Alþýðublaðið - 06.12.1947, Qupperneq 8
Gerizt asknfendur
að Alþýðublaðinu.
Alþýðublaðið inn á hvert
heimili.
Símar 4300 og 4906.
Laugardagur 6. des. 1947.
Gerið jólainnkaup-
in snemma!
Forðist ösina á síðusttB
st&ndu. — Beztu jólavör-
urnar eru auglýstar í Al-
þýðublaðinu.
kommúnisla afhjúpaður
Gamla járnhrautarlestin.
.. .. ___ __* __ Si.
þingi það,
IIARÐAE UMKÆÐUR urðu utan dagskrár í sameinuðu
þingi í gær um síldarlosunina á Eeykjavíkurhöfn. Taldi Áki
Jakobsson ríkisstjórnina ganga mjög slælega fram í þessu máli,
cn Jóhann Þ. Jósefsson sjávarútvegsmálaráðherra varð fyrir
svörum og upplýsti, að ríkisstjórnin hefði gert allí, sem hægt
væri, en hins vegar hefði fulltrúi kommúnisía í stjórn Síldar-
verksmiðja ríkisins, Þóroddur Guðmundsson, lagt áherzlu á
að tefja allar framkvæandir. Þegar Þóroddi var bent á, að hér
væri um alþjóðarhag að ræða, svaraði hann með því að spyrja:
„Hvað varðar okkur um alþjóðarhag?“
"• Áki Jakobsson krafðist þess
á þingfundum í gær, að rík-
isstjómin gerði ráðstafanir
til þess, að öli. síldin, sem
biði hér í höfnínni, yrðí þegar
tekin á land, og fór hann
allhörðum orðum um það, að
slælega væri unnið að því að
koma veiðinni undan.
í GÆRKVÖLDI minntist
Kvenfélag AlþiAuflokksins
10 ára afmælis síns með hófi
í Iðnó. Var þar saman komin
húsfyili af alþýðuflokkskon-
um, leiðtogum flokksins og
fleirum, og urðu margir til
þess að árna féiaginu heilla
með árangursríkt og gott
starf.
Varaformaður félagsins-.
Sigríður Einarsdóttir, stýrði
hófinu, en þessir -tóku til
máls: Soffía Ingvarsdóttir,
formaður félagsins, Stefán
Jóh. Stefánsson forsætisráð-
herra, Elínborg Lámsdóttir
skáldkona og Guðný Helga-
dóttir. Brynjólfur Jóhannes-
son leikari skemmti og enn-
fremur var söngur og guitar
Ieikur. Félaginu bárust mörg
beillaóskaskeyti og ýmsir
fluttu því hamingjuóskir.
62 þúsund mál bíða
löndunar í Reykjavík.
í GÆRKVÖLDI biðu um
70 skip löndunar í Reykjavík
með samtals rúm 62 þúsund
mál. í gær var lokið við að
lesta í Súðdna og mun hún
hafa lagt af stað norður í gær
kvöldi. Klukkan 9 í gær-
kvöldi átti að byrja að lesta
í Banan.
Síðast liðna tvo sólarhringa
hafa 31 skip komið af veið-
um úr Hvalfirði, og fengu
flest þeirra fullfermi.
Jóhann Þ. Jósefsson svar-
aði Áka og benti á, að í þessu
máli eins og öðrum væri um
að ræða órökstuddan áróður
af hálfu kommúnista, en hins
vegar hefðu þeir engan á-
huga fyrir heilbrigðri lausn
málsins. Skýrði ráðherrann
frá því, að í stjórn SR hefði
fulltrúi kommúnista, Þórodd
ur Guðmundsson, þvælzt
fyrir öllum aðgerðum, hvað
sem til hefði verið lagt, og
reynt eftir megni að torvelda
allá síldarflutninga til Siglu
fjarðar. Þegar Þóroddi var á
það bent, að hér væri um al-
þjóðarheill að ræða, gaf hann
svo hljóðandi svar: ,,Hvað
varðar okkur um alþjóðar-
hag?“
Ráðherrann kvað þetta
raunar ekki meira en annað
hjá kommúnistum. I áróðurs
skyni og til að sýnast þætt-
ust þeir í orði hafa áhuga
fyrir lausn þessa máls og
amíarra, en á borði reyndust
þeir hinir örugustu dragbít-
ir. Fór ráðherrann hörðum
orðum um þær upplognu sak
ir, sem kommúnistar bæru á
ríkisstjórnina og hann sér í
lagi um slælega framgöngu
í þessu máli. Sýndi ráðherr-
ann fram á, að allt hefði ver-
ið gert, sem unnt væri, til
þess að sjá fyrir flutninga-
skipum og greiða úr málinu
á annan hátt.
Þá skýrði ráðherrann frá
því, að itil mála hefði komið
að -selja síldina ísaða til út-
flutnings, og kvaðst hann
vona; að þær tilraunir gæfu
Sænsk blöð birta
r
íofgreinar um Is-
landssíldina!
Einkaskeyti til Alþbl.
KHÖFN í gær.
ÍSLANDSSÍLDIN held-
ur þessa viku haustinnreið
sína í Svíþjóð, og er eftir-
spurnin eftir henni mjög
mikil. Hafa Svíar beðið
með eftirvæntingu eftir
þessum eftirlætisfiski sín-
um, og þegar hann loksins
kom um sama leyti og
jólaappelsínurnar, skrif-
uðu blöðin lofgreinar um
hann!
