Alþýðublaðið - 15.06.1947, Blaðsíða 7
Sunnudagur 15. júní 1947
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
M söguríka Svíabyggð'
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningú
við andlát og jarðarför
Jóhauns Benedikts Guðjónssonar
frá Litlu Háeyri á Eyrarbakka.
Sérstaklega vil ég þakka Flugfélagi íslands hi.
fyrri auðsýnda samúð og hjálpsemi.
Fyrir mína hönd og fósturforeldra hins látna.
Guðjón Jonsson.
Innilegt þakklæti til allra, fjær og nær, sem auð-
sýndu mér hjálp í veikindum og hluttekningu við frá-
fall mannsins míns,
Sumarllða Viihjáimssonar,
, Vallarborg, ísafirði.
Sólveig Gestsdóttir.
Mieiniiigarorð
--------------♦
Bærinn í dag.
Helgidagslæknir Þórarinn
Sveinsson, Ásvallagötu 5. sími
2714.
Næturvörður er í Laugavegs
apóteki.
Nætturakstur fellur niður.
í dag
er sjötugur Björn Gíslason
bróðir þeirra Þorsteins heitins
Gíslasonar fyrrum ritstjóra í
Reykjavík og Hjálmars Gísla-
sonar Wínnipeg. Er Björn nú til
heimilis að Þórsgötu 28 a hér
í bæ.
Ríkisstjórnin
tekur á móti gestum í ráð-
herrabústaðnum við Tjarnar-
götu á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní, kl. 4—6 síðdegis.
Rif um hernámið.
(Frh. af 3. síðu.)
Hins vegar er bókin skemmti-
leg frásögn af lífi þjóðarinnar,
frásögn, sem sýnir v-el, hvað
almenningur /vissi og vissi
ekki urrf það, sem var að ger-
ast í landi hans.
Bókin er vel út gefin af ísa-
foldarprentsmiðju og prýdd
mjög mörgum athyglisverðum
myndum, sem Þonsteinn Jós-
epsson safnaði, en hann og
Svavar Hjaltested tóku flestar
þeirra.
Benedikt Gröndal.
HANNES Á HORNINU.
(Frh. af 4. síðu.)
við hlið hinna, eins geta úr al-
þýðustéttunum vaxið kalkvist-
ir skyldir þeim, sem falla fyrir
tálmyndum útlifaðra burgeisa,
flagga með þeim og þykjast
vera forverðir andlegrar bylt-
ingar með þjóðunum.
ÁRMENNINGAR!
Stúlkur! Piltar! Telpur!
Drengir! Úr öllum íþrótta-
flokkum félagsins! Göngu-
æfing verður nk. mánudags
■kvöld kl. 9,,30 frá íþrótta-
húsinu vegna hátíðarhald-
anna 17. júní. Munið að
mæta öll og stundvíslega.
Stjóm Ármanns.
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ:„Síðasta vonin“,
John Hoy, Ray Reagan og
fleiri. Kl. 7 og 9. „Grafinn
lifandi." Kl. 3 og 5.
NÝJA BÍÓ: „Kvennagull kem
ur heim“, Lucille. Ball,
George Brent, Vera Zorina,
kl. 5, 7 og 9. „Hart á móti
hörðu“, — gamanmynd með
Abbott og Costello, sýnd kl.
3.
TJARNARBÍÓ: „Sjömánastað-
lir“, — Phyllis Calvert,
Stewart Granger, Patricia
Roc, kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: „Leikaralíf11 Jan-
et Gaynor, Fredriah Marsh.
Kl. 3, 5, 7 og 9.
HAFNARFJARÐARBÍÓ; Kona
manns, Edvin Adolphson,
Birgit Tengroth og fl.
Framhald af 5. síðu
Gústaf Wrangel hina frægu
Skóklausturshöll, á fögrum
stað norðan við Löginn.
skammt norður af Stokk-
hólmi, en suður af Uppsöl-
um. Þangað skruppum við
einn daginn, sem við dvöld-
um í Stokkhólmi í ferðalok
og ákoðuðum þau ótrúlegu
auðæfi, sem þar eru geymd
í vopnum, herklæðum, mál-
verkum, veggteppum, hús-
gögnum, postulíni og silfur-
gripum hvaðanæfa að úr
heiminum. Mörg af þessum
listaverkum eru frá tímum
þrjátíu ára stríðsins og senni
lega herfang hins sigursæla
hershöfðingja, len mörgum
hefur verið safnað síðar, og
er Skóklausturshöll vafa
laust eitt merkilegasta safn
Svía frá stórveldisöldinni og
jafnvel frá síðari tímum,
allt fram á 19. öld. Minnis-
stæð verða. ýmis samtíðar-
málverk þarna af hetjukon-
ungum Svía, þar á meðal eitt
af Gústafi Adolf í rauðum
frakka og með gulan kraga,
málað af einhverjum óþekkt
um málara þremur vikum
fyrir fall konungsins við
Lutzen; og annað. eftir
sænska málarann Georg Eng
alhart Schröder, af Karli
tólfta í einkennisbúningi
blástakka, brjóstmynd, mál-
uð af honum 1707, þegar
hann stóð á hátindi herfrægð
ar sinnar, hafði sigrað alla
andstæðinga og átti þó að-
eins tvö ár eftir til ósigurs-
ins mikia við Poltava. En
þarna má líka sjá samtíðar-
málverk af Ebbu Brahe,
æskuunnustu Gústafs Adolfs,
sem hann fékk ekki að eiga
fyrir ekkjudrottningunni.
