þar til nú, að hann er að berjast fyrir lög- igjöf um almannatryggingar, sem á að tryggja alla þjóðina frá vöggu til grafar gegn skorti af völdum sjúkdóma, slysa, ör- orku, elli eða vöntuhar á fyrir- vinnu. Það mætti nefna, svo aðeins sé stiklað á því stærsta, al- menna kosningaréttinn, afnám sveitarflutninga, vinnuvernd- ina á sjó og landi, samnings- rétt verkalýðsfélaganna, verka- mannabústaðina,. alþýðutrygg- ingarnar og brlofslögin. Allt eru þetta áfangar í þrotlausri bar- áttu Alþýðuflokksins þessi þrjá tíu ár, bæði innan þings og ut- an fyrir bættum lifskjörum og auðugra andlegu lifi alþýðunn- ar í landinu. Og þó að erfitt sé fyrir hina yngri, að gera sér í hugarlund, hvaða gerbreyting- um í lífi hins vinnandi fólks slíkar réttar- og kjarabætur hafa valdið, þá veit að minnsta kosti sú kynslóð, sem fékk þær, að það væri ólíkt, að lifa í þessu landi nú, ef Alþýðuflokksins hefði ekki notið við, stefnu hans og markvissrar baráttu. Það hefði þótt forspá, þegar Alþýðuflokkurinn var stófnað- ur, að 'hann myndi fá svo miklu áorkað á svo stuttum tíma. Alþýðuflokkurinn hefur sótt öll sín mál og unnið alla sína sigra á grundvelli laga og rétt- ar. Hann er flokkur lýðræðis- ins og jafnaðarstefnunnar og hatar alit ofbeldi og einræði. Með trúna á lýðræðið og jafn- aðarstefnuna að leiðarljósi mun hann, sigurviss, halda baráttu sinni áfram á ókomnum árum, baráttunni fyrir samfélagi og samábyrgð allra barna þjóðar- innar í framtíðarríki sósíalism- ans hér á landi, þar sem frelsi á að ríkja og jöfnuður að búa. HANN var ekki fjölmennur hópurinn, sem kom saman á fund i Báruhúsinu sunnudag- inn 12. marz. 1916. Það voru fulltrúar frá 7 félögum i Reykja- vík og Hafnarfirði, 22 að tölu, verkamenn og verkakonur, sjó- menn, bókbindarar og prentar- ar. En iþessi hópur manna vissi, hvað hann vildi og ætlaði sér. Hann stofnaði Alþýðuflokkinn. Stofnun flokksins þótti ekki stórtíðindi í Reykjavik. Það var ekki búizt við því, að'þessi sam- tök myndu orka mikið til áhrifa á íslenzk stjórnmál. En hópur- inn stækkaði brátt og áhrif 'hans uxu. í öllum kauptúnum og kaupstöðum landsins risu upp fátækir og umkomulitlir menn og konur, er skipuðu sér í fylk- ingarnar undir merki Alþýðu- flokksins, undir merki jafnað- arstefnunnar. Það var einkum tvennt, er studdi að stofnun Alþýðuflokks- ins. Það var annars vegar þró- unin í íslenzkum atvinnumál- jum, vaxandi verkalýðsstétt við sjávarsiðuna og aukinn stórat- vinnurekstur. Hins vegar voru það áhrifin utan frá, einkum frá Danmörku, en þangað höfðu leitað menntamenn og iðnaðar- menn til náms og þar kynnzt boðun jafnaðarstefnunnar fyrir atbeina vaxandi og þróttmikils dansks Alþýðufldkks. Alþýðu- flokkurinn var því upprunalega hvorttveggja í senn, mótaður af íslenzkum staðháttum og hinni alþjóðlegu jafnaðarstefnu. Hann var þjóðíegur samtimis því, sem kenningakerfi hans var borið uppi af alþjóðlegri hugsjón. Við stofnun Alþýðuflokksins var almenningur hér á landi á- hrifalítill um stjórnmál. Lög- gjöfin hafði ótal fjötra að geyma, sem batt rétt alþýðu- manna. Alþýðuflokkurinn hóf því þegar í upphafi baráttu fyrir auknum lýðréttindum fyrir lýðræði. Hann hefur þvi frá upphafi sinna vega verið mesti og öruggasti lýðræðisflokkurinn á íslandi. Hann hefur verið og er og á alltaf að vera sósíal- demókrataflokkur. Hann hefur ' barizt gegn einræði, jafnt í at- vinnumálum sem stjórnmálum. Á þeim 30 árum, sem liðin eru frá stofnun Alþýðuflokksins hafa orðið mikil og batnandi umskipti á íslandi. Alþýða manna ihefur risið upp til þess réttar, er hún átti vissulega kröfu til, og aukið hagsæld sína og menningu. Og alls staðar sjást þar spor og áhrif Aliþýðu- flokksins. Hans verk og átök íafa valdið gjörbreytingu í Mfi íslenzkrar alþýðu. Það hafa verið margar