Alþýðublaðið - 12.12.1947, Side 1
Veðurhorfur:
Norðaustan og autan kaldi
sennilega úrkomulaust.
Alþyöublaðið
vantar unglinga til að bera
blaðið til fastra kaupenda.
© C3>
Creech-Jones
Bretar hætta um-
boðsstjóm Palest-
ínu 15. maí næstk.
BRETAR munu leggja nið
ur umboðsstjórn sína í Pal-
estínu 15. maí næstkomandi,
og brezki herinn verður vænt
anlega farinn ur landinu fyr
ir Ágústbyrjun, >að því er
Creech-Jones, nýlendumála-
ráðherra Breta upplýsti í
neðri málstofunni í gær.
Verða Br-atar því ekki ábyrg
ir fyrir lögum og reglu í land
inu nema til 15. maí.
Ráðherrann sagði, að Bret
ar mundu ekki framkvæma
skiptinu landsins einir. Hann
sagði þá fallast á ákvörðun
meirihluta þings SÞ, og
kvaðst ekki vilja setja hindr
anir í veg fyrir skiptinguna.
Loks kvað ráðherrann hlut
verk Breta í Palestínu hafa
verið rægt og misskilið af
báðum aðilum, og kvaðst
hann vona, að þetta lagaðist,
og það kæmi í ljós, að margt
gott hefur hlotizt af enskri
stjórn í landinu.
109 manns hafa farizt og
500 særzt í Palestínu, síðan
ákvörðunin um skiptiimru'
landsins var tekin, auk nokk-
urs manntjóns í gær.
Sex komust af við
GooseBay.
SEX MENN komust af, er j
ameríska Skymasterflugvél- >
in fórst 11 mílum norður af
Coose Bay í Labrador á
þriðjudagskvöld. Helikoptsr- j
flugvél, sem isend var með !
annarri flugvél frá WeEtover,
mun nú annast björgun þess
ara 6 til Coose Bay, en ferða-
möguleikar á landi er.u tmjög
erfiðir á þessum slóðum. 23
fórust. Flugvélin hrapaði
brennandi í fjaiialandi.
12
dagar til jóla
Forustugrein:
Osigur kommúnista í dýr-
tíðarmálunum.
XXVII. árg.
Föstudagur 12. des. 1947
tbl. 291.
Fíamfalsdapr ní ákweinsi á
imlársdag, 31. desember.
Frá ©g meö þeim degi falia allir íslenzkir
pestingaseðlar úr gildL
----------♦----------
FRAMTALSDAGUR hefur nú verið ákveðinn 31. des-
ember, að því er segir x reglugerð um eignakönnunina, sem
fjármálaráðherra hefur nú gefið út. Frá og með gamlárs-
degi verða því allir íslenzkir peningaseðlar ógildir, en Lands
bankinn byrjar þann dag að skipta þeim fyrir nýja seðla.
Þó verður leyfilegt að nota 5 og 10 krónu seðlana gömlu til
greiðslu farmiða eða flutningsgjalds, kaupa á meðölmn í
lyfjabúðum, nauðsynlegri matvöru í smásöluverzlunum og
þess háttar, framtalsdag og tvo næstu daga.
Helzu atriði, sem almenn- •
img varða í þessu sambandi.
eru sem hér segir:
1) Framtalsnefnd ráðleggur
mönnum að leggja sem
mest af fé sínu inn í banka
fyrir framtalsdag. Það auð
veldar skiptin.
2) Menn geta svo tekið aftur
út úr reikningum sínum, er
þeir hafa gefið bönkunum
eða sparisjóðunum yfirlýs-
ingu um til staðfestingar á
eignaheimild sinni, og sýnt
um leið nafnskírteiná.
3) Landsbankinn sér um öll
peningaskipti, og verða
menn að sýna nafnskírteini
til þess að fá 'að skipta pen
ingum. Enginn má skipta
nema einu sinni.
4) Framtölum eignia og tekna
slcal skiia til skattayfirvald
anna fyrir 1. febrúar og er
því aðeins einis mánaðar
frestur til þess.
5) Öll innl.end handhafaveð-
bréf skal tilkynna til sér-
stakrar skráningar.
Hvernig verða
nýju seðlarnir?
MIKIL FORVITNI hefur
verið manna á meðal um nýju
seðlana, sem ganga eiga í
gíldi 31. desember. Er all-
langt síðan þeir komu hingað
til lands, en nú fyrir skömmu
mun Landsbankinn vera byrj
aður að senda þá út um land
til umboða sinna, sem munu
skipta peningum þar um ára-
mótin.
Alþýðublaðið hefur nú
frétt á skotspónum, að hinir
nýju iseðlar séu svo að segja
alveg ei>ns og þeir gömlu,
nema hvað litnum er breytt.
Nýju 5 kórnu seðlarnir munu
vera bláleitir, 10 krónu seðl-
arnir rauðleitir, 100 kórnu
seðlamir grænleitir og 500
krónu seðlarnir brúnleitir
Lundúnafundurinn samþykkir stór-
aukna stálframleiðslu á Þýzkai.
------«-------
Aukin úr 3 milljónum í 11,5 milljónir.
