Alþýðublaðið - 01.04.1948, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 01.04.1948, Qupperneq 3
Fimmtudagur 1. apríl 1948. ALÞYÐllBLAÐIÐ 3 ísland og orrustan um Atlantshafið: I, H aú Mermamu r~g • anna Hér sjást þeir Sveinn Björnsson, Hermann Jónasson og Winston Churchill á svölum alþingis. stjórnmálaviðburðir á bak við innrásina á Ibsríuskaga, við tjöldin, að því er Morison „HVER SÁ, sem ræður ís- landi, heldur á skammbyssu, sem stöðugt er miðað á Eng- Iand, Bandaríkin og Kana- da,“ sagði þýzki hernaðar- fræðingurinn Karl Haushof- er. Þessi setning er endur- 'tekin í hihni nýju bók Sarn- uel Eliot Morisons um orrust una um Atlanitshafið, og frá- sagnir bókarinnar af þessum mikla hildarleik :sýna vel, að þessi orð voru sönn. ,,Það er auðséð,“ segir Morison, ,,að hafðu Þjóðverjar haft bæki- stöðvar á íslandþ þá hefði verið úti um samgöngur um norðurleiðina (um Atlants- haf).“ Morison byrjar á því að ræða um afstöðu stríðsaðila til sjóhernaðar almenní. Hann bendir á það, að bæði: Churchill og Roosevelt hafi haft m'ikir.n áhuga á sigling- um og sjóhernaði, ien Hitler hafi hins vegar lítið sem ekk- iert vit haft á þýðingu sjó- (her.naðarins. Hitler gerði sér Vonir um að Bretar yrðu hlutlausir, meðan hann legði undir sig megirnlandið. Eftir það ætlaði hann að snúa sér að eyjunum úti fyrir strönd- um álfunnar. Öll áherzla var lögð á landheri'nn og flugflot- ann, en þýzki flotinn va-r hvergi nærri undir það bú- inn að heyja víðtækan kaf- báfahernað. Hefðum við að- eins áft 1000 kafbáta, þegar stríðið byrjaði, hefði farið öðruvísi, sagði Dönitz aðmír- áll eftir stríðið- Þegar Hitler hafði lagt undir sig Frakkland 1940, byrjaði hann fyrst að hugsa sér ti:l hreyfings á Atlantshaf inu. Þá byrjaði hann, sam- kvæmí frásögn Morisons, að athuga hugsanlegar leiðir til að leggja undir sig eyjar At- Ianíshafsins, fyrst og fremst ísland og Azoreyjar, svo að hann gæíi boðið Ameríku byrgin. Sumarið 1940 jókst kaf- bátahernaður Þjóðverja mik- áð, enda voru þeir þá fyrst byrjaðir að auka kafbáta- byggingar sínar lað mun. Var meginþorri árásanna gerður á svæðinu milli Bretlands- eyja og íslands og, dálítið vestur á bóginn. Bretar höfðu misst mikið af smærri skipum sínum, þeim er hent- ugust eru til að gæta skipa- leista, við Dunkirk, og varð því ástand á hafinu verra og verra er líða tók á árið. Það var ekki fyrr en vorið 1941, sem Bandaríkin byrj- uðu að taka meiri eða minni' þátt í þessari baráttu, fyrst á bak við tjöldin og síðan í Vaxandi mæli á hafinu sjálfu, þar til þau urðu stríðsaðili í desember 1941. Frásögn Mo- risons er aðallega bur.din við hlut Bandaríkjanna og sögð frá þeirra sjónarhól og er at- hyglisvert að rekjia hana að 1: nokkru, að svo miklu leyti : sem ísland kemur þar við : sögu. ; Yfirflotaforingi' Bandaríkj i enna, Harold Stark, hafði oft ■ bent á það, hversu gagnlegt •" ísland gæti verið sem bæki- stöð fyrir skipalestir og flug- vélar. í apríl 1941 fyrirskip- aði Roosevelt honum að láta gera bráðabirgða athugun á íslandi, og var tundurspillir- inn. , Niblack“ valinn til þess. „Niblack“ var úti fyrir ströndum íslands 10. apríl, er hann rakst á björgunarbát hollenzks skips, sam sökkt hafði ver.ið, og var fólkið úr bátunum tskið um borð í tundu'rspilli'nn. Nokkru síðar heyrði vNiblack“ til kafbáts ■og kastaði á hann nokkrum djúpsprengjum. Hvarf kaf- báturiinn á brott án frekari (írása. Mun þeíta vera fyrsta , orrustan“ milli Þjóðverja. ög Bar daríkjainanr.a í etyrj- öldinni. Morison skýrir frá því í bók sinnii, að það hafi ekki verið fyrr en í þessum sama mánuði, sem Bretar gerðu Hvalfjörð að bækistöð fyrir fylgdarskip sín. Áður höfðu skipalestirnar verið fylgdar- lausar frá því herskipin, sem fylgdu þeim úr höfn að vest- an, yfirgáfu þau, og þar til herskip frá Bretlandi1 tóku við þeim. Var hinum litlu en olíufreku fylgdarskipum of- vaxið að fylgja skipalestun- um alla leið yfir hafið í þá tíð- Bretar áttu ekki nálægt því nógu mörg fylgdarskip til að gæta skipalestanna, en börðust vasklega gegn ofurefli í þessa tíð. Nú tóku þeir að sigla skipa- lestunum nýja leið vegna hinnar nýju bækistöðvar í Hvalfilrði. og var einnig sett upp ný bækistöð í St. Johns á Nýfundnalandi. Um þriggja vikna skeið. gafst þetta herbragð Breta' vel, og þýzku kafbátarnir gátu ekki fundið skipalest- irruar. Fyrstu skipalestirn- ar, sem sigldu þessa leið, fóru frá Halifax 27. maí, en friðurinn- var útí 24.—29. júní, þegar skipalestin HX 133 varð fyrir miklum á- rásum og sex skipum var sökkt. AZOREYJAR EÐA ÍSLAND? Meðan þessu fór fram á hafinu, gerðust mikilvægir skýrir frá. Þeir Churchill og Roosevelt voru nú teknir að ræðast við um ástand og horf ur á Atlantshaíi. Eftir að innrás Þjóðverja á Balkanskaga lauk. var al- mennt búizt við, að þeir mundu næst leggja undir sig Spán og.Portúgal. Hóf þýzka útvarpið áróðursherferð gegn Portúgölum, og dr. Sa- lazar varð mjög óttasleginn. Bjóst hann .til þess að verjast nokkuð á meginlandinu, en flytja síðan stjórn sína til Azoreyja og bað hann Breta að vsrnda eyjarnar. Church- ill ræddi þetta við Roosevelt, og varð það að samkomulagi, að Bandaríkin .skyldu senda her ti'l ej'jar.na^ ef til áinnrás- ar í Portúgal kæmi. Var land göngulið þjálfað í Bandaríkj- unum með hernám Azoreyja fyrir augum. Þá var það snemma í júní mánuði, að Churchill sann- færðist samkvæmt upplýs- ingum leyniþjónustu sinnar, um að Þjóðverjar hefðu hætt þar sem Spánverjar hefðu neitað að leyfa friðsamlegt herr.ám Spánar. í þess stað mundi Hitler ætla að ráðast á Rússa í júnímánuði- Það varð að samkomulagi mílli Churchills og Roose- velts, að Bandaríkin skyldu senda herlið til ís- lands í stað Azoreyja. Um þetta segir Morison: „Is- land var þegar mikilvægt fyrir vernd skipaíestanna - á norðurleiðunum yfir At- lantshaf, en nú nxundi þýð ing þess aukast, er senda ætti hjálp til Rússa um Archangelsk. Bretland tók því að sér að útvega opin- bert ,,boð“ til Bandaríkj- anna frá Islendingum, og það var undirbúið að senda landgönguiiðið til Hvalfjarðar í staðinn fyrir Horta.“ FLOTADEILÐ NR. 19 í fyrirskipun sem Stark aðmíráll sendi Ernest J. King aðmírál, yfirforingja Atl'ants hafsflota Bandaríkjanna, 16. júní 1941, segir meðal ann- ars: , Forsetinn hefur skipað svo fyrir að amerískt herlið skuli leysa brezka setuliðið á íslandi af hólmi.