Alþýðublaðið - 07.07.1948, Síða 3

Alþýðublaðið - 07.07.1948, Síða 3
Miðvikudagur 7. júlí 1948 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 MIÐVIKUD AGURINN' 7. JÚLÍ. Alþýðublaðið segir fyrir rétíum 12 árum: „Síldarflotinn ■væntanlegur í kvöld með full- fermi. Ágætisveður og nóg af síld xim allan sjó. — í nótt og í morgun hefur verið landað úr 20 síldveiðiskipum, og hafa þau samstundis farið út á veiðar. Enn bíða þó um 20 skip, en úr þeim öllum verður að líkind- um landað í dag. — Síldaraflinn er alls 326,842 hl, Allir búa sig nú undir síldarsöltun, og mun söltun að líkindum byrja af fullum krafti síðari hluta vik- unnar“. Sólarupprás var kl. 3,18, sól- arlag verður kl. 23.45. Árdegis háflæður var kl. 6.40, síðdegis háflæður verður kl. 19.05. Sól er hæst á lofti kl. 13.33. Næturvarzla: Ingólfsapótek, sími 1330. Næturakstu?j Hreyfill, sími 6633. Heilsuverndarstöðin í Templ- arastudi 3 fyrir. ungbörn og barnshafandi konur verður lok uð, fyrst um sinn, um óákveð- inn tíma, vegna viðgerðar. Aug lýst verður síðar hvenær stöðin tekur til starfa. Veðrið í gær Klukkan 15 í gær var yfir leitt hægviðri um allt land, 1— 2 vindstig. Víðast hvar var al- skýjað, en yfirleitt úrkomu- laust. Hiti var víðast 10—12 stig sunnanlands en 8—9 stig norðanlands. Mestur hiti var á Loftsölum og Hólum í Horna- firði, 13 stig, en kaldast var á ‘Dalatanga, 7 stig. í Reykjavík var 11 stiga hiti. Flugferðir AOA: í Keflavík kl. 8—9 árd. frá New York, Boston og Gander til Kaupmannahafnar og Stokkhólms. Skipafréttir Laxfoss fer frá Reykjavík kl. 7,30, frá Akranesi kl. 9, frá Reykjavík kl. 17, frá Akranesi kl. 20. Hvassafell er á Siglufirði Vigör er á leið frá Patreksfirði til Stykkishólms, Varg fór frá London 4. þ. m. til Reykðarf jarð ar. Plico er væntanlegur til Vestfjarða á morgun frá Ála borg. Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss er í Rðykjavík. Goðafoss er í Antwerpen, fer þaðan væntan- lega á morgun 7/7. til Reykja- víkur. Lagarfoss er á Akranesi. Selfoss fer frá Reykjavík kl. 22.00 í kvöld 6/7. vestur og norður. Reykjafoss fór frá Lar vik 5/7. til Hull og Reykjavík- ur. Tröllafoss er í New York. Horsa fór frá Leith kl. 24.00 4/7. til Reykjavíkur. Madonna lestar í Hull 7/7. Érna Finnsdóttir (Sigmunds- sonar, landsbókavarðar), Máfa- hlíð Tl, og Geir Hallgrímsson, lögfræðingur, (Benediktssonar, alþingismanns), Fjólugötu 1. (6. júlí). Hjónaíéfns Elísabet Guðmundsdóttir, Ránargötu 8 A og Eskild Jo- iransen, BrumundaL Noregi. Hér er mynd af verðlaunapen- ingunum, sem veittir verða á Olympíuleikjunum í London í sumar. Áður voru fyrstu verð launin úr gulli, en nú úr brenndu silfri. Katrín Einarsdóttir, Hring- braut 137, og Bragi Sigurðsson stud, jur. Hringbraut 137. Soffía í. Kristbjörnsdóttir, Bergstaðastræti 6C og Ólafur Stephensen stud. med. Hring- braut 154. Blöð og tímarit Alþýðublaðinu hefur borizt Júní — júlí hefti sjómannablaðs ins Víkings. Efni þess er meðal annars: Hornafjörður, eftir Kr. Imsland; Diesel- eða gufutogar- ar, eftir Þorkel Sigurðsson. í Bremerhaven vorið 1948, eftir M. Jensson; Sjóhrakningar, eft- ir Pétur B. Jónsson; Eru nýsköp unartogararnir úreltir? eftir Þorkel Sigurðsson; Mataræði, eftir Júlíus Kr. Ólafsson. Einn- ig eru