Alþýðublaðið - 09.07.1946, Síða 5

Alþýðublaðið - 09.07.1946, Síða 5
ALÞYÐUBLAÐIÐ Priðjudagur, 9. júlí 1946. Vondur vegur. — Hvar eru vegheflarnir. — Vorhugur, — Framkvæmdir og gjörhreytingar. — Skuggar. — Hætta á bryggjuspotta. VEGURINN alla Ieið frá Hafn- arfirði og til Sandgerðis er í einu orði sagt ófær fyrir bifreiðir. Ég fór þessa leið eitt kvöldið, og ég held að ég hafi aldrei farið í hifreið eins vondan veg. Mér var sagt að þannig hefði vegurinn ver- ið í allt vor — og ekkert verið gert til þess að lagfæra hann. Hvernig stendur á því? Hvar eru vegheflarnir? Ég hygg, að nóg sé fyrir þá að gera , en það er áreið- anlega nauðsynlegt að veghefill sé sendur á þennan. veg til þess að gera hann færan. HVAR, SEM MAÐUR KEMUR, sér maður merki þedrra veltiára, ®em veri© hafa undanfarið. Maður verður þessa var á öllum sviðum, í húskap einstaklinga og í fram- •kvæmdum (hins opinbera. Það er vorhugur með þjóðinni og efni til að gera hatnn að veruleika og láta þær óskir rætast, sem brunnlð hafa á vörum fólksins í áratugi. ÉG KOM NÝLEGA í sméþorp ekki alllanigt frá Reykjavík. Þar var nýbúið að leggja skolpræsi að hverju húsi. Nú þurftu húsfreyjur þorpsinis ekki framar aö bera út allt skólp. Þá var verið að grafa skurð meðfram þorpsgötunni fyrir rafmagnskapal, því að Sogsraf- magnið á að koma í þorpið með haustinu, og loks var mikill jarð- bor kominn þangað. Nú átti að fara að bora eftir drykkjarvatni, sem síðan átti að ileiða inn í hrvert hús. ALLT ÞETTA GJÖRBREYTIR heimilunum. Þárna er í einni svip- an stigið svo stórt spor til umbóta, að slíkt þekkist ekki í sögu- þessa þorps. Hið eina, sem skyiggir á, er' vöntun á starfsemi: fyrir umga fólkið. En möguleikar til þess að bæta úr þeissu opnast um leið og rafmaignáð feemur. Þó geta fram- taifessamir menn stofnað iðnaðar- fyrirtæki og þar með skapað unga fólkinu vinnu og bætta afkomu. j V'elmegunin hrindir í framfcvæmd fjölda mörgu, sem okkur hefur vanitað til þessa. Það er Mfca áríð- andi að hún leggi igrundvöllinn að bjartri framtíð og stöðugri hag- sæld í lífi þjóðarinnar og einstakl- inganna. Öllu ljósi fylgja sfcuggar — og svartir skuggar er.u líka á veginium um þessar mundir. Það veltrur á olkkur sjálfum, hvort nýr •gróður kyrkist í þeim. Sóun á •heilsu okkar og fé' getur gert að engu þann vorhug, sem nú er. Forðumst það. LEIFUR ÁSGEIRSSON SKRIF- AR: „Niður undan Vatnsstíg geng- ur steinforyggja út í sjó. Er hún hrörleg og má raunar rúst heita. Hefur þannig með einhverjum at- fourðum myndazt igróf í hana miðj.a, og igjálpar þar sjór inn frá annarri hlið, en eftir er aðeins mjótt haft til ihinnar hliðar, og að fleiru er hún mjög af sér gengin. Gagn virð- ist ekkert að henni nú orðið, og mun ekki gert ráð fyrir, að það verði framar, því að ella myndi hún ekki látin eyðast svo sem er.“ „EN EKKI ER HÚN íþó alls- endis í eyði, iþví að börn hafa hana að leiksföð, sem vonlegt er, stunda iþar veiðar eða horfa á sjóinn og aðfarir félaga sinna. Flest eru þau á að gizka 4—8 ára, og er því foætt við, að fátt vierði um bjargir, I ef eitthvað her út af. Frá foryggju þessari þarf [því sem fynst að ganga öðruvísi ení nú er. — Efeki veit ég, hverjum á að að réttuistu lagi að senda slik tilmæli, svo að ég foið Hannes é horninu, að koma þeim á framfæri og treysti, að hann vilji greiða fyrir þeim. Óska ég svo, að ekki þurfi dauðaslys til að styrkja mál mitt og hans.