Alþýðublaðið - 26.06.1947, Síða 7
Fimmíudagur 26. júní 1947
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Bærinn í dag.
Næturlæknir ér í Lækna-
yarðstofunni, sími 5030.
' Næturvörður er í Reykjavík-
urapóteki.
Næturakstur fellur niður.
----------♦-----:----
Hraðskákkeppni í
kvöid fil ágóða fyr-
ir Finnlandsfarana
EINS og áður hefur verið
getið fara fjórir íslenzkir
skákmenn á skákmót í Finn-
landi í næsta mánuði; það
eru þeir Ásmundur Ásgeirs-
son og Guðmundur S. Guð-
mundsson, sem tefla í lands-
liði, og Sturla Pétursson og
Óli Valdimarsson, sem tefla í
meistaraflokki. — í kvöld
klukkan 8 verður hraðskák-
keppni í Mjólkurstöðinni til
ágóða fyrir Finnlandsförina.
Keppt verður eftir klukku
þannig að menn verða að
leika einn leik á fimm sek-
úndum. Keppt verður í
mörgum riðlum. Tveir efstu
menn úr hverjum riðli fara
síðan í milliriðla og síðast
verður svo úrslitakeppni.
Eins og áður segir rennur
ágóðinn af mótinu til Finn-
landsfarárinnar. Öllum er
heimil þátttaka og aðgangur
að keppni þessari, en þeir,
‘sem þátt vilja taka í keppn-
inni verða að hafa með sér
töfl.
SKiPAttTGeRÐ
RIKISINS
Esja
fer til Vestfjarða .eftir næstu
helgi og ef til vill til Si'glu-
fjarðar og Afcureyrar, ef
nógu margir farþegar bjóð-
ast. 'Pöntunum veitt móttaka
í dag.
Rúmlega 10 þús.
manns hafa soff
dýrasýninguna
RÚMLEGA 10 þús. manns
hefur sótt dýrasýninguna í
Örfirisey, en hún hefur nú
staðið yfir í rúman hálfan
mánuð. Mesta skemmtun
virðist fólkið hafa af öpun-
um. Virðast aparnir una líf-
inu vel þarna í eyjunni; sér-
staklega liggur vel á þeim á
morgnana og fyrripart dags,
en þeir eru kvöldsvæfir og
kunna iila miklu ónæði
seint á kvöldin.
Einnig vekja sæljónin og
selirnir mikla athygli, en sæ
ljónin eru oft í misjöfnu
skapi.
Um helgar hafa verið dans
leikir frammi í Örfirisey og
hafa íþeir verið vel sóttir.
Einnig eru kvikmyndasýn-
ingar stundum á kvöldin.
Innan skamms er von á
fleiri dýrategundum á sýn-
inguna.
Kínverjar saka
Rússa um svik
KÍNVERSKA STJÓRNIN
sakar Rússa nú opinberlega
um að hafa svikið samnings-
bundin loforð um að hún
fengi að hafa afnot af höfn-
unum í Port Arthur og
Dairen fyrir herflutninga til
Mansjúríu.
Sem kunnugt er, hafa kín-
verskir kommúnistar lagt
undir sig stór landflæmi í
Mansjúríu síðan Rússar fóru
þaðan eftir stríðið, og eiga
hersveitir kínversku stjórn-
arinnar þar í vök að verjast.
Rússar skuldbundu sig til
þess í samningum við kín-
versku stjórnina eftir stríð-
ið„ þegar þeim voru afhent-
ar hafnarborgirnar Port Art-
hur og Dairen í Suður-Man-
sjúríu, að láta hana hafa að-
gang að þeim meðal annars
til herflutninga til Mansjú-
riu; en það loforð hafa þeir
ekki haldið.
ið nýja efnahags
ráð á hemámssvæði
Breia og Bandaríkja
manna hóf störf í
gær í Frankfurf
HIÐ NÝJA EFNAHAGS-
RÁÐ á hernámssvæðum
Breta og Bandaríkjamanna
á Þýzkalandi hélt fyrsta
fund sinn í Frankfurt við
Main í gær. Ráðið er skipað
kjörnum fulltrúum hinna
einstöku fylkja á hernáms-
svæðunum.
