Alþýðublaðið - 26.05.1948, Qupperneq 5
Miðvikudagur 26. maí 1948.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Íægja þá eða gera þá óskaðlega
hagsmunum verkalýðsins og
Iheiibrigðri þróun sósíalismans,
ef á annað borð er við því
gengizt, að slíkar ráðstafanir
eigi sér stað. Þrælkun verka-
lólks við erfiðisvinnu er köll-
uð Stakhanóvvinna og þykir
fín uppfinning, — og ef rauði
herinn er látinn brjóta undir
‘Rússland friðsamar nágranna-
þjóðir — eða fimmtu herdeild
ir Stalins svipta einhverja
þjóð frelsi sínu, þá er það ■—
ef ekki með þeirra fulla og
frjálsa vilja — gert með það
tnarkmið fyrir augum að
tryggja ríki sósíalismans og til
iþess að gera þjóðirnar saddar
og sælar. Kar.l nokkur sagði,
og var hreykinn af, að hann
væri frá í handleggjunum af að
troða grásleppunni ofan í
kýrnar sínar — með trélmalli,
en sú. varð raunin, að á þessu
drap hann beljurnar. Og komm
únistar beinlínis hreykja sér
yfir því, þá er einhverri þjóð-
Inni hefur verið „bjargað" —
þ. e. troðið upp á hana ein-
xæðisskipulaginu rússneska,
þó að þetta kosti þjóðina sjálf
stæði hennar, tugir og jafnvel
hundruð þúsunda láti lífið, enn
fleiri lendi í nauðungarvinnu
og fangabúðum, fjöldi flúi
land og allir aðrir — að und-
anskildri yfirráðaklíkunni —
glati því frelsi, sem hverjum
manni er skilyrði til hamingju
og sjálfstæðs þroska. Vil ég al
yeg sérstaklega vara menn við
orðablekkingum og hugtaka-
brengli kommúnista, sem sann
arlega er sama eðlis og það,
sem kallað var hér áður fyrr-
wm að Snúa Faðivorinu upp
á andskotann. ,fÞegar menn
brjóta réttinn, kalLa menn það
að byggja hann“. segir meist-
ari Jón, og víst mætti heim-
færa upp á blekkistarfsemi Lax
ness og annarra þessi orð hins
S&ma meistara: „Svo falsar nú
andskotinn guðs steðja Ó með-
al vor og setur hans mynd: og
yfirskrift á svikinn málm.“
Auk þess, sem Laxness kall
ar Överland boðbera stríðs og
haturs, sæmir hann hið norska
skáld og frelsishetju heitinu
„erindreki auðvaldsseggja“, og
segir í hans orðastað:
„Eg Arnulf Överland er ekki
stríðsæsingamaður. Hvernig
setti ég að vera það, maður,
sem á konu og tvö börn? Þeir,
sem Ikalla mig stríðsæsínga-
mann, ’þeim fyrirgef ég eins og
Kristur á krossinum, því þeir
■vita ekki, hvað þeir gera. Hitt
er annað mál, að af tvennu illu
mun ég heldur fórna þessum
tveimur börnum og konu en
lúia austrinu að dæmi fyrir-
rennara míns og læriföður í
sovétníði Jóseps Göbbels, sem
myrti sex börn sín með eigin
hendi, konu sína og sjálfan sig,
þegar hann sá verkalýðsherinn
nálgast. Eitt stendur stöðugt,
stríð verðum við að hafa við
vterkalýðsríki heimsins, hvað
sem tautar og raular, því þau
eru djöfullinn“.
’Eins og gefur að skilja hverj
um manni með óbrjálaða skyn-
semi og dómgreind fer fjarri
því, að Arnulf Överland hafi
sagt eða meint neitt svipað
þessu. Hann hefur sagt, að þar
eð Rússinn Tháfi nú undirrokað
tíu sjálfstæðar Evxópuþjóðili
þá megi Norðmenn Svíar og
Danir búast við sama
hlutskipti fyrr en varir
Það hlutskipti geti hann ekki
hugsað sér fyrir þeirra hönd,
svo sem öllu er háttað með
þerm þjóðum, er Rússar hafa
undirokað. En Norðurlöndin
muni berjast vonlausri bar
áttu mema þau stofni með
sér varnarbandalag og eigi
vísa hjálp bandalags samein
aðrar Vestur-Evrópu og
Bandaríkja Norður Ameríku,
pg eini möguleikinn fyrir friði
sé slíkt' bandalag, nógu sterkt
og samfaka, og síðan Banda
ríki allra þjóða utan við marka
línu Sovétv-eldisins. En útleggj
ing Laxnsss sýnir, svo fjarstæð
sem hún .er sem túlkun á orð
um og meiningu Arnulfs Óver
lands, mjög greiniiega skoðun
Halldórs Laxness sjálfs á því,
hvers sá að vænta og hvernig
því beri að taka. Hún er þessi:
Ef Norðurlandaþjóðirnar
haga sér eins og Överland raun
/verulega telur rétt og Ejálf
sagt, þá er stríð fram undan,
og þá týnir fjöiskylda Över
lands lífinu og auðvitað fjöl-
margar aðrar. Með öðrum orð
um:
Arás á Norðurlönd af hálfu
Sovétríkjanna er í vændum,
og Halldór Laxness lítur þann
ig á, að Norðurlandaþjóðun-
um beri að „lúta austrinu“
mátmælalaust.. Það eitt fái af
stýrt því, að fjöldi kvenna og
barna verði lífi firrtur — auk
alls annars ills, sem styrjöld
fylgir.
