Alþýðublaðið - 26.06.1947, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 26.06.1947, Blaðsíða 6
6 ALÞÝBUBLAB8Q Fimmtudagur 26. júní 1947 æ nýja bio æ ( B GAMLA BfÓ 83 Heimkoman Glæpur og Jazz („The Crimson Canary“) Spennandi nútíma Jazz- (Till The End af Time). mynd. — Aðalhlutverk: Noah Berry jr. og Tilkomumikil amerísk Claudia Drake, átams Coleman Hawkins kvikmynd. saxofonblásara og Oscar Pettiford Dorothy Mc Cuire guitarleikara. Guy Madison Aukamynd: Robert Mitchum ~ BARÁTTAN GEGN HUNGRINU. Bill Williams („March of Time.“) Sýnd kl. 5, 7 og 9. Fróðleg mynd um störf UNRRA víðs vegar um heiminn. . Börn innan 14 ára fá Bönnuð börnum yngri en 12 ára. ekki aðgang. Sýnd klukkan 5, 7 og 9. ,nHBttMHunosspsss? æ BÆJABBIð æ Q TJARNARBÍO S Hafnarfirði wsl. .ÆM Sjömánasfaðir Ævintýradrós (Madonna of hte Seven (LADY OF FORTUNE) Moons) Amerísk litmynd, að Einkennileg og áhrifa- nokbru eftir hinni heims- mikil ensk mynd. frægu skáldsögu „Vani'ty Fair“ eftir Thackeray. Phyllis Calvert Stewart Granger Mjiríam Hopkins Patricia Roc Frances Dee Bönnuð innan 14 ára. Sýning kl. 5 — 7 — 9. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. Bönnuð innan 14 ára. ef Sýning í kvöld kl. 8. Miðar seldir í Iðnó í dag frá kl. 2—6. Sími 3191. Síðasta sinn Auglýsið í Alþýðublaðlnn .............................i Gina Kaus: EG SLEPPI ÞÉR ALDREI ar ókeypis heimsóknir til þín! Svo ég segi — á fætur með þig!“ Hann þreif ofan af honum sængina og rétti höndina að Albert til þess að hjálpa honum á fætur. „Já, en er það ekki orðið of seint í dag þá?“ spurði Al- bert. „Klukkan er orðin sex. Það er ástæðulaust að fara á fætur núna.“ „Því á læknirinn að ráða. Þú átt að nota það, sem eftir er af kvöldinu til að baða þig og raka þig og venja þig við að lifa eins og venjulegur maður aftur.“ Mann tók undir handlégginn á Albert og leiddi hann inn í baðher- bergið. „Þú skalt ekkert fást um, þó að þú sért orðinn ó- stöðugur á fótunum! Ef þú hefðir farið á fætur snemma í dag, eins og ég var búinn að fyrirskipa, þá værirðu orðinn ágætur núna.“ Albert varð að setjast á stól þegar þeir komu inn í baðherberg- isgrýtuna. Honum hafði aldrei fundizt hann vera svona veikur áður. Hitinn kemur kannske aftur,“ hugg- aði hann sjálfan sig, „og þá verð ég að fara og leggja mig aftur.“ „Ég skal raka þig meðan þú baðar þig,“ sagði Stefán. „Allir læknar eru ágætis rakarar. En líttu fyrst í spegilinn, svo að þú getir fullvissað þig um að þér fer ekki vel alskegg.“ Hann brá upp spegli fyrir Albert. „Nú — hryllir þig ekki við?“ „Ég lít í raun og veru út eins og sakamaður.“ „Langt frá því. Þú lítur út eins og illa leikinn þorpari í kvikmynd eða á leiksviði. í raun og veru raka glæpa- menn sig eins oft og annað fólk — það er að. segja á hverjum degi núna síðan Gillette blöðin urðu svona ódýr. Það eru bara þriðja flokks leikarar, sem halda að átta daga skegg sé gott ein- kenni á þorpara. Jæja, þá veiztu það — og nú er baðið tilbúið! “ Stefán hengdi upp frakk- ann sinn og bretti upp skyrtuermarnar, og í stund- arfjórðung var hann eins og bezti þjónn í baðhúsi. Ljósi hárlubbinn flaksaðist ofan á ennið á honum og hann var ákaflega unglegur og hressi- legur. „Þú eyðir allt of miklum tíma í mig,“ sagði Albert. „Taktu því rólega! Ég slæ ekki slöku við neinn óþolin- móðan sjúkling. Það er í mesta lagi skáldsagan mín, sem situr á hakanum, og því er hún vönust. Komdu nú, þá skal ég þerra þig!