Alþýðublaðið - 25.09.1947, Blaðsíða 8
ALÞYÐUBLAÐ1Ð
vantar fullorðið fólk og tfng-
linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:
RauSarárholt
Mela
Barónsstíg.
Talið við afgr. Sími 4900.
Fimmtudagur 25. sept- 1947
ALÞYÐUBLAÐIÐ
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:. (
Túngötu
Miðbæinn j
Skólavörðustíg.
Talið við afgr. Sími 4900.
Myndarlegf kaupfún að rísa up
ofan við Egilssfaði á Héraði
---------------------
Deilur ur.i |>að, hvort .þ-ao skuli heit-a
„Gálgaás46 eöa „Kaupangor'k
MYNDARLEGT KAUPTÚN er nú að rísa upp skammt
ofan við EgGsstaði á Fljótsdalshéraði, og er það fyrsta
kauptún á Áusturland:, sem ekki stendur við sjó. Hefur
verið unnið að byggingum þarná síðast lið.n tvö ár, og
eru nú risin upp í h:nu nýja þorpi 10—11 hús. Fimm
höfuðvegir Austurlands mætast þar, sem þetta nýja þorp
er að rísa upp, og mun það 'hafa ráðið vali staðarins. Um
þetta nýja þorp segir ,,Gerp:r“, tímarit Austfirðinga, að
allir muni „af heilum hug óska þorpi þessu gæfu og gengis
á ókamnum árum“.
Helztu byggingar, sem þeg-
ar hafa risið upp í hinu nýja
þorpi, eru . læknisbústaður,
sem er allmikið hús með í-
búðum fyrir tvo fekna og
nokkrum sjúkrastofum; bú-
staður dýralæknis og sölu-
■búð kaupfélags héraðsbúa,
sem opnuð var 1946. Auk
þessa er þarna komin önnur
verzlun, sem er eign Mark-
úsar Jensen, kaupmanns á
Eskifirði.
Vegir þeir, sem mætast í
þorpinu, eru þessir: Fagra-
dalsvegur, Fjarðarheiðarveg-
ur, Úthéraðsvegur, Breið-
Á þriðja þúsund
manns hefur sáð Ijós
myndasýninguna
A ÞPJÐJA þúsund manns
hefur nú séð ljósmynda- og
ferðasýningu Ferðafélags ís-
lands í Listamánnaskálanum
og láta sýningargestir mjög
vel af sýningunni, enda er
þarna fjöibreytni mikil og
margt að sjá.
Ekki hefur ennþá verið
birtur úrskurður um verð-
launamyndirnar á sýning-
unni.
Sýningin verður opin til
30. þessa mánaðar frá kl. 11
til 11 daglega.
r
Osamkomulag um
landssfjóra Trieste
ÖRYGGISRÁÐIÐ hélt fund
í gærkvöldi og ræddi meðal
annars landsstjóraembættið í
Trieste, og enn án nokkurs
árangurs. Var málinu vísað
til hernámsveldanna--í Tri-
este til frekari athugunar.
Tvö önnur mál voru á dag
iskrá ráðsins, og voru það inn
fökubeiðni Finna í bandalag
ið og beiðni Ástralíumanna
um að neitunin á inntöku-
beiðni ítala verði endurskoð
uð.
Sir Gerald Shepard
dalsvegur og vegurinn norð-
j ur í land. Út frá þessum aðal
j vegum kvíslast all'r aðrir bíl
| vegir á Austuriandi. Þá er í
1 nágrenni við þetta nýja þo-rp
eíni flugvöllurinn á Austur-
landi.
Fjórðungsbing Austfjarða
samþykkti fyrst árið 1943
áskorun til ríkisstiórnarinn-
ar um það, að skipulags-
nefnd bæja og kauptúna yrði
látin velja stað fyrir nýtt
kauptún í Mið-Héraði og
gerði síðan skipulagsupp-
drátt af þvi. Þáverandi fé-
lagsmálaráðherra, Björn
Þórðarson, brá skjótt við og
lét nefndina vinna þetta
verk, og 1944 var þorpinu á-
kveðinn staður.
Síðast liðinn vetur sam-
þykkti svo aYnngj. lög um
Egilsstaðakauptún, og er þar
ákveðið að kauptúnið og
næsta nágrenni skuli vera
hreppsfélag út af fyrir sig og
ríkissjóður skuli styðja
þorpmyndun þessa með því
að leggja þar vatns- og skolp
veitu og reisa þar raforku-
stöð. Raforkustöðin var reist
í fyrrasumar og vatnsveita
lögð til þorpsins í fyrrahaust.
