Alþýðublaðið - 14.05.1948, Blaðsíða 7
Föstudagur 14. maí 1948.
ÁLÞÝfíUBLAÐIÐ
7
I
4-
Ungmennafélag Reykjavíkur
iheídur skemmtifund í kvöld
í Vierzlunarrnanaheimilmu
klukkan 9.
Stjórnin.
Fimleikamenn
1 Ármanns.
Æfingar hjá I. og II. fl. karla
á þriSjudögum, miðvikudög-
um og föstudögum kl. 8 e. h.
Mætið vel og stundvíslega.
Hvítasunnuferðir:
1. Ferð á Tinda-
jallajökul.
2. Laugardalsferð.
Farmiðar seldir í fkivöld kl.
9—10 að V.R. uppi. Þar verða
einnig gefnar allar nánari upp
lýsingar.
, Nefndin.
K.R.
Glímumenn K.R.
Mætið allir í kvöld
kl. 9 í íþróttáhúsi
Háskólans.
Glímudeild K.R.
SK1PAUTG6RÐ
RIKISINS
Áætlunarferð til Vestfjarða
20. þ. m. Tekið á móti flutn-
ingi til 'hafna milli Patreks-
fjarðar og ísafjarðar í dag og
fram til hádegis á morgun.
M.s. Skjaldbreið
Áætlunarferð til Snæfells-
ness og Breiðafjarðarhafna 21.
þ. m. Tekið á móti flutning;
til áætlunarhafna milli Arnar-
stapa og Flateyjar (ekki Búð
•ardals) á þriðjudaginn, 18. þ.
m.
Pantaðir farseðlar x sam-
bandi við Ibæði skipin óskast
Sóttir á miðvikudag.
Minningarorð:
Margf er m fii
í maiinn.
Sigin ýsa,
Saltaöar kinnar,
Þurrkaður saltfiskur,
Norðienzk saltsíld
í áttungum og ótal
margt fleira.
FISKBÚÐIN,
Hverfisg. 123. Sími 1456.
Hafliði Baldvinsson.
Púsnbtgasandur
Fínn og igrófur skelja-
sandui’. — Möl.
Guðmundur Magnússon.
. Kirkjuvegi 16,
Hafnarfirði. — Sími 9199.
Björn Birnir hreppifjóri
í Grafarholf i
SÍÐAST LIÐINN LAUG-
ARDAG andaðist Björn Birn
ir hreppstjóri í Grafarholti
að heimili sínu eftir erfið
veikindi. Hann verður jarð
settur i dag í heimagrafreií
ættarinnar í Grafarholti
Björn hafði átt við mikil
veikindi að stríða hina sein-
ustu mánuði ævi sinnar, þótt
hann jafnan leitaðist við að
láta sem minnst á því bera
og legði á sig mikil störf við
bú sitt og í bágu annarra
lengur en heilsan leyfði.
Leitaði hann sér lækninga
við sjúkdómi sínum heima
og erlendis, en án árangurs.
Örlög dauðans urðu ekki um
flúin. Ættingjar og vinir
Björns áttu ekki eftir að
njóta samvistanna við hann
lengur í þessum heimi.
Björn Birnir fæddist að
Reykjahvoli í Mosfellssveit
18. júlí 1892. Var hann sonur
Björns Bjarnasonar, fyrrver
andi alþingismanns og hrepp
stjóra í Grafarholti, og konu
hans Kristrúnar Eyjólfsdótt-
ur frá Stuðlum í Reyðarfirði.
Er móðir Björns dáin fyrir
nokkrum árum, en faðirinn
lifir nú son sinn í hárri elli.
Ólst Björn upp hjá foreldr-
um sínum í Grafarholti við
hin beztu skilyrði til mennt
unar og þroska. Var heimili
foreldra hans viðbrugðið fyr
ir myndarskap, enda hjónin
bæði gáfuð og vel menntuð.
Björn hlaut ágæta almenna
menntun í skólum, auk þess
sem hann var sér sjálfur
mjög úti um að afla sér þekk
ingar og fróðleiks. Þá spillti
það ekki uppeldi Björns, að
hann ólst upp með stórum,
glæsilegum og velgefnum
systkinahóp í Grafarholti og
voru þau systkin landskunn
fyrir myndarskap og for-
göngu í ýmsum menningar-
málum. Þrjár systur Björns
eru rú látnar. þær Sólveig,
Guðrún og Sigríður.
