Alþýðublaðið - 25.01.1948, Síða 6

Alþýðublaðið - 25.01.1948, Síða 6
Sunmidagur 25. jan. 1948. Vöðvan Ó. Sigurs RABBAÐ UM ÍÞRÓTTIR Fyrir nokkru las ég það í blaði, að menn gætu gengið of langt í íþróttaáhuga. Já, því var meira að segja dróttað að í- þróttunum, að þær gætu skert vit manna. Þessari lævíslegu og augljósu stórlygi, þessum þræls lega og ósvífna níðrógi, get ég ekki látið ósvarað. Sönnunin er sú, að íþróttirn- ar styrkja og göfga sálina um leið og þær gera dittó við lík- amánn. Það er að segja, sálin er í líkamanum, og hlýtur því að þjálfast um leið og hann. 100 m. hlauparar hljóta, sam- kvæmt því, að verða öðrum fljótari að hugsa ákveðna hugs analengd, þolhlauparar öðrum þolnari að hugsa, hástökkvarar og stangarstökkvarar að lyfta huganum hærra en aðrir, og svo framv. Tel ég einmitt nauð synlegt, að þeir menn, sem hafa hug á að taka að sér for- ustu þjóðmálanna, iðki íþrótta- greinar sem undirbúning að starfi sínu, og þó einkum þær, er talizt geta miðaðar við það, t. d. kafsund og leikfimi; þarf ekki að skýra tilgang hinnar fyrri, en sú síðari miðar auð- vitað að því, að stjórnmála- menn geti orðið nægilega leikn- ir í að fara í gegnum sjálfa sig. Auðvitað væri og sjálfsagt, að þeir, er þann undirbúning kysu, fengju tilsögn og æfingu í jafn- vægisgangi á slá eða línu, og nauðsynlegt væri öllum þeim að þjálfa sig í köstum undir væntanlegt aurkast. Það kann að vera, að til séu þeir, sem ekki hafa iðkað í- þróttir sér til beilsubóta, hvorki andlegra né líkamlegra. En það er þá sjálfum þeim að kenna, en ekki íþróttunum. Og ættu menn að hætta að iðka íþróttir þess vegna? Hafa menn ekki orðið brjálaðir út af kvenfólki? Eiga kannsbe allir karlmenn að hætta að líta á kvenfólk þess vegna? Ég bara spyr.------ Ég gæti ritað um þetta langt um Iengri grein, en ég má ekki vera að því, vegna þess að ég .verð að undirbúa útvarpssýnis- horn af fjölskyldu-heimaleik- fimi. Með íþróttakveðjum! Þjálfið líkamann og þá þjálfast sálin með, — ef hún er nokkur. Með endurteknum íþróttakveðj Leifor Leirs: MEÐ GLEÐIRAUSTU! Templarahöll! Takmark og draumur staffírugra stúkubræðra og saklausra systra! Templarahöll! Árangur allra minna sjússa! Árangur og afrakstur allra minna sjússa og allra þeirra, sem drekka brennivín. ■—■ Að hugsa sér---------- í hvert skipti sem Hafnarstrætisróninn ber kámugan flöskustút að skeggjuðum grönum, leggur hann lítinn stein að hinu veglega vígi: Templarahöllinni. — ■— •— Styttir hann um nokkur augnablik bið bræðranna eftir því að þeir fái að svífa í Óla Skans með þriggja tonna systrum um gljáfægð parketgólf — tóna skrælþurrum kverku-m með gleðiraustu o. s. frv. í hályftum húsakynnum, strjúka augnabrúnirnar eftir alþjóða reglum. — ■— Að hugsa sér! í hvert sktipti sem dauðadrukkinn ræfill liggur í rennusteininum, þjónar hann þrælgöfugri hugsjón! Drekkum, drekkum! Templarahöllin verður veglegasta hús, og bræðurnir eru beztu menn. Að maður nú ekki tali um systurnar! Daphne du Maurier: DULARFULLA VEITINGAHUSIÐ Yður langar ekkert til að það verði eldsvoði. Góða nótt, Mary Yellan, Ef þér er uð einhvem tíma í vanda stödd og þurfið mín með, bíð ég eftir yður í Altarrnun“. Síðan sneri hann fyrir hús homið og var horfinn. Mary Iseddist inn í eldhúsið og læsti dyrunum. Hún hefði getað skellt þeim, ef hún hefði viljað, það hefði ekki getað vakið frænda hennar. Hann var í sinni himnarík issælu, og vissi ekkert af um heiminum. Hún slökkti á kertinu og skildi hann eftir einan í myrkrinu. VIII. KAFLI Joss Merlyn var drukkinn í fimm daga. Hann var viti sínu fjær nær allan tímann, og lá endilangur í rúmi á eld húsinu, sem Mary og frænka hennar höfðu flutt þangað. Hann svaf með galopinn munniinn og hrotumar í hon um heyrðust alla leið upp á loft. Um fimm leytið á morgnana vaknaði hahn, heimtaði brennivín og grét eins og barn. Kona hans fór til hans, sefaði hann og lag- aði koddann hans. Hún gaf honum veikt blandað 'brenni vín talaði blíðlega við hann eins og hún væri að tala við veikt bam, og hélt glasinu að munni hans; og hann starði í kringum sig blóð- hlaupnum