hend- ur, sumar krepptar og lúnar, sem lagzt hafa á þann plóg, sem unnið hefur að ræktun lands og lýðs undir forustu Alþýðuflokks ins. Óteljandi nafnlausar hetjur hafa barizt þar í fylkingunum og fórnað hvildarstundum sín- um og oft slitnu afli öreigans. Það var trúin á málstaðinn, trú- in á jafnaðarstefnuna, sem fært hefur þessar fórnir. Þeim mörgu nafnlausu hetjum ber að þakka á þessum timamótum og minn- ast afreka þeirra og ötuls starfs. Alþýðuflokkurinn hefur einn- ig átt því láni að fagna, að eiga s marga ágæta og affarasæla for- j ingja. Hæst ber þar Jón Bald- vinsson, sem með mestum glæsibrag, snilli og hæfni stóð í fararbrjósti i 22 ár, sem aldrei gafst upp, hvað sem á móti blés, alltaf var öruggur og vegviss. Starfsþreki sinu og ágætri orku fórnaði hann fyrir hugsjón jafn- aðarstefnunnar og gengi Alþýðu- flokksins. Að honum var oft Formenn Alþýðuflokksins síðan 1916 Jón Baldvinsson 1916—1938. vegið frá andstæðingunum, og það sem verst var og sárast, frá hans eigin liði. Hann féll, en hélt velli. Minning hans og margra annarra ágætra forustu- manna mun alltaf lifa meðal ís- lenzkra Alþýðuflokksmanna. Honum og þeim ber að þakka. Og fordæmi Jóns Baldvinssonar er það ljós, sem lýsa á og marka stefnu Alþýðuflokksins. Það verður ekki dregið i efa, að Alþýðuflokkurinn hefur unn- ið mörg þrekvirki á undanförn- um þrem tugum ára. Þess er gott að minnast. En mest er þó um vert, að mæta hinum miklu verkefnum framtiðarinnar með dug og drenglyndi. Álþýðuflokkurinn á sér glæsta fortíð, en hann er fyrst og fremst flokkur framtíðarinnar. Þess skulum við öll nainnast, er flokk- inn fyllum, á þessum timamót- um. Jafnaðarstefnan á vegum óskoraðs lýðræðis er það, sem koma skal á íslandi. Og þess vegna er Alþýðuflokkurinn flokkur hins nýja tima, flokkur hins nýja skipulags, er mun ryðja sér til rúms, þar sem jafn- rétti, frelsi og bræðralag mun ríkja. Stefán Jóh. Stefánsson. Treyslir á dómgreind og skynsemi fólksins. ISLENZKA LÝÐVELDIÐ er yngsta ríki heims og um leið hið smæsta. Framtið þjóðarinn ar, fullveldi og sjálfstæði, er undir því komið, að hver ís- lenzkur maður, karl og kóna, vilji hag hennar og heill. Mannkostirnir verða að bæta upp mannfæðina; þvi þarf val- inn mann í hvert rúm. Ekkert mannsefni má fara forgörðum vegna skorts fæðis, klæða, umönnunar eða mennt- unar. Ekkert mannslíf má glat- ast fyrir örlög fram vegna þrælkunar eða veikinda, né spillast við óhóf og iðjuleysi. Enginn má sitja yfir annars rétti. ísland er sameiginleg eign og arfleifð þjóðarinnar allrar. Með öllum sínum gögn- um og gæðum á það að vera sameiginleg „bjargarlind" ís- lendinga allra. í 30 ár hefur Alþýðuflokk- urinn barizt fyrir bættum kjör- um, auknum réttindum og full- komnari menntun og menningu íslenzkri alþýðu til handa. í 30 ár hefur hann barizt gegn auð- kúgun, vinnuþrælkun og rétt- indaleysi. Stefán Jóh. Stefánsson síðan 1938. Togaravökulögin, kosninga- réttur ungra og fátækra, verka mannabústaðirriir, stytting vinnutímans og hækkun kaups- ins, réttarstaða verkalýðsfélag- anna, sjómannalögin, alþýðu- tryggingarnar og orlofslögin, allt eru þetta vegamerki á þeirri braut, sem Alþýðuflokkurinn hefur rutt og sótt eftir fram á við undanfarna þrjá áratugi; allt miðar þetta að því, að bæta lífskjörin og betra mennina. Og nú* má vænta bess, að innan fárra vikna verði sett ný heild- arlög um almannatryggingar fyrir þjóðina alla, svo fullkom- in, að íslendingar verði fram- vegis í þeim efnum í fremstu röð. Alþýðuflokkurinn er félags- samtök þúsunda karla og kvenna um land allt, sem sam- eiginlega hafa keppt og keppa að því marki að gera hugsjónir jafnaðarstefnunnar að veru- leika. Alþýðuflokkurinn afneitar þeirri kenninigu, að bylting með vopnavaldi sé eina eða likleg- asta leiðin til