Alþýðublaðið - 15.08.1947, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 15.08.1947, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐBÐ Föstudaginn 15. ágúst 1947 NYIA BÍÓ ææ GAMLA Blð æ Sonur refsinornarinnar (Son of Fury) Söguleg stórmynd, mikil- fengleg og spennandi. Að- alhlutverk: Tyrone Power Gene Tiemey George Sanders Roddy McDowall. Bönnuð börnum yngri en 12 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. Ásflausi hjonaband (WithoutLove) Skemmtileg og vel leikin amerísk kvikmynd. SPENCER TRACY KATHARINE HEPBURN LUCILLE BALL Sýnd kl. 5, 7 og 9. æ bæjarbio æ æ tjarnarbio æ Hafnarfirði Undir merki kardínálans (Under the Red Rode) Annabella Conrad Veidt Reymond Massey Ævintýri frá 17. öld. Sýningar kl. 7 og 9. TRIPOLI-BÍÓ Tryggur snýr affur (Return of Rusty). Hrífandi og skemmti- leg amerísk mynd. Aðalhlutverk leika: 1 Ted Donaldsson John Liíel Mark Dennis Barbara Wooddell Robert Stevens. Sýnd kl. 5 — 7 — 9. Sími 1182. RauSur þráðarspotfi (Pink String and Sealing Wax.) Enskur sakamálaleikur. Googie Withers Mervyn Johns Sýning kl.,5 — 7 — 9. Bönnuð innan 16 ára. GOT1 ÚR ER GÓÐ EIGN 0uðf. Gíslason Grsmiður, Laugaveg 63, Minningarspjöld Barna- spífaíasjóðs Hringsins eru afgreidd í Verzlun Augustu Svendsen, Aðalstræti 12 og f Bókabúð Áusturbæjar, Laugavegi 34. John Ferguson: MAÐURINN I MYRKRINU En honum var áreiðanlega alveg alvara í þeirri ákvörð- un sinni að komast að hvern- ig í öllu lægi. Hann átti ekki í neinni deilu við hana. I rauninni hélt hann„ að sér félli hún vel í geð. Fingur hennar, sem fjölluðu um sært höfuð hans, voru liprir. Og hann hafði lært að skynja sál fólksns af snertingu þess. En hvort hún var saklaus eða sek flækt í þetta Ealing- mál, vissi hann að hann varð að vita sjálfs sín vegna, og ef til vill hennar vegna líka, þegar til lengdar léti. Hann fór að yfirheyra sjálfan sig um, hvað hann vissi þá þegar eða gæti stað- hæft með vissu. Hvers vegna hafði hann ekki verið skilinn eftir þarna í herberginu með hinu fórnarlambinu? Hvers vegna var farið með hann í burtu? Að skilja hann þar eftir með hinum myrta, var i það ekki einmitt það rétt- sagt til að skýra dvöl sína í sagt til a ðskýra dvöl sína í þessu húsi? Hvað sem hann segði yrði einskis virði gagn- vart því, sem sjá mátti; manninn liggjandi þar myrt- an, og hann sjálfan flakkara, sem var mjög tortryggilegur í útliti. . Saga hans um að honum hafi verið boðið í þetta hús af hinum látna, — hve hlægi- Iegt og ótrúleg myndi það ekki sýnast! í rauninni voru líkurnar gegn honum enn meiri en sá, sem glæpinn framdi, viss. Því að blindur maður myndi auðvitað velja sér hníf að vopni, en ekki skammbyssu. Og morðinginn hefði getað sett hnífinn í hendina á honum, þegar hann var búnn að slá hann niður, og þannig komið snör- unni um háls honum svo auðveldlega. Allt í einu rankaði Kinlock við sér. Honum varð ljóst, hverjar orsakirnar voru til þess, að hann var fluttur burtu. Hann hafði sjálfur verið sleginn svo, að hann missti meðvitundina, Sárið á höfð hans bar vott um það. Þess vegna hefði sú spurning vaknað, hefði hann fundizt i herberginu: Hver hafði veitt honum þetta sár? Auðsýni- lega gat dauði maðurinn ekki hafa slegið hann niður, eftir að hann var dauður! Og sá, sem hefur fengið þetta rot- högg áður en hinn var dauð- ur, hefur aldrei getað slegið aftur. Þess vegna myndi þetta sár vitna um að þriðji maður hefði komið í þetta herbergi og þannig styðja hina annars ótrúlegu sögu, sem hann hefði orðið að segja af viðburðum þessa kvölds. Verða að segja? 