Alþýðublaðið - 07.02.1947, Blaðsíða 7
Föstudagui*, 7. febrúar 1947.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
SriTfJÍOJ
Bærinn í dag.
Næturlæknir er í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykja-
ivíkurapóteki.
Næturakstur annast Litla bíl
ætöðin, sími 1380.
Kvikmyndablaðið STJÖRNUR
1. hefti þessa árgangs er
komið út, og flytur að vanda
margar myndir af frægum leik-
urum og greinar um þá. Enn
fremur er í blaðinu viðtal við
Einar Markússon píanóleikara.
Happdrætti Háskóla íslands.
Dregið verður í 2. flokki
mánudag 10. febrúar. Á mánu
dagsmorgun verða engir miðar
afgreiddir í umboðunum, og
verða menn því að kaupa miða
sína í dag eða á morgun, ef
þeir vilja ekki sleppa þeim.
Vikan
6. tölublað þessa árgangs er
komin út með forsíðumynd af
Fiskimálanefnd, og grein um
starfsemi hennar. í>á er grein
um Múrarafélag Reykjavíkur
30 ára og fleira.
Esja
úustur um land til Siglu-
fjarðair og Akureyinar 12. þ.
m. Pantaðir farseðlar óskast
sóttir og vörur afhentar á
laugardag og mánudag.
Sverrir
"til Arnarstapa, Sands, Ólafs-
víkur, Grundairfjarðar,
Stykkishólms og Flateyjar.
Vörumóttaka í dag.
Oscar Clðusen -
Framihald af 2. síðu.
hafa ekki birzt í bókarformi,
en nú mun hann hafa fyrir
alvöru snúið sér að því að
iljúkia við aðalrit sitt til
þessa: ; Upphaf innlendrar
verzlunar á íslandi á síðari
öldum.!
Mér - þótti strax og ég
•kynntist ifyrstu riturn Oscars
Clausens skemmtilegt og
fróðlegt að lesa þau. Mér virt
ist þegar, að hann hefði
margt það að flytja um
mennihgarástand, atvinnu-
sögu, þjóðarhagí og mann-
gerðir, sem vert væri að
kynnast, og auðsætt var að
honum lét vel að tengja sam
lan líf fólksins og persónu-
leik einstakra manna og at-
burði og ástand í atvinnuliifi
og aðbúð almennings. Hins
vegar virtist still hans nokk
uð stirðlegur óg ekki ávallt
felldur svo að efni, sem
æskilegt hefði verið. En
lleikni hans í að segja sögu
og flétta jsaman hina ýmsu
þætti hennar, hefur farið sí-
vaxandi, og þá er honum
honum tekst bezt upp um
mannlýsingar og atburða,
tel ég, að form hæfi efni, og
til eru þær sögur, sem hon-
um hefur itekizt að steypa
svo í móti djúprair innlifun-
ar, að þær verða mjög minn
isstæðar, enda er þar um að
ræða persónusköpun, svo
•sem 1, igóðri skáldsögu, án
þess þó að sú kennd hverfi
hjá lesandanum að þarna sé
verið að segja firá manneskj-
um, sem hafi lifað og hlotið
þau öhlög, sem hermt er frá
i sögunum. í frásögnum sín-
um hefur Clausen sýnt glögg
dæmi þess, sem vel hefur
verið unnið af hinum mikils
megandi, en ekki siður hitt,
hve grátt alþýða manna hef-
ur verið ileikin og hve lítið
hefur verið frelsi hennar og
öryggi. Þá er og auðsýnt af
ýmsum frásögnum Clausens,
hvernig búið hefur verið að
frumllegum gáfumönnum og
hve öriagaþrungin áhrif sú
aðbúð ihefur haft.
