Alþýðublaðið - 22.04.1948, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 22.04.1948, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLABIÐ Fimmtudagur 22. apríl 1848 r' Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h-f. Á að feyfa að falsa 1. maí! ÞJOÐVILJINN heldur á- fram hlekkingum sínum og þvaðri í tilefni af deilunni um 1. maí. Auðvitað forðast hann nú sem ávallt, að ræða aðalatriði málsins, heldur æpir dag eftir dag ókvæðis- orð og fúkyrði um andstæð- ^inga sína og staðhæfir, að þeir hamist gegn hinum al- þjóðlega baráttudegi verka- íýðsins! Þebta er táknrænt fyrir málflutning kommúnista. Ef þeim gefst ekki kostur á því að reka flokkspólitískan á- róður sinn og beita verka- lý ðshreyf i ngunni á íslandi fyrir vagn sinn 1. maí, þá er verið að hamast gegn hinum alþjóðlega báráttudegi verka- ■lýðsins, hvorki meira né minna! * I þessu sambandi er sann- arlega ekki að ástæðulausu að minna kommúnista á, hver er saga hátíðahalda verkalýðsins á Islandi 1. maí. Alþýðusamtökin og Alþýðu- flokkurinn gerðu í samein- ingu 1. maí að hátíðisdegi verkalýðsins. Svipur dagsins mótaðist ekki af flokkspóli- tiskum áróðri, heldur af sam- eiginlegum hagsmunamáium og hugðarmálum verkalýðs- ins, þar til kommúnistar komu til sögunnar og breyttu hátíðahöldunum 1. maí í flokkspólitískan áróður fyrir sig. Meðan hin upprunalegu viðhorf einkenndu hátíða- höldin, ríkti einhugur um 1. haí, og verkailýðurinn fylkti liði undir merkjum sínum, samtaka og samhuga. En á- hrifum kommúnista fylgdi sundrung og árleg óánægja með daginn. Og svo eru sundrungarseggirnir, menn- irnir, sem lagt hafa alla á- herzlu á að breyta glæsimynd baráttudags verkalýðsins í skrípamynd, að saka aðra um sundrungu og filraunir til að eyðileggja hátíðahöld dags- ins! * Þjóðviljinn er fáorður um hið hneykslanlega bréf Al- þýðusambandsstj órnar innar til sambandsfélaganna varð- andi 1. maí. En kommúnista- blaðið er þó skrifað af mönn- um með sama hugarfari og sama pólitísku uppeldi og bréfritarar Alþýðusambands- stjórnarinnar. Þess vegna er málflutningur þessara aðila einn og hinn sami. Það þarf ekki annað en lesa Þjóðvilj- ann til þess að sannfærast um, hvað fyrir kommúnist- um vakir. Þeir vilja nota 1. maí til að reka áróðurinn, sem Þjóðviljinn bergmálar úr miðstöðvum kommúnista innan lands og utan: Ríkis- stjórnin á að vilja koma á úr Dal. EKKI LÝST MÉR Á VÖR- ÖLDINA. Kaþólska kirkjan og kommúnisminn skipía þjóðum á milli sín. Blind trú, dogmur, prestavald annars vegar — blind ofstæki, blóðugt hatur hins vegar. — Svartir munltar og enn svartari prestar á aðra hlið með halarófu af hálfblindu fólki á eftir sér. — Og, sam- vinzkulausir ævintrýamenn, sem spekúlera í örvæntingu hælislausra milljóna, á hina, — með hálfblindan lýð á eftir sér. — Nei, ekki er það gott. — En sleppum þessu. — Ég fékk sumarbréf að norðan, og það er bezt að lofa ykkur að lesa það: DALADRAUGUK SKRIFAR; „Fréttirnar að sunnar segja okk ur norðurbúum, að lóan sé kom in til Reykvíkinga. Þykja okk- ur vortíðindin góð. Blessað sumarið er í nánd. Hlýir straum ar taka að flæða um vegi blá- geimanna og bræða hvítan snjó- inn af grænni dalajörð og svört um klettafjöllum. Vissan um sumarið hleypir helgiþrung- inni lofgjörð í sálir manna og dýra; og sólskinið, sem enn nýt- ur sín ekki til fulls, vegna ís- kulda í norðrinu, eins og brosir í gegnum tárin til okkar. Það vill segja: Bráðum eru allir geislarnir frjálsir úr einræðis- fjötrum hörku kuldans — og þá kemur vorið.