Alþýðublaðið - 26.06.1947, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 26.06.1947, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fimmtudagur 26. júní 1947 i't i# i T^ll Ný félagsbók V 1 IRVING STONE: Líf sþorsti Skáldsagan (mikla um hollenzka mál- arann heimsfræga van Gogh, ævi hans og baráttu, ástir og vonbrigði, leit 'hans að köllun sinni og lífsstarfi. Bókin er merkileg heimild um þann hreinsunareld þjáninga og þrenginga, sem þurft getur til að skapa stórbrot- inn listamann. Einnig nýtt hefti af Tímarili Máls oamenningar Efni: Halidór Kiljan laxness: Um daginn og veginn. Steinn Steinarr: Fjögur kvæði. Björn Fransson: Á áramótum. Hannes Sigfússon: Haustljóð frá Noregi. Skilið íslendingum fjársjóðum sínum aftur. Bj örn Fransson: Lýðræði. Jakob Benediktsson: Minningabækur og þjóðleg fræði. Jóhann Gunnar Ólafsson: Saga Vest- mannaeyja (ritdómur). — Smágreinar o. fl. Félagsmenn eru beðnir að vitja blaðsins sem fyrst. Nýjum félagsmönnum veitt móttaka í ils oamenninaar Islandsmet í spjót- kasti beggja handa í bæjarkeppninni BÆJARKEPPNIN milli Hafnfirðinga og Vestmanna- eyinga var að þessu sinni Iiáð í Vestmannaeyjum og fór fram um síðustu helgi. Hafn firðingar unnu keppnina með 406 stigum; hlutu samtals 12264 stig, en Vestmanna- cyingar hlutu 11858 stig. Á mótinu var sett nýtt ís- landsmet í spótkasti beggja handa. Var það Adolf Óskars son, Vestmannaeyjum, sem setti metið og kastaði hann spjótinu 91,45 metra. Fyrra metið var 84,02 m. Sigurvegarar í einstökum greinum voru þessir. í Lang stökki Oliver Steinn H. stökk 6,51 m. — í Stangarstökki Þorkell Jóhannesson H, stökk 3,50 m. — í þrístökki Þor- kell Jóhannesson H, stökk 12.76 m. — í 100 metra hlaupi Gunnar Stefánsson V, á 11.9 sek. — í Kringlukasti sigraði Ingólfur Arnarson, V; kastaði 37,21. — í sleggju kasti sigraði Pétur Kdst- bergsson H; kastaði 38,17 m. — í kúluvarpi Sigurður Einarsson, H; varpaði kúl- unni 12.45 m. í spjótkasti Adolf Óskarsson V, kastaði 52,65 m. Eins og áður segir setti hann nýtt íslandsmet í beggjahanda kasti; kastaði hann 38,80 m. með vinstri i hendi eða samanlagt 91,45 m. — í 200 metra hlaupi vann sveit Hafnfirðinga á 47,8 sek. Sveit Vestmanna- eyinga var 49,0 sek. Fargjöld með togur- um milli landa 350 krónur FARGJALD fyrir þá, sem ferðast með togurum milli Ianda, hefur nú verið ákveðið 350 krónur fyrir mann. Undanfarið hefur verið mjög mikil aðsókn um flutn- ing farþega milli landa með togurum, og hefur félag ís- lenzkra botnvörpuskipaeig- Aðalfundi SÍ5 lýkur á morgun AÐALFUNDI Sambands fslenzkra samvinnufélaga lýkur á Þingvelli á morgun. Áður hefur verið getið helztu niðurstöðutalna úr skýrslu forstjóra sambandsins, en nú hafa framkvæmdastjórar hinna einstöku deilda einnig flutt skýrslur sínar. Fer hér á eftir útdráttur úr fréttatilkynningu frá fundinum: Á síðasta ári framleiddi Gefjun meðal annars 57 000 metra af dúkum, 23 370 kg. af bandi og 71 780 kg. af lopa. Iðunn framleiddi meðai annars 40 900 pör af skó- fatnaði, sútaði 17 000 húðir og skinn, loðsútaði 12 000 gærur og afullaði 26 000 gærur. Tímart sambandsns, ,,Sam- vinnan11,, hefur stóraukið út- breiðslu sína og er nú prent- að í 12 000 eintökum. Á árinu hefur sambandið mjög fært út starfsemi sína: Auk útgerðar „HvassafeMs1” hafa nokkur erlend skip ver- ið tekin á leigu. Fyrir for- göngu sambandsins hafa Samvinnutryggingar tekið til starfa og nú þegar fengið 4 000 brunatryggingar, á annað þúsund bílatryggingar og rúmar 1 000 sjótrygging- ar. Vélsmiðjan Jötunn hefur verið keypt og undirbúning- ur var hafinn að stórauknum unar á bifreiðaverkstæði fyrirtækisins. Undirbúning- ur var hafnn að stórauknum afköstum Gefjunar, og hafa þegar verið keyptar margar nýjar vélar til verksmiðj- unnar, auk nýtízku ullar- þvottavéla, sem eiga að geta þvegið alla ull, sem fram- leidd er i landinu. Fundinn hafa setið 87 full- trúar, en rétt til fundarsetu hafa 92 fulltrúar. Úr stjórn sambandsins áttu að ganga Björn Kristjánsson, alþm., Kópaskeri, og Ey- steinn Jónsson, ráðherra, en þeir voru báðir endurkosnir. enda séð sig knúið til að aug- lýsa taxta yfir fargjöld með togurunum. En einnig er þess ge'tið, að ekkert farþega- rúm sé um að ræða í skipun- um, annað ein þau rúm, sem auð kunna að vera í hvert skipti í hásetaklefum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.