Alþýðublaðið - 19.02.1948, Side 7

Alþýðublaðið - 19.02.1948, Side 7
Fimmtudagur 19. febr. 1948 ALg>Ý©UBLA©i® 7 *--------------------------* Bœrinn í dag. i —-----------------------* Næturlæknir er í læknavarð stofunni, sími 5030. Næturvarzla er í Ingólfs Apó teki, sími 1330. Næturakstur annast Hreyfill, sími 6633. Mishermt var það í fréttinni um útför séra Árna Þórarinssonar, að annar silfurskjöldurinn á kistu hans hafi verið frá Prestafélagi ís- lands. Skjöldurinn var frá pró- fasti og prestum í prófastsdæmi séra Árna. 11. Hverfið heldur spila og skemmikvöld að Þórscafé í kvöld kl. 8,30. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Minningarspjöid Minningar- sjóðs Þórönnu Jónsdóttir frá Blönduholti í Kjós, fást á eftir töldum stöðum: Krstínu Jóns- dóttjr, Káranesi í Kjós. Lilju Jónasdóttir Efstasundi 72, sími 4296. og Pálínu Þorfinnsdóttir, Urðarstíg 10, sími 3249. Kvenfélagið Hringurinn, Hafnarfirði þakkar innilega hina veglegu gjöf kr. 500.00, sem honum hefur borist tjl minningar um Gyðu Þorleifs- dóttir frá. bekkjarsystkinum hennar. Stjórnin. Frétfabréf frá Akur- eyri. Framh. af 5. síðu. sem eru í smíðum, er þar á meðal stórhýsi, sem verk- smiðjan Gefjun lagði grunn inn að fyrir áramótin. Þá er ýmis konar smáiðnaður í uppsiglingu, þótt hráefna- skortur hamli vexti hans og svo mörgu öðru. FRÉTTARITARI. Framhald af 1. síSu ■alþjóðasamband verkalýðs- ins að þðirri ráðstefnu lok- inni, — án Rússa og fylgi- fiska þeirra, en í fyrsta sinn með beinni þátttöku A.F.L. Félagslíf »UMFR‘ Glímu- og iþrótta námskeið Ung- m'ennafélags Reykjavíkur fer fram í leik- fimissal MenntaskóIanB, þriðju dag og fimmtudaig, Námskeið- ið ér fyrir unglinga og full- orðna. Glíma kl, 19,30. Frjálsar í- þróttir kl. 20,30. Víkivakar kl. 21. Handknattleikur karla er á miðvikudögum kl. 20,30 í í. B.R. húsinu. Húsnæðismálin Framhald af 1. síðu. farið hraðvaxandi frá því að hún var sett á stofn. Hafa tveir menn úr nefndinni ann azit íbúðamat, og alls konar úrskurðir hafa verið gefnir. Um uppsagnamál er það að segja, að yfirleitt hefur meira en helmingur þeirra upp- sagna, sem nefndin hefur fjallað um, reynzt ástæðu- laus, og nefndinni hefur því tekizt að halda fólkinu í í- búðunum. AÐALFUNDUR Kvenna- deildar Siysavarnafélags Is- lands í Hafnarfirði var hald inn fyrir skömmu. Frú Rann veig Vigfúsdóittir var endur kosinn formaður deildarinn ar í 10. sinn. Aðrar konur í stjórn deildarinnar eru frú ( Marta Eiríkudóttir ritari og frú Helga Jónsdóttir gjalc- keri, en meðstjórnendur eru frúrnar Sólveig Eyjólfsdótt- ir, Sigríður HaUclórsdóttir og Ingibjög Þorsteinsdóttir. Tekjur deildarinnar á ár- inu námu tæpum 20 þúsund krónum. Af því hefur deild- in þegar afhent Siysavarna- félagi Islands 3/4 hluta. Þá ákvað deildin að kosta svefn poka í skipbrotsmannaskýlið í Fljótsvík, auk þess sem þarf til að ljúka við skip- brotsmannaskýlið, sem deild in hefur í smíðum austur á Söndum. Starfsemi deildar- innar er með' ágætum, eins og sjá má af ofangreindum tölum. ( Framhald af. 5. síðu. Flup i glasinu jafnvel af alþjóðlegum aðila, um reynsluna af framkvæmd hinnar vítt rómuðu íslenzku fóst- ureyðingarlöggjafar. Ekki er svo vel, að réttvxsin líti sofandi til afbrota lækna, aðeins