Alþýðublaðið - 20.05.1947, Side 4
4
Þriðjudagur 20. maí 1347.
ALÞfÐUBLAB.Ð
Hátíðahöldin 17. júní — og Fjallkonan. — Að-
gangur að sjó og sundi. — Baðstaður á Seltjarn-
arnesi. — Girðingar og garðar í Kringlumýri.
VEGFARANDI skrifar mér á
þessa leið. „Nú er farið að und
irbúa hátíðahöldin 17. júní, og
er ekki að efa, að allir aðilar
vilja gera þau sem bezt úr
garði. Mig iangar til að drepa
á hugmynd, sem ég teldi mjög
vel til fallið að komið yrði í
framkvæmd nú að þessu sinni.
Ég vil láta Fjallkonuna koma
fram í sambandi við hátíðahöld
in og ávarpa þjóðina. Eins og
kunnugt er hafa Vestur-íslend
ingar lengi haft þennan ágæta
sið á þjóðhátíðardögum sínum
og er það hámark hátíðarhalda
þeirra. Þá hefur hann dálítið
tíðkast hér á einstaka stað, en
ekki í Reykjavík.
ÉG ÁLÍT, að við íslendingar
eigum of lítið af föstum, góðum
siðum og venjum, og við eig-
um að skapa okkur þær. Slíkt
gefur lífinu meira gildi og gef-
ur okkur fegurri minningar,
þegar tímar líða og maður fer
að eldast, en fátt er eins mik-
ils virði fyrir okkur mennina
og að eiga góðar og fagrar minn
ingar. Ég álít að það geti orð-
ið fögur og tilkomumikil stund,
þegar ung og fögur kona geng-
ur fram á þjóðhátíðardaginn og
talar til fólksins fyrir munn
fósturjarðarinnar, minnir okk-
ur á skyldur okkar við hana
og gjafir hennar til okkar allra.
ÞAÐ ER SVO FÁTT, sem
stefnir að því að sameina okk-
ur til stríðs og starfa fyrir land
ið okkar og þjóðina. Allt vinn
ur að því að sundra okkur svo
að við eyðileggjum svo oft
handaverk hvers annar^, sem
annars gætu orðið til þess að
gera landið betra og gæði þess
enn fullkomnari. — Ég vænti
þess að þú birtir þessa uppá-
stungu mína, og ég vona, að
þeir, sem eru nú að vinna að
undirbúningi hátíðahaldanna,
taki hana til greina.“
ÉNNFREMUR skrifar Veg-
farandi.“ Það er kvartað und-
an því að allt af sé aðgangur
okkar að sjónum, til þess að
baða okkur úr honum að þrengj
ast. Og þetta er rétt. Skerja-
fjörður virðist vera lokaður,
en þangað var oft farið fyrrum
og þar þá allt af líf og fjör. Nú
er mér sagt, að farið sé að selja
byggingarláðir á Seltjarnar-
nesi. Hefur mér nú dottið í
hug, hvort ekki væri hægt að
koma þar upp dálítlum sumar-
baðstað. Þar mun vera hægt
að finna víkur og voga þar sem
er gott skjól. Vilja ekki þeir,
sem keypt hafa nesið, en það
mun vera félagsskapur hérna í
bænum, athuga þetta og hrinda
hugmyndinni í framkvæmd, ef
þeim lýst á hana. Þeir geta
verið vissir um, að staðurinn
mun verða vel sóttur.“
ÞAÐ ER RÉTT hjá bréfritar-
anum að okkur vantar tilfinn-
anlega góðan sjóbaðstað og er
brýn nauðsyn að finna góðan
✓
stað sem þeir geta leitað til sem
vilja busla í sjó. Mér er ekki
kunnugt hvernig aðstæður eru
á Seltjarnarnesi til að koma
upp dálitlum baðstað þar. En
ef svo er að þar séu heppilegar
aðstæður þá væri mjög æski-
legt að fá einmitt þar baðstað.
GARÐEÍGANDI skrifar mér
og spyr hvað valdi því, að enn
sé ekki búið að lagfæra girð-
ingu um garða í Kringlumýri.
Girðingarnar liggja niðri og
bærinn hefur ákveðið að sjá
um að lagfæra þær, en enn hef
ur ekkert verið • gert og vaða
hross um garðana. Nú er kom-
inn tími til að fara að vinna
í görðunum en það er þýðing-
arlaust að gera þar nokkurn
skapaðan hlut meðan girðing-
arnar eru í þessu ásigkomulagi.
Skorar bréfritarinn á garðyrkju
'ráðunaut að láta nú höndur
standa fram úr ermum.
Félagslíf
SUNDMENN! SKEMMTI-
FUNDUR verður haldinn
í kvöld eftir pólómótið í
Alþýðubrauðgerðinni.
Stjórnir félaganna.
ÁRMENNINGAR!
Skíðadeildin hefur ákveð-
ið að efna til skíðaferðar á
Eyjafjallajökul um hvíta-
sunnuna. Væntanlegir þátt
takendur láti vita í Hellas,
Hafnarstræti, 21 fyrir
þ rið j udagsk völd.
Stjórnin.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Fr.kv.stj.: Þorvarður Ólafsson.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Framkvæmdastjórasími: 6467.
