Alþýðublaðið - 12.05.1948, Side 4

Alþýðublaðið - 12.05.1948, Side 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Miðvikudagur 12. maí 1948 Útgefandi: Alþýðuflokknrinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritsíjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: AlþýSuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h-f. fzmsman en FUNDIR ungra jafnaðar- manna í kautotúnunum í grennd við Reykjavík hafa vakið mikla athygli, enda verið mjög fjölsóttir. Kom- múnistar kunna. þessari sókn ungra jafnaðarmanna ærið illa. Á fundunum að Selfossi og í Borgarnesi fyrir rúmum hálfum mánuði tóku nokkr- ar sprautur þeirra þátt í hin- um frjálsu umræðum eftir að framsöguræðun-um lauk og fengu útreið, . sem hæfði mönnum þeirra og rnálefn- um. Á fundunum á Eyrar- bakka og Akranesi nú um helgina endurtók sig sama sagan. Kommúnistar gerðu tilraunir til þess að andæfa, en fengu þann barning fylg- isleysis og málefnaskorts, að þeir. lögðu árár í bát og munu, og sízt að ástæðu- Ia.usu, hafa talið verr farið en heima setið. Nærvera þessara kommún- istasprauta á fundunum og frásagnir í>jóðviljans af þeim sanna betur en nokkuð ann- áð. að kommúnistum stendur meiira en lítill beygur af hinni umfangsmiklu og fjör- ugu starfsemi ungra jafnað- armanna. Fólkið á stöðunum, sem ungir jafnaðarmenn hafa heimsótt, hefur á óyggjandi hátt sýnt, að-fylgi flokksins er mikið og vaxandi. En kom- múmstar hafa á fundum þess- um orðið eftirminnilega var- ir við uppdráttarsýkina, sem flokkur þeirra er haldinn. k Það hefur að sjálfsögðu margt athyglisvert borið á góma í umræðunum á fund- um þessum. En af öllu því er ástæða til að gefa sér í lági gaum að þeirri yfirlýsingu, sem eln af kommúnista- sprautunum, Haukur Helga- son, fyrrverandi fullitrúi kom- múnista í viðskiptaráði, gaf á fundinum á Akranesi á sunnudaginn. Haukur var krafinn til sagna um það, hvort hann teldi lýðræði ríkj- andi í Rússlandi og hvo.rt hann viídi innleiða slíkt stjórnarfar. og þar ríkti, hér á landi. Haukur Helgason á Iof skilið^ fyrir það, að hann sVaraði þessum fyrirspurn- um. skilmerkilega og án þeirra vífdengja, sem hinir þekktari kommúnistar viðhafa alla- jafna, þegar rætt er um lýð- ræðið og þingræðið. Hann taldi það vera fullkomið lýð- ræði, sem nú ríkti á Rúss- landi, jafnt í stjómmálum og atvinnumálum, og sagðist hafa einlægan áhuga á þyí að innleiða slíktt lýðræði hér á landi! • - * Haukur Helgason er á- Sumarið og litur borgarinnar. — Hugsjón sam- einuðu þjóðanna. — Spurning dagsins. ÞAÐ ER VARLA ÞORANDI að íala um sumarið. Þegar þetta er skrifað, er sólskin og blíða, en það er eins víst að það verði komin rigning, þegar próförkin er til, stormur þegar efninu verður raðað í síður og hver veit hvað, þegar blaðið berst Iesenöum í bendur. En svona er íslenzk veðrátta. Og sem beíur fer hefur þjóðin yfir 1000 ára þjálfun í því að taka veðrinu með nmburoarlyndi. EF SVO FÆRI, að þ'að yrði eitthvað úr sumri að þessu sinni, væri ekki úr vegi að hefja allsherjar sókn til að auka garðrækt og skógrækt í bæn- um. Reykjavík er -ægilega grár bær. Mölin er grá, rykið er grátt, húsin eru grá. Borgin okkar er ekki nógu litfögur, ekki nógu vinaleg. Okkur vant- ar meira af græna litnum, meira litskrúð. Rauð þök eru ágæt, græn tré eru dásamleg, gulir og rauðir strætisvagnar