Snemma hneigðist hugur
Björns til þátttöku í félags
málum. Var hann ejrm meðal
brautryðjenda ungmennafé-
lagsins í Mosfellssveit og
jafnframt leiðandi kraftur í
heildarsamtökum ungmenna-
félaganna í landinu. ósamt
mörgum öðrum góðum
drengjum, er síðar urðu
landskunnir menn. Átti
Björn sæti á sambandsþing-
um ungmennafélanna og
gegndi ýmsum trúnaðarstörf
um þágu þeirra. Hafa þau
Grafarholtssystkin komið
mjög við sögu ungmennafé-
lagsskaparins og er það starf,
sem eftir þau liggur þar,
bæði mikið og blessunarxíkt.
Heimilið og búskapurinn
átti bá sterkasta strenginn í
brjósti Björns Birnis. Hann
batt sérstaka tryggð við
heimili sitt og átthaga. Svo
sterka, að ástæða er til að
ætla, að Birni hafi fundizt
líf sitt missa verulegt af gildi
sínu, ef honum ætti að fyrir
munast að eyða kröftum síri
um og ævi á þvi heimili, sem
hann hafði alizt upp á og
verið hafði honum kærast af
öllu í þessu lífi. Kom þetta
bezt í ljós nú fyrir nokkrum
árum, er í ráði var að svipta
hann æskuheimili hans og
sameina það öðru sveitarfé-
Sonur og fóstursohur ökík'ar,
Viktor A. Sigurblörtissen,
lézt í Sjúkraihúsi H'vítaband'sins 12. þessa mánaðar.’
Jóhanna Þorvaldsdóttir.
Sigríður Einarsdóttir.
Andrés Jónsson.
Björn Birnir
lagi. Mat og fébætur voru
honum einskisvirði, aðeins ef
hann fengi áfram að halda
jörð sinni og búa í sinni
gömlu sveit, Mosfellssveit-
inni. Fór Björn að vísu dult
með, hversu mjög þessi mál
fengu á hann, enda var hann
dulur í skapi, en þeir, sem
til þekktu, vissu vel, að
Björn varð aldrei sami mað-
urinn eftir þetta.
Björn lagði mikla áherziu
á það, þegar á unga aldri, að
búa sig sem bezt undir að
taka við búi í sveit og þeim
örðugleikum, sem þvi fylgdu.
Hann aflaði sér þeirrar þekk
ingar, sem völ 'var á beztri
hér heima í þeim efnum og
fór síðan utan árið 1918 og
stundaði verklegt búnaðar-
nám á Norðurlöndum um
skeið, einkum í Svíþjóð. Eft-
ir heimkomuna keypti hann
Grafarholt af föður sínum og
bjó þar síðan af mesta mynd
arskap til dauðadags.
Sakir gáfna, hjáípsemi og
trúmernsku Björms Birnis
tóku sinemma iað hlaðast á
hann ýms trúnaðarstörf í
þágu almennings. Fór þeim
störfum stöðugt fjölgandi því
imeiri reynslu, sem menn
fengu af starfshæfni hans,
unz hann nú hina seinustu
mámuði varð vegna vanheilsu
að óska eftir að verða leyst-
ur frá ýmsum þeim trunaði,
er honum hafði verið sýndur.
í fuila tvo tugi ára átti Björn
sæti í hreppsnefnd Mosfells-
hrepps og síðari helminginn
var hann oddviti hrepps-
r.efndarinnar. Um skeið var
hann varamaður föður síns í
sjnslunefnd Kjósarsýslu og
árið 1942 tók hann þar sæti
sem aðalmaður, er faðir hans
lét af istörfum. Þá tók hann
og við sem hreppstjóri Mos-
fellshrepps, er faðir hans lét
af þeim störfum. Um margra
ára skeið var hann endur-
skoðandi Kjósarsýslu og
gegndi auk þess mörgum
trúnaðarstörfum innan sýslu-
nefndarinnar. í verzlunar-
Istarfsemi Mosfsllinga þótti
Björn jafnan sjálfkjörinn
fulltrúi. Var hann fulltrúi
sveitar sinnar í Sláturfélagi:
Suðurlands og Mjólkurfélagi
Reykjavíkur. Má segja að
Björn hafi verið meira og
minna viðriðinn næstum öll
opinber störf sveitar sinnar
frá því hann hafði aldur til
og á imieðan h&ilsan entist.