GÁLGAÁS EÐA
KAUPANGUR?
Ásinn. sem hið nýja þorp
stendur á, heitir Gálgaás, og
virðist nafn það nú æitla að
festast við kauptúnið. Ligg-
ur ás þessi út fyrir ofan hina
breiðu mýri, sem tekur við
ofan við Egilsstaðatún. Stutt
utan við yztu húsin er hár
klettur, sem var aftökustað-
ur þeirra manna, sem dæmd-
ir voru »til hengingar fyrr á
öldum í Múiaþingi. Enn sjást
mannabein undir klettinum
og leifar af hengingartrénu.
Segir svo í „Gerpi“, að
„vitringarnir að sunnan hafi
valið hinni væntanlegu
kirkju þorpsms stað því sem
næst úti á klettinum.“
I fyrsta hefti „Gerpis“ er
grein, þar sem Gálgaáss-
nafninu er harðlega mót-
mælt, og leggur greinarhöf-
undur, Gísli Helgason, til, I
að kauptúnið verði nefnt
Kaupangur. Finnst honum
fyrra nafnið ljótt og viðbjóðs
legt og vill, að hið nýja þorp
hljóti fagurt nafn. Endar
hann grein sína á þessum
Fær verðlaun fyrir'
að bjarga barni
ur
13 ARA DRENGURINN
Þórður OlaíuT Þórðarson,
sem bjargaði þriggja ára
telpu úr brennandi bragga í
marzroánuði síSastiiðnum, bef
ur nú hlotið fyrs.tu verðlaunin
úr verðiauna'sjóði Gunnars
Hafberg.
Þórður og móðir hans, Kat-
rín Einarsdóttir, eru við vinnu
úti á landi, en koma til bæj-
arins um næstu mánaðamót:
Verða því peningarnir lagðir
inn í bankabók, sem verður
afhent hon.um, ásamt heið-urs-
skjali, á næsta fund-i Ung-
mennadieildarinnar í byrjun
október, af fors'eta Slysa-
varnafél. íslands, Guðbjarti
Olafssyni, ;sem jafnframt er
formaður sjóðsins.
'■Björgunarverðlaunum úr
sjóði þessum verður útblutað
árlega í framtíðinni, á afmæl-
isdegi Gunnars heit. Hafberg,
sem er 25. sepfcember.
Á árinu 1943'-stolfnaði Eng-
ilbert Hafberg kaupmaður
sjóð til minningar um! son sinn
Gunnar Hafberg, sem fórst af
slysförum þ. 25. júlí 1943. Var
sjóður þessi, sem nú hefur
hlotið staðfestingu Stjórnar-
ráðsins, afhentur Ungmenna-
dteild Slysavarnafélagsins í
Reykjavík til umráða, og skal
vöxtum hans varið til þess að
veita unglingum innan 18 ára
aldurs viðurkenningUr- fyrir
eftirtalin afrek: 1. Að bjarga
maninslífi á sjó 'eða landi. 2.
Að sýna isérstakt snarræði og
þskkingu við að alftra slysum.
3. Að sýna þékkingu og diugn-
að í því að veita hjálp í við-
lögum, ef slys ber að höndum.
Úr sjóði þessum, sem er
orðinn kr. 10 000,00 að upp-
hæð, hefur nú verið ákveðið
að veifca í fyrsta sinni kr.
500,00 í verðlaun ásamt h'eið-
urss'kjali, og hlaut Þórðúr
fyrstu verðlaunin.
orðum: „Niður með Gálga-
ássnafnið. Upp með Kaup-
ang.“
(Samkv. ,,Gerpi“.)
Sir Gerald Shepard, sendiherra
Breía, fer frá Islandi í dag
-------------------+---------
Kom hlogað 1943 og var fulltrúi Breta á
lýðveSdishátíðiíiiii.
SIR GERÁLD SHEPARD, sendiherra Breta á íslandi,
fer í dag alfarinn af landinu. Hefur hann verið hér síðan.
vorið 1943 og hafa hann og Lady Shepard eignazt fjölda
vina hér á landi. Sir Gerald mun nú yfirgefa- utanríkis-
þjónustuna, og sagði hann við Alþýðublaðið í gær, að það
væri þeim hjónum hin mesta ánægja, áð ísland skyldi
verða síðasti staður þeirra á langri.starfsbraut.
