Alþýðublaðið - 10.03.1948, Side 5
Miðvikudagtir 10, onarz 1948
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
lírgir Einarsson: Lokagrein
nnflyfning lyfja
1 LYFJAINNFLUTNINGUR
„Nú er minnstur hluti lyfja
lífsnauðsynleg lyf, öllu til skila
haldið, að helmingur þeirra
hangi í að vera nauðsynleg lyf
og hæpið að telja verulegan
hluta þess, sem þá er eftir, til
nauðsynjavöru. Drjúgur Irluti
lyfja og lyfjaefna er jafnframt
hversdagslegasta verzlúnarvara.
Auk þess er eitt og sama lyfið
falt og að þarflausu flutt inn í
hégómlega breyttu formi, iðu-
lega heitið eitt, sem skilur teg-
undirnar, en jafnvel fróðustu
læknum um megn að átta-sig' .á
öllum þeim glundroða.“ Þannig
hljóðar lífsspeki Vilmundar
Jónssonar og þekking á inn-
flutningi lyfja. Ekki er ljóst,
hvort þetta á eingöngu að vera
auglýsing þess hrossakarlslega
hugsunarháttar, að allar lækn-
ingar, sem - ekki eru fram-
kvæmdar með hníf og sög, sé
hégómi og hysterí, eða hvort
lesendum eigi að lærast, að ap-'
ótekarar séu upp til hópa búllu-
kollar og fífl, sem engin skil
kunni á hégóma og nauðsyn,
brjóstsykri og lyfi.
í sambandi við innflutning
lyfja eiga apótekarar í raun-
inni sáralítið val, því að þeir
eru í senn bundnir af fyrirskip-
un lyfjaskrár og skömmtuðum
gjaldeyri. Lyfjaskráin og önn-
ur löggilt heimildarrit greina
þau lyf og lyfjaefni, sem apó-
tekarar eru skyldugir að hafa.
Heimildarritin eru löggilt af
landlækni og hefur hann enga
undantekningu gert fyrir ,,ó-
nauðsynleg" lyf, þótt apótekar-
ar hins vegar felli niður þau
lyf, sem úrelt efu orðin og betri
komin í staðinn. Og hvað um
lyf, sem eru „hversdagslegasta
verzlunarvara"? Skyldu þau
vera með öllu ónauðsynleg, ef
þau eru þáttur í hversdagslífi
þjóðarinnar? Sú lyfjaskrá, sem
hér er í gildi, er danska lyfja-
skráin. Er hún orðin 15 ára
gömul og hafa orðið miklar
framfarir síðan hún kom út.
Væri þá hlutverk apótekaranna
. illa rækt, ef engin hinna nýju
lyfja stæðu almenningi til boða,
i þar með talin súlfónamíðlyfin,
antibíotísku lyfin (penicillin,
streptomycin), vítamínlyfin,
)auk margra annarra mikil-
íyirkra lyfja. Þessi lyf eru
greind í amerísku lyfjaskránni,
sem gefin er út með fárra ára
millibili, og í viðurkenndum
heimildum dönskum og ensk-
iim, Bera . lyfin nöfn, sum
þeirra eru gefin í heimildar-
ritunum, og er um engan
„glundroða11 þar að ræða. Það,
sem nú hefur verið talið, gerir
jneginhluta alls lyfjainnflutn-
jngsins. Þau lyf, sem ekki fást
öðruvísi en sem patenteruð
verksmiðjulyf, eru hverfandi
brot innflutningsins. Eru það
nýjustu lyf stórverksmiðjanna,
sem að fenginni reynslu þykja
þess virði að hafa þau íslenzk-
um læknum til boða. Fyrir ó-
friðinn gætti þess nokkuð, að
litlar „lyf javerksmiðjur11 í
Þýzkalandi og víðar reyndu
með aðsíoð söluagenta, dump-
prísa og annarri sölutækni að
troða framleiðslu sinni inn á
jslemfca. rnarkað. Fratnleiðsla -
þessara verksmiðja samanstóð
mestmegnis af eftiröpuðum
lyfjasamsetningum apóteka og
þeim líkum samsetningum með
margvíslegum patenteruðum
sérheitum, en læknar og apó-
tekarar ginu lítt við. Gætti
þeirra lítið þá og alls ekki nú.