“ Þegar þessari athöfn var lokið, bað Stefán Albert að setjast, meðan hann sækti fötin hans. Um leið og hann var kominn út úr dyrunum, stóð Albert upp. Hann hélt sér fast í baðkarsbrúnina og komst að litla borðinu, sem spegillinn var á. Nú þekkti hann aftur á sér andlitið. Hann hafði dökka bauga undir augunum og kinnarnar voru slappar og næstum gráhvítar, en ó- hugnanlegi, annarlegi svip- urinn, sem hafði skotið hon- um skelk í bringu áðan, var horfinn með skegginu. Stef- án hafði alveg á réttu að standa. Það hafði bara verið líkingin við lélegar kvik- myndasýningar. Hann sat með sjpegilinn í hendinni, þegar Stefán kom inn aftur. „Langaði þig til að sjá, hvort þú værir orðinn eins og maður aftur?“ spurði hann. „Nú jæja, hérna hef- urðu allt til þess að full- komna breytinguna — skyrtu með föstum flibba, bindi og svo framvegis.“ Albert starði á skyrtuna. Hún var hrein og nýstrokin, en það var ekki sú, sem hann hafði verið í, þegar hann kom til Fritz. „Hvernig —?“ spurði hann. „F<íða kom með heilmik- ið af dótinu þínu í gær. Ég bað hana um það.“ „Hefur Fríða komið hér?“ „Já, hún vildi fá að vita, hvort hún ætti að halda á- fram hjá þér eða leita sér að nýrri stöðu. Svo komu nokkrir reikningar og þess konar. En hjúkrunarkonurn- ar þínar héldu því fram, að ekki mætti trufla þig.“' „Jæja,“ sagði Albert. Stef- án rétti honum sokk, og hann fór í hann. „Jæja, nú verður þú bráð- um að ákveða þig.“ „Ákveða hvað?“ „Hamingjan góða, hvort þú átt að halda Fríðu og svo framvegis.“ Albert svaraði ekki. „Sagði hún annars nokkuð?“ spurði hann. „Það veit ég ekki. Hún talaði bara við Mörtu. Hvað hefði hún annars átt að segja?“ Álbert fór í fötin. Fríða hafði komið með ljós vorföt, sem hann hafði ekki notað síðan í fyrra. Buxurnar voru orðnar of víðar, og jakkinn hékk utan á honum. „Þú hefur létzt um rúm fimm kíló,“ sagði Stefán. „Og þú gætir nú bara verið feginn, ef það hefði gerzt á hæfilegan hátt, í íþróttum eða leikfimi. í alvöru talað, þú verður að fara að gera eitthvað, annars verðurðu svo feitur um fertugt, að þú sérð ekki á þér fæturna, af þvý að ístran á þér skyggir á.“ Albert hló án þess að svara. Hann gat ekki ímynd- að sér, að hann myndi sakna þess, þó að Jiann einn góðan veðurdag yrði að vera án þess að sjá á sér fæturna. „Jæja, sjáum til, nú förum við til hinna. Finnst þér ekki líðanin betri núna?“ Þeir leiddust inn í borð- stofuna. Þar sátu þau öll, Fritz frændi og Marta, Anna MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSÍNS: ÖRN ELD8NG ÖRN: Ég kem líka. Ég þarf að PÉTUR: Komið þegar í stað, ung- frú CCynthia. Twitt er sárþjáð- ur ... ast tveim manneskjum, er virð- ast vera þær einu með réttu . ráði á þessari ey. tala við Bates lækni. PÉTUR: Þú ert sjálfráður um það, Örn Elding. LÆKNIRINN: Nafn mitt er Bates. Ég er læknir, og það gleður mig sannarlega að kynn-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.