eru ágætir. Þetta fjörgar borg- ina, gleður augað. EN FVKST 'OG FREMST er það græni liturinn, sem okkur vantar meira af. Húseigendur verða að laga garða sína og túnbletti sem allra fyrst í nýrri hverfunum og fela þetta svo ekki allt með háum steinveggj- um. Garðyrkjumenn bæjarins virðast standa sig vel, og nú eru þeir til dæmis á góðum vegi með að laga umhverfið við Hringbraut og Miklatorg, svo að eitt dæmi sé nefnt. EN ÞAÐ ER EITT VANDA- MÁL í þessu efni. Það eru stóru íbúðarhúsin, sem braskararnir byggðu og seldu síðan 15—20 fjölskyldum. Umhverfi þeirra er sums staðar ægilegt og ekk- ert um það hugsað. Hver á að sjá um garða í kringum þessa stéinkassa? Það er vonandi, að íbúar þessara sambygginga bindist samtökum um að laga umhverfi husanna sem fyrst. Útlit heilla liverfa byggist á því, hvernig urnhverfi slíkra stórbygginga er. .FÉLAG SAMEINUÖU ÞJÓB- ANNA var nýlega stofnað hér í Reykjavík, og var Ásgeir Ás- geirsson kosinn formaður þess. Þao er tími til kominn, að við íslendingar sýnum þessari mestu alþjóða stofnun, sem við erum aðiiar. ao, einhverja rækt. Við erum svo vanir því heima hjá okkur, að ganga í alls kon- ar félög, sem okkur finnst í svipinn að starfi fyrir göðu mál efni, og hreyfa svo hvorki hönd né fót félaginu tii síyrktar. Það er sennilega ekki orðum aukið, að mikið af.félögum hér er hálf dautt vegna þessarar plágu, eða þá að einn eða ’tveir menn leggja geysivinnu í að halda þeim vakandi. En sámeinuðu þjóðirnar eru ekki félag, sem íslendingar eiga að ganga í og gleyma s\7o. HUGSJÓN Sameinuðu þjóð- anna .nm.að allar þjóðir eigi að búa.í sátt og samlyndi og leysa deilumál sín að lögum, er göf- ug. En slík hugsjón verður ekki ;að veruleika á nokkrum árum. Þjóðabandalagið gat ekki bjarg að heimsfriðnum' og það virðisf ekki í-yera á valdi SÞ að gera það heldur. En samt sem áður íFramh. á 7. síðu.) hrifamaður í flokki sínum, og það er því full ástæða til þess að ætla, að hann túlki hinar raunverulegú skoðanir flokksforustunnar, þegar hann gefur þessar athyglis- verðu yfirlýsmgar. Komm- únistarnir hér á landi teija ekki aðeins, að ríkiskapítal- isminn í Rússlandi sé sósíal- ismi, þeir telja einnig, að ein- ræðið og kúgunin þar. sé lýð- ræði, þó að aðeins einn flokk- ur fái að starfa þar og ganga til kosninga, minnihlutinn sé ekki til nema sem ofsótt leynihreyfing og allir þeir, sem hreyfa andmælum gegn vilja og stefnu valdhafanna, eigi fangabúðavist eða Síbe- íúudvöl vísa, sé þeim ekki umsvifalaust hjálpað yfir í annan heim. Og þetta er sú fyrirmynd, sem íslenzku kommúnistamir ætla að miða störf ©in og stefnu við, ef þeir fá ein- hverju ráðið. Hér eftir þurfa menn ekki að vera í neinum vafa um innræti og fyrirætl- anir þessara mans,a. Haukur Helgason hefur gert sitt til að draga hreinar Hnur milli ein- ræðisins og lýðræðisins á ís- landi. Varajátningar komm- únista um ást þeirra á lýð- ræði og þingræði hafa af fiokksbróður sjálfra þeirra, sem gerzt ætti lið sitt að þekkja, verið dæmdar ómerk ómagaorð. Lýðræðisgríma kommúnistanna er fallin og þeir af liðsmanni sjálfra þeirra afhjúpaðir sem aðdá- endur ofbeldisins og einxæð- isins á Rússlandi — einráðm ir í að leiða það yfir íslenzJku þjóðina, hvenær sem þeir geta. Fundir ungra jafnaðar- manna eru mikils virði fyrir Alþýðuflokkinn. Þeir sýna sóknarhug og