Alþýðublaðið - 07.02.1947, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 07.02.1947, Blaðsíða 2
ALÞVÐUBLAÐIP Föstudagur, 7. iehrúar 1947. VALUK Skíðaferðir eru í Valsskál- ann kl. 6 e. h. og kl. 9 r. h. i á sunnudag. — Farmiðar j seldir í Herrabúðinni á I laugardag kl. 12—4. Skíðanefndin. Ármann. 1. flokkur karla og kvenna iÁríðandi fundur á V.R. í kvöld kl. 10. jafnvel skemmt tm á eftór. Mætið öll. Ferðafélag íslands endurtekur hina fallegu kvikmyndasýningu Edvards Sigurgeirssonar af hreindýr unum á Austurlandsöræfum, / Tjarnarbíó sunnudaginn 9. febrúar kl. 1 e. h. og þá sýn- ir hann líka nokkrar fagrar landslagsmyndir. Pálmi Hann esson, rektor flytur erindi um hreindýrin og útskýrir mynd imar. Aðgöngumiðar seldr í bókaverzlunum Sigfúsar Ey- mundssonar og ísafoldar á laugardaginn. GuSmundur G. Hagalín: Oscar Clausen sextugur Í.R. Skíðaferðir að Kolvið- arhól á morgun (laugardag) kl. 2 og 8. Og kl. 9 á sunnu- dagsmorgun. Farmiðar og gisting verða seld í Í.R.-húsinu í kvöld frá kl. 8 til 9. Farið er frá Varðarhúsinu. GUÐSPEKIFÉLAGBE) St. Septíma heldur fund í kvöld kl. 8.30. Erindi: Hið opinbera leyndarmál, flutt af Grétari Fells. — Komið stundvíslega. — Gestin velkomnir. Hásnæði. Ungann reglumánn vant- ar herbergi, sem fyrst. Tilboð leggist inn á af- greiðslu blaðsins merkt „Húsnæði“. Ufbreiðið Alþýðublaðið. í DAG er sextugsafmæli j Oscars Clausens, og í ár er aldarfjórðungur liðinn síðan verzlunarmaðurinn Oscar Clausen tók að leggja stund á ritstörf og fræðagrúsk, en því fleiri, sem liðið hafa ár- in, því meira hefur aldagróin verzlunarhneigð Clausens- ættarinnar orðið að láta í minni pokann fyrir * fræða- náttúru og rithöfundarhvöt- um, arfleifð frá ættum ís- lenzkrar móður, ömmu og langömmu. Oscar Clausen fæddist í Stykkishólmi árið 1887, hinn 7. dag febrúarmánaðar. Fað- ir hans var hinn alkunná kaupsýslu- og útgerðarmað- ur, Holger Clausen hinn yngri, er kosinn var til Al- þingis árið 1880 — með fleiri atkvæðum en nokkur alþing- ismaður hafði hlotið hór á landi fram að þeim tíma. Holger Clausen var stúdent frá Sórey, og hafði farið víða um heim og búið í Englandi og Ástralíu — áður en hann ’settist hér að arfi feðra sinna. Hann var áhugamað- ur um stjórnmál, en einnig ýmis íslenzk fræði, svo sem ættvísi. Hann sagði mætavel frá, og sumar ýkjusögur þær, er hann sagði til gam- ans af ferðum sínum og um- stangi erlendis, eru svo skemmtilega gerðar, að þær eru í flokki hinna beztu .slíkra sagna. Holger Clausen hinn eldri, langafi Oscars, kom fyrstur sinnar ættar hingað til lands, og hann kvæntist íslenzkri konu, Val- gerði Pétursdóttur úr Hnífs- dal, af ætt Jóns Indíafara. Sonur þeirra var Hans A. Clausen, kaupmaður og at- hafnamaður í Ólafsvík. Það var hann, sem stofnaði fyrsta ekknasjóð á íslandi. Áttær- ingur, sem Clausen hafði lát- ið smíða, fórst með allri á- höfn árið 1838, og þá tók eig- andi skipsins 200 rd. og stofnaði þar með ekknasjóð. Hans Clausen var kvæntur Ásu Sandholt, og var móðir hennar af Reynistaðarætt. Holger hinn yngri var einnig kvæntur íslenzkri konu, Guð- rúnu Þorkelsdóttur, systur dr. Jóns skálds og þjóð- skjalavarðar og allra þeirra gáfuðu og listfengu bræðra, en þau systkin voru komin af Jóni skáldi Þorlákssyni, Sellátrabræðrum og öðrum gáfuðum og þróttmiklum ís- lendihgum. Oscar Olausén naut góðr- ar fræðslu í bernsku, en síð- an stundaði hann nám í tvei'm bekkjum latínuskól- ans. Hann undi illa skóla- vistinni, og eftir að hann fór úr latínuskólanum, 