móður sinni, og gefin var öðr
um af henni meðan hann var
í hernaði; og af Auróru von
Königsmarck, hinni fögru
ástmey Ágústs sterka Pól-
verjakonungs. Hún ætlaði að
veiða Karl tólfta í net sitt til
þess að tryggja elskhuga sín-
um hagstæðan frið við hinn
sigursæla herkonung, en
tókst ekki, sem kunnugt er.
STOKKHÓLMUR er ekki
borg hins gamla tíma í Sví-
þjóð, eins og Uppsalir, þó að
hann væri valinn til höfuð-
staðar á 13 öld. Fastur aðset-
Söfn og sýningar: )
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ:
Opið kl. 13,15—15.
ÞJÓÐMNJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
SAFN EINARS JÓNSSONAR
opið kl. 13,30—15.
. . . ■r*r~7 "—
Skemmtisfaðir:
SKEMMTISTAÐURINN Tivoli
opinn kl. 2—11.30.
DÝRASÝNINGIN í Örfirisey
opin frá 8 árd. til 9 síðd.
Hljómleikar:
BEETHOVENTÁTÍT Tónlista-
félagsins, Busohkvartettinn
leikur.
ÍSLANDSMÓTIÐ heldur áfram
í dag 8,30, þá keppa Akur-
nesingar og Valur.
ursstaður kónungs og stjórn-
ar varð hann ekki fyrr en á
17 öld. stórveldisöldinni; og
þá var það sjaldgæft, að kon
ungar Svía sætu þar heima.
Karl tólfti leit yfirleitt ekki
Stokkhólm í lifanda lífi eftir
að hann fór þaðan til vígvall
anna suður við Eyrarsund
og sunnan Eystrasalts 1700.
Hann var fluttur þangað nár
átján árum seinna, eftir að
hyssukúlan við Friðriksstein
hafði bundið enda á hið
stiutta, en hetjulega líf haris.
Á hans ríkisstjórnarárum
var þó byrjað að reisa hina
frægu konungshöll í Stokk-
hólmi, þótt ekki væri hún
fullgerð fyrr en eftir miðja
18. öld. Hún var byggð af
tveimur af allra frægustu
byggingameisturum Svía,
Nicodemus Tessin og syni
hans með sama nafni, í
ítölskum endurreisnarstíl, og
er enn viðbrugðið fyrir feg-
urð. Varla getur hún þó tal-
izt til sögulegra minja Svi-
þjóðar; hún tilheyrir að
minnsta kosti engu síður nú-
tíð hennar.
En þó að Stokkhólmur,
borg hins nýja tíma í Sví-
Iþjóð, sé ekki eins ríkur að
sögulegum mmjum og Upp-
salir, þegar hin ágætu söfn-
borgarinnar eru undan skil-
in, þá geymir hann þó ann-
an þjóðarhelgidóm Svía. Það
er Riddarahólmskirkjan, —
Pantheon Svíþjóðar, eins og
hún er stundum kölluð. —
sem stendur á einum hólm-
anum í Norðurstraum, þar
sem Lögurinn og öldur
Eystrasalts mætast. Þar
hvíla allir Svíakonungar frá
og með Gústafi Adólf grafnir
og ýmsir af frægustu hers-
höfðingjum stórveldisaldar-
innar. Sjálf er kirkjan miklu
eldri, — reist í lok 13. aldar
af Magnúsi konungi hlöðu-
lási, sem einnig er grafinn
þar. Hún er byggð í oddboga
stíl og eru skipin þrjú og
kór inn af þeim, en konunga
grafirnar og aðrir legstaðir,
sem þarna hafa verið gerðir,
eru í grafkórum. sem byggð
ir hafa verið síðar við báðar
hliðar kirkjunnar og eru
opnir inn í hana. Það var
Gústaf Adólf, sem ruddi
þeim sið braut, að Svíakon-
ungar yrðu gafnir á þessum
Samkomuhúsiíi:
HÓTEL BORG: — Klassisk
músik frá kl. 8 síðd. Hljóm-
sveitarstjóri Karl Billich.
TJARNARCAFÉ: Hljómsveit
frá kl. 9 síðd.
INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl.
9 árð. Nýju dansarnir frá kl.
10 síðd.
Útvarpið:
19.30 Tónleikar.
20.20 Samleikur á viola.
20.35 Erindi: Næturgisting á
Hjaltlandi (Helgi Hjör-
var).