EINN RÓLEGASTI fundur utanríkisráðherranna í
London bar í gær þann árangur, að samþykkt var að leyfa
Þjóðverjum að framleiða 11 500 000 smálestir stáls á ári,
en framléiðslan er nú aðeins ca. 3 000 000. Er þetta sigur
fyrir Bevin, sem hefur í tvö ár mælt með því L?1 þetta fram
leiðslumagn verði samþykkt.
f aær
bráðabirgðahjá
----«----—
jálpin er til Frakka, líala, Aust-
urríkismanna og Kínverja.
FULLTRÚADEILD þingsins í Washington samþykkti
í gær bráðabirgðahjálp til handa Frökkum, ítölnm, Aust-
urríkismöxmum og Kínverjum sem nemur 590 milljónum
dollara. Öldungadeildin hafði áður samþykkt hjálp þessa,
en þar eð fulltrúadeildin gerði nokkrar bréytingar á frum-
varpinu, verður það nú athugað a£ nefnd beggja þing-
deilda, áður en það verður sent Truman forseta til stað-
festingar.
Samkomulag náðist um
önmúr atriði varðandi efna-
hagsmál Þjóðverja, en þetta
var mikilvægasta ákvörðun-
in. Bidault gaf þó samþykki
sitt með skilyrði. Kvaðst
hann ekki geta fallizt á, að
Þjóðverjar framleiði svona
mikið stál, ef nágrannalönd
þeirra geta ekki framleitt
eins mikið stál og þau vilja
vegna kolaskorts. Ætti þá
heldur að flytja þýzku kolin
út. Kolaframlsiðsla nágranna
landanna hefur verið mjög
undir þýzkum kolum koxnin.
Samkvæmt frumvarpinu
eins og það var samþykkt í
gær, fá Kínverjar 60 milljón-
ir dollara og hjálpin við Aust
urríkismenn var aukin í 16
milljónir, en Frakkar og
ítalir fá það, sem eftir er.
Upphafiega samþykkti öid-
ungadeildin; að hjálpin yrði
597 millj. og að hlutur
Frakka og ítala væri nokkru
meiri.
Margar breytingatillögur
komu fram í fulltrúadeiid-
inni, meðal annars nokkrar,
sem hefðu minnkað hjálpina
um helming, en þær voru
felldar. Ýmsar aðrar voru þó
samþykktar, it.il dærnis að
hjálpin skyidi hætta, ef
kommúnistar kæmu til valda
í þessum löndum. Þá var og
samþykkt, að ameríska
stjcrnin skyldi halda eftir í
Bandaríkjunum ” íallmiklu
hveiti til tryggingar gegn
uppskerubresti næsta ár.
Það er athyglisvent, hversu
víðtækur stuðningur frum-
varps þessa er, þegar þess er
minnzt, hvarsu lengi og erf-
iðlega það gekk að fá þingið
til að samþvkkja hjálpima við
Grikki og Tyrki. Eru ferðalög
amerískra þingmanna til Ev-
rópu talin eiga mikinn þátt í
þessari hugarfarsbreytingu
þeirra.
Mikil orrusta er nú í vænd
um í þinginu um frumvörp
til baráttu við dýrtíðina
vestra. Truiman hefur lagt
fram frumvarp, isem veitir
honum vald til að setja á
skömmtun og verðiagseftir-
iit, en repúblíkanar hafa ann
að frumvarp í gangi, sem
ekki veitir islíkt vald. Tru-
mam hefur tekið því illa, en
meirihluti þingsins er repú-
blikanskur.
Loftvarnabyrgi
Hitlers eyðilagt.
LOFTVARNABYRGI Hitl-
ers var í gær sprengt í loft
ju a að
greiða á
gamlárskvöld?
HVAD EIGA menn að
gera, sem ætla að skemmta
sér á gamlárskvöid? Gömlu
peningamir ganga úr gildi
á miðnætti kvöldið áður,
og skemmtistaðÉmir mega
því ekki taka við þehn.
Verða því þeir, sem ætla
að kveðja gamia árið rausn
arlega annað hvort að
skipta peningum sínum á
gamlársdag, eða (þeir sem
hafa traust þjónanna)
greiða með tékkum.
Brefar og Rússar
sfórauka við-
skipti sín.
BRETAR OG RÚSSAR
hafa nú komið sér saman um
allmikil viðskipti að því er
Harold Wilson, verzlunar-
málaráðherra, sagði í neðri
deiiidinni í gær. Muinu Rússar
senda Bretum yfir hálfa
miiljón smáleista af kornvör-
um, en Br etar borga með iðn
aðarframleiðslu og vélum.
Fregn þessari var vel tek-
ið af þingheimi, en Wilson
kvað samninga halda áfram,
en eftir áramót verði samið
uim víðtækari viðskipti. Þá
hefur náðst samkomulag um
nreiðslu á skuldum Rússa
við Breta frá því á stríðsár-
vmum.
upp í Berlín. Var þetta hið
rammgerðasta steinsteypu-
virki, og dvaldiist Hitiier þar
'íðiT.stu daffa sína. Fiórar
smál- af sprengiefni þurfti
til þess að eyðileggja vixkið.