Sir Gerald sagði, að það
væri þeim hjónum mjög
leitt að fara frá íslandi, því
að hér hefðu þau eignazt
marga góða vini. Hann
kvað þau ekki aðeins hafa
nojtið vináttu hinna mörgu
kunningja sinna, heldur og
bænda og annarra, sem þau
hefðu hitt á ferðum um land
ið. Sendiherrann sagði, að
þau hjón mundu eiga hinar
fegurstu endurminningar frá
íslandi, og þau vonuðu, að
þeim' mundi gefast tækifæri
til þess að koma hingað aft-
ur.
Sir Gerald Shepard var
fulltrúi Englands á lýðveldis
hátíðinni og flutti þá hinu
unga lýðveldi árnaðaróskir
þjóðar sinnar. Hann hefur
verið í ensku utanríkisþjón-
ustunni síðan 1913, er hann
var fyrst skipaður vararæðis
maður í New York. Síðan
hefur hann verið ræðismað-
ur á ýmsum stöðum í New
York, í Afríkulýðveldinu
Liberíu, í Riga, í Danzig, í
Amsterdam og síðast hér á
íslandi. Hann átti að hætta
störfum í fyrra, en brezka ut-
anríkisráðuneytið bað hann
að vera hér eitt ár til viðbót-
i fjár er nú
igl|
ar.
Ókeypis námskeið
í rafsuðu
FIRMAÐ LUDVIG STORR
efnir um þessar mundir til
námskeiðs í rafsuðu og hófst
námskeiðið í gærkvöldi. Er
rafsuðumönnum og öðrum,
sem áhuga hafa fyrir tækni
í þessari grein boðið ókeyp-
is að sækja námskeiðið, en
kennslan fer aðallega fram
með fyrirlestrum’ og enn
fremur eru sýndar skugga-
myndir til skýringar.
Ludvig Storr hefur fengið
hingað danskan sérfræðing
á þessu sviði og mun hann
halda fyrirlestra um rafsuðu
og sýna skuggamyndir og
kvikmyndir til skýrinr^;.
Fyrirlestrarnir eru fluttir
í samkomusal Landssmiðj-
unnar.
FRÁ því að haustslátrunin
hófst, 15. þessa mánaðar, hef
ur verið slátrað að meðaltali
um 9Ó0 fjár á dag hjá Slát-
urfélagi Suðurlands í Reykja
vík, og er það nær eingöngu
fé úr Árnessýslu og Gull-
bringu- og Kjósársýslu, en
auk þess er slátrað á vegiun
sláturféíagsins á Akranesi og
einnig austur á Rangárvöll-
um og Skaftafellssýslu.
Á meðan sumarslátrunin
stóð yfir, frá 10. ágúst til 13.
september, var slátrað sam-
tals 4409 kindum hjá Slátur
félaginu, en nú hafa á rúmri
Ivikú frá því að haustslátrun
in hófst verið slátrað í kring
um 8000 fjár, eða um 900 á
dag að meðaltali eins og áð-
ur segír, en á næstunni mun
fleira fé verða slátrað dag-
lega en verið hefur undanfar
ið.
Síðast liðinn .mánudag var
byrjað að selja slátur til
heimila hér í Reykjavík, en
á því þóttu ekki tök meðan
sumarslátrunin stóð yfir,
vegna þess hve fáu fé var þá
slátrað daglega.
Hafa þegar borizt hundr-
uð pantana um slátur og er
það sent heim til þeirra, er
taka fimm slátur, en meira
er ekki látið til hverrar fjöl-
skyldu. Verð á slátri úr ein-
um dilk eru 14 krónur, en
kílóið af mör er selt á 9 kr.
Ekkert upplýst
að Auraseli
SÝSLUMAÐUR Rangæ-
inga, Björn Björnsson, og Sig
urður Magnússon, lögreglu-
þjónn frá rannsóknariögregl
unni í Reykjavík, hafa und
anfarið unnið sitöðugt að
rannsókn ránmálsins að
Auraseli. Hefur enn þá ekk-
ert komið í ljós, er upplýst
geti þetta dularfulla rán, þó
að þeir sýslumaður hafi hald
ið ítarlegar yfirheyrslur.