“ Stark fyr- irskipaði King síðan að hafa herlið og skip tilbúin til far- arinnar, Þannig segist Moriíson frá og heldur hann síðan áfram: „Það var látið líta svo út, sem þetta skref væri stigið samkvæmt sameiginlegrii ósk íslenzku og ensku ríkisstjórn anna. Bretar vildu nota setu- lið sitt annars staðar. íslend- ingar óskuðu eftir vernd, en óttuðust Þýzkaland mjög og voru á háðum áttum um það, hvort þeir ættu að óska eftir vernd. Hermann Jónasson forsætisráðherra bað ekki um verndina fyrr en Winsíor Churchill hafði lagt mjög fast að honmn, og var það 7. júlí 1941, um leið og fyrsta lið okkar sigldi inn á höfnina í Reykjavík.“ Það var flotadeild nr. 19 úr ameríska Atlantshafsflot- anum, sem sigldi inn á Reykja-víkurhöín 7. júlí 1941. Flotadeildin var undir stjórn David McDougal Le- Breton aðmíráls, og var hann á orrustuskipinu „New York“- Auk þess var orrustu- skipið ,,Arkansas“ í flotan- uin, bsitiskipin „BrookIyn“ og „Nashville1', þrettán tund urspillar og átta önnur skip, þar á m'eðal herflutninga- skip, olíuskip og einn dráttar. bátur. Landgöngulið það, sem þessi floti flutti til fslands, var skipað 194 foringjum og 3714 hermönnum, og var það undir forustu John Mar- stons, brigadier-generals. —— Morison segir í kaflanum um þetta, að Hermann Jónasson hafii beðið um „valið lið“ og hann hafi sannarlega fengið það. (íslendingar munu hafa átt við ,,valið lið“ á annan hátt ■— menn, sem góðilr yrðu í sambúð, frekar en vel þjálfaða hermenn.) Lið þetta, sem var úr land- gönguliði flotans (Marine Corps), var í San Diego á Kyrrahafsströnd Bandaríkj- anna, þegar því var skipað að- búa sig undir landgöngu í Karabiska hafinu. Var al- menn.t búizt við, að með þessu væri átt við hemám Martinique og var liðinui skipað að búast beztu vopn- um og taka varalið með. Nokkuð af liðir.u sigldi um Panamaskurðiinm, en sumt ferðað’ist með járnbraut til Charleston í Suður-Karólínu ríki á Atlantshafsströndinni. Þegar þangað kom brá svo við, að hermönnunum voru fengiin hlý nærföt,*. og vakti það undrun mikla. 22. júní var svo lagt úr höfn og siglt til Argen'tia á Nýfundnalandi þar sem Bandaríkin höfðu bækistöð. Herskipunum, sem voru í ,flotadeild 19“, var einnig stefnt tdl' Argentia. Þar beíð svo aliur flotinn tilhúinn í tvo daga, meðan beðið var eftir samþykki íslendinga, a'S því er Morrison segir frá. Lagt var í haf 1. júlí, og gekk ferðin viðburðalaust, nema hvað tundurspilliriinn „Hug- hes“ bjargaði 14 skipbrots- mönnum af norsku skipi, semi sökkt hafðii verið. Meðal. bs'irra voru fjórar amerískar hjúkrunarkonur. Þegar til Reykjavíkur kom, fók skozk sekkjapípu- hljómsveit á móti herliðinu, og mun flestum Reykvíking- um sá dagur miinnisstæður. ífoúð éikas! 1—2 herbergi og eldhús, helzt í miðbænum. Upp- lýsingar í afgreiðslu Al- þýðublaðsins í síma 4900. NÝLEGA er komin út í Bandaríkjunum athyglisverð bók, sem fjallar um þátt Bandaríkjanna í orrustunni um Atlantshafið. Bókin heitir; „History of United States Naval Operations in World War II. Volume I: The Battle of the Atlantic“ og er eftir Samuel Eliot Morison, prófessor við Iíarvard háskóla, sem á stríðsárun- um var fremsti sagnfræðingur amer ikska flotans. Þar sem margt kemur fram í bók þessari er varðar ísland á þessum árum, þykir bláðinu rétt að skýra frá því í nokkrum grein- um. Gæti það orðið eitt innlegg í Morison. sögu íslands á stríðsárunum, og þátt íslands í styrjöldinni. Sú saga verður þó ekki vel skrifuð fyrr en margar heimildir hafa verið athugaðar, og er þessi ameríkska frásögn aðeins ein slík.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.