Minnist nú ekki einhver í
sambandi við viðvörun skálds
ins Halldórs Kíljans Laxness
þeirrar staðreyndar, að sendi
herra Þjóðverja í Ósló lét fyr
ir innrásina í Noregi í maí
1940 sýna ríkisstjórn Norð
manna og fleira stórmenni
mynd af ógnum innrásarinnar
í Pólland? Minnsta kosti mun
það þó rifjast upp fyrir ein-
hverjum, að Halldór Kiljan
Laxness birti grein. í Þjóðvilj
anum í september 1939, eftir
árás Hitlers og Rússa á Pól
land, þar sem hann sagðist
ekki skilja, hvernig mönnum
gæti dottið það í hug, að bolsi-
víkkum fyndist það nokkurt
hneyksli, að ,15 millj. manna
væru „þegjandi og hljóða-
laust innlimaðar undir bolsi-
vismann". Hann talaði þareinn
ig um, að þessar milljónir
hefðu ),árekstralítið og án veru
legra hlóðsúthellinga hoppað
inn í ráðstjórnarskipulagið“.
Og þá er við lítum á afstöðu
hans til atburðanna í Tékkó-
slóvakíu, sem hann víkur að í
greininni um Överland, og á
viðhorf flokksbræ.ðra hans hér
á landi og annars .staðar við
sömu atburðum, er það
ljóst, að hér á meðal okk-
ar eru fjölrhargir menn,
sem telja rétt og bafa í
huga að framkvæmt verði hið
sama hér og í hinum tíu þjóð
löndum, sem Rússar hafa þeg
ar hremmt; að hér verði menn
sviptir frelsi, lýðræðið afunm
ið, menn fangelsaðir og drepn
ir, ef með þarf, og áð þjóðin
lúti í hvívetna boði og banni
hins rússneska jötuns. Eru það
ekki notaleg hlunnindi, sem
lýðræðinu fylgja, að geta bað
að í rósum undir vernd laga
og réttar þrátt íyrir jdirlýstan
vilja um byltingu, hermdar
veik og frefsissviptingu til
handa öllum, sem ekki vilji
gera eins og hinir væntanlegu
valdhafar og erindrekar sovét
ríkjanna óska?
Hver er svo Halldór Kiljan
Laxness, að hann megi saka
Arnulf Överland um erind-
rekstur fyrir erlenda auðvalds
seggi, saka-hann um stríðsæs-
ingar, bera hann rakalaust
vömmum og skömmum, ætl-
and'i það, að sér verði frekar
trúað en honum?
Árið 1939 tók Överland
röggsamlega svari Pólverja og
Finna, en vitti Stalin fyrir
bandalag hans við Hitler og
árásir hans á Pólland og Finn
land. Þá skrifaði Laxness grein
ina, sem á er minnzt hér á
undan — og varði bræðra-
band Stalins og Hitlers í líf og
blóð. Árin 1940—1941 stappaði
Överland stálinu í þjóð sína
til andstöðu við spyrðu-
'bönd kommúnista og nazista,
örvaði hana með ljóðum sín-
um og jók henrri trú á frelsi og
framtíðarsigur, og var settur í
fangelsi. Þá barðist einmitt
Halldór Kiljan Laxness trú"
lega- við hlið Jóseps Göbbels
sem áróðursmaður- gegn bar
áttu vesturveldanna. Árin
1942—1945 |sat Arnulf Över
land í fangabúðum nazista í
Sachsenhausen í Þýzkalandi
og styrkti með fordæmi sínu,
Ijóðum og ræðum samfanga
sína til vonar um betri
tíma og 'betra líf. Þá
lifði Halldór Kiljan Laxness,
guð sé lof, við gnægð og ör-
yggi undir brezkri og amerískri
vernd og naut góðs af því
flóði enskra punda og ame-
rískra dollara, sem bersetunni
fylgdi. Árin 1945 — 48 hefur
Arnulf Överland farið vítt um
Norðurlönd og talað máli raun
sæis og ábyrgðartilfinningar,
og varað v.ið háskanum sem yf
ir vofir, reynt að forða mönn-
um frá blekkingavef erlendra
Miili austurs og vesturs
Kortið sýnir hin tvö stóru bandalög, sem þegar hafa mynd-
ast í Evrópu- — annars végar Sovéit-Rússland og leppríki
þess í Austur- og Mið-Evrópu (skástrikuð), hins vegar Vest_
ur-Evrópubandalag Bretlands, Frakklands og Beneluxland
anna (svart), Á milli þeirra eru þau lönd, sem enn reyna að
halda sér fyrir utan; — lönd, sem flest eiga samleið með
Vestur-Evrópu. bæði efnahagsiega og stjórnarfarslega, e,n
óttast ofurvald Rússlands og vilja ógjarnan styggja það.