“ „OG LÓAN FYRIR SUNN- AN færir sig norður. Góði fallegi fuglinn! Það á að fara að taka hana fram yfir gang- Lóuna. Fluglóan syngur bj bí dýrðin. Það gerir ganglóan ekki beinlínis, enda á það enginn skilið. Strætin í borgunum eru gráköld flesta daga ,en í hléum •milli skugga brosa þau líka, eins og annað, sem fagnar vor inu, og í því brosi þykjast sum- ir sjá, þótt kynlegt megi virð- ast, tillilökkun mikla ertir hlýju sumarsins og nýju r-g góðu malbikslagi.“ „En Á MEÐAN veröldin býr sig undir nýtt, elskulegt sum- ar, sitja og standa hinar lif- andi verur öðrum þræði inni í heimi endurminninganna frá vetrinum og syndir skammdeg- isins svífa framhjá í fylkingum, í líki orða og gjörða g særa mjög. En beint í opm sárin koma þá ef til vill skyndilega einhverjir sólskinssvipir frá at- höfnum betri strengja liverrar sálar. Það þarf ekki nánar að útskýra þau fyrirbæri." „SENN VERÐUR ÞVÍ LAGT upp í margar langar sumarferð- ir, um óðal og ólíkar leiðir. Hvarvetna þar sem stígið er spor við störf og dægradvalir, eru að hefjast pílagrímsgöngur inn í ríki sumarsins. Einkum verður sumardagurinn f/rsti stund þessara langþráðu og létt bæru erfiðis-ætlana. Lífið hef- ur alltaf verið þannig, að ver- ur þess kusu staði og stundir til fórnfæringa margs konar. Á sumardáginn fyrsta er hver gjöf og heillaósk, hvert hátíða- brigði i klæðnaði, viðmóti og veitingum, — ein slík fórn til sumarguðanna. Hátíðaskapið er tilraun til að ná samúðarsám- bandi við innstu krafta tilver- unnar, æðstu og beztu valda- verur, færa þeim hug sinn í heilli hlýju og vænta blessunar þeirra og verndar. Og þá fyrst er þessar fórnir hafa verið fram kvæmdar og íramkallað vissu um öryggi sumarsins í hverri sál, taka önnur og smærri a:- riði, að krefjast athyglinnar.“ „FJALL RfS í FJARSKV, bylgja úti fyrir fjarðar minni. Lauf í garðinum blaktir í blæn- um og álfur gægist út á milli pottarósanna í glugganum. Vor blærinn eltist við hádegisgeisl- ana og í dalaskjóli er hópur úti- gangslrrossa að leik, því að gaddurinn og rokið er órafjarri. Jafnvel eitt snöggt kuldakast, önugt vorlrret, getur ekki gabb- að neinn. Það er stundarfyrir- brigði. Og bak við það: heill flaumur af voryl.“ Félag Suðurnesjamanna Rvík. Þeir, sem hafa hugsað sér að Iieiðra minningu Stefáns Gunn arssonar kaupmanns, er bent á að Félag Suðurnesjamanna hef ur stofnað Líknar- og styrktar- sjóð til minningar um hinn látna. Minningarspjöldin verða afgreidd í skrifstofu formanns félagsins, Friðriks Magnusson- ar, Vesturgötu 33. þrælalögum, minnka at- vinnu, efla dýrtíð, drepa ís- lenzkan iðnað, hætta að byggja íbúðir, selja- fram- leiðslutækin úr landi, segja Rússum stríð á hendur og selja landið. Fyrir þessar upplcgnu sakir á að hefja á- róðurshríð