Alþýðublaðið - 30.08.1947, Síða 8
Hljóðfæraverzlimm
VERZLUNIN
^lAUGAVEoSfi
■SIMAR3S%-jJU
Laugardagur 30- ágiist 1947.
Höíuðdagur liðinn - en líli! von
2 -á
Öil von byggist nú á Egýdíysmessu.
■-------♦----■—
SÓLIN BBÖSTI TIL REYKVÍKINGA öðru hverju
í gærdag, og þeir brostu á móti — og sögðu hver við
annan: „Sjáiði til! -— Höfuðdagurinn! Vissi ég ekki!“ —
Það var lengi búið að vera umræðuefni tíagsins, hvort veð-
urfarið mundi ekki breytast á höfuðdag, eihs og gamla
fólkið hé-lt fram; cg nú virtist aljt benda til þess, að svo
mundi verða. En veðurfæðingarnir voru ekki eins bjart-
sýnir. Þeir sögðu að það væri enga breyíingu að sjá; nýjar
lægðir væru fyrir vestan land og suður af Grænlandi, og
það væri alveg eins trúlegt, að þær mundu leggja leið
sina hingað og hrjá okkur enn um hríð.
» r f1 I «v»
30 þúsund manns
á .Sjómi
á
í fyrrasumar.
MEIRI AÐSÓKN var að
Sjómannaheimilinu á Sigiu-
firði í fyrra sumar en nokkru
sinni áður, segir í Árbók
þess fyrir árið 1946.
Samkvæmt dagbók heimil
isins var gestafjöldinn 29 526
manns yfir sumartímann, en
flestir gestir á einum degi
voru 875-
Eins og að undanförnu,
var mestur hluti gestanna
sjómenn af síldveiðiskipun-
um frá flestum verstöðvum
Landsins. Einnig sótti fjöldi
norskra og sænskra sjó-
anna heimilið, svo og verka-
fólk, konur og karlar, sem
vann við síldarvinnu á plön-
unum,
■* Höfuðdagur
við dag þann
Svíar veita íslending
ríflegan námssfyrk.
SÆNSKA ríkisstjórnin
hefur boðizt til þess að veita
íslenzkum námsmanni styrk,
sænskar kr. 2350, til náms
veturinn 1947—48 við eina
eða fleþri af eftirtöldum
menntastofnunum: Uppsala-
háskóla, Lundarháskóla, Ka-
rolinska mediko-kirurgiska
institutet í Stokkhólmi,
Stokkhólmsháskóla og Gauta
borgarháskóla, en af þessari
upphæð verða 450 s. kr.
greiddar í ferðakostnað. Æski
legt er, að styrkþegi hafi
stundað háskólanám á ís-
landi að minnsta kosti í 2
ár- Nemandi, sem ætlar að
leggja stund á sænsku eða
sögu Svíþjóðar, sænskar bók
menntir, sænsk lög eða þjóð-
menningu, verður látinn
ganga fyrir.
er kenndur
er Jóhannes
skírari var hálshöggvinn sam
kvæmt skipun Heródesar
Antipas í Makkaerus.
Trúin um að veðráttu muni
bregða á höfuðdag er gömul
og sterk hér á landi. Ef gott
veður er þann dag, á sam-
kvæmt trúnni að haldast við
það sama 20 daga og á að
minna á það í 40 daga eftir
Egidiumessu.
Fari svo, að höfuðdagur-
inn bregðist, þá eru fleiri dag
ar um þetta leyti, sem trúað
hefur verið á til veðurs. Bart
holomeusmessa var 24. ágúst
en haustið á að verða eins og
veður er þann dag, sam-
kvæmt gamalli trú. Ókomin
er Egidíumessa, 1. septem-
ber, en á henni höfðu marg-
ir jafnvel sterkari trú en höf-
degi- Ef veður er þá fagurt,
verður svo allur mánuður-
inn, og sé þá þurrt veður,
verður gott haust.
Fleira af þessu tagi geta
menn athugað, ef höfuðdag-
urinn skyldi bregðast. Ef
þrisvar snjóar í fjöll fyrir
lok ágústmánaðar, verður
góður vetur. Ef berjaspretta
er mikil, er það fyrir vond-
um vetri.
