Alþýðublaðið - 21.04.1920, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 21.04.1920, Blaðsíða 2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ senda til Russlands, netna send væri um leið nefnd vinstri-sócial- ista þangað. Má geta sér þess til að þeir ætli með því að ná nán- ara sambandi við byltingamenn í "Vestur-Evrópu. x I>ad l>irtir Það birtir í lofti af ljósvakans straum, sem lífsgleði nærir og öndu. Vöknum af skammdegisdvala og draum, drengir með styrkríka höndu. Flytur oss, vafin í vorsólarglóð, vetrarins deyjandi skilnaðarljóð blævakin bára við ströndu. Það birtir óf hlíðum og bláfjallasal og blómskrýddum úthagans geimi. Andvari léttur frá laufguðum dal loft fyllir ilmsætum keimi. Vængjunum baðandi vegmóður sést velkominn segjum vér aufúsugest, söngfugl frá suðrænum heimi. Það birtir, ef eining.og bræðra- lags þel á braut vorri framvegis drotnar. Hið langvinna sundrungar- svart- nættisjel að síðustu léttir og þrotnar. Sundraðir föllum, ef samhygð er naum, en safnaðir þolura vér breytinga straum, sem ólgandi bak við oss brotnar. Það er yðar skylda, þér öndvegis- menn, í öndverðri fylking að standa. Framundan sjáið þér tfmamót tvenn og tálsnörur brigðlyndra fjanda. Starfið með alúð og óskiftri sál, að ættjarðar helgustu velferðarmál afhjúpist ókleyfum vanda. Til gálgans með illræmda ofríkis- menn, sem ættjörð og þjóð vilja leiða und gnagandi, eitraða auðvalds- ins tenn, hið íslenzka þjóðerni deyða. GjaldmiðiII Júdasar blikar svo bjart, að blind ráfar mannúð og sam- vilzka snart, á féglæfraferlinum breiða. — Kolskeggur. Iþróttafélag Reykjavíkur. Þróttur kemur út á morgun. Ilrengir, sem vilja selja hann. komi til afgreiðslumanns — Klapparstíg — á morgun kl. 9 til IO. Beztu sölulaun jjrot á béknm. Það er mörgu ábótavant í fs- Ienzkri bókagerð, þó má segja með sanni, að þar hafi þó breyt- ing á orðið til bóta. Mig hefir oft furðað á því, og það hneykslað mig, hve ýmis rit skálda vorra eru t. d. í margvís- legu broti. Tökum E. H. Kvaran. Fyrst kemur kvæðabók hans f afar htlu broti (einhver vasaútgáfa), tökum svo .Vestan hafs og austan" (fyrri útgáfu) breið og há, sfðan koma „Gull" og .Ofurefli" o s. frv. Þessar síðast töldu eru þó í sama broti, og þær seinni í líku broti. Á milli þessara bóka koma svo „Smælingjar* út í Amerfku, með ennþá nýju broti. Þetta er alveg ótækt. Það eru margir, sem safna þessum ritum og þykir mein að þvf, að sjá svo margvfslegar stærðir af ritum sama manns í bókaskáp sfnum. Það er meðal annars til þess, að ómögu- legt er að hafa þær saman í skápn- um. Hið sama gildir um rit flestra annara íslenzkra höfunda. Stærð- irnar nærri þvf eins margar og ritin eru mörg. Það hefi eg Ifka út á seinni rit Einars að setja, að brotið er óhentugt og Ijótt Það mætti bæði vera breiðara og lengra (síðurnar). Eins og það er, fer það flla í bókaskáp. Úr þessu mætti auðvitað bæta, með þvf sfðar að gefa ritin út í einni heild. Því margt mun líka uppselt. En útgáfurétturinn er í svo margra höndum, að á þvi gæti strandað. Þessi heildarútgáfa væri líka ekki til neinna þægindá fyrir þá, sem eiga öll ritin frá upphafi. Þá mundi marga langa til þess að eiga nýja útgáfu, en þá ættu þeir tvö eintök og það mun flestum of dýrt. / Mig furðar á þvf, að þau þrjú stórveldi, rithöfundurinn, útgjölditt' og prentsmiðjan, sem oftast nær eiga um þetta að fjalla, skuli ekki hafa komið auga á, að þetta er bæði óhentugt og ósmekklegt. En svo stendur víst oftast á' þessu, sð úteefandinn fer eftir þeirri pappirssiœrð, sem pappfrs- salinn htfir f það og það sinnið, þó ótrúlegt megi þykja, Það er allur galdurinn í þessu máli Og þegar svo hefir lengi verið, að? útgefandinn hefir skoðað þa® sem nokkurskonar gustukaverk að gefa út bækurnar, en ekki eins og hverja aðra verzlun, þá hefir rithöfundurinn orðið að sætta sig við það, til þess að fá þó þessr fau hundruð króna og ritinu kom- ið fyrir sjónir almennings. Ec þetta er aftur afleiðing af því, hvað hin „forna mentaþjóð" er Iftið áfjað f þessa andlegu fæðu. Og þó er gatðurinn frægur að- eins fyrir bókmentir, nefnilega hin- ar fomu. Enginn ætti að hafa betri smekk fyrir bókagerð. en einmitt þau þrjú „stórveldi-, sem eg hefi minst. á hér að ofan. Mega menn nú ekki lifa í von- inni uin það, að framvegis verði þó fleira latið ráða um stærð hinna ýmsu rita, sem út kunna að koma„ en pappirsstœrðin?. Pör. Dm dagins og vep. Á ankafandi bæjarstjórnar á mánudaginn var samþykt að kaupa til rafveitunnar 2 túrbínur, aðra 1000 hestafla en hina 500. Á sama fundi var samþykt tillaga frá bæjarfulltrúunum Jóni Bald- vinssyni og Sveini Björnssyni um að fela borgarstjóra, í samráði við rafmagnsnefnd, að útvega einnar miljón kr. lán í viðbót til rafveitunnar, með því að sýnilegt er, að kostnaður muni fara tals- vert fram úr áætlun. Sumarkort og sumarskeyti fást hjá Friðfinni Guðjónssyni, Laugaveg 43 B. ðlafnr Hafiiðason báfsmaður á >Hilmi< hrasaði f fyrradag og

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.