En þrátt fyrir kosti þeirra
sagna, sem Oscar Clausen
hefur .skrifað til þessa, hef-
ur haím ekki ennþá háð
þeirri frásagnarsniili, sem
kemur í Ijjós, þá er hann
segir frá munnlega, þegar
hann situr í góðu tómi með
þeim, sem kann að meta vel
sagða sögu og af báðum er
rokið hversdagsrykið. Hann
hefur þegar safnað miklum
fræðaforða og er iafar minn-
ugur, en hann er flestum at-
hugulli á hvað eina, sem
fram fer daglega d kringum
hann, og hánn er manna
næmastur á sérkenni sam-
borgara sinna í hugsun, orð-
færi og athöfnum. Hann hef
ur og til að bera kímnigáfu,
sem er frábær. Sú gáfa hef-
ur mokkuð komið fram í rit-
um hans, en þar hefur hún
þó ennþá verið svipur hjá
sjón. Siðan ég kynntist
Oscari Olausen nokkuð náið,
hefur mér þótt hann flest-
um mönnum skemmtilegri
og notalegri, og ekki sízt
þess vegna að þá er hann
segir frá því, er hin skarpa
skopskyiggni hans hefur lát-
ið honum í té, þá er ekki í
frásögninni nokkur vottur
meinfýsi eða hundsku, held
ur glöggur skilningur á
manngerðinni og oftast þeim
aðstæðum, sem hafa mótað
hana.
Það er svo ósk mín á sex-
tugsafmæli Oscars Clausens,
að hann lifi sem lengst,
verði alilra piparkarla elztur,
þó í ifullu fjöri og að hon-
um megi auðmast, fyrst og
fremst vegna íslenzkra les-
enda, að skrifa frásagnir af
atburðum, mönnum og á-
standi, þar sem njóti sín til
fulls mannskyggni hans,
kímnigáfa og frásagnargleði.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Hernám Berlínar
(Framh. af 5. síðu.)
til 2 mílur. Ég gekk um leif-
ar dýragarðsins, Hyde Park
Berlínar. Fáein tré voru
þairna uppistandandi, það
má télja á fingrum sér þau,
sem sluppu við sprengjur og
eld. Allir minni háttar veg-
ir, fletir og vegarsund virð-
- Skemmtanir dagsins
IKvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Klukkur heil-
agrar Maríú“. — Ingrid
Bergman og Bing Crosby.
Sýnd kl. 5 og 9.
HÝJA BÍÓ: „Nob HiU“ — Ge-
orge Raft, Joan Bennett og
Peggy Ann Garner. — Sýnd
kl. 9. „Buffalo Bill“ kl. 5 og
7.
ÍTJARNARBÍÓ: „Síðasta hulan“
— James Mason og Ann
Tod. Kl. 5 og 9.
„Reykjavík vorra daga“ kl. 7.
jBÆJARBÍÓ: „Þess bera menn
sár“ — Marie Luisi Fock og
Ture Andersson. — Sýnd kl.
7 og 9.
HAFNARFJ ARÐARBÍÓ: „Ást
og tár“ — Merle Oberon,
Charlie Kervin og Claude
Rains. Sýnd kl. 7 og 9.
Leikhúsin:
LEIKFÉLAG RVÍKUR: „Ég
man þá tíð. Sýning kl. 8.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: —
Dansleikur F.Í.R. kl. 10.
HÓTEL BORG: Árshátíð Vest-
mannaeyingafélagsins.
INGÓLFSCAFÉ: Afmælisfagn-
aður Verkakvennafélagsins
Framsóknar kl. 8,30
M J ÓLKURSTÖÐIN: Skemmti
kvöld Framsóknarmanna kl.
8,30.
RÖÐULL: Eskfirðinga og Reyð
firðingamót.
Unglinga
vantar til að foera Alþýðublaðið til áskrifenda í
eftirtölduxn hverfum.
Túngötu
Bræðrafoorgarstíg
Lindargötu
Talið við afgreiðsluna.
Alþýðublaðið, sími 4900
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Árshá-
tíð Félags íslenzkra síma-
manna.
Úfvarpið:
20.30 Útvarpssagan: „í stór-
ræðum vorhugans" eftir
Jonas Lie. XIV (séra
Sigurður Einarsson).
21.00 Píanókvartett útvarpsins:
Píanókvartett í Es-dúr
eftir Mozart.
21.15 Erindi: Umferðarmiðstöðv
ar (Benedikt Gröndal
blaðamaður).
21.40 Ljóðaþáttur (Andrés
Björnsson).
22.00 Fréttir.
22.05 Symfóníutónleikar (piöt-
ur).
23.00 Dagskrárlok.
ast hafa horfið, grafizt undir
villigróðri, grj óthnu'Ilungum
og skít, káli og ikartöfllureit-
um; þessir reitir eru þó a.
m. k. 'tákn um líf. Allt ann-
að er stirnuð eyðilegging.