Auglýsingasímí: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Óttinn vlð rödd
verkalýðsins
ÞJÖÐVILJINN heldur því
fram í forustugrein sinni síð-
ast liðinn sunnudag, að mál-
flutningur hans varðandi
verkfallsbrölt kommúnista sé
rödd verkalýðsins á íslandi
og að ekki sé mark takandi
á undirtektum verkalýðsfé-
laganna úti um land, því að
rödd þeirra sé rödd sósíal-
demókrata!
*
Ástæðan fyrir þessum
hlægilega málflutningi kom-
múnistablaðsins er afstaða
verkalýðsfélagsins Baldurs á
ísafirði til hins fyrirhugaða
pólitíska verkfalls kommún-
ista, en henni hefur áður ver
ið lýst hér 1 blaðinu. ísfirzkir
verkámenn neituðu að veita
kommúnistum lið í baráttu
þeirra gegn núverandi ríkis-
stjóm og að styðja
skemmdarstarf þeirra í at-
vinnuvegum landsins. Kom-
múnistar reyna að deyfa á-
hrifin af þessari afstöðu
Baldurs með því að gefa í
skyn, að hún sé tekin að
fyrirmælum Alþýðuflokksins
og hrúga saman illyrðum um
verkalýðshreyfinguna á ísa-
firði. En þeim tekst alldrei að
gera ísfirzka verkamenn tor-
tryggilega gagnvart samherj-
um þeirra annars staþaf á
landinu. íslenzk alþýða veit,
að ísfirzkir verkamenn hafa
ávallt staðið fremst í fylk-
ingu í nauðsynlegri og skyn
samlegri baráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar fyrir bætt-
um kjörum. En þeir eiga enga
samleið með kommúnistum,
hvorki í verkalýðsmálum né
stjórnmálum, enda ber starf
Baldurs því vitni, að honum
hefur verið stjómað af heið-
virðum og framsýnum mönn-
um, en ekki pólitískum
ævintýramönnum og skýja-
glópum.
*
En afstaða Baldurs á ísa-
firði er afstaða fjölmargra
annarra verkalýðsfélaga úti
um land. Nú fyrir skömmu
hefur verkalýðsfélagið í Vík
í Mýrdal vísað hinni hvat-
víslegu málaleitun kommún-
istaforsprakkanna í stjóm
Alþýðusambands íslands á
foug með sömu rökum og ís-
firzku verkamennimir. Og að
staða kommúnista í verkfalls
bröltinu er ekki sterkari en
það, að félög þau, sem þeir
ráða og hafa til þessa talið
sín traustustu vígi,. eru nú í
þann veginn að losa sig við
yfirráð þeirra. ÚrsMt alls-
herjaratkvæðagreiðslunnar í
Dagsbrún ber þessu gleggst
vitni. Kommúnistar hafa, nú
á einu ári og nokkrum mán-
uðúm tapað þar hvorki
meira né minna en 400 at-
kvæðum. Við allsherjarat-
kvæðagreiðsluna um uppsögn
samninganna greiddu um
900 félagsmerm atkvæði eft-
ir uppskrift kommúnista, en
um 800 félagsmenn lýstu sig
andvíga brölti þeirra. Og á
fundinum . á laugardaginn,
þegar stjóm félagsins lagði
fyrir verkamenn höfuðstað-
arins, hvaða kröfur skyldu
bornar fram, mættu aðeins
tvö hundruð þeirra þúsund-a,
sem í félaginu eru, og aðeins
eitt hundrað þeirra greiddi
kröfum kommúnista at-
kvæði.
*
Þjóðviljinn reynir að
halda því fram, að þessar
undirtekir séu ekki rödd
verkalýðsins. En skriffinn-
um hans og forsprökkum
Kommúnistaflokksins mun
eflaust finnast þessi afstaða
verkalýðsins válegur hljóm-
1 ur, þótt þeir reyni enn að
foera sig borginmannlega.
Það kemur að því fyrr en
síðar, að þessi rödd verka-
lýðsins láti þeim skiljast, að
islenzk alþýða liður ekki
pólitiskum loddurum að mis-
nota samtök hennar og etja
henni út í ævintýri, sem yrði
ógæfa hennar sjálfrar og
þjóðarinnar allrar.
■
Gamanleikur eftir Noel Coward. ;
Aðgöngumiðasala í Iðnó frá kl. 2 í dag. ■
frá skrifsíofu sakadómara
um afgreiðslu hegningarvofforða.
Vottorð úr hegningaskrá ríkisins verða
framvegis einungis afgreidd kl. 9—12 árdegis.
Reykjavík, 19. maí 1947.
SAKADÓMARI.
getur maður fengið við Lýsis-kald-
hreinsunarstöðina, Grandavegi 42.
Sími 5212.
H.F. LÝSI.
/
Maður í fastri stöðu, óskar eftir íbúð til
leigu í júní eða júlí n.k. Fyrirfram greiðsla 15
þúsund krónur. — Tilboð merkt: „15 þúsund“
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 24. þessa mán.
Sfúlka óskasf
nú þegar. — Sérherbérgi. — Upplýsing-
ar í síma 5533 eða 7346.
TJARNARKÁFFI,
Hús til sölu í Hafnarfirði.
.. Fokhelt hús, með miðstöðvarhitun, er til
sölu í Hafnarfirði, ef viðunanlegt boð fæst. —
Kauptilboð sendist fyrir 27. maí 1947 til Bjarna
Erlendssonar byggingameistara, Suðurgötu 49,
sími 9156, sem gefur nánari upplýsingar.