Alþýðublaðið - 02.11.1946, Blaðsíða 6
e
- -Ti .. —- ------——
6 TJARNARBIÖ £B
iJ pá
Mannlausa húsið i
(The Unseen)
Amerísk sakamálamynd
Joel McCrea
Gail Russell
Herbert Marshall
Sýning kl. 3, 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Sala hefst kl. 11.
æ nvja biö æ
Dollys-systur.
Skemmtileg, spennandi
og óvenju íburðarmikil
stórmynd, um ævi þess-
ara frægu systra. Mynd-
in er í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
BETTY GRABLE
JOHN PAYNE.
JUNE HAVER.
Sýnd kl. 3, 6, 9.
Sala hefst kl. 11 f. h.
immiiimnraiiiriiBTi™ n ■ »i ii'iimiiiii i w ■
æ BÆJARBIO æ
Hafnarfirðl
Sjöundi krossinn
(The Seventh Cross)
Framúrskarandi spenn-
andi. og vel leikin mynd..
Spencer Tracy
Signe Hasso »
Sýnd kl. 9.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
Sími 9184.
Sýnið pegnskap í verki með
þvi að kaupa vaxtabréf Stofn-
lánadeildarinnar.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur, 2. nóv. 1946.
Núna, þegar Hennie er við hliðina á systur sinni, má vel
sjá svip með þeim, jafnvel þó að Inu finnist Hennie vera að
öllu leyti eins og endurbætt útgáfa af sér. Hún hefur ekki
brúnt hár, heldur rauðgullið, augun eru skær og blá, munn-
urinn lítill og nefið fíngert og beint. Heinnie, sem er átján
ára, er mjög lagleg. En fínlegir andlitsdrættirnir, sem eru
reglulegir eins og á myndastyttu, eru dálítið stirðnaðir, svo
að Hennie verður ekki eins fjörleg og aðlaðandi og systir
hennar. Iiún er alltaf dálítið undrandi á svipinn — það er
kannske vegna þess, að hún hefur rakaðar augnabrúnir, —
og stundum dálítið heimskuleg, en það er kannske líka
vegna þess að hún hefur heldur lítinn munn og málar hann
of miki.ð. „Heimsk eins og hæna, en fögur eins og gyðja,“
á þennan hátt hefur Gréta einu sinni lýst Hennie; þó ekki
við Inu, því að hún veit, að Hennie er eftirlætisgoð Inu, og
að Ina hefur um árabil reynt að ryðja öllum erfiðleikum úr
vegi systur sinnar. Á tíu mínútum skeði í raun og veru
kraftaverk; ósnyrtileg skrifstofuStúlka hefur breytzt í óað-
finnanlega sýningarstúlku, sem lítur út fyrir að vera í þess-
um fallegu fötum bara að gamni sínu, og að hún láti þau
nauðug af hendi ti.1 kaupenda. Ina snýr sér fyrir framan
spegilinn. Hún sér, að þetta eru falleg föt, sem falla vel að,
og sýna spengilegan vöxtinn, og vítt pilsið er mátulega sítt.
„Marche Militaire,“ segir frú Estelle. Hún lagfærir
eitthvað á gylltum kraganum, sem er eins og á herforingja-
frakka, og gylltir hnapparnir eru með Ijónsmynd á, og segir
ánægð: „Ágætt, ágætt, bíðið andartak, ég fer á undan og
þér komið eftir 2 mínútur.“
Ina stendur grafkyrr og stíf í miðju herberginu. Hún
má ekki hrukka fötin og þorir ekki að setjast, og það er of
heitt að ganga um.
„Hvers vegna skyldi hún ekki hafa viljað þig, Hennie?“
Hennie roðnar undir andlitsfarðanum, en Gréta svarar
hæðnislega: „Hún er allt of lagleg.“ Svo setur hún stút á
munninn og segit í eftirhermutón: „Helzt ekki þá rauð-
hærðu, frú, mér geðjast ekki að henni? Nei, heldur þá
brúnu, Nínu eða Dínu, eða hvað hún heitir. Gréta passar
heldur ekki, það er svo mikill stærðarmunur á okkur. Er
hún að skrifa á ritvél? Jæja, en við erum ekkert að flýta
okkur, er það Georg?“
Gréta er mesta eftirhermukráka, og hinar stúlkurnar
fara að skellihlæja. Allt starfsfólkið, afgreiðslustúlkur, bíl-
stjórar og dyraverðir, hatar frú Vreede. Síðustu tíu árin
hefur frú Eve Vreede veri.ð að hefna sín fyrir allar móðganir,
sem hún hefur orðið fyrir, áður en hún giftist, meðan hún j
vann fyrir sér sem barnfóstra eða lagsmær heldrikvenna. ;
Hún byrjaði á bví, til að hefna sín, en smám saman er það
orðinn vani hjá henni, að koma fram við allt starfsfólk eins
og lægri verur.
