Alþýðublaðið - 20.04.1948, Blaðsíða 3
r
Þriðjudagur 20. apríl 1948.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
BÆKUR OG HÖFUNDA
Skáld speglar sig á almannafæri
Ólafur Jóh. Sigurðsson-
færaisit um, að hann fái notið
slíkrar liistar svona nokkurn
veginn eins og til verði ætl-
azt af dauðlegum manni. In
te, domine, speravi — ha?
Þetta mundii þó ekki vera lat
ína, lasm? . . . Ég skal bæta
þér til: Adagio molto e canta
bile — andante moderato! Er
þetta latína, eða er það í-
talska eða máski þú haldir,
að það sé málið, sem þeir tala
í Mahabarata? . . . En nú hef
urðu gott af að heyra um
fleira en músíkk, karl
minn! . . . Og lesandanum
skilst það mætavel, að höf-
undurinn þekki skartgripa-
verzlanir, veitingastaði, kvik
myndahús og hvað annað í
New York eins og þú her-
bergiskompuna. sem þú hír-
ist í hér á þessu kalda ey-
landi — og þarna rigmir nið-
ur Riverside Drive, Eiízabetu
Arden, Beauty Salon for
Dogs, Stockholm Restaurant,
Rockefeller Center Three
Crowns, Casino Russe, Corn
eliusi Codolgan og Barbizon
Plaza — og slagari er íil
taks. Jamm! ... I Vér höfð-
ingjarnir, sem er langlengsta
sagan, er sagt frá heldur en
ekki ólánlegum náunga, sem
tekst þó á styrjaldarárunum
að græða allmikið fé og í
sögulok er mjög líklegur til
frama í stjórnmálum, enda
notar sér það óspart, sem
Ólafur auminginn trúir að sé
raunveruleg staðreynd, en
það er óskapleg fíkn íslenzkra
borgara í að selja landóð —
manni gæti næstum dottið í
hug undan sér og sínum —
vestur um haf! Þessi saga
hefði hreint ekkíi þurft að
verða svo afleit, ef höfundur
hefði í fyrsta lagi fellt fram
an af henni kaflann um
Nonna litla, en auðvitað
finnst höfundi sá kafli dýr
gripur og Nonni Ijómandi
drengur. í öðru lagi haft vit
á að vera ekki að flíka sem
heillögum sannleika því
kommúnistíska áróðursslúðri
(Framh. á 7. síðu.)
Nýtt meistaraverk eftir Maugham
ÓLAFUR JÓHANN SIG-
URÐSSON lét prenta. eftir
sig tvær bækur árið, sem
leið. Önnur þeirra er Lit-
brigði jarðarinnar, snotur og
listræn skáldsaga, hin heitir
Speglar og f'ðrildi, og hefur
hún að flytja sex smásögur.
Útgefandi bókarinnar er
Helgafell, og er hún að öllu
mjög vel út gefin.
Það er og auðsætf á sögun
um, að höfundurinn kann góð
tök á máli og stíl, og enn frem
ur getur enginn gengið þess
dulinn, að hann vill' vanda
sig- Er þetta hvort tveggja
góðra gjalda várt.
En svo . . . Já, hér skal nú
stinga við fótum.
Prófessorinn er allgóð
saga, þó að stíllinn sé nokkuð
líflítill og silalegur á köfl-
um. Sagan Viðnám er og vel
formuð, enda ekki mjög vand
gerð, ekki lengra en farið er
út í þá sálma, sem þar eru
sungnir. Dulið erindi er hins
vegar smíð, sem krefur mikils
af höfundi- og liggur nærri,
að honum takiist að ganga frá
henr.i eem sérstæðu Ijsta-i
verki. Gerð hennar er þan,n-
ig, að hvorki má fara of stutt
né of langt, án þess að lítið
verði, úr því, sem vel er til
stofnað. Höfundurinn fer of
stutt — og kæmi mér ekki á
óvart, þó að mörgum skilgóð
um lesanda 'tækist alls ekki
að eygja það, sem til er ætl-
azt. Blindi drengurinn heitiir
enn ein sagan- og er hún mun
lakari en nokkur hinna. sem
ég þegar hef nefnt, höfund-
urinn veltandi vöngum yfir
tveim efnum. sem stangast,
kéttlingi og sálmalagi — og
er varia von, að vel fari. En
þá er nú komið að garminum
honum • Katli — sögunum
Myndin í speglinum og Ní-
unda hljómkviðan og Vér
höfðingjarnir.
