Alþýðublaðið - 19.03.1948, Page 6

Alþýðublaðið - 19.03.1948, Page 6
ALÞYÐUBLAÐIÐ Föstudagur 19. marz 1948 Skrifstofur vorar og vöruafgreiðsla verða lokaðar kl. 1 til 4 í dag vegna jarðarfarar. Skipaútgerð ríkisins. Daphne du Maurier: ÐULARFULLA VEITINGAHUSIÐ Leifur Leirs: Bf, BÍ OG BLACK DEAD . . . Reykjavík . . . reyklausa borgin hjá víkinni, þar sem reykjarsvælan er vaðin í pólitíkinni. Þar sem reginbál norrænu- fræða skal anda vorn ylja, og afkomendur Egils og Snorra tala tyggigúmíensku, — án þess að skilja. Þar sem æskan sér sk;mmt- ir við dufl og dans allar nætur. Og fer að sofa um það le /ti sem afar hennar og ömmur fóru á fætur. Þar sem gluggaglæst verzlun er í öðru hverju húsi, eða þar um bil. FRIKIRKJUSAFNAÐ- ARINS í HAFNAR- FIRÐI verður ‘haldinn n.k. sunnudag 21. þ. m. kl. 4 í kirkjunni. Safnaðarstjórnin. ! Smurf brauð og sniffur Til í búðinni aHan daginn. Komið og veljið eða símið. SÍLD & FISKUR ' ■ Og afgreiðslufólkið skefur undan nöglum sínum og segir: því miður, — ekki til. AÐSENT BRÉF. Fréttabréf úr sveit. Heiðraði ritstjóri. Sæll og blessaður og þökk fyrir ýmislegt, sem þú hefur flutt, enda þótt misjafnt sé. Einnig bið ég þig að koma kveðjum til Filipusar hrepp- stjóra. Það er bezti maður að mínum dómi, og þyrfti að kom ast sem allra fyrst á þing. En okkur hérna fellur ekki að sama skapi vel við skáldskap Leifs Leirs, þótt stundum sé hægt að brosa að honum. Aðalerindið með þessum skrif um var það, að biðja þig að koma eftirfarandi orðsendingu á framfæri við þá, sem völdin hafa: Við, sem búum í afskekktum dölum og höfum lítið af fjöl- breytni umheimsins að segja, höfum mikið hugsað um það, að minnsta kosti í þessum dal, hvort ekki mætti gera eitthvað, til þess að auka ferðamanna- straum hingað. Við erum svo óheppin að hafa ekkert eldfjall í nágrenninu, og ekkert annað en þessa venjulega dalafegurð, sem allir dázt að, en engan lang ar til að sjá. Og nú var okkur að detta ráð í hug. Ef við fengjum því fram gengt með lögum, að hér í daln um mætti taka til geymslu hitt og þetta, sem menn hefðu keypt á löglegan hátt, en þætti ein- hverra hluta vegna varhuga- vert að geyma í höfuðborginni, t. d. ódrukkið áfengi, óreykta vindlinga og aðrar byrgðir, sem stundum geta, að því er virð- ist, valdið hvimleiðum heim- sóknum og þvargi. Geymsluna mundum við talca að okkur fyrir lágt verð ef lög fengjust um þetta efni. Virðingarfyllst. Nokkrir daladrengir. Auglýsið í AlþýðublaSinu andartak, og þegar hann tal-i aði. var rödd hans ógnþrung- in og lág. „Svo að þú ásafear mig, Harry, einmitt það,“ sagði hann , Þú ent eins og aðrir af þínu tæi. heykjast eins og höggormur, þegar hamingjan snýsit á móti. Þú iert búinn að hafa gott af mér, er það ekki? Haft gull til að eyða, sem þú aldrei hefur haft áður; lifað eins og prins allan tímann í staðinn fyrir að liggja í skítnum eins og þú ert vanur. Og setjum nú svo, að við hefðum gætt að okkur um nóttina og lokið öllu fyrir dögun eins og við höfum gert hundrað sinnum áður? Þá hefðirðu verið á leiðinni til mín núna til að fylla vasa þína, er það ekki? Þú værir að flaðra upp um mig hinum snuðrandi hund- unum, biðjandi um þinn hlut og kalla mig almáttugan; þú mundir sleikja skóna mína og liggja í duftinu. Hlauptu þá, ef þú vilt, hlauptu niður á bakka Tamar með lafandi skottið, og fjandir.n hafi þig! Ég iskal mæta öllum heimin- um aleinn.“ Skransalinn reyndi að gera sér upp hlátur og yppti öxlum. , Við getum talað án þess að skera hvor annan á háls- Ég er ekki kominn á móti þér. Ég er ennþá þín megin. Við vorum allir blind fullir á aðfangadagskvöldið, ég veit það, við sku'lum sleppa því þá. Það er orðið, sem orðið er. Hópur okkar er dreifður, og við þurfum ekki að itelja þá með. Þeir munu vera of hræddir til að láta sjá sig og gera oklcur gramt í geði. Við höfum verið í þessu saman, Joss- enn meira en aðrir, ég veit það, og því bet ur ssm við hjálpum hvor öðrum, því betra verður það fyrr okkur báða. Þess vegna er ég kominn hingað til að tala um þetta og sjá hvernig málunum er háttað.