„Reyndu nú að flýta þér svolítið, Ina“, kallar Hennie,
óþoiinmóð. „Tvær mínútur eru liðnar, og ef þú lætur þennan
kvenmann bíða lengur, verður hún svo reið, að hún kaupir
ekkert, og þá getur þú beðið líka eftir prósentunum þínum.
Og okkur, sem vantar svo peninga
„Þig vantar víst kjól aftur?“ segir Gréta ósköp blíðlega-
„Vertu nú ekki svona hæðin,“ svarar Hennie móðguð.
„Ina segðu henni. ..en Ina er þegar farin.
j „Ina er allt of góð í sér,“ segir Gréta allt í einu alvar-
! lega. Hún situr á borðinu með krosslagða fætur og reykir
1946
ÖAMLA BIÖ
2. nóýember
FANTA SA-
Hin tilkomumikla mynd WALT DISNEYS.
Ný útgáfa, stórum aukin. — Philadelphia Sym-
phony Orchestra undir stjórn
Leopold Stokowski.
Stutt aukamynd:
SENDILL BAKARANS,
sem sýnd var á fyrstu sýningunni, 2. nóv. 1906.
Sýnd klukkan 6 og 9.
— Hækkað verð. —
Sala hefst klukkan 1.
j.JÍV
er tekin til starfa í SKÚLATÚNI 2, undir heitinu
PRENTMYNDIR H.F.
Prentmyndagerðin hefur nýtízku vélar og
efni og framleiðir 1. flokks myndamót í
öllum litum fyrir alls konar prentun og
gyllingu.
Áherzla Iögð á vandaða vinnu og fljóta afgreiðslu.
Myndirnar verða sóttar og sendar til þeirra,
sem þess óska.
Sími 7152.
Virðingarfyllst.
PRENTMYNDIR H.F.
með innilegri ánægju Camel-vindling. Svo heldur hún á-
fram hjúpuð í bláan reykinn: „Allt of góð, og það verður
henni til ógæfu, og ef til vill þér líka.“
Ina gengur á hælaháum svörtu og gylltu skónum eftir
marmaralögðu anddyrinu. Það er langur, breiður gangur
með rauðum renningi eftir endilöngu. Maison Eichholzer
hefur áður verið heimili heldra fólks, og Ina gerir sér oft í
hugarlund, hvernig kátir drengir og stúlkur hafa leikið sér
þarna í anddyrinu, þegar of kalt er til að leika sér úti.
Við dyrnar á móttökuherberginu nemur Ina staðar og
fer að brosa. Bros hennar er listaverk, sem hún er búin að
æfa mjög nákvæmlega fyrir framan spegilinn, með ná-
kvæmri tilsögn frú Estelle. Brosið á að vera vingjarnlegt,
ósköp lítið glettnislegt, en umfram allt ekki of djarft, en um
Ieið á það að vera laðandi og stillilegt. Ina opnar dyrnar á
móttökusalnum og gengur djarflega fram. Búningurinn
HE'S loose,
ffí/M... KBBP’
HIM OUT Off
My la 1
GErWM, SUAA
HB'Í CLAWiNG
$CORCríy...UE'LL
.. CRA 0$/ ,
C.OOK
OUTf
Rcg U S Pal Öff.
•4P NcMifácitures
' 08AB THE
UTUEFÖÖL
••HE'S&OMO
mip/ f
WHAT V\V I TELL you, ^
5COECHy...iv£ 85AT THAT
£?LIZZAf?P.,.TH£rf?E'5 PLENTV
OP Vl5l0ILITy DP HERE... ,
'Vif 'S. '
efur losnað, Slim,
Sagði ég' þér " eklri*'J‘er þetta? Hæ; ko:
klórar, Örn
Hér uppi er ágætt skyggni. Við
komumst yfir fárviðrið. En hvað
Svona getur engin.n bjiarndýrs-
ungi látið.
taktu hann burtu.
CELIA: Taktu hann, Slim, Hann
BLINKIE: Gættu að þér. — Náið
kjánanum; hann er alveg trylltur