Til hægri og vinstri, svo
langt sem iaugað eygir, er allt
ein rúst. Til vinstri er hið
nýtízku Tiergarten hverfi,
sem var, stjórnarhverfið og
gegnt því aðsetur borgarráðs
ins, isem kallilað er Hansa-
ifjórðungurinn. Hér má sjá
rústir af fjölda minnis-
merkja og myndastytta og
rústir margra frægra bygg-
inga.
(Niðurlag á morgun).
Elzfi bleðsali
heimsins
Frh. af 5. síðu.
að skipta og afgreiða blöð-
in. Ég geymi stólinn minn í
blómabúðinni, og það er mér
svo igott, hún frú Jóhanna og
stúlkurnar. Svo eignast mað
ur marga vini við þetta, bæði
háa oig lága.“'
Annars segist Eyjóilfur
vera ánægður með lífið, og
hugsar oft til fyrri tírna, til
dæmis þegar hann gekk aust
an af fjörðum og suður í
Garð á sex vikum. Einhvern
veginn beinist þó taiið að
skattauppgjöri, sem * iallir
voru að iglíma við fyrir
nokkru, og gamlli maðurinn
segir brosandi:
„Mér datt það nú í hug,
að af einhverju þenkileysi
væri ég orðinn brotlegur, og
villdi ekki að svoleiðis kæm-
ist upp um mig eftir að ég
er dauður. Svo ég fór nú til
skattstjórans, og það vil ég
segja, að ég dáðist að því,
hvílíkur öðlingsmaður hann
var að tala svona við ó-
breytta ræfla eins og mig-.
Hann má nú eiga það.“
Eyjóilfur igamli hefur full-
an hug á að halda áfram
blaðsölunni, þótt hann sé
orðinn hálf níræður, og það
er ekkert ldklegra en að elzti
blaðsali heimsins ætli að
sitja á horninu sínu fram á
síðasta dag.
Truman segir:
Bandaríkjamenn von-
sviknir yfir svikum
pólsku stjórnarinnar
ÞEGAR Truman Banda-
ríkjaforseti tók við embættis
iskilrikjum hins nýjá sendi-
herra Pólverja í Washinigton
í fyirradiag, lét hann í ljós von
brigði sin og Bandaríkjaþjóð
arinnar yfir því, hvernig
pólska stjórnin hefði brotið
'loforð sín um frjálsar og lýð-
ræðislegar kosninigar, eins og
gert hefði verið ráð fyrir á
fundin-um í Yalta og í Pots-
dam.
Truman forseti sagði með-
lad annars í ávarpi sínu til
hins pólska sendiherra, að
Bandaríkjamenn fylgdust
með því af heiMiug og vin-
semd, hvernig Pólverjum
uputoi{ njoA iui^;sjÍs necj uo
tækist endurreisnarstarfið
leftir stríðið.
Hins vegar sagði Truman
forseti á þá leið, að Banda-
ríkjastjórn væri þ,að mikil
vonbrigði, hvernig pólska
bráðabirgðastjórnin hefði
svikið ákvarðanirnar, 'sem
gerðar voru á Yalta- og Pots-
damfundunum. Bandaríkja-
stjórn væri enn sem fyrr um-
hugað um velferð pólsku
þjóðarinnar og þess vegna
vilji hún hafa sem bezta
samvinnu við bana.
Þega.r sendiherra Pólverja
fór út úr Hvíta húsinu, eftir
viðtalið við Truman forseta,
sagði hann meðal annars við
blaðamenn, að hann væri
mjög þakklátur fyrir hönd
þjóðar sinnar fyrir þá miklu
•hjálp, sem Bandairíkjamenn
hefðu sýnt Pólverjum eftir
fyrri heimsstyrjöldina og
eins eftir nýafstaðna styrjö'ld.
Til Barnaspítalasjóðs Hringsins
Áheit: Frá Unni 30 krónur,
frá Sjö 15 krónur. Gjöf: frá
Ingibjörgu 10 krónur, (afhent
dagblaðinu Vísir f. á.)
Kærar þakkir til gefenda.
Stjórn Hringsins.
GAR.DNER, hinn nýskip-
aði sendiherra Banda-ríkja-
manna í London, andaðist í
gær, er hann var á þann veg-
inn að stíga á skipsfjöl ti'l
þess að taka við embætti
sínu.