Irjáplönfur
Þeir, sem hafa ekki enn vitjað pantaðra tfjá-
plantna, eru vinsamlega beðnir að gera það í
dag, því í kvöld lýkur sölu og afhendingu á
þessu ári.
Skógrækt ríkisins
erindreka og innlendra ný-
kvíslinga og andvaraleysi
heigla og skýjaglópa. Á sama
tíma hefur Halldór Kiljan
Laxness notið velsældar, reist
sinn Gljúfi’astein og búið sem
bezt um sig, sannarlega notið
fjár síns frá amerískum „auð-
valdsseggjum“, er leggja fé
í bókaútgáfu sem verulega arð
vænlegt fyrirtæki,. en annars
þjónað trúlega málstað þess
ríkis, sem nú ógnar bræðra-
þjóð okkar og löndum Arnulfs
Överlands. Laxness hefur
borið stjórnarvöld og þing sinn
ar eigin þjóðar landráðasök og
heitið verðlaunum þeim, T er
slíka sök fái á þau sannað. Þá
hefur hann og gert sitt til að
stofna í voða íslenzkum hags-
munum og öryggi xslands út á
við með hinum fáránlegasta
og furðulegasta fréttaburði. . .
Þeir sögðu mér bæri að skauta,
sagði kerlingin og setti upp
roðskupluna!
Loks kemur það fram í
grein Laxness, að hann er
mjög hneykslaður á því, að
Överland skuli hafa dirfzt að
„veitast með aurkasti“ að ýms
um stofpimum, rikjum og ein
stakhngum, sem honum hafi
ekki iþótt „nógu frakkir stríðs
æsingaþrælai’“. Nefnir Lax-
ness tékkóslóvakíska lýðveld
ið, , Sameinuðu þjóðirnar,
Tryggva Lie og fl. Fræðir hann
síðan Arnuif' Överiand um, að
það séu ekki taldir mannasiðir
á Islandi, að gestur ófrægi fjar
statt fólk, og að sá er slíkt geri,
sé kallaður nafni, sem „jafnan
þykir ástæðulaust að prenta,
enda mun það ekki gert hér,
þó að Mr. Överland hafi unn-
ið tíil þess með fleipri sínu.“
„Svalua maður Mx-. Örer-
land“, segir Laxness á einum
stað í grein sinni. En hvaða
orð skyldu hæfa Halldóri Kilj-
an Laxness út af umvöndun
hans? Aftur detta mér í hug
nokkur orð meistara Jóns.
Hann segir:
„ . . . Það, sem vér erum
sjálfir hvað mest gefnir fyrir,
það drepum vér út á öðrum,
sem er stakt blygðunarleysi.“
Eftir því, sem ég bezt veit,
var Arnulf Överland boðið
hingað í heiðursskyni sem and
legu mikilmenni og til þess
mælzt, að hann læsi upp úr
skáldverkum sínum ’og héldi
fyrirlestra um alþjóðamál,
menningarmál, eða hvað ann
að, er honum lægi mest á
■hjarta. Nú er það síður en
svo, að hann, þrátt fyrir harð-
fylgi við það, sem 'hann tel-
ur sannast og réttast, viðhefði
nein miður sæmileg orð í fyr-
irlestrum sínum, en hverjum
nema Moskvumönnunum, sem
sjálfir eru allra manna illmálg
astir og orðverstir, skyldi hafa
getað dottið í hug að ætlast til
þess, að hann minntist ekki á
Tékkóslóvakíu af jþví að
Gottwald var ekki viðstaddur,
ekki á Sameinuðu þjóðirnar
af því að Trygve Lie var
hvergi næiri og s. frv.? Ég
hygg og, að. það mundi hafa
reynzt gersamlega órangurs-
laust að reyna að fá Överland
hingað án þess að hann um
leið fengi tækifæri til að
kynna mönnum hér skoðanir
sínar á þeim málefnum, sem
hann telur nú mest um vert,
að tekin sé til heillavænleg af
staða. Ég býst t. d. við, að hann
hefði alls ekki gefið þess kosö,
Framhald á 7. síðu.