Myndin er saga, sem sýnír
gjöría- að höfundurinn er
orðauðugur, kann vel að fella
orð í eðlilega saanstöðu og
veit glögg skil á tengslum
setninga. Það er alveg auð-
sætt, að hann hefur lagt sig
■fram, legið yfir þessar.i sögu.
En jafnglöggt er hitt, að hann
hefur þarna eytt tíma, þekk-
ingu og kunnáttu í verra en
ekki neitt, því að þá er les-
andinn hefur pælt í gegnum
söguna, situr hann og glott-
ir heldur en ekki ónotalega
a höfundarins kostnað. gott
ef hann fussar ekki líka. Les
andanum virðist sem isé auð-
sætt, að sagan sé eingöngu
skrifuð til þess að sýna, að
höfundurinn sé isvo sem ekki
lengur neinn Graíningsdreng
ur — gott ef hann hafi nokk
urn tíma verið það! Hljóm-
lÍGtarkaflinn á að upplýsa um
að sá, sem þíi hefur
kannski haldið að kynni ekki
skil á öðru en munnhörpu
gargi, harmoníkuskarki og
spóavelli, sé heldur en ekki
að sér' í hinni æðri tónlíst,
enda hafi hann setið og hlýtt
á slíka list dögunum oftar í
helzitu hljómliisitarhöllum
milljónaborgarinnar New
York, — og þú átt að sann
ÞAÐ eru mikil og góð tíð-
indi, að á einu og sama árinu
skuli gefnar út í prýðisvönduð
um útgáfum íslenzkar þýðingar
á tveimur af frægustu og viður
kenndustu skáldsögum víðkunn
asta núlifandi rithöfundar
Breta, en hann er jafnframt í
fremstu röð * meðal smásagna-
höfunda og skáldsagnahöfunda
heimsins. Um svipað leyti og
bókaútgáfa menningarsjóðs og
þjóðvinafélagsins sendi á út-
líðandi síðasta ári skáldsögu
W. Somersets Maughams, Tungl
ið og tíeyringur, inn á um
12000 heimili hér á landi, kom
önnur skáldsaga Maughams, IJf
og leikur eða skuggi fortíðarinn
ar, út í íslenzkri þýðingu Skúla
Bjarkans á vegum Prentsmiðju
Austurlands, sem rekur nú orð
ið umfangsmikla bókaútgáfu og
hefur gefið út nokkrar ágætar
bækur.
Fyrst í stað mætti ætla, að
hér væri um að ræða þýðingu á
skáldsögu Maughams, Theatre,
en hún birtist sem framhalds-
saga hér í blaðinu fyrir örfáum
árum og var í þýðingunni ein-
mitt nefnd Líf og leikur. Þýð-
ing hennar var með miklum á-
gætum, og hefði því verið með
öllu ástæðulaust að þýða hana
upp á ný, þótt ráðizt væri I að
gefa hana út í bókarformi, en
það væri sannarlega ekki illa
til fundið, því að sagan er í senn
frábærlega listrænt byggð og
einstaklega skemmtileg aflestr-
ar.