Á þessum fyrsta fundi ráðs
ins var sú skoðun látin í Ijós,
að með stofnun þess væri
stórt spor stigið í áttina til
efnahags- og stjórnarfars-
legrar sameiningar Þýzka-
lands á ný. Fulltrúarnir létu
þá ósk í Ijós, að Þýzkaland
fengi að vera með í því sam
starfi, sem nú væri að hefj-
ast til viðreisnar Evrópu á
grundvelli hins ameríska
hjálpartilboðs.
Á hernámssvæði Rússa á
Þýzkalandi hefur nýlega
einnig verið stofnað efnahags
ráð. En það er ekki skipað
kjörnum fulltrúum Þjóð-
verja, heldur hefur setuliðs
stjórn Rússa skipað menn í
það.
Stórsfúkuþinginu
lokið
STÓRSTÚKUÞINGI ÍS-
LANDS var slitið á Siglu-
firði í gær og halda þing-
fulltrúar heimleiðis um Ak-
ureyri í dag.
Alls sátu þingið 62 full-
trúar. 46 undirstúkur eru nú
starfandi á landinu og telja
þær samtals 5089 meðlimi.
Ennfremur eru starfandi 60
barnastúkur með 5461 með-
lim, svo samtals er nú í stúk-
um landsins 10 570 manns.
| - Skemmtanir dagsim - • |
Þing ungra rifhöf
unda í Helsingfors
FJórir ritliöfundar
frá íslandi mættir.
KHÖFN í gær.
Á ÞRIÐJUDAGINN var
sett í Helsingfors á Finn-
iandi þing ungra rithöfunda
og eru mættir þar rithöfund-
ar frá Danmörku, Svíþjóð,
íslandi, Noregi, Finnlandi og
Rússlandi. Frá íslandi eru
fjórir ungir rithöfundar
mættir.
Þirngið hófst með erindi
finnska rithöfundarins Arkki
Vala um alþjóðasamvinnu
rithöfunda til verndar frið-
inum.
í dag var rætt á þinginu
um ný markmið rithöfunda
úr verkalýðsstétt.
Þinginu lýkur á föstudag.
HJULER
Helgarferðir Ferða-
skrifstofunnar
FERÐASKRIFSTOFA
RÍKISINS efnir til tveggja
ferða um næstu helgi. Á laug
ardaginn kl. 3 farið af stað
til Heklu. Ekið að Næfur-
holti. Gengið að eldstöðvun-
um. Komið heim á sunnu-
dagskvöld.
Á sunnudag kl. 8 farið af
stað austur að Gullfossi og
G'eysi, komið við í Skálholti.
Ekið um Þingvelli í heimleið
inni. Sápa verður sett í hver
inn um kl. 1.
Orlofsferðir Ferðaskrif-
stofunnar hefjast í næstu
viku eins og getið hefur ver
ið, og er fólk sem ætlar að
taka þátt í þessum ferðum
beðið að hafa tal af skrifstof
unni sem fyrst.
Þór Sandhalt fer á
byggingarmála-
sýningu í París
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Heimkoman“.
Dorothy Mc Cuire, Cuy
Madi^on, Robert Mitchum,
Bill* Williams. — Sýnd kl.
5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Glæpur og Jazz“
— Noali Beery jr., Claudia
Drake, Coleman Hawkins og
Öscar Pettiford. — Kl. 5, 7
og 9.
TJARNARBÍÓ: ,Ævintýradrós‘
— Miriam Hopkins, Francis
Dee. — Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: „S,jömánastaðir“
— Phyllis Calvert, Stewart
Granger og Patrica Roe. —
Sýnd kl .7 og 9.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: „Átta
akkorður“ — Payil Reumert,
Eyvind Johan Svendsen, Ib
Schönberg o. fl. — Kl. 7 og 9.
