Alþýðublaðið - 20.11.1947, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 20.11.1947, Blaðsíða 1
.Veðurhorfurí Hægari; skýjað, en úr- komuiaust að mestu. Alþý'öublaðið vantar unglinga til að bera blaðið til fastra kaupenda. Umtalsefnið: Brúðkaup Elisabetar prinsessu. Forustugrein: Rafmagnsskorturinn. XXVH. árg. Fimmtudagur 20. nóv. 1947. 271. tbl. Gefin saman ELISABET PRINSESSA OG PHILIP MOUNTBATTEN verða gafin saman í Westminsf)er dómkirkjunni í London í dag. Verða þúsundir manna kvaðanæva að úr heinlinum, þar á með- „al margir þjóðhöfðingjar, viðstaddir brúðkaupið, en að því loknu fara brúðhjónin til Hampshire, þar sem þau munu eyða hveitibrauðsdögum sínum. Heillaóskir og gjafir hafa borizt frá öllum löndum heims, og brúðkaupið hefur vakið meiri athygli . en nokkur annar slí'kur viðburður. ^ ' Þegar í gær var fólk byrj- a‘ð að skipa sér við götumar, þar sem brúðarfylgdin átti að fara um, enda þótt dumb- ungs veðri óg rigningu væri spáð fyrir daginn í dag. í gær hyllti gey_silegur mannfjöldi brúðhjónin, er þau komu fram á svalir Buckingham hallarinnar. London er fánum skrýtt í dag og allt landið í hátíða- skapi. Þúsundir gesta utan úr hekni jafnt sem frá Bret- landi sjálfu eru í London, og 6000 lögregluþjónar munu gæta mannfjöldans í dag. 1600 blaðamenn og ljósmynd arar munu segja umhéimin- um frá þessum einstaka við- burði. Hægt verður að fylgj- ast með brúðkaupinu í brezka útvarpinu í dag. BÆND AVERKFALL Á APÚLÍU 200 000 bændur hafa gert mótmælaverkfall, þar eð tveir bændur voru skotnir af vinstri mönnum. Mikill lög- regluvörður er í héraðinu. Heldur hefur dregið úr óeirð um annars staðar á Ítalíu. BLUM MYMDAR STJÓRN Stjórn Ramadiers hefur nú sagt af sér í Frakklandi og hefur Leon Blum fallizt á að reyna istjórnarmyndun. Óvíst er talið, hvernig hún verður skipuð. Verkföllin magnast og liggur nú við allsherjar- verkfalli í París. -41 SJOMAÐUR í HRAKNINGUM Mesíu stórviðri í manna minnum geysa nú við Ný- fundnaland, og fqrst brezka skipið Langiey Grag 1 því, veðri. Áhöfnin bjargaðist á litla eyðiey, og hafðist þar við í þrjá sólarhringa án skýlis í fárviðrinu, áður en norska hvalveiðiskipið Olle Olson bjargaði þeim, 41 að tölu. Tveir fórust. Einkaskeyíi íil A'iþýðublaðsins. KHÖFN í gær. KAUPMANNAHAFNARBLAÐIÐ „INFORMA- TION“ upplýsir í dag, að einn af forsprökkum ís- lenzkra kommúnista, Einar Olgetrsson, hafi snemma á árinu 1944 snúið sér til dansks íhaldsmanns, sem þá dvaldi á Islandi í þjónustu danska sendiráðsins, og leitað hófanna hjá honum um möguleika á stofnun bandalags milíi íslands, Danmerkur, Noregs og Fær- evja til þess að vinna á móti amerískum áhrifum á íslandi. Það er Ola Kiilerich, sem ----------------------- upplýsir þetta í grein. undir eigin, inafni í „Inforœation“ i, dag, en hann var árið 1943 og fram á árið 1944 í þjón- ustu danska sendiráðsins í Reykjavík. Heitir grein Kiil- erichs í ,,Information“ ,,Óskar ísland Atlantshafs- ban.dalags?" og er skrifuð í saanbandi við Grænlandsmál ið. Kiilerich skýrir svo frá, að Einar Olgeirsson hafi komið að máli við hann snemma á árinu 1944 og lagt fyrir hann eins konar ,,plan“ um vest- ur-norrænt bandalag, sem Danmörk, Noregur, ísland