1 Hugsanir Kinlöck.s námu staðar við þau orð. Já, orðið að segja, ef hann hefði fund- izt meðvitundarlaus í þessu herbergi. En, spurði hann sjálfan sig, myndi hann segja sjálfviljugur þessa sögu núna? Gat hann komizt á- fram með þá sögu núna? Og í svarinu við þeirri spurn- ingu fann hann fólgið svar við því líka, hvérs vegna vegna hann var fluttur burtu frá húsinu í Ealiing. Það hefði aldrei getað ver- ið glæpamanninuin í hag, að meðvitundarlaus maður fyndist í þessu herbergi, — maður, sem gæti, þegar hann kæmi til sjálfs sín, alveg lýst manninum, sem veitti högg- ið. En það kæmi sér ekki vel fyrir hann núna, þegar sárið var næstum gróið, að falla í hendurnar á lögreglunni. Heimskuleg og ótrúleg saga myndi það virðast núna, sérstaklega ef hann yrði svo að viðurkenna, að hann vissi ekki einu sinni nafnið á þorpnu, sem var farið með hann í. Þá, þegar hann sat þarna á rúminu og var að búa um hnéð á sér, sá hann skyndi- lega mjög vel hvaða vanda- mál hann yrði að leysa. Hann varð að komast að, hvað þetta þorp hét. Hann varð að vita hvar það var, Hann sat lengi og braut heil- ann um það. Nú fyrst varð honum ljós hin rólega á- kvörðun konunnar um að láta hann ekki vita hvar hann var, og um hina hræðilegu hættu, sem það bakaði honum. Hann var samt ekki vonlaus um að sigra hana. Hann mundi eftir stóru klukkunni og litlu borg inni, sem þau höfðu farið gegnum. Var þetta skrítna, strjál- býla þorp einhvers staðar í Sussex, eins og hann hafði getið sér til? Hann fór yfir það, sem frú Spelding hafði sagt. Hve auðveldlega hefði ekki nafn- ið á þorpinu getað álpast upp úr henni? En það hafði ekki gert það samt. Og þó; öll þessi nöfn, sem gamla konan hafði nefnt. Mörg nöfn vissi hann að voru staðbundin. Af eftirnafni var oft hægt að sjá hvaðan úr Englandi maðurinn var runninn. Tyldesley t. d. benti á Lancashire. Foseter var al- algengt í Vorcestershire. Var Prebble, Ames, Tolputt og Aden algeng nöfn í Suss- ex? Hann vissi það ekki; en hann vissi, að sumir menn voru mjög fróðir um slika hluti. Og þessi nöfn öll sam- an litu út fyrir að vera bund- in einhverjum sérstökum stað. Og þó var þetta ekki MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSÍNS ÖRN ELDING FLUGMAÐURINN: Örn Elding, herra! FORINGINN: Sælir! Kynni yður loringjanum, sem ræður yfir flugvélum setuliðsstöðvarinnar. ÖRN: — Og þá hef ég lokið skýrslu minni um uppreisnina á eynni. FORINGINN: Og ótrúleg er hún, ungi maður! FLUGFORINGINN: Ég hygg, að hann segi satt. FORINGINN: Getur verið, — get- ur verið. FLUGFORINGINN: Ég legg til, að við undirbúum gagnráðstaf- anir. FORINGINN: En hvernig fer þá með flugsýninguná?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.