Alþýðublaðið - 06.12.1947, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 06.12.1947, Blaðsíða 4
4 ALÞÝSUBLAÐiÐ Laugardagur 6. des. 1947. Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Pingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 490G. Áfgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan b-f. Undrun Einars. EINAR OLGEIRSSON, hinn framhleypni og froðu- mælsfci forustumaður kom- múnísta í neðri deild alþing- is, lét í ljós undrun sína yfir því, við umræðurnar um hið svokalaða dýrtíðarlagafrum- varp hans og þeirra félaga, að ríkisstjómin skuli ekki vera búin að leggja fyrir þingið eitthvert „mála- myndafrumvarp“, eins og hann orðaði það, um ráð- stafanir gegn verðbólgunni og til stuðnings sjávarútveg- inum. * Þessi uimnæli Einars eru einkennandi fyrir hunda- vaðshátt hans og flestra kom- múnista. Fyrir þeim vakir ekki að eiga þátt í neinum raunhæfum ráðstöfunum gegn verðbólgunni, sem nú ógnar sjávarútveginum, held- ur aðeins að bera fram sýnd- arfrumvarp, eða „mála- myndafrumvarp“ um ráðstaf- anir gegn henni, eins og Einar orðaði það, til þess að blekkja almenning flokki sínum til framdráttar. Og Einar veit, að það kostar ekki mikla fyrirhöfn að flaustra saman einhverju slíku „málamynda frumvarpi“. Þess vegna undr ast hann svo mjög þann drátt sem orðið hefur á tillögum ríkisstjórnarinnar. Það má segja um slíkan hugsanagang Einars, að margur heldur mann af sér. * Eins og sýnt var fram á við umræðurnar í neðri deild um málamyndafrumvarp kommúnista, er það þá Iíka allt í einstaMega góðu sam- ræmi við lýðskrumstálgang sinn. Þar á allt að vera út- látalaust fyrir almenning, ríkið hins vegar að halda á- fram að ábyrgjast fiskverðið, en jafnframt að afsaila sér ó- hjákvæmilegum tekjustofn- um, ef það á að geta risið undir slíkum ábyrgðum! Þannig heimta kommúnistar, að það afn-emi tollana, sem lagðir voru á í fyrra til nauð- synlegrar tekjuöflunar; á það að vera til þess að lækka vísitöluna, sem að vísu myndi mjakast niður við það um ein 15—17 stig, en ríkið sam- tímis tapa um 25 milljónum króna í tekjum, svo sem upp- lýst var við umræðurnar um þetta loddarafrumvarp á al- þir.gi! Jólasvipur á Reykjavík. — Tjaldað því sem til er. — Ný bókasýning. — Málverk og listmimir. — Islenzk lisí. — Dr. Áskell Löve og erindi hans. ÞAÐ ER KOMINN jólasvipur á miðbæinn í Reykjavík. Verzl animar eru farnar að skreyta glugrga sína og tjalda því sem til er og fólkið er farið að streyma um göturnar og inn og út um búðadyrnar. Heldur eru búðimar iatæklegari á að líta en undanfarin ,ár um þetta leyti, enda er ekki undarlegt þó að innflutningsstöðvunin sjáist. Eitt er þó sem eklti er minna en undanfarin ár, bæk- urnar, enda segja menn að' það sé raun og veru aðeins hægt að gefa bækur í jólagjafir að þessu sinni. ÞAÐ ER SVO SEM ekki í kot vísað. Fjölmargar ágætar bækui’ eru á markaðinum. Efast ég um að nokkur staðar sé gefið út jafn mikið af góðum bókum og hér um þessar mundir. Það væri ósanngjarnt að segja að bókaútgefendur reyndu ekki að velja vel bækur til útgáfu og þó er það vitað mál, að það er sízt minni forretning að gefa út lélegax þækur en góðar. Bækur eru líka nú heldur ódýrari en þær voru í fyrra og munu all- margar bækur vera seldar lægra verði en leyft er af hálfu verðlagsyfirvaldanna. HELGAFELL OPNAÐI aðra bókasýningu sína í gær. Að þessu sinni er sýningin þó meira en bókasýning. Þar eru mörg málverk af ýmsum kunnum skáldum og rithöfundum og ber þar mest á hinu mikla listaverki Jóns Engilberts af Þórbergi Þórðarsyni. Skyldi Þórberg nokkru sinni hafa dreymt um það, þegar hann var eiturbras- ari og skítkokkur á skútu í „gamla dagana“, eins og Oddur Sigurgeirsson segir, að af hon- um yrði gjört eitt bezta „port- rett“, sem