þegar fóst- ureyðingarlöggjöfin á í hlut, og kann ég m. a. dæmi um hina sömu afstöðu hennar til hinnar tortryggilegustu aðildar læknis að fjársvika- máli, þar sem alþýðutryggingarnar voru annars vegar. En um hinar almennu tryggingar gegnir sama máli sem um fóstureyðingarlöggjöfina, að þær eiga ekki einungis mikið, heldur allt undir trúnaði lækna. Og þó fer því alls fjarri, að lyf- salar og læknar einir njóti náðar íslenzkrar réttvísi. Almenn afbrotamál koma ekki til minna kasta á hverjum degi, en engu síður eru ro.ér minnisstæð a. m. k. tvö slík mál, er hvort um sig varðaði mannslát, og var hvorugt þeirra rekið til úrslita, án þess að ég sæi til þess nokk- ur rök, nema vera kynnu þau, að sekt aðilanna, sem voru hvorki læknar né lyfsalar, lægi of berlega í augum uppi. Eftirlæt ég svo öðrum að líta í kringum sig í sínum verkahring'. Nú væri mín rangt til getið, ef þessi ádeila yrði skilin svo, að mér væri varnað allrar með- aumkunar með þeim, sem er hrösunarhætt og gerast brotlegir við lög og settar reglur þjóðfé- lagsins. En játa verð ég á mig þá harðýðgi Orðið hef ég þess var, að þeir, sem fylgzt hafa með framanrituðum greinaköflum og talið sig hafa haft af þeim nokkurn fróðleik, telja miður farið, að þessum málflutningi hefur ekki fyrir lörígú verið komið á framfæri. Þar er engu um að kenna öðru en tómlæti mínu, sem aftur má rekja til þess, að ég hef leitazt við að temja mér þá höfuðdyggð embættismanna að vera ekki allt of uppnæmur fyrir aðkasti. Andlegri heil- brigði fjölda manna er svo háttað, að það er þeirra lífsviðurhald að geta skeytt skapi sínu á einhverjum. Og ég veit ekki, hverjir eru kjörnir til þess að vera hafðir að alls herjar bitbeini og skotspæni slíks fólks, ef það eru ekki embættis- menn þjóðarinnar og þá allra helzt umsjármenn hjartans, að vissulega dregur það úr meðaumk- un minni með hinum seku, ef þeir eru enda- laust fundnir sýknir af afbrotum sínum. í móti vegur það, að mér verður stundum að hugsa hlýtt til hinna raunverulegu umkomuleysingja vor á meðal: aumingja heiðarlega fólksins í þjóðfélaginu, sem engin miskunn er sýnd. í skrifstofu minni geymi ég lyfjaglas með sykruðu lyfi, og flýtur fluga í lyfinu. Glasið færði mér, ekki alls fyrir löngu, maður einn og taldi sig hafa fengið það afgreitt með sömu um- merkjum f lyfjabúð. Rekistefna út af umkvört- un mannsins leiddi til þess, að hlutaðeigandi lyfsali kaus ekki að taka þjónsafstöðu til máls- ins — eða með öðrum orðum afstöðu hógværs embættismanns — heldur óvalins sakbornings, ! er væri vítalaus, nema sannað væri, að flugan 1 hefði flogið í glasið í lyfjabúðinni, en ekki eftir að það kom í vörzlu kaupandans. Að vísu bar tappinn og umbúnaður hans það nokkurn veg- inn greinilega með sér, að honum hafði ekki verið hreyft, eftir að hann fyrst var látinn í glasið, en hvað um það: málstaður mannsins var vonlaus. Þetta var sem sé hin eilífa fluga, sem flýgur um heilt inn í hvert glas almennings og enginn mannlegur máttur orkar'að verja hann gegn. heilbrigðismála hennar, sérstaklega eftir að svo er komið hag Alþingis og skipun ríkisstjórnar, að þar er eiginlega ekld lengur bitastætt, né á nettt fast að miða. Þar að auk má það vekja rnanni fögnuð, eins og nú háttar víða í