Alþýðublaðið - 04.02.1948, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 04.02.1948, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 4. <febr. 1948 5s' Sérfræðingar Hanhalláætiunarinnar um ísland og viðreisn Vestur-Evrópu: efa Islendin ÍSLAND varð ekki fyrir neinu tilfinnanlegu tjómi af völdum stríðsins. Núverandi friamleiðslugeita þess, sem nær eiimgöngu er beint að fiskveiðum og fiskfram- leiðslu, er mikið meiri, í ýms um greinum 100% meiri, en fyrir stríð. Það er afieiðing af veltiárum ófriðarins og jþeirri endumýjun og aukn- ingu framleiðslutækjanna, sem byrjað var á 1945 og búizt er við, að lokið verði að mestu leyti í árslok 1948. Með því að fiskur og fiskaf- urðir gera meira en 90% af öllum útflutningi Islands, verður þáttur þess í viðreisn Evrópu bundinn nær ein- göngu við fisk, fiiskimjöl og fiskilýsi; enda er landið mjög háð •innfluitnimgi á flest um öðrum lífsnauðsynjum, þar eð aðeins lítiil hluti þess er ræktanlegur og veðráttan yfirleitt óhagstæð landbún- aði. Hin efnahagslegu viðfangs efni íslands á næstu fjórum órum munu fremur verða falin í lagfæringu á því, sem úr lagi hefur farið, en í beinni viðreisn. Þær hindran ir, sem orðið geta á því, að þjóð þess nái settu marki á sviði framleiðslunnar, eru verðbólgan, sem hefur skrúf að friamleiðslukostnaðinn upp fyrir heimsmarkaðsverð, svo og hinn ófyrirsjáanlegi afli, sem öll -velferð þjóðarinnar byggist á. Kostnaðurinn við fiskframleiðsluna er nú þeg- ar svo. hár, að ekki er hægt að halda flotanum á arðbær- um veiðum nema með styrk veitingum stjórnarinnar. Til þess að draga úr hinum óhag stæða viðskiptajöfnuði út á við og ná settu heildarfram- leiðslumarki á þessum fjór- um árum mun hvort tveggja í senn reynaist nauðsynlegt, að lækka verðið á íslenzkum fiski, svo að hann verði sam- keppniisfær, og að halda á- fram að hafa eftirlit með inn flutningi. Þess vegna getur það skeð, að nauðsynlegt verði, þrátt fyrir framleiðslu möguleika íslands, að lækka eitthvað þá áætlun, sem gerð hefur verið um framleiðslu þess á fiskilýsi pg fiskimjöli. Heildarframleiðsla á hvoru .tveggja hefur 1947 orðið minni, en vænzt var. Við þær áæ'tlanir, sem hér eru seittar fram, hafa sér- fræðingar Bandaríkjanna stuðzt við þær áætlanir, sem gerðar voru í skýrslu sam- vinnunefndar Parísarráð- stefnunnar. Áætlanir Banda ríkjasérfræðinganna eru í rnokkrum tilfellum frábrugðn ar áætlunum samvinnunefnd arinnar. Þær eru, að því er framleiðslu og útflutning einstakra afurða snertir, lægri. Sú lækkun hefur í fyrsta lagi verið gerð með til liti til óvissunnar sem ríkir um framleiðsluna af vöiÍSum árferðis. En þar að auki þyk ir nákvæm athugun á mögu- leikum þess, að birgja landið upp að þeim vörum, sem það þarfnast, benda til þess, að af sumum vöruitegundum verði ekki t'il nægilegar birgðir til þess að mæta að'fullu þeirri innflutningsþörf landsins, sem upp er gefin í skýrslu samvinnunefndarinnar. Framleiðsluáætlun Islands. Enda þótt um það bil þriðj ungur íslenzku þjóðarinnar starfi að landbúnaði, er hún mjög háð innflutningi á mat vælum. Búskapurinn bygg- ist á grasrækt, en framleiðir ekkert korn til manneldis. 