á hendur ríkis- stjórninni 1. maí. En jafn- framt á að lofa harðstjórn og ofbeldi Rússa, baráttu þeirra gegn Marshallhjálpinni við Vestur-Evrópu og lýsa yfir velþóknun íslenzkrar alþýðu á valdráni kommúnista í Tékkóslóvakíu, réttarmorð- um þeirra, ofsóknum og kúgun. Þjóðviljanum er ekki of gott að eyða bleki, pappír og prentsvertu í málflutning I hans er stuðningur við að- varanir Alþýðublaðsins til verkalýðshreyfingarinnar. Is- lenzk alþýða mun líka áreið anlega verða á verði gegn hinum kommúnistísku flugu-, mönnum 1. maí. Hún mun ekkí láta kommúnista nota sig þann dag til þess að lasta frelsið og lýðræðið, en lof- syngja kúgun og einræði. Hún hefur ekki háð baráttu sína til þess, að leiða nýja miðaldaharðstjórn yfir land ið. Sumri heilsaS SUMARDAGURINN FYRSTI hefur löngum verið Þær stúlkur, sem hafa í hyggju áð sækja um skólavist næsta vstur, gjöri svo vel að senda um- sóknir sínar sem fvrst eða fyrir 15. maí n.k. — Allar nánari upplýsingar gefur VALBORG SIGURÐAR- DÓTTIR, Eiríksgötu 37. SLmi 7219. annyrðasýnlng nemenda minna verður opnuð kl. 2 í dag (1. sumardag) í húsi mínu, Sólvallagötu 59. — í þetta sinn fá sýningargestir tækifæri til að sjá fjölbreytta liti í þrenns konar ísaums- garni, sem ég nota til listsaums. — Litirnir í þessu litasafni eru 2600 að tölu. Júlíana M. Jónsdóttir. Flugferð fil Noregs. Fjögurra hreyfla Sandringhamflugbátur, frá Det Norsk Luftfarts-Selskap, kemur til Reykjavíkur n.k. laugardag. Flugbáturinn fer aftur til Stav- anggr sunnud. 25. þ. m. kl. 10.30 og getur tekið farþega til Noregs og D'anmerkur. Væntanlegir farþegar snúi sér til skrifstofu vorrar, Lækjar- götu 4, sem veitir allar nánari upplýsingar. Fiugfélag Ísíands h.f. Tilfcoð óskast í húsið nr. II við Sólvallagöíu. Réttur áskilinn tli að, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Tilboð merkt: „Sólvallagata 70“, sendist undir- rituðum fyrir 25. þessa mánáðar. ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON HRL. % Austurstræti 14. sinn út af 1. maá. Hvert orð mikill hátíðisdagur á Islandi og svo er enn. Um ástæðurn- ar til þess þarf ekki að fjöl- yrða. Fáar þjóðir hafa slíka ástæðu til að fagna því, er vetur kveður og sumar heils- ar, og einmitt Islendingar. Og fögnuður þeirra yfir sumar- komunni hefur aldrei farið dult. Nú um mörg ár hefur sumardagurinn fyrsti verið helgaður börnunum. Þá safn- j ar Barnavinafélagið Sumar- gjöf fé til hinnar umfangs- miklu og þjóðnýtu starfsemi sinnar. Það iþairf áreiðanlega ekki að hvetja fólk til þess að láta nokkuð af hendi, rakna í sameiginlegan sjóð yngstu borgaranna þennan dag. Það fer vel á því, að sumurdagur- inn fyrsti sé helgaður börn- unum, það er táknrænt og vel til fallið. Við höfum nú getið okkur mikinn orðstír [fyrir drengilega hjálp við börn annairra landa. I dag sýnum við, hvað við viljum gera fyrir okkar eigin börn. Við sumarið, sem í dag heilsar, eru miklair vonir bundnar. Sumarið hefur ver- ið óg er enn kallað hábjarg- jræðistími ársins. Vonandi veitir hið .komandi sumar okkur árgæzku og farsæld. Gleðilegt sumar!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.