15 ára gamall, stundaði hann ekki skólanám. Hann var hálfan annan áratug vestur í Stykk- ishólmi við verzlunárstörf hjá Sæmundi HalldórssynS. Þá hafði hann allmikil af- skipti af sveitarstjórnarmál- um og landsmálum. Hann bauð sig fram til þings i Snæ fellsnessýslu árið 1916 fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn gamla, var þversummaður — eins og það var kallað, og hefur hann alltaf" verið mikill á- hugamaður um sjélfstæði ís- ilands. Þá er hann fluttist frá Stykkishólmi til Reykja- víkur, réðst hann enn til verzlunarstarfa, og síðustu sjö árin hefur hann rekið verzlun í Ólafsvík, en þar hefur Clauensættin verzlað í hart nær hálfa aðra öld. Oscar Clausen hefur aldrei kvongazt, en ekki virðist það hafa orðið honum gleðitálmi eða taugaspillir. Hann er hið mesta prúðmenni, stilltur vel og jafnvægur, en hrókur fagnaðar, þá er hann er með vinum sínum. En því er ekki að neita, að Oscar Clausen hefur ekki lif að í sambúð við kauphöndl- unarmaddömuna eina sam- an. Hann hneigðist snemma til ásta við dísir fræða og ritmennsku. Þó mun hann ekki ihafa :lagt við þær lag sitt fyrir alvöru fyrr en ár- ið 1923. Þá tók hann að kynna sér heimildir, er f jala um upphaf innlendrar verzl unar og skrifa ýmis drög að ■sögu hennar, en,við heimilda könnun rakst hann á míarg- an annan fróðlei'k en þann, sem laut að verzluninni, og vaknaði áhugi hans fyrir ýmsu, er varðaði forna þjóð- háttu og þjóðarhagi, og enn fremur sórstæða atburði, menn og manngerðir, mótað ar af högum og menningar- ástandi þjóðarinnar. Brátt tók hann að rita þætti um sitt- hvað það, sem :lá utan þess sviðs, sem í fyrstu hafði ver- ið vettvangur athugana hans og ritsmiða, og þar kom, að hann gerðist allstórvirkur rithöfundur um menn og málefni fyrri alda. Árin 1935—1937 komu út þrjú hefti af Söqum af Snsefells- nesi, og hafa þau verið sam- einuð í eitt bindi. Þá hefur hann og gefið út fyrsta hefti annars bindis af þessu rit- verki. Hann hefur og skrif- að bókina Aftur í alcLir, Sögu Saura-Gísla og Sögur og sagnir I, sem, út komu í fyrra, og 'líka Prestasögur I—II. Þá hefur hann einnig ritað ýmsar þær greinar um menn og málefni ildðins tima í blöð og vikurit, sem ennþá Frh. á 7 síðu. IIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII Góðir Vefrarfrakkar á drengi í Læknissförfum mínum gegnir næstu vikur Egg- ert Steinþórsson. Lækn- ingastofa Eggerts læknis er á Vesturgötu 4. Við- talstími 4—6 síðd. Sími 5496. Páll Sigurðsson. Baldvin Jénsson hdl. Vesturg. 17. Sími 5545. Málflutningur. Fasteignasala. UTSALA. Kjólar frá kr. 88,50 Peysur frá kr. 25,00 Jakkar frá kr. 49,00 Blússur, slæður o. fl. □ n Sfálsfólar. Fyrirliggjandi ódýrir og hentugir stálstólar fyrir veitingastofur, samkomuhús, funda- herbergi, skíðaskála, sumarbústaði o.'fl. 0RKÁ H.F. . Aðalstræti 6 B. Sími 7450. • laiiiiianti B ■*■■■■■• • '. r ; -þ . t ifý.xr ?;• ? Lí.P.U}’"^ Sækjum. — Sendum. 7263 er símanúmerið. Þvottastöðin, Borgartúni 3. GOTT ÚR ER GÓÐ EIGN Guðl. Gíslason Úrsmiður, Laugaveg 63. Minningarspjöld Barna- spífalasjóð Hringsins eru afgreidd í Verzlun Augustu Svendsen, Aðalstræti 12 og í Bókabúð Austurbæjar, Laugavegi 34. Húsgagna- bólstrarar. Mig vantar húsgagna- bólstrara. Kristján Siggeirsson. Húsgagna- smiðir, Mig vantar húsgagna- smið og-vélamann. Kristján Siggeirsson. / Ufvarpstruflanir? ,,Belling“-loftnetin útiloka þær. Út varpsviðgerðarstof a Otto B. Amar, Klapparstíg 16. Sími 2799.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.