Alþýðublaðið - 13.09.1947, Síða 2

Alþýðublaðið - 13.09.1947, Síða 2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Laugardagur 13. sepí. 1947. æ GAMLA BIÖ 9 Blástakkar (BLAJACKOR) Bráðskemmtileg og fjörug sænsk söngva- og gaman- mynd. — Aðalhlutverkin leika: Skopleikarinn Nils Poppe Annalisa Ericson Cecile Ossbahr Karl-Arne Holmsten Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Safa hefst kil. 11 f. h. ■ ■■■■■■■■■■■■■■■NIM IIIIMUIIIIIII se NÝJA BfÖ 8 Cluny Brown Skemmtifeg og snilldarvel leikin gamanmynd, gerð sam'kvæmt frægri sögu eftir Margery Sharp. Aðal- hlutverk: Charles Boyer Jennifer Jones Sir C. Auberry Smith Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Saía hefst kl. 11 f. h. Inngangur frá Austur- stræti. •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Seplembersýningin. ÞAÐ ER ÁN EFA ERFITT fyrir suma að átta sig á mál- verkum þeim, sem eru á Sept embersýningunni vegna þess, að annað hvort hafa þeir ekki haft tækifæri til eða kært sig um að kynnast þeim stefnum í myndlist, sem komið hafa fram seinustu tvo manns- aldra. — Ekkert er eðlilegra en að ungir listamenn verði fyrir áhrifum hinna mismun- andi stefna, sem uppi eru á hverjuna tíma. Átta málarar og tveir mynd höggvarar taka þátt í sýn- ingunni. ÍMyndhöggvararnir eru Tove og Sigurjón Ólafs- son. Á sýningunni í Stokk- hólmi í sumar vakti Sigurjón mikla athygli fyrir hinar sterku og hreinu myndir sín- ar. Tvær þeirra „kona með kött“ og „Móðir og barn“ eru á þessari sýningu. „Kona með kött“ er einhver bezta mynd Sigurjóins. Eins er „Sjómað- uiinn“ afbragðs mynd. Tove Ólafsson er ágæt listakona. Mynd hennar ,,Kona“ er á- gæt- Það er ánægjulegt að eiga svo góða myndhöggvara, sem £au hjón eru. Sigurjón er án efa einn af beztu mynd höggvurum Norðurlanda. Af himum átta listmálur- um skal fyrst nefna Gunnlaug Ssheving, sem er þeirra þrosk aðastur. Hann á þarna tíu 'myndir. Á sýningunni í Stokkhólmi í sumar vakti Gunnlaugur Scheving mikla athygli og hlaut lofsamleg ummæli í blöðum á öllum Norðurlöndum. Beztu mynd ir hans eru: (nr. 13) „Hvítt ‘hús og úfinn sjór“, (nr- 17) „Frá Grindavík,11 sem eru 'bezfu málverkin á sýning- unni og þá enn fremur (nr. 14) „Vitjað um grásleppu- net“. Athyglisvert er að bera þá mynd (nr. 14) saman við „Sjómann“ Sigurjóns, sömu sterku tökin og sömu hálfab- ströktu línurnar. Nr. 13 var á sýningunni í Stokkhólmi og vakti þar mikla athygli fyr- ir jafnvægi í lit og formi. Gunnlaugur Scheving er að verða einn af okkar beztu listamönnum, sérstæður og persónulegar, hann lifir sig inn í viðfangsefnin, umskap ar þau og gefur þeim nýtt líf. Þorvaldur Skúlason er á- gætur listamaður, nú er hann farinn að mála alveg „ab- strakt“ og liggur við að mönn um/þyki leitt, að hann skyldi ekki halda áfram á þeirri braut er hann var 1943—44, eða á hálfabströktu línunni, ef svo má kalla það. — Þor- valdur á níu myndir á sýn- inguinni og allar hafa þær sinn persónulega blæ, þó gæt ir ef til vill nokkuð áhrifa frá Klee í myndum hans- Beztu myndir Þorvaldar eru „Vor“ og „Ljósaskipti”, mjög fallleg ar í lit og byggingu, í þeim eru „upplifaðar stemningar", sem raunar fleiri myndum hans, þó abstrakt séu, t. d. næturmyndum hans á sein- 'ustu sýningu, er hann einasti hinna abstraktmálara, sem vekur slíkar stemningar hjá manni. Á sýningunni í Stokk hólmi í sumar vakti Þorvald- ur athygli með hinum abs- tröktu myndum sínum. Snorri Arinbjarnar á að- eins þrjár myndir á sýning- unni og er „Við glugga“ þeirra bezt, hins vegar sýna þessar myndir þennan ágæta listamann ekki í alveg réttu ljósi. Leitt er að Jón Engil- berts skyldi ekki taka þátt í sýningunni. Hinir málararnir fimm eru ungir og áhrifagjarnir, þeir 3 TJARNARBÍÖ 2E Tunglskins-sónaian Hrífandi músíkmynd með píanósnillingnum heims- fræga Ignace Jan Paderewski. Sýning fcl. 9. Á BÁÐUM ÁTTUM (She Would’nt Say Yes) Fjörug amerísk gamanmynd Rosalind Russell Lee Bowman Adele Jergens Sýning kl. 3 — 5 — 7. Sala hefst kl. 11. ■ ■•■■■■■•■■■■■■■■■««■•■'■■■■■■■■■■■ eiga eftir að