Alþýðublaðið - 14.01.1947, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 14.01.1947, Blaðsíða 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur, 14. janúar 194T í um bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þeir, sem telja sig öðlast rétt til bóta samkv. hinum nýju lögum um almannatryggingar á árinu 1947, skulu senda umboðsmönnum Trygginga- stofnunarinnar umsóknir sínar, hver í sínu umdæmi. Umboðsmenn afbenda eyðublöð undir umsóknirnar og aðstoða við útfyllingu þeirra. Auk áður auglýstra bótategunda, greiðist fæðingarstyrkur og ekkju- bætur frá og með 1. jan. 1947. Fæðingarstyrkur greiðist við hverja barnsfæðingu. Er hann mismun- andi eftir því, hvort móðirin verður fyrir kaupmissi vegna fæðingarinnar eða eigi. Styrkur þessi skerðir eigi þ'ann styrk, er sjúkrasamilögin greiða. Ekkjubætur greiðast við fráfall eiginmanns, eða manns, sem konan bjó með, í isíðara tilvikinu þó því aðeins, að sambúðin hafi staðið í 5 ár, ef hún er barnlaus, en ella í 2 ár. Ekkjubætur greiðast í 12 mánuði, éf ekkj- an 'hefur á framfæri sínu börn sín innan 16 ára, ella aðeins í 3 mánuði. Þær konur, sem urðu ekkjur á árinu 1946, eiga rétt til bóta, samsvar- andi þeim tírha, sem á kann að vanta, að 3 eða 12 mánuðir séu liðnir frá láti mannsins þ. 1. jan. 1947. * Rétt til þeirra 'bóta, sem áður hafa verið auglýstar, öðlast menn sem hér segir, þó með þeim takmörkunum er lögin ákveða: Til elliiífeyris eftir fullnaðan 67 ára aldur. Til örorkulífeyris, er menn hafa misst a. m. k. 75% starfsorku sinnar, enda sé um varanlega örorku að ræða. Til barnalífeyris er fyrirvinnan fellur frá, verður 67 ára eða a. m. k. 75% öryrki. Ógiftar mæður og fráskildar, sem hafa úrskurð um meðlag með börnum sínum; geta og snúið sér til Tryggingastofnunarinnar og feng- ið lífeyrinn greiddan þar. Til fjölskyldubóta, þegar börn verða 4 eða fleiri í fjölskyldu. Um framangreinda 4 bótaflokka er fyllri upplýsingar að finna í auglýsingu vorri frá 14. okt. s. 1. og er hún til sérprentuð hjá umboðs- mönnum stofnunarinnar. Fæðingarvottorð, örorkuvottorð, dánarvottorð og lífsvottorð skulu fylgja umsóknunum, eftir því sem við á. Jafnframt skál umsækjandi sýna tryggingarskírteini með kvittun fyrir áföllnum iðgjöldum. í kaupstöðum hafa sjúkrasamlögin með höndum umboðsstörf fyrir Tryggingastofnunina (á Seyðisfirði og ísafirði þó bæjarfógetarnir), í Bol- ungavík og Keflavík lögreglustjórarnir, en annarsstaðar sýslumenn, eða um- boðsmenn þeirra í hreppunum. Reykjavík, 10. jan. 1947. Tryggingastofnun ríkisins. frá Tryggingasfofnun ríkisins. Iðgjöld einstaklinga til tryggingasjóðs almannatrygginganna fyrir árið 1947 hafa verið ákveðin sem hér segir: , I. verðlagssv. II. verðlagssv. Fyrir kvænta karla....... kr. 380,00 kr. 300,00 — ókvænta karla...... — 340,00 — 270,00 — ógiftar konur...... — 250,00 — 200,00 Fyrri gjalddagi iðgjaldsins er í janúarmánuði og féllur þá í gjalddaga: S;fft, ;I. vQrðlagssv. II. verðlagssv. Fyrir karla, kvænta og ókvænta kr. 170,00 kr. 130,00 — konur, ógiftar .......... — 120,00 — 100,00 Afhending tryggingaskírteina til fólks á aldrinum 16—67 ára fer fram í janúar, skv. nánari ákvörðun innheimtumanna, og ber þá að greiða fyrri hluta iðgjaldsins auk skírteinagjalds, kr. 30,00. Afbendinguna annast um- boðsmenn tryggingastofnunarinnar, þ. e. sýslumenn og bæjarfógetar, hver í sínu umdæmi, lögreglustjórar í Bolungavík og Keflavík, en í Reykjavík tollstjórinn. Áríðandi er, að fólk vitji skírteinanna hið allra fyrsta. Þeir, sem sækja um bætur á árinu 1947 og voru ekki orðnir fullra 67 ára 1. jan. s. 1., þurfa að leggja fram tryggingaskírteini með kvittun fyrir áfölkium iðgjöldum. Reykjavík, 10. jan. 1947. Tryggingarstoínun ríkisíns. Verkamannafélagið Dagsbrún. Tillögur uppstillingarnefndar og trúnað- arráðs til stjórnar og trúnaðarráðs Dags- brúnar fyrir árið 1947, liggja frammi í skrifstofu félagsins í Alþýðuhúsinu. Kosning hefst 25. þ. m. KJÖRSTJÓRNIN rsháti Starfsmannafélags Reykjavíkur verður haldin að Hótel Borg, föstudaginn 17. jan. kl. 20. Mætið vel og takið með ykkur gesti. Aðgöngumiðar seldir í bæjarstofnun- unum. SKEMMTINEFNDIN Fyrirliggjandi; gotf, ódýrf. Samkvæmt fyrirmælum Iaga nr. 58, 30. nóv. 1914, ber að framkvæma þrifa- böðun á öllu sauðfé í lög§agnarumdæm- inu. Út af þessu ber öllum ^auðfjáreig- endum í bænum að snúa sér nú þegar til eftirlitsmannsins með sauðfjárböðunum, herra lögregluþjóns Stefáns Thoraren- sen. Símar 5374 og 5925. Borgarstjórinn í Reykjavík, 13. janúar 1947. BJARNI BENEDIKTSSON Úibrelðið ALÞÝÐUBLAÐIÐ trmbdii muzm i Ý&T'Jx ■i■ nátfk:. U

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.