ÖNNUR SAGA Á MEGIN-
LANDINU
Þurrkarnir og góðviðrið
haldast enn á Bretlandseyj-
um og Norðurlöndum, og er
nú svo komið, að í Danmörku
þrá menn bókstaflega illviðri
og dreymir um storm og
regn, að því er Walter Hjul-
er, fréttaritari blaðsins í
Höfn skrifar. Þar eru þurrk-
arnir orðnir svo alvarlegir,
að uppskera hefur stór
skemmzt. Bændur hafa þeg-
ar orðið að slátra búpeningi
sínum vegna yfirvofandi fóð
ursskorts í vetur, svo að kjöt
sköímmitun hefur reynzt ó-
þörf vegna þess, að svo mik-
ið kjöt barst á markaðinn
að ekki var hægt að selja
það allt- En Kaupmannahöfn
og Reykjavík hafa eitt sam-
eiginlegt — veðurfræðing-
arnir fást ekki til að lofa
neinni alvarlegri veðurbreyt
ingu.
Frakkar eiga nú í svipuðum
dollaraerfíöieikum og aðrar
Evrópuþjóðir, nema hvað á-
standið hjá þeim er verra en
annars scaðar. Hér sést for-
sætisráðherra þeirra, jafnað-
armaðurinn Ramadier.
Ný yfirbyggS sund-
laug vígS í Búoar-
dalskauptúni.
Á MIÐVIKUDAGINN var
vígð sundlaug í Búðardals-
kauptúni. Er sundlaug þessi
12,5 metrar á lengd og 6
metna breið. Sundlaugin er
yfirbyggð.
Framkvæmdir við bygg-
Lngu sundlaugarinnar hófust
árið 1944, og er kostnaður
við þetta íþróttamannvirki
rúmar 330 þúsundir króna.
Þar af söfnuðust rúmar 204
þúsundir króna með frjáls-
um framlögum, en hitt var
lagt fram úr ■ íþróttasjóði.
Brezk rannsóknaflug-
vél koni hingaS í gær.
FJÖGURRA HREYFLA
York flugvél frá brezka flug-
hernum lenti á Reykjavíkur
flugvellinum á niunda tím-
anum í gærkveldi. Er hún
hingað komin . til þess að
gera athuganir um fyrirhug-
aðar Loran miðunarstöðvar,
sem alþjóða flugsambandið
h.yggst að koma upp hér á
landi. Flugvélin er með 10
manna áhöfn og verður hér
j fram á sunnudag. Hún var
búin að vera í Keflavík, áð-
ur en hún kom til Reykja-
víkur.
VARNARRÁÐ indversku
samveldislandanna hefur
komið sér saman um víðtæk-
ar ráðstafanir gagn óeirðun-
um í landinu. Verður tekið
hart á óaldarflokkum, óróa-
seggir skotnir, ef þeir verða
staðnir að illverkum og flug-
vélar notaðar til að friða
verstu héruðin.
Viðskipíanefnd mótmælir skri
um Vísis um leyfisveitinga
Fyrrveraodi viðskiptaráðsinenn ákveða
að höfða oiefðyrðamál gegn
ritstjóra Vísis.
ÚT AF ÓVENJULEGA RÆTINNI FORUSTUGREIN
í Vísi í fýrradag, þar sem þeim aðilum, er fóru með veit-
ingu gjaldeyris- og innflutningsleyfa, eru borin á brýn
ýmis embættisafbrot, meðal annars að hafa gefið út leyfi
án þess að þau væru skrásett og jafnvel dylgjað um mútur
í því sambandi, hefur viðskiptanefnd gefið út yfirlýsingu,
þar sem þessu er harðlega mótmælt. Enn fremur hafa
fyrrverandi viðskiptaráðsmenn gert ráðstafanir til þess að
höfða meiðyrðamál gegn ritstjóra Vísis og jafnframt á-
kveðið að fara þess á leit við ríkisstjórnina, að hún láti
fara fram rannsókn á þessu máli.