“ Hannes á horninu. Unglinga vantar til að bera út ALÞÝÐUBLAÐIÐ í eftirtalin hverfi: AUÐARSTRÆTI VESTURGÖTU LINDARGÖTU TALH) VIÐ AFGREIÐSLUNA. — SÍMI 4 9 0 0. | Alpýðublaðið. Yerkamenn og smiðír óskast í byggfngavirmiu. Þorður Jasonarson, Háteigsvegi 18. — Sítmi 6362. Auglýsið í Alþýðublaðinu. Tryflve Lie — Varðmaður heimsfriðarins. ------------------------- G.REININ UM Trygve Lie, aðalritara banda- lags hinna sameinuðu þjóða, sem hér birtist, er tekin upp úr tímaritinu „World Dig- est“ Ilöfundur hennar er Drew Middleton. Greinin er stytt lítið eitt. Trygve halvdan lie, hinn hagsýna norska lög- fræðing, sem er aðalritari bandalags hinna sameinuðu þjóða, mætti kalla fyrsta al- þjóðamanninn. — Samkvæmt stofnskrá bandalags hinna sam- einuðu þjóða „má hann vekja athygli öryggisráðsins á hverju því máli, sem hann álítur að heimsfriði og alþjóðaöryggi geta stafað hætta af.“ Störf hans segir í stofnskránni, „eru ein- göngu alþjóðleg“, og enginn þegn sameinuðu þjóðanna á að j hafa áhrif á hann. Hann er í raun og sannleika varðmaður heimsfriðarins. Starf hans er fyrst og fremst fólgið í því, að stjóma banda- lagi sameinuðu þjóðanna. Hann er æðsti starfsmaður þess, og sem Slíkur kemur hann fram á þingum bandalagsins, fundum öryggisráðsins, þjóðmegunar- og félagsmálaráðsins og fjár- haídsráðsins. Einnig ræður hann skrifstofufólk bandalagsins og tilnefndir starfsmenn þjóðmeg- unar- og félagsmálaráðsins og f járhaldsráðsins. — Þetta krefst mikillar íhugunar og eftir- grennslana af hálfu Trygve Lie og fær honum jafnframt meira en lítið vald í hendur. Eins og Clement Attlee nýtur Lie sín bezt við nefndastörf, þar sem réttsýni hans, einurð og‘ víðsýni mega sín mikils. Hann er ekki af þeirri tegund manna, sem selja sjálfa sig á leigu í pólitískum tilgangi og eru á- hrifalitlir í ræðustól. En hann hefur siðræna kosti, sem heim- urinn þarfnast. Lie er fimmtugur að aldri, maður blátt áfram í tali og vinnur fyrir alþýðu allra landa og vonir hennar. Gáfur hans og hæfileikar eru langt fyrir ofan meðallag, en síðustu sjö árin hefur hann mætt þeim hættum, líkamlegum og andlegum, sem þorri manna í Evrópu hefur átt við að búa. Þær raunir glæddu skyldleikatilfinningu hans við fólkið í Vestur-Evrópu og mannkynið allt. Að mörgu leyti er maðurinn samansettur úr andstæðum. Frægur Frakki hefur sagt, að Lie sé öreigi með gljáandi skó. Sá dómur er yfirborðslegur, en hann dregur fram tvo ólíka þáttu í skapgerð Trygve Lies: hann er í flokki öreiganna, en samt veit hann hversu skal semja og starfa í viðsjálum og hatursfullum heimi alþjóða- stjórnmálanna. Ef til vill er seiglan, sam- bland af kænsku bóndans og sterkum vilja sá þáttur skap- gerðar hans, sem mest er áber- andi. En óblandin vinsemd og góðvild eru engu síður rík í fari hans. Um Trygve Lie má segja, að hann sé hrífandi, en það orð hefur oft verið misnotað. Hann er umhyggjusamur og blíður við vini sína og undirmenn, en á það til að reiðast þannig, að það verði samstarfsmönnum hans hvöt til dáða. Á síðari árum hefur honum lærzt að hafa stjórn á skaps- Trygve Lie í fennis. Trygve Lie er góður tennisleikairi og ið;ka,r þá iþrótt nokkuið. munum