málað hefur verið á íslandi? — Varla. Og Þórberg 'hefur líkast til heldur ekki dreymt um það að hann yrði eins snjall rithöfundur og raun er á. ÞÁ ERU ÞARNA og nýir list munir, sem vekja munu mikla athygli. Þetta er mikil framför í listiðnaði okkar og mætti þó betur vera. Skreyting munanna fellur mér ekki eins vel í geð og ég hefði óskað. Fyrirmyndm eru flestar ekki íslenzkar. Fn slíkir munir eiga fyrst og fremst að vera skreyttir á ís- lenzku. Vill ekki forstjóri eóa eigendur þessa iðnaðar gefa ís- lenzkum listamönnum almennl tækifæri til að búa til rammis- lenzkar skreytingar á þcssa muni? VIÐ VERÐUM að reyna að skapa þjóðlega list á öllum sviðum og það er einmitt tæki- færi til þess nú. Ég er þó ekki með þessu að segja að í þessu eigi að ríkja ofstæki. Við eigum að vera opin fyrir erlendri list og öllum straumum sem hing- að berast. En aðaláherzlu eigum við að leggja á það að skapa íslenzka list. Við eigum í þessu sem öðru að kunna að velja cj hafna. DR. ÁSKÉLL LÖVE getur ekki kvartað undan því að er- indi það, sem hann hefur flutt í útvarpið tvisvar sinnum hafi ekki vakið athygli. Það er mik- { ið talað um þetta erindi og- skoð anir þær sem fram komu í því og mér berst ótrúlega mikið af bréfum um það. Öll eru þau, undantekningarlaust frá fólki, sem virðist vera sárreitt dokt- ornum fyrir kenningar hans. Því þykir sem hann hafi ráðist á móti guði almáttugum, Biblí- unni, sköpunarsögunni og öllu tilheyrandi. — Vísindamenn á öllum öldum hafa orðið að þola slík hróp. — ■ 4 Tyrone Power kominn til Hollywood. TYRONE POWER kom til Hollywood á laugardaginn var úr hinni löngu flugferð sinni, semmeðal annars setti Reykjavík á annan etndann. Sn emma morguninn eftir kom Lana Tumer skyndilega í bæinn og blöðin grófu þá upp mynd af henni og „Ty“, þar sem þau voru aðathuga áætlun leikarans í flugferð- inni. Kunningjar Lönu segja, að hún hafi beðið eftir „Ty“ í New York, en hann hafi vilj- að forðast blaðavargana þar og flokið beint til Hollywood. Um helgina tilkynnti eigin- kona Powers, franska leik- konan Annabella1, að hún væri fús til að veita honum skiln- að. — Það lftur út fyrir að þetta sé vonlaust fyrir blóma- rósirnar okkar. í grein í blaðinu í gær um bókaútgáfu barnablaðsins „Æsk an“ var sagt að forlagið hefði gefið út 700 bækur frá upphafi til þessa dags, en átti að vera ,,um 700 bækur“. Auk þess gef ur forlagið út að þessu sinni 7 bækur en ekki 6 eins og segir í fyrixsögn greinarinnar. Það er svo sem ekki mikill vandý að „leysa“ dýrtiðar- málin og vandræði sjávarút- vegsins með slíkum hunda- kúnstum á pappírnum. En ríkisstjórnin mun nú samt sem áður heldur kjósa að bera fram tillögur um ráð- J stafanir til bjargar sjávarút- veginum, sem eitthvert vit er í, þótt þær kosti nokkrar fórnir fyrir alla og ofurlítið lengri, undirbúning, en hið á- ferðarfallega „málamynda- frumvarp“ Einars Olgeirsson- ar og félaga hans. S. S. J. {> sleikur í Breiðfirðingabúð í kvöld klukkan 10. Aðgöngumiðar verða seldir í anddyri hússins eftir klukkan 5. Stokkseyringafélagið í Reykjavík: AÐALFUNDUR félagsins \7erður í Tjarnarcafé sunnudagirm 7. desember kl. 3% stundvíslegaa Venjuleg aðalfundarstörx og ýmis mál. STJÓRNIN Eldri-dansarnir í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu í kvöld befst kl. 10. Aðgöngumiðar frá k)l. 5 í dag. Sími 2826. HARMONÍKUHLJÓMSVEIT leikur. S.K.T ELDRI DANSARNIR í G.T.-húsinu í kvöld kl. 10. — Aðgöngumiðar ®kl. 5 e. h. í dag. Sími 3355. heldur fund sunnudaginn 7. des. kl. 2 e. h. á stöðinni. Vörubílstjórafélagið Þróttur Alþýðiiblaðið vantar ungling til blaðburðar á Seltjarnarnes TALIÐ VIÐ AFGREIÐSL CJNÁ. Alþýðublaðið. Sími 4900. Auglýsið í AlþýSubiaðinu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.