Alþýðublaðið - 12.05.1948, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 12.05.1948, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 12. maí 1948 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Félagslíf Hvífasunnuför Ferðafélagsins. Ferðafélag íslaruds fer skemmtiför út á Snæfellsnes ■og Snæfellsnesjökul yfir "Hvítasunnuna. Lagt af stað ;kl. 2 á laugardag frá Austur- •yelli, og ekið alla leið út undir Stapafell. Gengið á jök- ulinn á 'Hvítasunnudag og igist í sæluhúsi F. í. (í 800 m. hæð) eina nótt. Farið á skíð- 'Um á jöklinum. Allt hið rnerkasta skoðað á nesinu. Farið í Búðahraun, Arnar- stapa, Sönghelli, Hellna, að Lóndröngum og Malarrifi og ef vinnst tími til, út í Djúpa- lón og Dritvík. Fólk hafi með ■sér tjöld, viðleguútbúnað og mat. I björtu veðri er dýrð- 'legt útsýni af Snæfellsjökli. Komið heim aftux á mánudags kvöld. Askriftarlisti á skrif- stofu Kr. Ó. .Skagfjörðs, Tún- götu 5, en fyrir kl. 6 á fimmtudag verða allir að vera búnir að taka farmiða. • LR. SkemmfiiferS um Hvítasunnuna á Eyja- fjallajökul. Laugárdag ekið austur að Seljavöllum og gist þar. Sunnudag gengið á eyjafjallajö'kul (1660 m.). Mánudag ekið í bæinn með viðkomu á merkustu stöðum á leiðinni. Farmiðar seldir í IR-húsinu í kvöld, miðviku- dag, kl. 8—9. Þar verða einn- ig gefnar allar nánari upplýs- ingar um ferðinia. Skíðadeildin. Hvítasunnuferðir: 1. Tindafjallajökuls ferð. Laugardag ekið að Múlakoti og gest þar. Sunnudag gengið á jökuiinn. Mánudag komið í bæinn. 2. Laugadalsferð. Laugardagl ekið austur í Laugardal og j dvalið þar til mánudags. Far- i miðar seldir í kvöld kl. 9—10 að V.R. uppi. Þar getur fólk einnig greitt árgjöldin og geng ið í deildina. Ferðaáætlunin verður til sýnis. Nefndin. Frjálsíþróttamenn KR. Mætið á íþróttavell- inum í 'dag kl. 5,30. Keppni í 100 m. hlaupi vegna Tj arnarboðhlaupsins. Stjórnin. OKKAR A MILLI SAGT Frh. af 4. síðu. verður mannkynið að halda á- fram að hlúa að þessum stofn- unum, auka veg þeirra og vald þar til einhvern tíma að þær hljóta að ná tilgangi sínum og verða kjarninn í löglegri stjórn, sem allur heimurinn lúti og virði. ÞETTA GETUR EKKI orðið fyrr en mannkynið trúir á mál- stað Sameinuðu þjóðanna. Með- an menn ráða þjóðum, sem ekki eru reiðubúnir til að lúta Íögum SÞ, sem heimta neitunarvald gegn yfirgnæfandi meirihluta þjóðanna, er lítil von um að að- altilgangur bandalagsins náist. En samt verður að halda áfram að kynna þjóðunum hugsjón- ina, sem á bak við allt felst. Ef til vill véx SÞ og blómgast og fær um síðir það vald og þá virðing, sem því ber. En slíkt bandalag geíur ekki þrifizt, nema þjóðirnar sjálfar, fólkið, sem kýs stjórnir ríkja, þekki hugsjónir og vonir SÞ. Félagið, sem hér var stofnað á að kynna íslendingum þessar hugsjónir, sýna þeim fram á, að við get- um aldrei búið í landi okkar í varanlegu öryggi fyrr en lönd eru með lögum byggð og réttur lítilmagnans er jafngildur og réttur stórlaxins. BJARNI JÓNSSON fram- kvæmdastjóri hringdi til blaðs ins í gær út af pistlinum um kvikmyndahúsin. Þótti honum kvikmyndahúsunum í Reykja- vík óréttur gerður, er það var gefið í skyn, að þau greiddu ekkert til opinberra aðila. Bað hann um að það kæmi einr.ig fram, að Nýja Bíó greiddi til ríkis og bæjar á árunum 1940 til ’46 krónur 2 518 449, sem sé ekki lítið framlag, og er sjálf- sagt að geta þess. SPURNINGIN ER: hvort ekki sé lélcgt veltuár hjá Morgunblaðinu — ef dæma má eftir fyrirveltum blaðsins. Faðir okkar, HeSgi Guðmuncfisson frá Hjörsey, andaðist að heimili sínu, Öldugötu 28, 10. b. m. Börn hins látna. Lesið Alþýðublaðið! Efnahagsreikningur Sparisjóðs