baráttuhug þeirrar æsku, sem hefur fylkt sér undir merki jafnaðar- stefnunnar á íslandi. Og þeir hafa meðal annars orðið til þess að knýja fram stórat- hyglisverða yfirlýsingu lands kunns kommúnista um af- stöðu hans og flokksbræðra hans til einræðdsins og lýð- ræðisins, en hún er ótvíræð sönnun þess, að rússneska útibúið hefur ekkert lært og engu gleymt. Kommúnistar eru enn sama sinnis og þeir voru 1930 og 1937. Þeir hafa lofsungið lýðræði og þing- ræði í orði, af því að þeir vita um fyrirlitningu þjóðarinnar á hinni raunverulegu stefnu þeirra. En þeir eru nú sem fyrr reiðubúnir til að þjóna í verki sínu kommúnistíska eðli. Það er ekki af neinum mis- skilningi, að íslenzk verkálýðs hrevfing er klofin í tvær fylkingar. Akranessyfirlýsing Hauks Helgasonar er staðfest- ing á því, sem ýmsir hafa vit- að, en allt of margir þó ekki gert sér ljóst. Því er það, að þessi yfirlýsing kom fram einmitt nú, þegar línurnar milli einræðis og lýðræðis eru óðum að skýrast í íslenzk- um stjómmálum og æ fleiri að vakna til vitundar um þá skyldu, sem þjóðinni er.lögð á herðar í báráttunni gegn einræði en fyrir lýðræði og sönnum sósialisma. Laugardaginn 15. þessa mánaðar verður dr.egið í 4. og síðasta flokki bílaliappdrættis S.I.B.S. í þrem fyrstu dráttum hafa 5 bílar runnið aftur til happdrættisins og koma því nú til útdráttar 10 bílar. Þar sem aðeins verður dregið úr númerum seldra miða, er trygging fengin fyrir því, að viðskiptamenn happdrætt- isins hljóta alla bílana. Happdrættismiðar S.Í.B.S. fást í eftirtöld- um verzlunum , MiSbær. Bókabúð Þór. B. Þorlákssonar, Bankastr. 11. Bókabúð K.EON. Alþýðuhúsinu. Ritfangaverzlun ísafoldar, Bankasír. 8. Verzíim flans Petersen, Bankastr. 4. H1 jóðfæraverzlim SigríSar Helgadóttur, Lækjarg. 2. Bókabúð Braga Brynjólfssonar, Hafnarstr. 22. Járnvörudeild J. Zimsen, Hafnarstr. 21. Bókabúð Sigfúsar Eymundssonar, Ausíurstr. 18. Bókabúð Krisíjáns Kristjánssonar, Hafnarsír. 7. Veiðaifærav. Verðandi, Hafnarstr. 5. Veiðarfærav. Geysir, Hafnarstr. 1. Bókav. Helgafells, Aðalstr. 18. Vesturbær. Lisímunav. KRON, Garðastr. 2. Verzlun íialla Þórarinssonar, Vesturgötu 17. Verzlun, Vegur, Vesturgötu 52. Verzlun Hjartar Hjartarsonar, Bræðraborgarst. 1. Vezlun Silla & og' Valda, Hringbraut 149. Yerzlun Brífanda, Kaplaskjólsveg 1. Verzluniimi Nesveg 33. Laugarneshverfi. Bókabúð Laugámess. Kleppsholt. Ver-zlunin Langholt. Blesagróf. • Verzlunin Fákur. Álfabrekka við Suðurlandsbraut. Verzlunin Stóraborg við Borgarveg. Fossvogur. Verzlunin Fossvogur. Verzlunin Snorrabúð við Bústaðaveg. Austurbær. Verzlunin Brífandi, Samtún 12. Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 4. Verzl. Ás, Laugaveg 110. Verzl. Barmahííð. Verzí. Þorsíeinsbúð, Flókagötu 2. Bókaverzluninni Isafold, útibú, Leifsgötu 4. Bókabúð Helgafells, Laugaveg 100. Barónsbúð, Hverfisgötu 88. Verzlunin Regnbogimi, Laugaveg 74. Verzlunin Varmá, Hverfisgöíu 82. LúIIabúð, Hverfisgötu 61. Verzlun Jóhanns Ólafssonar, Hverfisgötu 18. Bókabúð Máls og menningar, Laugaveg 19. Bókabúð ísafoldar, utibú, Laugaveg 12. Hafliðabúð, Njálsgötu 1. Verzluninni Goðaborg, Freyjugötu 1. Kópavogur. Verzlunin Kópavogur. Skerjafjörður. KRON. Grímsstaðaholt. Pöníunarfélag Grímsstaðaholts. Sfyðjum sjáka fii sjéifsbjargar. S.Í.B.S.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.