Við nánari atliugun reyndist
þetta þó ekki ný þýðing á
Theatre, heldur þýðing á skáld
sögunni Cakes and Ale, en það
er álitamál, hvor sé bezta skáld
saga Maughams, hún eða Tungl
ið og tíeyringur, — en bezta
bók hans hinna stærri er tví-
mælalaust Of Human Bondage,
sem er sjálfsævisaga í skáld-
söguformi. Mestum listræn-
um árangri hefur W. Somerset
Maugham þó náð sem smásagna
höfundur, þótt hann eigi skáld-
sögum sínum og leikritum mun
fremur að þakka frægð sína og
lýðhylli. /
Cakes <and Ale kom út í
heimalandi höfundarins árið
1930 og hefur að sjálfsögðu fyr
ir löngu verið þýdd á mál
I flestra siðmenningarþjoða. List
rænt gildi sögunnar er ekki
hvað sízt fólgið í byggingu
hennar, sem er sannkallað
meistaraverk. Efnislega minnir
sagan helzt á Theatre, söguna,
sem með sanni ber heitið L:f og
leikur, og mun hafa átt meiri
vinsældum að fagna en flesíar
aðrar framhaldssögur íslenzku
blaðanna um langt skeið. .Betri
meðmæli er varla hægt að gefa
þessari bók við lesendur Al-
þýðublaðsins. Efni skáldsögu
þessarar verður ekki rakið hér,
enda er slíks varla kostur nema
í löngu máli. En lesendum skal
á söguna bent og henni gefin
framanskráð meðmæli. Eftir
það má ætla, að vandlátir les-
endur Iáti hana naumast fram
hjá sér fara.
W. Somerset Maugham er mik
ill meistari í skáldsagnagerð,
og Líf og leikur er eitt af glæsi
legustu en vandgerðustu meist
araverkum hans. Þýðing Skúla
Bjarkans er góðra gjalda verð,
þótt á henni séu misfellur, og
frágangur prentsmiðju og út-
gefanda er með miklum mynd-
arbrag.
syngur þjóðlög frá ýmsum löndum. Alveg nýtt
prógram
með aðstoð
í Austurbæj'arbíó föstudagskvöld kl'. 9.
s
?
Aðgöngumiðar á 10 krónur hjá Eymundsen,
< »
t
' Blöndal og Bækur og Ritföng. \ í
: :
{ '
Ný bók eftir MARY O'HARA:
Grænsr hagar
Bækur Mary G:Hara
hafa böðskap að flytja.
— Boðskapurinn, sem
Grænir hagar flytj-a les-
endunuan frá höfundin-
um, er vitnisburður hans
um kærleikann og sam
úðina á öllum sviðum
lífsins, hvort heldur er í
einkalífi fjölskyldunnar
á hjarðbýlimr Gæ'sa-
tanga, viðskiptum m;anna
bver við annan, skjlnáng
á dýrunum og samúð,
sem skylt er að! sýna
þeim. Og síðast en ekki
sízt kærleikann til jarð-
arinnar, sem elur menn
og málleysinigj'a.
Hann er hrópandans rödd til allra, um að breyta eyði-
mörkum og örfokalandi í Græna haga.
Grænir hagar er þriðja bókin, sem birtist á íslenzku
eftir skáldko.nuna. Hinar tvær eru Trygg ertu Toppa og
Sörli sonur Toppu, sem báðar haf a hlof
ið mifclar vinsældir lesenda á öllum
aldri. Grænir hagar eru lengdir fyrr-
nefndum sögum þannig, að fjölskyld-
an á hjarðbýlinu Gæsatanga og ann-
að heimilisfólk, ásamt Toppu og Sörla,
kemur þar við sögu.
Grænir Iiagar er hrífandi saga og falleg gjöf
handa hverjum sem er í fjölskyldunni.................
Elernit þakskifur ;
v ■
Engin b
máhiing. L
Ekkert >
viðhald. ;
Odýrara
en
allt
annaS
þakefni
Einkaumboð:
Óiafur R. Sjömsson &
Sími
Auglýsíð í k\
Helgi Sæmunclsson.