Hafnarfjarðar pr. 31. desember 1947. Eignir: Skuldabréf fyrir lánum: FasteignaveðskuMabréf .................... Kr. Skuldabréf fyrir lánum gegn ábyrgð sveitar- félaga og ríkisins ..................... — Óinnleystir víxlar.............................. Verðbréf ....................................... Inneign í bönkum ............................... ■Aðrar eignir .................................. Tryggingarsjóður Sparisjóða .................... Ymsir ■skuldrmautar, ógreiddir vextir........... Peningar í sjóði................................ 1.725.396,90 1.835.500,00 Skul dir: Innstæðufé ............. Innheimt fé óútborgað .. Ýmsir skuldunautar ... . Fyrirfram greiddir vextir Varasjóður ......... Kr. 3.560.896,90 — 6.689.458,65 — 1.713.452,50 — 3.080.766,85 — 2.500,00 — 9.595.54 — 70.714,47 — 40.397,80 Kr. 15.167.782,71 Kr. 13.984.025,72 — 8.732.74 — 11.287,00 ' — 110.948,59 — 1.052.788,66 Kr. 15.167.782,71 Hafnarfirði 12. febr. 1948 Emil Jónsson, Ólafur Böðvarsson, Þorl. Jónsson, Sigurgeir Gíslason, Stefán Jónsson. Við undirritaðir höfum yfirfarið bækur og skjöl Sparisjóðs Hafnarfjarðar og borið saman við reikinginn og talið peningaforða sjóðsins, víxla og verðbréf og ekkert fundið athugavert. Hafnarfirði 30. marz 1948. Sveinn V. Stefánsso n, Ingólfur Flygenring. Jarðarför dóttur minnar, GuSrúnar Eybjargar, fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 13. maí og ■hefst með ‘húskveðju að heimili mínu, SöLfihólsgötu 10, kl. 2 e. h. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum. Steindór Björnsson. Skt. Jósefs Bar er merkileg SÖNN saga, sem Prentsmiðja Austurlands hi., Seyðisfirði, hefur nú sent á bókamarkaðinn. — í bók þessari skýrir bráðsnjall Norðurlandahöfundur (Arthur Anger, er dulnefni) af leiftrandi kýmni og sjálfhæðni frá því hvemig honum tókst að gera áfeng- isdjöfulinn útrækan úr skrokk sínum. Þeim, sem vita með sjálfum sér, að þeir eru „á hættu- svæðinu,11 hlýtur „Skt. Jósefs Bar“ að verða stórkost- Ieg uppörvun og huggun, — því hún sýnir, þrátt fyrir allt, að hægt er að vinna bug á drykkjuskap, — og að kraftaverkið má vinna á einum mánuði! Og fyrir þá, sem ek'ki hafa lent í klónum á Bakkusi konungi, er bókin svo hrífandi og skemmtileg aflestrar, að þeir munu hafa mikla ánægju' af að íkynnast henni. Hvergi hefur verið skrifað um drykkjuskap af meiri skilningi og hvergi hugarheimi ofdrykkjumannsins hetúr lýst. Kýmni sögunnar verður enn áhrifameiri, vegna þess, að grundvöllurinn er alvara. Kosfar aSeins 20 krónur. Fæsl hjá ofium héksöium. SUNDKEPPNIN Frh. af 1. síðu. að losa sig við Belsby betur en fyrr um kvöldið, Guðmundur mun hafa synt á 1:19 og tók nú Sigurður Jónsson, KR-ingur við af honum, en Erik Gjestvang fyrir Norðmenn. Var ekki að sökum að spyrja, að Sigurður lengdi bilið mjög, enda synti hann vegalengdina undir núgild andi íslenzku meti. Sigurður gaf þxí Ara allgott forskot, sem tognaði svo, að Norðmenn voru upp undir 20 metrum á eftir í lok sundsins og fékk Groseíh, sem synti síðasta sprett fyrir Noi-ðmenn, ekkert að gert. Tími íslenzku sveitarmnar var 3:37,7, en tími Norðmann- anna 3:50,7. Þannig lauk fyrstu sundlanjje keppni vorri með sigri og vdru landarnir sannarlega vel að hon um komnir. Keppninni lauk með því að formaður Sundráðs Reykjavík- ur þakkaði Norðmönnum kom una og fararstjóri þeirra Rolf Johansen mælti nokkur orð af Norðmanna hálfu. Br. íih^h^h^húh^h^hy?: Lesið Alþýðublaðlð! jk-hjft'hLhi'hi'hi'hi'h^hi'hi'fi Íxufiiiií iftblsdi' »»• .llö mumvjí-<•- t’-* I - • •• - ■*• t •»** V* - kíVA.ÞA' 'i'.iVt? ■ i Jbl fií

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.