heimin- um, að eiga þess enn kost að lifa í landi, þar sem leyfilegt er að skamma embættismenn, og hví skyldi maður þá ekki taka glaður við sínum hluta vel mældum af skömmunum? Einkum þegar maður á það ekki á hættu að hverfa eða verða skotinn — fyrr en þá eftir að maður hef- ur rekið af sér slyðruorðið og svarað rækilega fyrir sig. í febrúar 1948. Vilm. Jónsson. Hjartans þakkir viljum við færa öllum þeim, er sýndlu ofcfcur samúð og vinanþel í tilefni af fráfalli og jarðarför okkar ástkæra elginmanns og föður, Hinriks Haraldssonar. Sérstakar þakkir viljum við færa skipshöfninni á b.v. Júlí, Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og forstjóra hennar, hr. Ásgeiri G. Stefánssyni. Biðjum við guð að blessa 'alla þá, sem hafa reynt að hjálpa og hugga okkur í raunum okkar og launa þeim, er :þeim liggur mest á. Hafnarfirði, 19. febmar 1948. Katrín Hildibrandsdóttir oir börn. Þökkum inniiega fyrir auðsýnda samúð við and- lát og j'arðarför eiginkonu minnar og móður, Þorbjargar Jénsdóftyr. Lárus Vigfússon, Jón Lárusson, Skúlaskeiði 4, Hafnarfirði. Áuglýsing m innílufning frá Tékkéslóvakíu. Viðs'kiptanefndin hefur ákveðið að veita á næst- inrni takmönkuð leyfi frá Tékkóslóvakíu fyrir eftir- :greinidum vörutegxmdum: 1. Vörum skv. IV. flok'ki lið 3 og 4. 2. Vörum skv. V. flo'kki lið 1 og 2. 3. Vörum skv. VI. flokki lið 1B og 2, 3, 12, 15, 16, 17, 24. 4. Vörum skv. VIII. ílofcki lið 1B og 4. 5. Vörum skv. IX. fl'okki lið 18A og C. 6. Vörurn skv. X. flokki lið 1, 2, 3, 4A. B. C. og D. 7. Vörum skv. XI. flokki lið 5 og 12. 8. Vöruan skv. XV. flokki lið 4. Nefndin vill því ihérmeð óska eftir sundurliðuðum umsóknum frá innflytjendum fyrir vörum þessum. Flokkunarskrá sú, sem til er vitnað hér að fram- an er prentuð aftan á öll umsóknareyðúblöð nefnd- arinnar. Tilgreina þarf innkaupsverð, afgi'eiðslutíma og aðrar upplýsingar er máli skipta í þessu sambandi. Ennfremur skal tilgreina til' hvers viðkomandi vara er ætluð, til' verzlunar, tiT iðnaðar o. s. frv. Umsóknir þessar þurfa að 'hafa borizt skrifstofu nefndarinnar fyrir 10. rnarz 1948. Umsóknuro., sem síðar berast, verður ekki sinnt. Reykjavfk, 16. febrúar 1948. Viðskiplanefndin. Tvö námskeið í mynsturgerð HANDÍÐASKÓLINN efn- ir nú til tveggja námskeiða í mynzturteiknun. Annað nám skeiðið byrji á mánu- dagskvöld kl. IVz og verður kennt tvö kvöld í viku, á mánudögum og fimrntu- dö.gúm kl. 7 Vi —8%. Á hinu náinskeiðinu, sem byrjaði í ■ gærdag verður kennit þrisvar í viku, á þriðjud, miðvikud. og föstudögum kl. 4—6 síðdegis. Þeitta síðar- nefnda námskeið hentar eink um húsmæðrum, sem helzt eiga heimangengt síðdegis. Á námskeiðum þessum, sem munu standa fram á vor; verður kennt. að gera mynzt- ur til afnota við ýmiss konar handavinnu kvenha', svo sem saum, prjón, vefnað o. s. frv. Þótt fil námskeiðanna sé að- allesa stofnað vegna kvenna, sem óska að fá leiðsögu í þess um efnum, þá munu nám- isba’ð' þessi hafa margt að bjóða karlmönnum, sem t- d. vinna að listiðnaði eða í vefn aðarverksmiðj'um. Frú Valgerður Briem kenn .ir á námskéiðunum. Frúin er miög lærð í þessum efnum og hefur um langt skeið unnið nð mynzturteiknun, bæði hér lendiis og erlendis.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.