21.00 Útvarp frá Beethovenhá-
tíð Tónlistarfélagsins.
21.20 Upplestur: Kvæði eftir
Einar Benediktsson
(Kristmann Guðmunds-
son skáld les).
stað, hegar hann valdi sér
legstað þar; en þann legstað
bað hann 1629, þegar hann
lagði af stað til Þýzkalands
í síðustu herferð sína, að búa
sér hið allra fyrsta, svo sem
hefði hann hugboð um, að
hann myndi ekki lifandi aft-
ur snúa þaðan. Síðan hafa
allir Svíakonungar valið sér
legstað þarna að dæmi hans.
í þögulli lotningu stígum
við yfir þrepskjöld þessarar
kirkju. Hér hvíla þær, hetj-
urnar, sem hrifu hugi okkar
í æsku, þegar við vorum að
lesa Herlæknissögurnar. Hér
eru þeir grafnir, Lénharður
Thorstensson og Jóhann
Banér, hershöfðingjar Gúst-
afs Adólfs, sem héldu merki
hans. uppi í þrjátíu ára stríð-
inu eftir að hann féll.frá, og
fullkomnuðu sigur Svía í
því. Legstaðir þeirra eru
næstir kirkjudyrum, annar
til vinstri. hinn til hægri.
Hér er einnig grafinn,
nokkru , innar til vinstri,
Adam Lúðvík Lewenhaupt,
hershöfðingi Karls tólfta,
sem árum saman varði
Eystrasaltslöndin gegn ofur-
efli Rússa, en dó í stríðsfang
elsi hjá þeim austur í
Moskva. Og hér hvíla hetju-
konungarnir sjálfir, sitt
hvoru megin við kirkjukór-
inn, í kistum úr dökkum
marmara, Gústaf Adólf til
hægri við kórinn, og Karl
tólfti, til vinstri. Hér hvíla
þessir tveir frægustu konung
ar Svíþjóðar andspænis hvor
öðrum og aðeins breidd
kirkjukórsins, sem skilur þá.
í lifanda lífi var hér um bil
öld á milli þeirra, og með
öðrum þeirra hófst stórveld
istímabil Svíþjóðar, með hin
um lauk því. En báðir virð-
ast þeir vera Svíum jafn
hjartfólgnir. Báðir vörpuðu
þeir rrieð undursamlegum
hernaðarafrekum sínum var
anlegum ijóma á land sitt,
og báðir dóu þeir hetjudauð-
anum á vígvellinum, — síð-
ustu konungarnir. sem féllu
í stríði í Evrópu.
Það er auðvelt að
skilja, að minningin um
Gústaf Adólf og Karl tólfta
sé Svíum kær. Og þó.dreym
ir engan Svía í dag um að
feta í fótspor. þeirra. Sænska
þjóðin hefur, síðan þá leið,
lært að sníða sér stakk, sem
betur befur verið við vöxt
hennar. Og í dag má segja,
að þeirra ,,saga á sænskri
foldu sé senn eitt ævintýr'S
Stefán Pjetursson.
SWiWfc*. íÆi
Lárus G. Gunnarsson.
F. 7. október 1911.
D. 18. apríl 1947.
MÁTTUG SÓL á mannheim
breiðir
magnan lífs um óraleiðir.
Allt, sem lifir, er og hrærist
eitt og sérhvað blessa kýs.
Ekkert lætur undan skilið,
alls á milli sama hilið.
— Meinakerfi mannsins ráða
móti sólareðli rís.
Norðanmegin Furðufjalla
fram og vestur snarpan halla
gekk hann Lárus götu sína,
gönuspretti marga tók.
Komust þá í kast við lögin
kæruleysis lijartaslögin.
— Réttarvizkan yppti öxlum
eftir sinni lagabók.
I>ótt ei veittist þroskasjóður
þessum vorum látna bróður,
var hann ekki við þjiu riðinn
verk, sem meiddu land og þjóð.
Undan syndum samfélagsins
svigna viðir bræðrahagsins.
— Skreppi einn af skylduspori,
skörum hægt að dómaglóð.
Fyrstu vina fengin kynni
firðar geyma lengst í minni;
öfug mynd af ást og hylli
örvar þrá á verri mið.
— Hvaða plöggum Lárus lyfti
líklegt nú ei máli skipti.
Hann er farinn. Alveg ágætt.
Ekkert hér að skilja við.
Jón frá Hvoli.
Tvö dagheimili
í Reykjavík.
REYKJAVÍKURBÆR hef-
ur nú ák’Vriðjð að reka tvö dag
heimili hér í hænum í sumar.
Verður annað í Stýrimanna-
skólanum og hitt í Málleys-
ingjaskólarium. Hefur þegar
verið ráðin forstöðukona fyr-
ir annað heimilið.
Bæjtrrráð hefur ákveðið, að
sömu gjöld skuli verða á heiini
ilum þessum og í daghehnil-
um Sumargjðafar.
Lesið Alþýðublaðið
I - Skemmtanir dagsins —>