Alþýðublaðið - 22.04.1948, Blaðsíða 11
bí v' i ? rrqB. ./£ h,
Fimmtudagur 22. apríl 1948
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
11
Gleðilegt sumar!
Kjötbúðin Borg.
Gleðilegí sumar!
Slippfélagið í Reykjavík.
GLEÐILEQT SUMAR!
Soffíubúð.
GLEÐILEGT S U IVS A R !
Lúllabúð.
GLEÐILEGT SUMAR!
Heildverzl. Ásbjörn Ólafsson,
Grettisgötu 2.
GLEÐILEGT SUMAR!
^ 00 MÁIN.N04«ví^
GLEÐILEGT SUMAR!
Á. Einarsson & Funk
Nora-Magasin
GLEÐILEGT SUMAR!
In memoriam
Jón Vigfússon.
HORFINN er íbúum
höfuðstaðar
garðyrkjumaðurinn
glaði og prúði,
hann, sem átti
hið u n g a hjarta
og bróðurbönd,
sem blómum hlúði.
Kveð ég þig, frændi.
Kær mér varstu;
vildi ég sem oftast
við minn arin
hafa þig, — gest
til gleðiauka, —
þykir tómlegt,
er þú ert farinn. —
Málglaður varstu
mörgum fremux-, —
einskis nýtu
þó oftar blaðri.
Minnist ég fárra
manna eða kvenna
grandvarax-i
eða geðþroskaðri.
Ljúfara var þér
lifi að hlúa
heldur en sveifla
hvössum bröndum,
og um margan
ungan gróður
mjúkum fói-stu
móðurhöndum.
Djúpri alvöru
og dulúð þiunginn
bærðist þér
í bi jósti strengur, —
gazt þú verið
glaður næsta
og skemmt þér eins og
ungur drengur.
Hlegið gaztu
hjartanlega.
Glampaði veig
á gleðiskálum.
Eins og værirðu
ör af víni
gerðirðu margt
að gamanmálum.
Þótti mörgum
við þig að ræða
gott og nytsamt
í góðu tómi.
, Einlægninnar
yndisþokki
fylgdi þér eins og
ilmur blómi.
Farið var loks
þitt fjör að dvína.
Ýmsir vágestir
að þér sóttu.
Lokið er stríði,
leystir fjötrar. —
Friðar, hvíldar
og freisis njóttu.
Gleymi ég, frændi,
glaðar stundir
sasnvista okkar
í sefa mínum.
Og lengi munu
við lýðum brosa
minningablóm
á moldum þínum.
Gretar Fells.
Jarðarför mannsins míns,
Sfefáns Ounnarssonar
kaupmanns,
fer fram laugardaginn 24. aprU frá Fríkirkiunni og
hefst með húskveðiu frá heimili okkar, Hringbraut
116, klukkan 1 eftir hádegi.
Sigríður Benediktsdóttir.
Jarðarför
Jéns Vigfússonar
garðyrkjumanns,
fer fram á morgun, föstudaginn 23. þ. m., frá Frí-
kirkjunni. Athöfnin hefst kl. 1,30 e. h.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Vandamenn.
Verzlunin verður lokuð
allan daginn laugardaginn 24. aprd vegna
jarðarfarar.
Sfefán Gunnarsson h.f., skóverzlun.
Hjartanlega þakka ég hinum mörgu
vinum og vandamönum, sem á ýmsan
hátt gerðu mér 60 ára afmælisdaginn
ánægjulegan.
INGIBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hörpugötu 9.
INNILEGAR ÞAKKIR fyrir mér auðsýnda
virðingu og vinsemd á fimmtugs afmælisdegi
mínum, 16. apríl. Hjörtur Nielsen.
| Gleðilegí sumar!
: H. Benediktsson & Co.
GLEÐILEGT SUMAR!
l Kolasalan h.f.
o í GLEÐILEGT SUMAR!
■ Verzl. Ben. S. Þórarinssonar,
% Laugavegi 7.