Söfn og sýningar:
SÝNING Nínu Sæmundsson í
Listamannaskálanum.
Opið kl. 10 árd. til 10 síðd.
Þ J ÓÐMIN JAS AFNIÐ: Opið
kl. 13—15 síðd.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ: Op-
ið kl. 14—15 síðd.
Tónleikar:
LÚÐRASVEITIN „SVANUR“
leikur á leikvellinum við
Tripoli kl. 9 síðd.
SkemmFisfaðir:
SKEMMTISTAÐURIIýN Tivoli
opinn fcl. 2—11.30.
DÝRASÝNINGIN í Örfirisey
opin frá kl. 8 árdegis.
Samkomuhúsin:
HÓTEL BORG: Dansað frá kl.
9^—11.30. Hljómsveitarstjóri:
Karl Billich.
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Hljóm-
sveit frá kl. 9—11.30 síðd.
Stjórnandi Björn R. Einarss.
INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl. 9
árdegis. Hljómsveit frá kl.
10 síðd.
T J ARN ARLUNDUR: Klassisk
lög frá kl. 9 síðd. Hljómsveit
undir stjórn Árna Björns-
sonar.
Úfvarpið:
20.45 Dagur sameinuðu þjóð-
anna:
a) Thor Thors sendiherra
flytur ræðu.
b) Ávarp Tryggva Lie,
ritara sameinuðu þjóð-
anna.
21.15 Dagskrá kvenna (Kven-
réttindafélag. íslands) :
Erindi: íslenzkar kven-
hetjur (frú Guðrún
Björnsdóttir .frá Kornsá)
21.40 Frá útlöndum (Vilhj. Þ.
Gíslason).
BÆJARRÁÐ hefur falið
Þór Sandholt arkitekt að
fara á skipulags- og bygging
armálasýningu í París, sem
haldinn verður þar í stimar.
Múmían
(Frh. af 3. síðu.)
fram, að ógæfan elti þá eftir
að hafa aðeins horft á hana.
Um svipað leyti tók ótti að
gripa um sig rneðal starfs-
fólks safnsins og bað það um,
að múmían yrði flutt á brott,
Var þá múmían falin; en ná-
kvæm eftirmynd var sett þar
sem hún hafði áður verið.
En að lokum var málinu
bjargað af amerískum fræði
manni, er bauðst til þess að
flytja múmíuna með sér til
Ameríku, og var það boð
þegið með þökkum.
1
Minningarspjöld Barna-
spífalasjóðs Hringsins
eru afgreidd í
Verzlun
Augustu Svendsen,
Aðalstræti 12 og í
Bókabúð Austurbæjar,
Laugavegi 34.
Jóns Baldvinssonar forseta
fást á eftirtöldum stöðum:
Skrlfstofu Alþýðuflokksins.
Skrifstofu Sjómannafélags
Rvíkur. Skrifst. V. K. F.
~~5SÍ'. * ^ •í.-
Framsókn, Alþýðubrauðg.,
Lvg. 61 og í verzl. Valdimars
Long, Hafnarfirði.
Púsningasandur.
Fínn og grófur skelja-
sandur.
Möl.
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON,
Kirkjuvegi 16. Hafnar-
firði. — Sími 9199.
Kaupum tuskur
Baldursgötu 30.
Baldvin Jónsson
hdl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Vesturg. 17. Sími 5545.
GOTT
ÚR
ER GÓÐ EIGN
Guðl. Gfslason
Úrsmiður, Laugaveg 63.
Skömmu síðar lauk hinum
dularfullu atburðum fyrir
fullt og allt, er staðið höfðu
í sambandi við prinsessuna
3Ö00 ára gömlu, á eimskipi á
leið til Ameríku. Ásámt far-
þegum og skipshöfn fékk
hún hinzta beð á botni At-
lantshafsins því að skipið
hét Titanic.
Lesið Álþýðublaðið