Alþýðublaðið - 12.05.1948, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 12.05.1948, Blaðsíða 1
Veðurhorfurs Norðaustan kaldi, léttskýjað. * ARNULF ÖYERLAND, ! norska skáldið. ksmur hingað j til lands 19. þessa mánaðar. ! Barst ritara norræna félags- i ins skeyti þess efnis.-Mun Öv . erland þá væntaniega flytja fyrs-ta fyrirlestur sinn 20. þ. m. LUIGI EUNAUDI prófess- or var í gær kosinn forseti Ítalíu með 580 atkvæðum, er kosið var í fjórða sinn. Pró- fessorinn ei’ 75_ árá, kenndi áður í Torino og Milano, en hefur verið sérfræðingur í stjórninni um hríð. í síðustu kosningunni var Orlandu stillt upp gegn Eunaudi. r A [hurchil! fagnað ákaf! íOslo. WINSTON CHURCHILL kom i gær flugleiðis til Osló frá Haag, og fagnaði geysi- legur mannfjöldi honum, er hann ók um göturnar til kon- ungshallarinnar. Er þangað var komið, hrópaði mann- fjöldinn: ,,We wanit Churc- hill,“ þar til hann kom fram á hallarsvalirnar með vindil- inn í hendinni. í gærkveldi hélt Hákon konungur Churchill kvöld- verð í höllinni, en Churchill og frú hans eru gestir kon- ungs, meðan þau eru í Osló. Lögreglan auglýsir effir 37 ára konu. FIMMTUDAGINN 6. þ. m. fór Guðrún Runólfsdóttir, 37 ára, frá Melshúsi við Einars- staði, þar sem hún hafði ver- ið í vist nokkra daga, og hef- ur ekkert til hennar spurzt síðan. Hún er hávaxin og feitlagin, svarthærð og með brún augu. Var hún í hvítum kjól, gráum svagger, rauðum skóm og með skýlu um höf- uð. Rannsóknarlögreglan ósk- ar upplýsinga, hafi nokkur séð Guðrúnu eftir 6. þ. m. KONUNGUR TRANSJÓR- DANÍU hefur gefið út til- kynningu um að varnarher Araba í Palestínu sé leystur upp og reglulegir herir taki við störfum hans. Hann gagn- rýndi Arabaráðið í landinu helga. Vafasamt er talið, að konungur hafi nokkuð vald til slíkra yfirlýsinga. XXVIII. árg. Miðvikudagur 12. maí 1948 105. tbl. Forustugreini Hreinskihiari en Brynjólfur og Einar. * * monnum mjög á óvar! bæöi í Washinoton ÍJLTcoí Bede'.l Smith, sendiherra Bar.daríkjanna í Moskva (t. h.), sem afhenti Molotov orðsendinyuna. TILKYNNING SU, sem jrefin var út skömmu eftir mið nætti í fyrrinótt þess efnis, að Bandaríkin og Rússar hefðu skipzt á crSsendingum um sambúð Þjóðanna, og boðið rúss um íil viðræðna, liefur vakið geysilega aíltygli um allan hehn. Frásögn Rússa af viðræðunum kom öllum á óvart, ekki sízt Bándaríkjamönnum sjálfum, sem virðast ekki hafa búizt við því, að Rússar mundu taka orSsendingu þeirra eins og beir gerðu. yndmenii mm mmm sfiir m *» t^ keppni og setiu jsrjú nf me! ÍSLENZKU SUNDMENNIRNIR sigrúðu Norðmennina í land-sképpninni, sem endaði í gærkvöldi, með 52í^ stigi gsgn 46VS. Kom tvöfaldur sigur íslenzku piltanna í bak- sundinu mjög á óvart og varð íslendir.gum drjúgur að stig- um. Þrjú Islandsmst voru sett í gærkvöldi, og norska sund fólkið náði einnig ágætum árangri, nærri norsku metunum. Fögnuður áhorfenda var geysilegur og hefur keppnin orðið keppendum beggja landa til árægju og sóma. Fyrsta greinin, sem keppt var í, var 400 m frj. aðferð karla: 1. Ari Guðm. íslandi 5:09,6 (nýtt met). 2. Egil Groseth, Noregi 5:17,3 3. Thor Bryn, Noregi 5:41,8 4. Ólafur Diðriks., íslandi.5:41,8 Ari hafði yfirburði og fór mjög geyst af stað, svo hratt, að . hann mun hafa synt fyrstu 300 metrana mndir meti sínu, eða á 3:47. Keppnin mill Thor Bryn og Ólafs var afar hörð og mátti ekki á milli sjá hvor bet- ur 'hefði, svo dómarar dæmdu þá jafna. og skiptu . stigunum milli þeirra, þannig að hvor hlaut 1,5 stig. Stig eftir þessa grein: ís- land: 30,5 stig — Noregur: 24,5 stig.» Næsta greinin var 100 m. frj. aðf. kvenna: 1. Liv Staib, Nóregi 1:14,2 2. Bea Balintijn, Noregi 1:14,5 3. Kolbrún Ólafs., íslandi 1:15,3 (nýtt met) 4. Anný Ástráðs®., íslandi 1:19,4 Það var varla við öðru að bú ast en að svona færi, og er frammistaða Kolbrúnar prýði- leg. Hún hélt í við norsku stúlk urnar í 75 metra, og dróst ofur lítið aftur úr á síðustu leiðinni. Stig: ísland: 33,5 — Norð- menn: 32,5. 