sínum og er nú við- | felldnin sjálf. Oft leikur bros um langleitt og holdugt and- litið. Ósjaldan patar hann með höndunum og tekst að gera það yndislega, þótt hvor um sig sé á stærð við lítið svínslæri. Hann er hár maður vexti og er að fitna um of. Klæðaburður hans er lýtálaus, að jafnaði er hann í bláum fötum, tvíhneppt- um. Honum lætur vel að skrafa hæversklega yfir cocktail, þótt hann sé líkur mörgum ráðherr- um brezka Alþýðuflokksins að því' leyti, að honum geðjast ekki að slíkri félagsstarfsemi. Afstaða hans gagnvart skrauti því, sem ýmsir vilja búa að- setursstað bandalags samein- uðu þjóðanna, er dæmi þess hve látlaus hann er. „Ég vil ekki að bandalag sam- einuðu þjóðanna hafi of mikið í kringum sig eða beiðist of mik- ils. Engar hallir né víðar lend- ur, aðeins óbrotnar stjórnar- byggingar.. Við erum tildurs- lausir sjálfir og fyrir slíka menn og konur, alls staðar í heiminum, erum við að vinna. Ég vona, að við getum sýnt, að við erum að vinna að heill al- þýðu manna, hvarvetna í heim- inum án þeirrar bragðvísi, sem áður tíðkaðist í stjórnmálun- um.“ Vegna hæfileiká sinna hefur Lie reynzt giftudrjúgur í stjórn arumræðum, í réttarsölum og í ölduróti norskrar stjórnmála- baráttu. Hann hefur rætt heims málin við norska sjómenn og ó- breytta enska hermenn. Hann hefur hlustað á menn, sem hafa stuðlað að nýju skipulagi heims mála, en við sameinuðu þjóð- irnar bindur hann mestar vonir. Fyrir aldarfjórðungi heyrði hann Lenin tala í þrjár klukku- stundir í Kreml, og á meðan á ófriðnum stóð, var hann í Hvíta húsinu og Downing Street og hlýddi á Roosevelt og Chur- chill ræða um heimsmálin, eins og þau litu út í þeirra augum. Lie fæddist í iðnaðarhverfi í útjaðri Oslóar, þar sem móðir hans rak veitingahús. Eins og margir fátækir drengir, sem sjá mæður sínar vinna, ásetti hanB sér að verða ríkur og frægúr. Árið 1914 innritaðist hann í há- skólann í Osló. Þegar heims- styrjöldin fyrri hófst, var hann farinn að taka þátt í hinni flóknu og harðvítugu baráttu norska Alþýðuflokksins og orð- inn kunnugur Hjördis Jörgen- sen, stöðvarstjóradóttur. Þótt Lie fengist fyrst og framst við lestur og stjórnmál, varð hann þó eigi að síður einn af beztu knattspyrnu- og íþrótta mönnum háskólans í Osló. Þeg- ar hann lauk embættisprófi £ lögum var hann orðinn einka- ritari Martin Tranmels, ritara norska Alþýðuflokksins. Árið 1921 kvæntist hann Hjördis Jörgensen og fór til Moskvu sama ár, sem ritari sendinefnd- ar flokks síns. Ári síðar varð hann mál- flutningsmaður norska Alþýðu- sambandsins og gegndi þeirri stöðu í þrettán ár. Eftir því sem störf hans jukust, því stærri varð vinahópurinn. Ekki leið á löngu unz þessi hávaxni, félagslyndi lögfrasð- ingur átti litlu færri vini í Vest- kanten, hverfi í austurhluta Oslóar en meðal hinna snauðu. Hann tók að ferðast víðs vegar um Evrópu. Árið 1935 tók hann sæti í norsku ríkisstjórninni sem dómsmálaráðherra og mánuði eftir að styrjöldin hófst í sept- ember 1939, var hann skipaður birgða- og siglingamálaráð- herra. Hann stjórnaði því e. t. v. dýrmætustu eigriinni, sem norska ríkið gat stutt banda- menn með, norska kaupskipa- flotanum, sem var 3.500.000 smálestir og 25.000 sjómenn störfuðu á. Fih. á 6. síðu

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.