HJULER.
Fyrsía - og
járnbrautarsíöð Islan
ekki lakari raun en sá eini
farmur, er Áki Jakobsson
hefði séð um útflutning og
sölu á í fyrrahaust, en hann
kostaði ríkissjóð 60 000 kr.
meðgjöf. Taldi ráðherrann
illa komið málum, ef hafa
þyrfti þann hátt á sölu út-
flutningsvaranna.
Hafnarsmiðjan gamla verðor nú að víkja
fyrir nýrri braot vfð Miklatorg.
---------4.---------
VINNUFLOKKAR BÆJARINS eru u^i þessar mundir
að rífa fyrstu — og sennilega síðustu — ,,jámbrautarstöð“
Reykjavíkur. Er þetta gamla Hafnarsmiðjan við Miklatorg,
þar sem hafnarjárnbrautin hafði aðalstöðvar sínar og hefur
verið geymd í gleymsku í mörg ár. Nú er búið að rífa alla
.skúra smiðjunnar og standa tvær eimreiðir, "temarusl og
ryðguð vagnahjól því undir berum himni. Þar sem smiðjan
stóð, kemur nú Reykjanesbraut inn á hið nýja Milkatorg.
Gamlir Reykvikingar J
þekkja sögu jámbrautarinnar
en þusundir bæjarbúa hafa nú
byggt skrauthýsi og hjálpað
erlendum mönnum við bygg-
ingu flugvallar í næsta ná-
grenni við Hafnarsmiðjima,
án þess að 'hafa 'hugmynd um,
að í þessum gömlu skúrum
væru leifar af einu eimlest-
inni, sem Island hefur átt,
Nú geta menn séð leifamar.
Eimreiðirnar tvær, „MINÖR“
Síldarverksmiðjur ríkisins
faka síld til geymslu hér
-------------«-----
Efi verðið verður þó ekki siema 22 krón-
ur9 vegna kestsiaðar ©g rýrnytiar-
Nafnskírteini afhent.
SÖKUM ófullnægjandi skipastóls til þess að flytja Hval-
fjarðarSíidina nægilega ört norður, ákvað stjórn sfldarverk
smiðja ríkisins á fundi í fyrradag að hefja móttöku á bræðslu-
síld til geymslu, í Reykjavík og nágrenni hennar. Mun verða
byrjað að taka á móti síldinni hér í dag, fyrst um sinn við
einum farmi af hverju skipi.
' Sökum kostnaðar og rýrn-
unar á síldinni við geyinsl-
una verður verðið á þessari
síld þó lægra eða ekki néma
kr. 22,00 fyxir málið, afhent
á bíl við skipshlið.
Útgerðarmönnum er að
sjálfsögðu í sjálfsvald sett,
hvort þeir vilja afhenda síld-
ina til geymslu í Reykjavik
og nágrenni með þessum sk’l
málum, eða bíða eftir af-
greiðslu í síldarflutningaskip
og fá hærra verðið, sem er
kr. 32,00, ef landað er beint
í. skip úr málum, eða kr.
NAFN SKÍRTEINI verða
afhent á Amtmannsstíg 1 í
dag frá klr 9,30 til kl. 18. í
dag verða skírfeini afhent til
þeirra sem eiga G að upp-
hafsstaf í nafni sínu — til
Guðmundar.
Helzt ar ætlazt til að við-
komandi vitji skírteina sinna
á auglýstum dögum, þó geta
þeir, sem af óviðráðanlsgum
orsökum ekki geta vitjað
þeirra strax, vitjað skírteina
sinna næstu daga á eftir.
og „PIONER,“ smíðaðar af
Jungenthal B. Kirchen 1892
og 1910, standa hlið við hlið,
og í kringum þær' teina- og
hjóiairusl, en vagnamir munu
allar vera ónýtir og bro-tnir.
Rétt hjá er risa'krani frá „Bay
City“ að hreinsa til skúra-
rústir og lúxusbílar aka í.
straumum um hið fjölfarna
torg.
Reykjavíkurhöfn var gerð
á árunum 1912—17, og ann-
að'ist danska verkfræðafirmað
N. ,C. Monberg, sem gerði til-
boð í verkið, 1.510.000 krónur.
Monberg lagði járnbrautina
'frá Öskjuhlíð fram á hafnar-
gai'ðana og voru fluttar eftir
hermi 120000 rúmmetrar af
igrjóti og 210000 rúmmetrar af
möl. Þegar verkinu var iók-
ið, keypti bæjarráð allaf vél-
ar og verkfæri Monbergs, þar
á m'eðal j'árnbrautina með
öllu, sem hermi við kom fyrir
550 þús. kr.
Nú er helzt talað um að
'ge’fa bæjarsafni Reykjavíkur
það, sem eftir er af jám-
brautinni, eins og Hannes á
horninu benti á í dálki sínum
í gær. Er sjálfsagt að gera
eimreiðamar upp, endur-
byggja tvo eða þrjá vagna og
láta allt vera sem líkast því,
sem það var á sínum tíma. —
Mundi það vafalaust verða
hinn merkasti safngripur.
dollaralánsins.
30,50, ef landað er á bílum
flutningaskip.
KUNNUGT varð í London
í gærkvcldi, að Bretar hefðu
nú fengið samþykki Banda-
rf jasýjómar til þess að taka
út effirstöðvamar af dollara-
láni sínu, sem nema um 100
milljónir sterlingspunda.