og Færeyj'ar ættu að mynda með sér, en Svíþjóð að vera útilokuð frá, og skyldi til- gangur bandalagsins vera að vinna á móti amerískum á- hrifum á íslandi. Það var ein af uppástungum Einars í sambandi við þessa banda- lagshugmynd hans, að þau fjögur lönd, sem bandalagið mynduðu, skyldu öll hafa fiskveiða- og atvinnuréttindi á Grænandi, en önnur lönd hins vegar vera útilokuð frá þeim. Fór Einar Olgeirsson fram á það við Kiilerich, að hann beitti sér fyrir því, að hafinn yrði áróður fyrir slíkri hugmynd í Dan- mörku. Kiilerich skýrði sendi- herra Dana í Reykjavík frá uppástungu Einars, en lengra er máiið ekki rakið í grein hans. En í greininni lætur Kiilerich að endingu þá skoð un í Ijós, að þingsályktunar- tillaga sú, sem fram er kom- in á alþingi um réttindi ís- lendinga á Grænlandi, kunni eiga rót sína að einhverju leyti að rekja til tillagna Ein- ars Olgeirssonar við hann fyrir tæpum þremur árum. HJULER. SKOMMTUN A KOLUM var tekin upp hér á landi í gær. Er þetta tilkymií í auglýsingu frá skömmtunar- stjóra, sem birt er á öðrum staS í blaðinu í dag. Einstak ir notendur munu fá inn- kaupaheimiid hjá skömmtun aryfirvöldunum tii eins mán aðar í senn. SÆNSK FLUGVÉL FERST Á ÍTALÍU 39 sænskir flugmenn fór- ust, er isænsk farþegaflugvél rakst á fjall sunnan við Nea- i psl í gærmorgun. Flugmenn irnir voru nýbúnir að fljúga herflugvélum til Abessiníu, sern Svíar seldu þangað, og var þoka, er vélin rakst á fjallið. AHsherjarþing SÞ í New York befur samþykkt að fyrsta mál litla þingsins svo kallaða skuli verða neitunar- valdið. „Loran" leiðsögufæki seff Skymasferflugvélina Heklu Tækio voru reyod í síðustu ferð Heklu tll Hafnar og gáfust vek LOFTLEIÐIR hafa nú látið korna fyrir „Loran“ leiðsögu- tækjum í Skymasterflugvélina Heklu, og voru tækin notuð í fyrsta sinn í síðustu férð flugvéiarinnar til Kaupmannahafnar, á föstudag og laugardag. Magnús Jóhannsson útvai’psvirki setti tækin í flugvélina og fór hann með flugvélinni í ferðina til þess að leiðbeina leiðsögumanni og loftskeytamanni flugvélar- innar í notikun tækjanna. „Loran“ er eitt afbrigði af radartæíkjum, og 'byggist það á móttöku merkja frá sérstökum sendistöðvum, sem vinna sam- an tvær og tvær. Mældur er tímamisimunur milli anóttöku mierkja í milljónustu hlutum úr sekúndu (mikrosekúndum) og er staðarákvörðunin síðan lesin af sérstökum kortum. Loransendistöð er hér á landi í nánd við Vík í Mýrdal, og hecfur 'verið þar síðan á stríðsárunum, en í sumar setti alþjóða fluigsamban'dið upp nýja og stærri stöð þar. Þá er tvöföld stöð á Færeyjum og ein á Hebrideseyjum, og mynda þessar þrjár stöðvar „Loran“ 'leiðsögukerfi fyrir flugleiðina á milli Islands og Bretlandseyja. Enn fremur er mjög full’komin „Loran“ leið- sögn á leiðinni héðani til Bandaríkjanna. ÍÞeir ÍMa'gnús Jóhannsson, Orn Einarsson, leiðsögumaður Heki.u og'Bragi Ólafssom loft- skeytamaður létu allir mjög vel af tækjrmum í fyrstu ferð- inni. Ameríkumenn hafa slík tæ’ki í svo að segja öllum far- þegaflugvélum sínum, en flug- vélar annarra landa munu enn ekfci nerna fáar hafa fengið siík tæki. .Þykir að þeim mik- il öryggishót.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.