myndir af hvalveiðum, sögur, kvæði og fjölmargt ann að efni. Söfn og sýningar Listamannaskálinn: Minning- arsýning Tilraunafélagsins Njáls. Opin kl. 2—11. Skemmtanir KVIKMYND AHÚS: Nýja Bíó (sími 1544): „Gleði dagur á Bowery" (amerísk). Wallace Beery, George Raft, Fay Wry, Jackie Cooper. Sýnd kl. 9. „Einkaspæjarinn" (ame- rísk). George Montgomery, Nancy Guild. Sýnd kl. 5 og 7. (amerísk). Sýnd kl. 5. Austurbæjarbíó (simi 1384); „Sjálfstætt fólk“ (amerísk). Zachary Scott, Betty Field. Sýnd kl. 9. „Allir vildu eiga hana“ (amerísk). Sýnd kl. 3 og 7. Tjarnarbíó (sími 6485): — ,,Órabelgur“ (dönsk). Margu- erite Viby. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Tripoli-Bíó (sími 1182); — ,,í skuggahverfum Lundúnaborg ar” (amerísk). Gary Grant. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími 9184): „Og dagar koma“ (ame- rísk). Alan Ladd, Loretta Young Susan Hayward, Barry Fitzger- ald. Sýnd kl. 7 og 9. Hafnarf jarðarbíó (sími 9249): „Scotland Yard skerst í leik- inn“. .. (ensk) Eric Portman, Dulcio Gray. Sýnd kl. 7 og 9. SAMKOMUHÚS: Hótel Borg: Danshljómsvcit frá kl. 9—11,30 síðd. Sjálfstæðishúsið: Kveðju- dansleikur fyrir finnsku knatt- spyrnumennina kl. 9. SKEMMTISTAÐIR: Tívolí: Opið kl. 8—11,30 s.d. HLJÓMLIST: Austurbæjarbíó: Stefán ís- land syngur kl. 7,15. banjó og balalaika (plöt Otvarpið 19.30 Tónleikar: Lög leikin á anjó og balalaika (plöt- ur). 20.30 Útvarpssagan: ,Jane Eyre1 eftir Charlotte Bronte (Ragnar Jóhannesson skólastjóri). 21.00 Tónleikar: Symfónía nr. 2 í D-dúr eftir Sibelius (endurtekin). 21.35 Þýtt og endursagt: Mynd ir úr tónlistarlífi Vínar- borgar fyrir aldamótin (Jón Þórarinsson). Rabb við Otto voo Pöfát, Icurioasta hoefaleikara NorÖmaooa um hoefalelk. KROSSGATA NR. 69. Lárétt, skýring: 1. Kantur, 7. vökvi, 8, merki, 10, glíma, 11. Ameríkani, 12. hjálparsögn, 13. verzlunarmál, 14, gælunafni, 15. blóm, 16. afltaug. Lóðrétt, skýring: 2. Eind, 3, ullarílát, 4, titill, 5. skemmd, 6. kvenfuglinn, 9. skógarguð, 10. svað, 12. hestur, 14. ílót, 15. slá. LAUSN: Á NR. 68. Lárétt, ráðning: 1. Erfiði, 7. jól, 8. ljót, 10. D.D., 11. tað, 12. fræ, 13. Ag. 14. kjól, 15. æra, 16. stáss. Lóðrétt, ráðning: 2. Rjóð, 3. fót, 4. il, 5. indæll, 6. eltar, 6. jag, 10. dró. 12. fjas, 14. Zirá 15. æt. .; li .1 i'Twti. Kvöidverðarboð lil fíeiðun Craigie SÍÐASTLIÐINN þriðjudag hélt Háskóli íslands kveld verðarboð í Tjarnarcafé til heiðurs Sir. William A Craigie, hinum mikilsvirta málfræðingi og heiðursdokt- or háskólans. Varaforseti há skólaráðs prófessor Ásmund ur Guðmundsson, stýrði hóf- inu, en meðal boðsgesta voru sendiherra Breta, háskóla- kennarar í íslenzkum fræð um, fulltrúar Bókmenntafé lagsins, Rímnafélagsins og Kvæðamannafélagsins og nokkrir aðrir fræðimienn Skemmtu menn sér hið bezta við ræður og rímnakveðskap m. a. hélt heiðursgesturinn merkilega raeðu um fyrstu kynni sín af íslendingum og um ferðir sínar hér á landi Aíhending aðgön,gumiSa að Ólympíufeikjunum fer ifram í skrifstofu Raftækjaverzluniar íslands í Nýja Bióhúsinu við Lækjargötu (4. hæð) kl. 4—6 daglfga. Miðarnir sækkt fyrir 13. þ. m. og slkal þá jafnframt greiða fargjaid cg hótelkostnað fyriæ þá, sem íara á vegum nefndarinnar. Þeir, sem cska að fá samhiiða sæti, vsrSa