100 metra baksund karla: 1. Ólafur Guðm., íslandi 1:17,4 2. Guðm. Ingólfs, Islandi 1:18,2 3. Knut Belsbv, Noregi 1:19,3 4. Birger Jacobs., Noregi 1:21,9 Þessi úrslit voru algerlega ó- v;ænt, og þau sneru óvissum og kvikulum. vonum íslendingana upp í sigurvissu, því varla var nú bugsanlegt að Norðmenn myndu vinna, stigin stóðu 41,5: 35,5, nema með því að vinna boðsundið, sem vitað var að var ein allra öruggasta grein íslend inganna. Ólafur ■ Guðmundsson er karl, sem er harður í horn að taka, ef hamx vill það við haf a, hvor.t sem 'hann syndir á bringu eðu baki. Haim vann mest á síð- ustu 25 metrana.- 100 metra baksund kvenna: 1. Bea Balintijn, Noregi 1:20,9 2. Kolbrún Ólafsd., ísl., 1:26,7 (nýtt met). 3. Liv Staib, Noregi 1:30,3 4. Anna Ólafsd., íslandi 1:32,5 Balintijn var örugg með að vinna en Kolbrúnu tókst furðu vel að hálda í við hana, enda þótt hún tapaði á snúingunum. Stigin: ísland: 45,5 — Noreg ur 42,5. Síðasta greinin í landskeppn inni var 3x100 metra boðsund eða þrísund, sem kallað er. Fyrsta sprettinn syntu Guð- mundur Ingólfsson og Knut Belsby og tókst Guðmundi nú Framhald á 7. síðu, Hálfri stundu eftir mið- nætti í fyrrinótt skýrði Tass fréttastofan frá því, að þeir Molotov og Bedeli Smith, sendiherra Randaríkjanna í Mcskvu hefðu skipzt á orð- séndingum um sambúð beggja lánda. Samkvæmt frá- sögninni kenndu báðir hin- um urn hið alvarlega ástand í heiminum, en virtust báðir fús r til viðræðna. í orðsendingu Smiths seg- ir, að yfirráðastefna Rússa sé aðalc-rsök þeirra erfiðinika, sem nú séu í heiminum. Kvartaði hann undan stefnu Rússa, meðal annars and- stöðu þeirra_ við endurreisn Norðurálfu. í lok orðsending- arinnar segir Smith að dyrn- ar standi ávallt opnar fil frekari samræðna, ef Rússar vilji. I svari Molotovs er stefnu Bandaríkjanna kennt um á- standið í heiminum og kvart- að undan stuðningi þeirra við Evrópulöndin og bækistöðv- ar, sem þau hafi komið sér upp. í lok svarsins þiggur Molotov þó boð Smiths um fund til viðræðna. UNDRUN UM ALLAN HEIM Þessi frétt kom eins og þruma úr. heiðskýru lofti og vakti undrun, meðal annars í Washingrton. Smith sendi- herra var staddur í Berlín á leið til Paris, er hann heyrði um frásögn Rússa, og kvað hann þetta trúnaðarbrot af Molotov. í Washington var fréttin um ráðstefnu beggja landanna eins og „Molotov- cocktaiTósprengja, að því er einn fréttaritari skýrir frá, aðallega það, að Bandaríkja- menn gerðu sér ekki ljóst, að þeir væru að flytja Rússum sérstakt boð um ráðstefnu. I London kom fréttin al- gerlega á óvart, og vissi enska stjórnin ekkert um orðsend- ingar Rússa og 'Bandaríkja- manna. Truman forseti flutti ræðu í gær, og sagði hann, að tilgangurimi með orð- sendingunni liefði verið sá. að gera Rússum alger!ega Ijóst, að Bandaríkjamenn hefðu engan hug á stríði, en hins vegai- stæði mikill meirihluti þjóðarinnar á bak við stefnu stjórnarinn ar í utanríkismálum, og yrði engin breyting á því, þótt einhverjar breytingar verði á stjórnmálalífi Bandaríkjanna. Forsetinn minntist ekkert á ráðstefnu við Rússa, og í gærkvöldi var enn óljóst. hvort nokkuð hefði verið um slíkan fund ráðið, og hafði að minnsta kosti ekkert frétzt um stað eða stund. Fréttir þessar hafa vakið nokkrar vonir um allan heim, þótt óliósar séu. Þó lýsa mörg blöð þeim ótta, að Rússar muni aðeins æíla að nota slíka ráðstefnu til áróðurs, eins og þeir hafa áður gert. Undén vill varnar - bandafag NorSurianda. UNDÉN utanríkismála- ráðherra Svía leggur fram þá tillögu á flokksþingi sænskra jafnaðarmanna í Stokkhólmi í gær, að Norðúrlöndin þrjú, Noreg- ur, Danmörk og Svíþjóð, geri með sér hemaðar- bandalag, sem ekki sé stefnt gegn neinni ákveð- inni þjóð. Hann kvaðst þó ekki vilja fallast á, að slíkt bandalag yrði hluti af bandalagi Vestur-Ey- rópuríkjanna. Þeir Hedtoff, forsætis- ráðherra Dana, og Gér- hardsen, forsætisráðherra Norðmanna, hafa áður mælt með hérnaðarbanda- lagi á þingi þessu. Er- lander, forsætisráðherra Svia, var endurkosinn for- maður sænska alþýðu- flokksins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.