1. Fiskveiðar. Framleiðslan á feiti er nær eingöngu failin í fram- leiðslu á síldarlýsi; fram- leiðslan á þorsbalýsi, sem nam um það bil 8000 smá- lestum 1946, er ekki eins mikilvæg. -Heildarframleiðsl- an á báðum þessum tegund um lýsis varð miklu minni 1947, en áætlað var af Is- lendingum, og hefur senni- lega ekki farlð fram úr 25 þús. smálestum. Bandarikja-- sérfræðingarnir telja ekki lík legt, að framleiðslan á síld- arlýsi og þorskalýsi nái á við reisnartímabilinu þeim 57— 60 000 smálestum árlega, sem gert er ráð fyrir í áætl- un Islands til samvinnu- nefndar Parísarráðsitefnunn- ar. Það er ekki ósennilegt, að í þeirri áætlun hafi verið treyst á, að sá landburður af síld, sem var 1944, myndi endúrtaka sig. Sannleikurinn er, að síldveiðin gengur að jafnaði ekki vel nema eitt ár af hverjum þremur. Hins vegar telja Bandaríkjasér- fræðingarnir allar líkur til, 'að lýsisframleiðslan muni fara langt fram úr þeim 22 þús. smálesitum, sem hún yenjulega var íyrir stríðið, og þeim 23 þús. smálestum, sem hún vairð 1946. • Sömu- leiðiis mun framleiðslan á síldarmjöli á viðreisnartíma bilinu sennilega ekki ná þeim 64—70 000 smálestum árlega, sem Islendingar á- ætla; en hún æltti hins vegar að fara langt fram úr þeim 22 000 smálestum, sem var að jafnaði 1934—1938, og þeim 25 000 smálestum, sem hún varð 1946—1947. Fram- leiðslugeta tslands hefur vax ið mikið við nýtízku tækni síðan fyrir stríðið. 1 Afköst íslenzku fiskfram- leiðslunnar, eru nú þegar mikil, og þó er gert ráð fyrir, að auka þau enh með nýjum framleiðslutækjum, og má telja sennilegt, að fram- leiðslugeta landsins á þessu sviði verði í árslok 1948 orðin yfirleitt 75% meiri en 1945. En hins vegar getur svo far- ið, haldi hinn hái framleiðslu kostnaður áfram, að hann og hugsanlegt verðfall á fiski á heimsmarkaðinum, dragi úr fiskframleiðslunni. Þar við bætist sú óvissa, sem er um hinar árlegu síldveiðar. En með tilliti til hinna bættu skilyrða og þess, að, fram- leiðslan á öðrum fiski en sild getux vaxið, er það ekki ó- hugsanlegt, að heildarfisk- framleiðslan nái 1951 þeim 470 000 smálestum, sem gert er ráð fyrir í áætlun Islend- inga. '2. Landbúnaður. Islenzkur Iandbúnaður framleiðir ofurlítið útflutn- ingsmagn af dilkakjöti, ull, húðum og skinnum. Yfirleitt er þó langt frá því, að Island sé sjálfu sér nóg um mat- væli; jafnvel grænmeti verð ur að miklu leyti að flytja inn. Afköst landbúnaðarins er verið að auka með nýjum framleiðslut^ekjum, sem keypt hafa verið samkvæmt ,,nýsköpunaráætlun“ ' stjórn arvaldanna; en það er ekki búizt við því, að framleiðsl- an vaxi mikið. Aftur á móti er þess vænzt, að með hin- um nýju tækjum verði hægt að viðhaída því framleiðslu- magni, sem nú er, jafnframt því að fiskveiðarnar og aðrir atvinnuvegir fái aukinn vinnukraft, sem nú er bund inn í landbúnaðinum. 3. Iðnaður. Þegar undan er skilinn fiskiðnaðurinn og takmörk- uð framleiðsla fyrir innan- landsmarkað á nokkrum neyzluvörum, er um mkil- væga iðnaðarframleiðslu að ræða á Isiandi. i Vélsfjora og vana línumenn vantar á mótorbát frá Akra- nesi. — Upplýsingar hjá Haraldi Böðvarssyni & Co., Akranesi, og Landssambandi ísl. út- vegsmanna, Reykjavík. Otflutningur.