Væri Vilmundur Jónsson apó-.
tekari í stað þess að vera iand-
læknir, og tæki hann upp á því
að sýna trú síná í verkunum,
Detta auglýsta mat sitt á lyfj-
um, væri það fullvíst, að ríkj-
andi landiæknir teldi það sitt
mest aðkallandi skylduverk að
gera hann óskaðlegan með því
að koma honum frá apótekara-
starfinu.
Það væri apótekurum áreið-
anlega óendanlega þyngri sam-
vizkuraun, ef þeir yrðu réttilega
sakaðir um að hanga í úreltum
lyfjum og hagnýta ekki fram-
farir og nýjungar lyfjavísind-
anna íslenzkum almenningi til
Durftar, heldur en það, að ein-
hver maður í þeirra stétt hafi
einhvern tíma flutt inn brjóst-
sykursslatta á lyfjaleyfi. En af-
staða apótekara í því máli var
sú, að jafnskjótt og vart varð
við brjóstsykursinnflutning eins
apótekara, gerði formaður Apó-
tekarafélagsins ráðstafanir til
þess að slíkur innflutningur af
hálfu apótekara án sérstaks þar
til fengins leyfis yrði stöðvaður.
Hétu hlutaðeigandi innflutn-
ingsyfirvöld að fyrirbyggja
endurtekningu. Verður land-
lækni vísað til heimilda, ef
hann óskar. Þessi var hin þegn-
lega afstaða stéttarinnar í mál-
inu og er ólík þeirri, sem V. J.
vill vera láta. En aðrir innflytj-
endur hafa flutt inn brjóstsykur
í stórum stíl og boðið hann
hverjum, sem hafa vildi, apó-
tekum, almennum verzlunum,
brauðsölubúðum o. s. frv. Eitt
þekktasta og stærsta firma
þessa lands mun hafa flutt inn
10 tonn af brjóstsykri á einu
ári. Hefur þó ekki 'verið rætt
um að syipta það eða þann
flokk verzlana, sem það tilheyr-
ir, innflutningi sínum. Mun og
eiga sterkari talsmenn en aumir
apótekarar, og landlæknir oft-
ast skipa sér þar í hóp.
NIÐURLAGSORÐ
Mál þetta er orðið miklu
lengra en með sanngirni verður
krafizt, að lesendur blaðsins um
beri. Margt er þó eftir af mál-
flutningi landlæknis, sem full
þörf hefði verið að ræða. En
sú leið hefúr heldur verið farin,
að drepa á þau atriði, sem ein-
hverju skipta í sambandi við
lyfsölumálin, og vera mega um
leið sýnishorn af „sannfræði“
hinna smærri atriða í málflutn
ingi hans.
Eitt af því, sem sleppa hefur
orðið, er hin hlálega viðleiðtni
landlæknis að uppnefnda lyfja-
fræðinga og kalla' þá „lyfsölu-
fræðinga“. Fyrir skömmu fékk
hann skyndilega þá vitrun, að
lyfjafræðingar bæru vanheilagt
nafn, og síðan hefur hann tekið
sér fyrir hendur að troða upp á
þá nýju nafni. Við þá end.ur-
skírn viðhefur hann þann sama
innblásna eldmóð, sem skáld-
ið viðhefur við snapsagjöfina í
vísunni; . . þótt þú ekki viljir
hann, þá skal hann í þig samt.
Og svo mikill er grandvarleiki
hans að nefna ekki hið vanheil-
aga orð, að hann forðast að
nefna Lyffræðingafélagið með
nafni, heldur teprast utan um
það eins og meykerling um
feimnismál. En með sömu for-
sendum og hann notar má nefna
alla þá, sem vinnu sína selja,
sölufræðinga. Læknar héu þann
ig lækningasölufræðingar og
landlæknirinn héti landlækn-
ingasölufræðingurinn.
Tvær prentvillur slæddust inn
í greinina um launagreiðslur,
en kunnugir lesa þær í málið.
Stendur: . .útgjöld apóteksins
um ca. 7%. . . . Les: launa-
útgjöld apóteksins um ca.
7%. Stendur: .... og sér-
lyfjataxtann um rúm 50% . . .
Les: . .og sérlyfjavinnutaxtann
um rúm 50%. í 2. grein hefur
fallið niður í prentun úr nið-
urlagi: Hví nefnir hann ekki
Húsavík? Þar var stofnað apó-
tek fyrir forgöngu lyfjafræð-
ings fyrir nokkrum árum.
Lyffræðingafélagið kann Al-
þýðublaðinu beztu þakkir fyrir
birtingu greina landlæknis og
þessara greina félagsins. Enn
fremur eiga allir þeir þakklæti
skilið, sem haft hafa þrek og
þolinmæði til að lesa greinarn-
ar í gegn.