þroskast og' breytast. Þeir mála allir ab-, strakt og tekst það misjafn- lega. Það liggur við að mað- 1 ur furði sig á hve fljótir þeir hafa verið, að semja sig að þeim siðum, enda eru sumar myndirnar nokkuð snöggsoðn ar t. d- nr. 62. Kjartan Guð- jónsson er þeirra sérstæðast- ur og efnilegastur. Mynd hans nr. 56 er ágæt. Nína Tryggvadóttir er svipuð og og hún var, er hún sýndi seinast, ef ekki farið aftur í litameðferðinni, sem er henn ar sterka hlið. Nr. 59 er bezta mynd hennar og er ágæt. Jó- hannes Jóhannesson hefur, breytzt töluvert frá því, er | hann sýndi í des. s. L, mynd-! irnar eru sterkari í bygg-1 ingu, þó eru þessar slöngur í ^ myndum hans frekar til leið- ' inda. Þá er hann orðinn 1 mýkri í lit, en sumar mynda hams eru nokkuð Iharðar í lit. Bezta mynd hans virðizt mér nr. 4. í myndum Krist- jáns Davíðssonar gætir mjög áhrifa Miro og einnig áhrifa frá Pieasso eins og hjá flest- um hinna, mynd nr. 33 er bezt mynda hans, ágæt í lit- Án efa býr listaneisti í Krist jáni. Myndir Valtýs Péturs- sonar eru allar nokkuð já- þekkar, ber mikið á boga- sveiflum í myndum hans ög þær eru flestar óþægilega heitar í lit. Vatnslitamyndin ,,Haf“ virðist mér bezta mynd hans. Oþyrmir. TRIPOLI-Bfð a KAUPMANNAHAFNAR- BLAÐIÐ SOCIAL-DEMO- KRATEN skýrir svo frá: „Menn minnast þess hvern ig Kommúnistaflokkurinn á Sovét-Rússlandi lét gera (PRISON BREAK) Afar spennandi amerísk sakamálamynd. Aðalhlut- verk leifca: Barton MacLane John Rusell Constance Moore Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sími 1182. ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■•■ ■ ■ ■ ■ ,,hreinsun“ á sviði bók- mennta og bannfærði ritverk og rithöfunda, sem töldust hafa orðið fyrir spillandi á- hrifum frá Vestur-Evrópu. Nú virðist röðin komin að myndlistinni. Aðalblað rúss- neska kommúnistaflokksins, ,,Pravda“, sagði nýlega: , ,Hreinleiki sovétlistarinnar er í hættu fyrir smitun frá hinum rotna formalisma vést rænnar listar“. Hið rússneska kommún- istablað segir því næst frá því, í hverju þessi smitunar- hætta sé falin: „Það er ekki hægt að þola hér í landinu við hlið hinn- ar sþsíalistísku og raunsæju listar, tilveru hstrænnar stefnu, sem er af sama sauða húsi og list hinnia úrkynj- uðu borgaralegu listamanna, sem viðurkenna sem sína andlegu feður frönsku form- alistana Picasso og Matisse og rússneska kúbdsta frá því fyrir byltinguna“. Samkvæmt þessu hefur Picasso áunnið sér alveg sér staka viðurkenningu: Hann hefur verið bannfærður á Sovét-Rússlandi alveg á sama hátt og hann var bann færður á Hitler-Þýzkalandi. Meira að segja: Hin ógleym- anlega mynd hans, — „Guer nica“, — hin logandi mót- mæli gegn villimennsku fas- dsmans í borgarastyrjöldinni á Spáni — á nú víst að skoð- ast sem rotinn borgaralegur formalismi! í staðinn fyrir hin spilltu fordæmi Vestur- Evrópu verða listamennirnir og gangrýnendurnir sam- kvæmt „Pravda“ að sækja hugmyndir sínar í kenningar- og raunsæi Lenins og Stal- ins. Kommúnistar í Vestur- Evrópu sem hafa gengið heystilega í gegnum eld og vatn fyrir hina „abströktu" lis't og ,,surrealisma“, munu nú væntanlega fá að vita innan skamms frá hæstu stöðum, í hve sorglegri villu þeir hafa gengið. Svo vikaliðugir, sem þeir eru, 5 BÆJARBIO S Hafnarfirði „Virginia Ciiy" Spennandi amerísk stór- mynd úr ameríska borg- arastríðinu. Errol Flynn Miriam Hopkins Randolph Scott Humphrey Bogart Bönnuð fyrir börn. Sýnd kl. 6 og 9. Sími 9184. Svið, 'hrá og soðin Rófur, hráar. og soðnar Blóðmör Buff, barið Wienerschnitzel Beinlausir fuglar Kjúklmgar Gullasch Svínasteik Hamborgarhryggur Svínakótelettur Kálfakótelettur Hangikjöt Áskurður Salöt Grænmeti og cmargt fleira. Símar: 4240, 6723. Efnalaug, kemisk hreins- un á alls konar fatnaði. Fljót afgreiðsla. — Af- gréiðslur: Borgartún 3 og Laugaveg 20B. _______ munu þeir vissulega fljót- lega játa syndir sínar og við urkenna, að hin sanna list þarfnist ekki svo mjög frels- isins eins og föðurlegra fyrir skipana frá Moskvu“.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.