Alls stáðar þótti Björn hinn
ág§etasti starfsmaður. Fljót-
ur að átta sig á málum.
Glöggur á aðalatriðin. sann-
gjarn, velviljaður hverju
góðu málefni og úrræðagóð-
ur. Samvinnuþýður var
Björn með iafbrigðum og
laginn á að koma sínum mál-
um fram, þó að það væri
mjög fjarri skapi hans að
sýna nokkrum manni á-
gengni eða ójöfnuð. Störf sín
sem hreppstjóri rækti Biörn
eins og öll önnur trúnaðar-
störf með ágætum.
Árið 1928 gekk Björn að
eiga eftirlifandi konu sína
Bryndísi Einarsdóttur, Brynj
ólfssonar frá Meðalfellskoti í
Kjós. Þau hjón eignuðust
þrjú börn. tvo drengi og eina
istúlku. Stundar elzti dreng-
urinn beirra nú r.ám í 4. bekk
Menntaskólans, en hin syst-
kinin undirbúningsnám. —
Björn Birnir taldi það ætið
isitt imesta lán í lífinu, hve
gæfusamur hann varð. er
ham gekk að eiga sína ágætu
komu. Þau hjón voru Iíka
samhent við að byggja upp
heimili sitt og lífshamingju
svo að unun var á að horfa
ættingjum peirra og vinum.
Uppeldi barnanna og framtíð
þeirra var einnig uppistaðan
í sarnbúð bessara mætu
hjóna. Gerði Björn allt, sem
í hans valdi stóð til að búa
börn sín sem bezt undir
þeirra lífsstarf og gera þau
að sem nýtustum og beztum
borgurum. Voru börnin líka
hneigð til félagsskapar við
föður sinn og sóttust frekar
eftir samfyld hans og sam-
veru við hann en öllum fé-
lagskap öðrum.
Ættingjar og vinir Björnis
Birnis í Grafarholti kveðja
hann nú í dag í síðasta sir.nið
í þessu lífi. Harmur eftirlif-
andi konu og föðurlausra
barna er isár á þessari kveðju
Etund. Bændaöldungurinn í
Grafarhol'ti. sem nú leggru:
til hvíldar í heimagrafreitinn
f jórða barn sitt við hlið konu
sinnar. hefur ern á ný orðið
fyrir sárri sorg. En huggun
má það vera öllum aðstand-
endum Björns Birnis, að
hann lætur alls staðar eftir
sig hlýjan hug samborgara
sinna, veldvild og virðingu.
Vinirnir. sem í dag koma
saman í Grafarholti, hafa í
hljóðum huga margs að minn
ast og fyriir margt að þakka.
Þeir biðja þess, að æðri
máttarvöld megi í dag senda
ættingjum styrk í sárri sorg
og börnunum vita þeir enga
ósk betri til handa en að þau
megi taka sér lífsstarf föður
síns til fyrirmyndar og minn
ast hans fordæmis þegar
vanda ber að höndum. Sjálf
ur vil ég að skilnaði þakka
mínum látna vir.i allt það.
sem hann -reyndist mér og þá
ekki isízt þær viðtökur. sem
ég fékk hiá honum, þegar ég
leitaði fyrst til hans ókunn-
ur og öllum óþekktur.
Blessuð sé minning Björns
Birnis og þakkir séu honum
færðar fyrir það sem hann
var okkur samferðamönnun-
um.
Guðm. I. Guðmundsson.
OKKAR Á MILLI SAGT
Frh. af 4. síðu.
hafi og umhverfis ísland væri
stjórnaö frá Keflavíkurflugvelli.
Henni er stjórnað á Reykjavík-
flugvellinum, sem koma og
fara um þann flugvöll.
SPURNINGIN EIÍ,
hvort velturitstjórar Movg-
unblaðsins falla ekki fyrr
eða síðar á veltubragði.
scs*
hvitasunnu-
matinn:
Svínasteik
Svínakótelettur
Hamborgarhryggur
Buff kjöt
Beinlausir fuglar
Gullasch
Hækkað buff ..
Hamborgarlæri
Léttsaltað kjöt
Dilkasvið
Hangikjöt..
Kjðf og Grænmeli
Hringbraut 56.
Sími 2853.
rr
Frá Huli
M.s. „Foldin
20. þ. m.
Einarsson, Zoega
& Co. HF.,
Hafnarhúsinu.
Símar 6697 og 7797.
\_
LAA