að koma jafnað- arstefnunni i framkvæmd. Hann neitar því, að skortur, fáfræði, vinnuþrælkun, auð- kúgun og örvænting séu nauð- synleg skilyrði þess. að alþýð- an nái völdum. Hann treystir ekki alræði eða valdstjórn minnihlutans. Alþýðuflokkurinn er lýðræð- isflokkur. Hann treystir dóm- greind og skynsemi fólksins. Hann trúir því, að öruggasta leiðin til sigurs fyrir alþýðuna, sé að tryggja réttindi sín, manna sig og mennta, bæta lífs- kjörin og efla félagslegt sam- starf stig af stigi. Á bennan hátt vill hann vinna meirihluta þjóðarinnar til fylgis við jafn- aðarstefnuna. Saga íslenzkra félagsmála síðustu áratugina er v um leið saga Alþýðuflokksins. Allt frá togaravökulögunum og afnámi sveitaflutninga til orlofslaga og almannatrygginga — ávallt hef ur Alþýðuflokkurinn haft for- ustuna. Allt stéfnir þetta að einu marki, — því, að búa al- þýðuna undir það að ráða land inu á lýðræðisgrundvelli með valdi og rétti og skyldum meiri hlutans. Alþýðan vérður að eiga þann liðskost, að hún geti skipað val inn mann í hvert rúm.' Lýðræði í stjórnmálum er ekki öruggt né fullkomið nema jafnframt verði á komið lýð- ræði í atvinnumálum. Félagslegt öryggi verður ekki tryggt að fullu til fram- búðar nema framleiðsla og við- skipti séu rekin með hagsmuni þjóðarinnar fyrir augum og skipulögð þann veg, að starfs- orkan sé hagnýtt með sem full- komnustum tækjum og vinnu- aðferðum og atvinnuleysi út- rýmt. Stríðsgróðann á að nota í þjónustu þjóðarinnar. Verzlun og viðskipti eiga vera trúnað- arstörf en ekki skattheimta ein staklinga. Við íslendingar eigum að sanna rétt okkar til fullveldis og sjálfstæðis með þvi að stýra málum okkar svo, að öðrum þjóðUm, stærri og voldugri, megi verða til fyrirmyndar. Þann veg tryggjum við bezt sjálfstæði lýðveldisins og fram- tið þjóðarinnar. Alþýðuflokkurinn heitir á alla góða íslendinga, konu og karla, til liðveizlu ag samstarfs til þess að ná þessu marki. Haraldur Guðmundssou. Sækir mál sitt meS lögum og rétti. AÞESSUM merkilegu tíma- mótum, á 30 ára afmæli A1 þýðuflokksins, á ég enga betri afmælisósk honum til handa, en þá, að hann heill og óskipt- ur megi í framtíðinni bera hátt það merki, sem brautryðjend- urnir hófu í öndverðu. Alþýðuflokkurinn er vaxinn upp úr íslenzkum jarðvegi, stefna hans og starf mótað af óskum og þörfum íslenzkrar al- þýðu, — og engu öðru.’ Öll sín mál hefur flokkurinn sótt á grundvelli laga og réttar, á lýðræðislegan og þingræðis- legan hátt, — og svo mun enn verða. 30 ára barátta flokksins hef- ur borið gifturíkan og glæsileg an árangur. Framundan bíður óleyst verk efni. Leysum þau, og berum fram til sigurs öll áhugamál íslenzkr ar alþýðu, á sama hátt og flokk- urinn hefur gert hingað til. Vaxandi áhrif Alþýðuflokks- ins á gang þjóðmálanna þýða heilbrigða þróun og gifturríka framtíð fyrir þjóðina í heild. Emil Jónsson. Verkefnin óþrjótandi. M LÞÝDUFLOKKURINN vill byggja upp fyrirmynd arþjóðfélag, kerfisbundið, en þó á þann hátt, að frjáls hugs- un fái sem bezt notið sín til framfara fyrir hagsmuni heild- arinnar. Til þess að svo megi verða, þarf að efla menningu og félagsþroska hvers einstak- lings, og þeirri þróun eru engin takmörk sett. I hvert sinn og eitthvert verkefni hefur verið leyst, koma önnur ný í staðinn. Verkefni Alþýðuflokksins eru þess vegna alveg óþrjót- andi. Þau eru sífelld barátta við ný og ný vandamál, sem frjáls hugsun og aukinn and- legur þroski tekur til úrlausn- ar. Þetta er andstætt auðvald- inu, sem vill halda almenningi í fjárhagslegum fjötrum, og gagnstætt einræðinu, sem kepp ir að því með allri tækni nútím ans, að móta skoðanir og hugs- anir manna þannig, að heilar þjóðir verða að andlegum nátt- tröllum, en öll frjáls hugsun Framhald á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.