Tómas Tómasson
hét sá, sem talaði af hálfu
Sjálfstæðismanna á stúdenta-
fundinum í fyrradag, en ekki
Tómas Árnason, eins og mis-
sagt var í blaðinu.
Vörujöfnunarseðlar
1948 til 49 eru afhentir í skrifstofunni dag-
lega kl. 9—12 og 1—5. Laugardaga 9—12 til
þeirra félagsmanna, sem skilaS hafa kassa-
kvittunum fyrir 1947. Jafnframt eru eldri
vörujöfnunarseðlar fallnir úr gildi.'
Sir Stafford og blómarósir í Burma
Þegar Burma fékk sjálfstæði sitt í vetur var mikið um
dýrðir í sendisveif Burma í London. Þar voru margir helztu
ráðherrar brezku jafnaðarmannastjórnarinnar mættir, þar
á meðal Sir Stafford Cripps, sem hér á myndinni sést í
hópi nokkurra blómarósa frá Burma.
Námskeið Norræna félagsins
á komandi sumri
YMIS NÁMSKEIÐ og mót
verða haldin á Norðurlönd
um í vor og sumar á vegum
Norræna félagsins, og ^eru
þetta þau helztu:
DANMÖRK:
Námskeið fyrir Æskulýðs-
leiðtoga verður á Bindsgavl
höli 9.—15. maí. Fluttiir verða
fyrirlestrar jneðal annars:
Viðfangsefni norrænnar sam
vi,nnu, Norðurlöndin og
Þýzkaland, Aðstaða Finn-
lands, Norðurlör.din og Rúss
land. Þá verða umræðufund
ir í framhaldi af fyrirlestrun
um, ýmis skemmtiatriði og
ferðalög um nágrennið.
Tveim íslendingum er boðin
þátttaka. Dvölin meðan á
mótinu -stendur kostar kr. 60.
00.
Sumardvöl fyrir félags-
menn Norræna félagsins verð
ur á Hindsgavl dagana 11.
—25. júlí. Dvölin, yfir allan
tímann kostar d. kr. 266.00,
en yíir eina viku d. kr. 133.
00. Ýmis skemmtiatriði fara
fram á Hindsgavl meðan á
sumardvölinni stendur og er
það iinnifalið í verðinu.
NOREGUR.
Námskeið fyrir sögukenn-
ara verður í Guðbrandsdalens
folkehögskole á Hundorp 4.
—11. júlí. Þar verða fluttir
margir fyri^lestrar um sögu
rannsóknir og kennsluaðferð
ir. Ýmsar ferðir verða farnar
í sambandi við námskeiðið til
sögufrægna staða í Noregi.
Þátttökugjald er n. k. 100.00.
FINNLAND.
Fulltrúafundur Norrænu
félaganna allra á Norðurlönd
um Verður í Helsingfors 22.
— 23. ágúst.
SVÍÞJÓÐ.
Bíaðamannanámskeið vero
ur í Stokkhólmi um miðjan
maí (dagarnir eru ekki á-
kveðnir er.n þá). Fluttir verða
fyr.'rlestrar um ýmis efni að
allega það, sem varðar Svi-
þjóð og síðan verða umræðu
fundir um margvísleg efni.
Æskulýðsmót verður í
Bohusgarden í Uddevalla 23.
júní til 3- júlí. Þetta er fyrst
og fremst kynningarmót, með
stuttum fyrirlestrum, upp-
iestrum, söng, músik og
skemmtiferðum. Þátttöku-
gjald er s. kr. 55.00 þar í inni
falið matur og húsnæði með
an á mótinu -stendur.
Uppeldisfræðingamót verð
ur í Bohusgarden 18.— 25.
júlí, á móti þsssu vsrða aðal1
lega umræðufundir með stutt
um inngangserindum. Farið
verður í nokkrar ferðir í ná
grsnnið.
Félagsmálanámskeið eink-
um ætlað fulltrúum bæja- og
sveitafélaga svd og starfs
mönnum þeirra, er fjalla urn
ými'S' félagsmál. Námskeið
þetta verður í Bohusgarden
23, júlí til 1- ágúst. Þátttöþ>i-
gjald er kr. 85-00 s.
Námskeið fyrir móðurmáls
kennara verður í Ingesunds
folkhögskola 8. — 14. ágúst.
Frh. af 7. síða