- Mikllvægustu útflutnings- vörur Islands eru fiskur og fiskafurðir (einkum lýsi cg fiskimjöl), Það lætur mjög nærri að öll fiskiðnaðarfram leiðslan sé flutt út, eins og sjá má á hinni íslenzku áætl un varðandi lýsi og fiskimjöl fyrir árin 1950—1951. Það framleiðslumagn, .sem þar er gert ráð fyrir að ná, er talið vel hugsanlegt, hvað fiskinn snertir; en vel getur svo far ið, að það náist ekki á sviði síldarlýsis- og síldarmjöls framleiðslunnar. Hvað síld- armjölið snertir þykir líklegt að útf'lutningur á því verði eifthvað undir þeim 64—70 þús. smálestum á ári, sem áætlaðar eru í skýrslum Is- lands til samvinnunefndar Parísarráðstefnunnar. Og lík legt þykir einnig að útflutn ingur á síldarlýsi og þorska- 'lýsi, sem í þeim skýrslum er áætlaður 57 000 smálestir 1947—1948 og eftir það hægt vaxandi upp í 60 000 smálest ir 1950—1951, verði nokkru rninni. Inoflutningur. Innflutningur íslands óx á ófriðarárunum stöðugt, allt til 1946, og ýttu tekjur striðs áranna af fisksölunni til Bret lands og viðskiptunum við brezka og ameríska setuliðið undir þá þróun. En nú hefur skorturinn á erlendum gjald eyri gert það nauðsynlegt að driaga úr innflutningnum á svo að segja öllum sviðum. Þessi óhjákvæmilega tak- mörkun innflutningsins kem ur og fram í þeirri innflutn- 'ingsáætlun fyrir fyrstu mán uði viðreisnartímabilsins, apríl 1948—júní 1949, sem ísland lagði fyrir samvinnu- nefnd Parisarráðstefnunnar. En vel má svo fara, að lækka verði enn þá áætlun Islands, jafnvel um einn fjórða eða einn þriðja, sökum skorts á korni, sykri, kolum, stein- ol'íu, timbri, jámi og stáli í heiminum. Það er þó hugsan legt, að hækka mætti inn- flutningsáætlunina aftur eft ir fyrstu 15 mánuðdna, að minnsta kosti um nokkurn hluta þess, sem hún yrði lækkuð nú; enda getur inn- lend framleiðsla ekki birgt landið upp af neinni hinna framangreindu nauðsynja. Island filut-ti 1946 inn tvisv ar til þrisvar sinnum meira korn, tóbak, sykur, járn sitál og aðra málma, en fyrr stríð- ið. Og með því, að íbúum þess fjölgaði á sama iiíma ekki nema um sem næst 14%, sýnir þessi vöxtur inn- flutningsins fyrst og fremst aukna neyzlu. Á síðustu þremur mánuðum . ársins 1947 varð Island að draga verulega úr þessum innflutn ingi, og það má búast við því, að það verði að tak- marka innflutninginn mjög að minnsta kosti til ársloka 1949. Frekari skerðing á lífs kjörum þjóðarinnar, svo að þau yrðu eitthvað svipuð því, sem þau voru 1937, þeg- ar næstum því kreppuástand var í landinu, væri hins veg- ar frá efnahagslegu sjónar- miði óæskileg. Og jafnvel þótt nauðsynlegt yrði að draga eitthvað að auki úr innflutningi vegna skorts á ýmsum vörum í heiminum, .ætti Island að geta tryggt þjóð sinni lífskjör, sem væru Brunaboíafélag vátryggir allt lausafé (nema verzlunarbirgðir). Upplýsingar í aðalskrif- stofu, Alþýðuhúsi (sími 4915) og hjá umboðs- mönnum, sem eru í hverjum kaupstað. Minnlngarspjöid ( : Barnaspítalasjóðs Hringsins | eru afgreidd í Verzl. Augustu Svendsen, | Aðalstræti 12, og í : : Bókabúð Austurbæjar, Laugavegi 34. Mirm.'ngsrspjöld Jón Baldvinssonar for- seta fást á efti-rtöMum stöð um: Skrifstofu Alþýðu- flokksins. Skrifstofu Sjó- '(mannafélags Reykjavíkur. Skrifstofu V.K.F. Fram- sókn, Alþýðubrauðgerð- Laugav. 61, í Verzlun Valdi mars Long, Hafnarf. og hjá Sveinbirni Oddssyni, Akra nesi. Köld borS cg heítur veizlumafur sendur út um allan bæ. SÍLD & FISKUR Smurt brauð. — Köld borð. Heitur veizlumatur. Sent út um bæinn. BREIÐFIRÐINGABÚÐ Sími 7985. Imiklum mun betri, en þau, sem hún átti við að búa sið- ustu árin fyrir stríðið. (Niðurlag á morgun.) reioi KATAILAIII Pósthólf 831, Reykjavík. Flytur fjölbreytt lesefni fyrir yngri og eldri. 1. og 2. tlb. nýkomið út. Askriftarsími: 5484. m

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.