“ Hann hló aftur, svo að skein í góm inn og fór að berja í borðið með klunnalegum, svörtum fingrunum. Veitingamaðurinn horfði kuldalega á hann og náði aft ur í pípuna sína. ,,Hvað er það, sem þú ert að sneiða að, Harry?“ sagði hann, hallaði sér að borðinu og fylZiti pípuna sína á ný. Skransalinn saug tennurn- ar og glotti. „Ég er ekki að sneiða að neinu,“ sagði hann. , Ég vil bara gera allt auð- veldara fyrir okkur. Við er- um nauðbeygðir til að fara héðan, það er augljóst, nema við viljum hanga í gálganum. En það er nú svo, Joss, að ég get ekki séð þá ánægju, sem það er„ að fara tómhentur þrátt fyrir allt. Það var þessi óvera af góssi frá ströndinni, sem við geymdum í herberg- inu þarna, fyrir tveim dög- um. Það er rétt, er það ekki? Og með rétti tilheyrir það okkur öllum, sem tókum þátt í aðfangadagsferðinni. En það eru engir eftir til að beiðast þéss mema þú og ég. Ég er ekki að segja að það sé mikið, sem hefur gildi þar — það er mest kaðalsdrasl, vafa laust — en ég get ekki séð, hvers vegna sumt af því get- ur ekki orðið okkur að liði í Devon.“ Veitingamaðurinn blés reykskýi í andlit hans. ,,Svo að þú komst ekki til Jamaica aftur bara í því skyni að sjá mitt fagra andlit?“ sagði hann. „Ég hélt þér þætti vænt um mig, Harry, og vildir halda í hendina á mér.“ Skransalinn glotiti aftur og flutti sig-til á stólnum. ,,Allt í lagi,“ sagði hann, „við er- um þá vinir, er það ekki? Það er bezt að tala hrein- skilnislega. Góssið er hér og það þarf tvo menn til að skipta því. Konurnar hér geta ekk igert það. Hvað er á móti því að við gerum samn- ing og látum sv ollt útkliáð með því?“ Gestgjafinn tottaði pípuna sína hugsandi. ,,Þú ert að springa af góðum hugmynd- um. vinur minn, og setjum nú svo, að dótið sé ekki hér lengur, þegar allt er athug- að. Gerum ráð fyrir, að ég sé búinn að ráðstafa því. Ég hef verið hérna í tvo daga eins og þú veizt, og vagnarnir fara hér fram hjá. Ilvað þá, Harry litli?“ Brosið dó á andliti skran- salans, og hann steytti hnef • ann. , Hvað, trtu að gera að gamni þínu?“ urraði hann. ,,Ertu með einhver undirferli hérna? Þú mur.it sjá, að það borgar sig ekki, af þú ert að því. Þú hefur verið undar- lega þögull stundum, Joss Merlyn, þegar flutningurinn hefur verið kominn af stað og vagnarnir komnir á veg- inn. Ég hef séð ýmislegt- sein ég hef ekki skilið og heyrt líka. Þú hefur grætt vel á þessari verzlun mánuð eftir mánuð, of mikið hefur sum- um okkar fundizt, vegna þess, hve lítið við höfum upp úr því, sem lögðum mest í hættu. Og við spurðum þig ekki, hvernig þú græddir það, var það? Hlustaðu á, Joss Merlyn,. færðu skiponir frá einhverjum, sem er æðri en þú?“ Veitingamðurinn þaut í hann eins og tldibrandur. Hann hitti skransalann belnt á hökuna með krepptum hnef anum, og maðurinn féll aftur á bak á höfuðið, og stóllinn undir honum datt á steinlagt gólfið, svo að brast í honum. Hann náði sér isamstundis og staulaðist á fætur, en ve.it,- ingamaðurinn gnæfði upp yf- ir hann, og hlaupið á byssu hans miðaði á hálsinn á skran salanum. ,Ef þú hreyfir þig, ertu dauðans matur,“ sagði har.n þýðlega- Harry iskransali leit upp á árásarmann sinn, litlu ill- kvittnislegu augun voru hálf lukt og þrútið andlit hans gult. Hann hafði undizt í fall inu og dró andann ótt. Þegar fyrst fór að vtróa merki um bardaga, hafði Patience hörf að út að veggnum og stóð upp við hann óttaslegin, og augu hennar leituðu til Mary ár.angurslaust biðjandi. — Mary gaf frænda sínum ná- kvæmar gætur, hún gat ekki gert sér grein fyrir, hvernig honum myndi innanbrjóstá. Hann lét byssuna síga og sparn vði skransalanum með fætinum. ,,Nú ættum við að geta komizit að samkomulagi, þú og ég,“ sagði hann. Hann hallaði sér aftur fram á borð ið og hafði byssuna í hönd- unum, en Harry engdist á gólfinu, í hnipri og á fjórum fótum- , Ég er foringi í þessum leik og hef alltaf verið það,“ sagði veitingamaðurinn hægt. ,,Ég hef unnið það upp frá byrjuninni fyrir þrem ár- um, þegar við náðum í farma úr litlum tólf tonna loggort- um í Padstow og fannst við vera ógurlega heppnir ef við áttum nokkra skildinga í vasanum. Ég hef unnið það upp þangað til það var orðið stórkostlegast í öllu landinu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.