augum, tautaði við sjálfan slg og skalf eins og hundur. Patience varð eins og önn ur kona; sýndi því líkt ró- lyndi., stillingu og snarræði, að hún ætti það til. Hún sökkti sér algerlega niður í að hjúkra manni sínum. Hún var neydd til að gera allt fyrir hann, og Mary sá hana skipta um rúmfatnað og nærföt á honum, svo að henni bauð við, þvi að sjálf hefði hún ekki getað komið svo nálægt honum. Patience tók þessu eins og sjálfsögð- um hlut, og blótið og öskrið, sem hann lét dynja á henni virtist ekki skjóta henni minnsta skelk í bringu. ■Þetita voru einu skiptin, sem hún hafði algerlega yfirhönd ina yfir honum, og hann leyfði henni jafnvel að baða á sér ennið með heitu vatni mótmælalaust. Síðan vafði -hún utan um hann hreinni ábreiðu, sléttaði á honum hárlubbann, og eftir örfáar mínútur var hann sofnaður aftur, andlitið á honum var blóðrautt og munnurinn gal opinn með tunguna út úr og hann hraut eins og uxi. Það var ómögulegt að vera í eld húsinu og Mary og frænka hennar breyttu litlu van- hirtu dagstofunni í setustofu fyrir sig. I fyrsta sinn varð Patience dálítill félagi. Hún masaði ánægjulega um gamla daga í Helford, þegar hún og móðir Mary voiru telpur. Hún gekk hraðar og léttar um húsið, og stundum heyrði Mary hana vera að raula brot úr gömlum lögum meðan hún var að bjástra í eldhús inu. Það leit út fyrir að þessi drykkjarköst kæmui alltaf yfir Joss á tveggja mánaða fresti. Venjulega hafði verið lengra á milli, en nú voru þau farin að verða tíðard og Patience var aldrei viss um, hvenær að því kæmi. Þetta siðasta var vegna heimsókn- ar Bassats þangað — veit- ingamaðurinn hafði verið reiður og æistur, sagði hún Mary, — og þegar hann kom heim af heiðinni um séxleyt ið, hafði hann farið rakleitt inn í veitingastofuna. Hún vissi þá, hvað fyrir mundi koma. Patience tók alveg gilda þá skýringu frænku sinnar, að hún hefði villzt á heið- inni. Hún sagði, að hún skyldi vara sig á keldunum og lét það svo niður falla. Mary létti stórum. Hana langaði ekki að fara að segja ná- kvæmleg frá því, sem fyrir bar, og hún var ákveðin í að segja ekkert frá fundi sín um og prestsins í Alt'arnun. A meðan lá Joss í drykkju æði sínu í eldhúsinu, en kon urnar tvær áttu fimm tiltölu lega friðsæla daga. Veðrið var kalt og drunga Iegt og freistaði ekki Mary til útiveru, en fimmta morg- uninn lægði storminn og sól in skein og þrátt fyrir ævin týri það, sem Mary hafði lent i aðeins nokkrum dög- um fyrr, ákvað hún að hætta sér út á heiðina aftur. Hús- bóndinn var vaknaður um klúkkan níu og fór að kalla hástöfum, og hávaðinn. í honum og lyktin úr eldhús- inu, sem nú gegnsýrði allt húsið, og það að sjá Patience vera að þjóta niður stigann með hrein rúmföt á hand- legignum, kom svo miklum viðbjóði og leiða upp í Mary á þessu öllu. Hún hálfskammaðist sín, læddist út úr húsinu og stakk brauösnaið inn í klút og fór yfir þjóðveginn upp á heiðina. í þétta fsinn lagði hún leið isína til East Moor -og tók stef.nu á Kilmar, og íþar sem hún átti allan dag- inn fyrir höndum þurfti hún ekki að óttast, að hún villt- :ist. Hún var alltaf að hugsa um Francis Davey, skrítna prestinn í Altarniun. og hún sá hve lítið hann hafði sagt Ævintýri Bangsa wammPT&M . vl &5k7í ei En Bangsi kannast ekkert við landslagið umhverfis árbakk- ana, og er hálfsmeykur um að liann hafi villzt af leið. Til allr- ar hamingju hittir hann Skugga skógarmörð, og spyr hann til vegar. „Jú,“ segir Skuggi. „Þú ert á réttri leið, lagsmaður! En furðulegur þykir mér farkostur þinn. Úr hvaða efni er hann gerður?" „Það er hernaðar- leyndarmál,“ svarar Bangsi drýgindalega og heldur áfram för sinni. MYNDASAGA ALÞYÐUBLAÐSINS: ÖRN ELDING ÖRN kynist Ching Kai hjá kon- súlnum, og býður þessi grun- samlegi náungi honum í söng- leikahús eitt. CHING: Konsúllinn sagði mér, að þér væruð farinn úr flug- hernum vegna einhverra mis- taka, og að þér hyggðust vinna fyrir yður sem einkaflúgmaður. ÖRN: Satt er það. CHING: Og hann kvað yður hafa flugvél til umráða. ÖRN: Það er einnig rétt.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.