að taka miðana samtímis. v Ófympfuiiefnd íslands. OTTO VON PORAT, kunnasti hnefaleikari Norðmanna, er staddur ’hér á landi um þessar mundir. Kennir hann við hneíaleikanmáskeið, sem nú stendur á vegum glímufélagsins ,Ármiaam“. í gær hittu tíðindamenn blaða hann að máli og ræddi hann mangt um iþrótt sína, en hann er þar margfróðúr og reydur. Árið 1924 keppti hann á Ólympíuleikjunum, í París. og varð ólympískur meistari í Imefaleik, fór íveim árum sliðar til Ban'daríkjanna og keppti þar við þá hnefaleikara, sem beztir vcru taildir og gat sér mikla frægð. —- Hvað segið þér um^ hnefaleika sem í þrótt? „Ég tel þá holla íþrótt og drengilega. séu þeir rétt iðk- aðir. En, það má áils ekki blanda þeim saman við „salgs mál“, sem því miður er stundum gert“. — Hvað leizt yður um hnefaleikana eins og þér sáuð þá iðkaða í Bandaríkj- unum? „Meðal áhugamanna leizt mér það allt með felldu. En meðal atvinnumanna virtizt mér það dálítið annað. Þar er það auglýsingastarfsemin, sýndarleikurinn og gróðafíkn in., sem mestu ræður. Þannig virtizt mér og með margar í- þróttir atvinnumanna, t. d. f j ölbragðaglímuna“. — Hvað álítið þér valda því, að svo mjög ber á bana slysum við hnefaleika nú á síðari árum? „Ég álít, að hnefaleikur þurfi ekki að vera hættulegri öðrum íþróttum, sé hann rétt iðkaðuir. Aðalorsök banda- höggs tel ég þá, að keppend- ur noti of litla hanzka. Kom ið hefur til mála að lögleiða sérstaka stærð hanzka. en ekki hefur því enn verið hrundið í framkvæmd". — Hv-ert er álit yðar á ís- lenzkum hnefaleikurum? •,Þeir, sem ég hef kynnst, eru duglegir og líklegir tií að geta náð góðum árangri. ef þeir hljóta rétta þjálfun, en þá skortir mjög kunnáttu sem vonlegt er. Og að endingu vil ég taka þetta fram: Ár- angur sá, sem íþróttamenn- irndr ná og það menningar- stig, sem íþróttirnar standa. á á hverjum tíma, fer eftir for usumönnunum, og tel ég það lögmál ekki hvað sízt í gildi þegar um hnefalejka er að ræða“. FFSÍ vifl aS nýju fogararnír mWi orönír 75 árið 1953 FARMANNA og fjski- mannasamband íslands, hef ur lýst ánægju sinni yfir þeirri ákvörðun ríkisstjórn- arinnar. að semja nú þegar um smíði 10 togara til viðbót ar og telur það spor í rétta átt. En jafnframt telur sam- bandið nauðsynlegt að ríkis stjórnin tryggi sér enn meiri og áframhaldandi aukningu togaraflotans,, svo að náð- verði því marki, að nýju tog" ararnir verði orðnir ekki færri en 75 á árjnu 1953, svo sem 11. þing sambandsins á- lyktaði. Þá telur sambandið mjög þýðingarmikið að jafnframt verði gerð gangskör að því a-5 athuga þær framfarir og um bætur, sem heppilegastar kunna að þykja á útbúnaði hinna nýju togara til sem full komnastrar hagnýtingar á afla svo sem mjölvinnslutæki og fleira. Loks leggur sambands- stjórnin áherzlu á. að Far- manna og fiskimannasam- bandinu verði gefinn kostur á að fylgjast með öllum und irbúningi og framkvæmdumi í sambandi við smíði nýrra togara, og að koma með til- lögur varðandi þau mál, enda var slíkur háttur viðhafðvrr við undirbúning að byggingu hinna 30 nýbyggingartogara. Þá vill sambandsstjórninj leggja áherzlu á að nýju tog urunum verði úthlutað sem réttlátast til heppilegusíu útgerðarstaða á landinu. ,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.