Yfirlýsing viðskiptanefnd-
ar er sem hér segir:
,,í forustugrein í Vísi í
gær er rætt um orðróm, sem
gangi í bænum unl að leyfis-
veitingar þeirra stofnána er
með þær fóru áður en við-
skiptanefndin tók til starfa,
hafi ekki verið með felldu og
er dylgjað um embættisbrot
í því sambándi.
Út af þessu vill nefndin
lýsa yfir eftirfarandi:
1. Skömmu eftir að nefnd-
ín tók til starfa ákvað hún
að kalla inn til skrásetningar
og framlengingar öll gjald-
eyrisleyfi, sem út voru gefin
fyrir 1. ágúst 1947, þ. e. a- s.
öll leyfi, sem viðskiptaráð og
nýbyggingarráð höfðu gefið
út. Var þetta gert til þess
að komast að raun um, hve
mikið væri ónotað af leyfum
þessum, en það var ekki unnt
að sjá á annan hátt, þar eð
innflutningsskýrslur Hagstof
unnar bera það ekki með sér,
en slíkt uppgjör hins vegar
nauðsynlegt í sambandi við
yfirlit yfir gjaldeyrisástand-
ið.
2. Öll þessi leyfi hafa nú
verið lögð inn til skrifstofu
nefndarinnar og athuguð
þar og við þá athugun hefur
ekkert það komið fram sem
gefi minnsta tilefni til þess
að ætla að orðrómur sá, sem
um ræðir í nefndri grein,
hafi við rök að styðjast“.
Útför Páls Steingríms-
sonar fór fram í gær.
ÚTFÖR Páls Steingríms-
sonar, fyrrum ritstjóra, fór
fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík í gær.
Séra Árni Sigurðsson jarð
söng, en fríkirkjukórinn
söng undir stjórn Kristins
Daníelssonar. Ennfremur
söng Einar Kristjánsson
óperusöngvari einsöng í
kirkjunni. Þórarinn Guð-
mundsson lék einleik á fiðlu.'
20 KR-ingar keppa í
Vesfmannaeyjum
í GÆR flugu 20 KR-ingar
til Vestmannaeyja og verða
gestir Vestmannaeyinga í
dag og á morgun. Ákveðið
er, að þarna verði háð
tveggja daga iþróttamót, þar
sem KR-ingar, Vestmannaey-
ingar og ýmsir aðrir munu
tafea þátt í, þar á meðal Kol-
beinn Kristinsson og Sig-
fús Sigurðsson frá Selfossi,
Stefán Sörensson, Þingeying-
ur, og Ármenningarnir
Bjarni Linnet, Hörður Haf-
iiðas^n og Stefán Gunnars-
son. í dag verður keppt í 200,
og 1500 m hlaupi, 4x100 m
boðhlaupi, langstökki,- há-
stökki, kúluvarpi og kringlu-
kasti, en á morgun í 100, 400
og 5000 m hlaupum, þrí-
stökki, stangarstökki, sleggju
kasti og spjótkasti.
Þátttakendur KR í ferðinni
eru: Ásmundur Bjarnason,
Brynjólfur Ingólfsson, Einar
H. Einarsson, Gunnar Sig-
urðsson, Hermann Magnús-
son, Ingi Þorsteinsson, Jó-
hann Bernhard, Magnús
Jónsson, Páll Halldórsson,
Pétur Sigurðsson, Páll Jóns-
son, Trausti Eyjólfsson,
Þórður Sigurðsson og Þor-
varður Arinbjarnarson. i
Þetta íþróttamót í Vest-
mannaeyjum er víst það
stærsta, sem þar hefur nokk-
urn tíma verið haldið, og
fjöldi góðra keppenda í
hverri grein, því Vestmanna
eyingar etja þarna fram sín-
um beztu görpum. Meðal
þeirra eru Sigurður Finns-
son, Ingólfur Arnarson,
Adolf Óskarsson, Gunnar
Stefánsson og Hallgrímur
Þórðarson. j
Reykvíkingarnir eru vænt-
anlegir heim aftur annað
kvöld.
Gamlir samstarfsmenn og
vinir hins látna báru kistuna
í og úr kirkju, en félagar úr
Blaðamannafélagi íslands
báru kistuna í kirkjugarði
síðasta spölinn að gröfinni.