Alþýðublaðið - 02.10.1948, Page 1
Veðurhorfur:
Minnkandi norðvestan átt.
Léttir til.
I ■;' ::f: m
i *
XXVIII. árgangur.
Laugardagur 2. október 1948
224. tbl.
Forustugrein:
Hvers vegna biðu þeir ý
g osigur;
&
Stœrsta og minnsta flugvélin
Hér sést stærsta sprengjuílugvél Bandaríkjanna við ihlið einnar .minnstu flugvélarinnar
vestan hafs, á flugvellinum í Cleveland í Ohlo. Sprengjuflugvélin, sem er af gerðinni B—
36, vegur 300 000 ensk pund, en lit'a flugvélin ekki nema 590 pund.
Dr. Euwe kemur
ti
DR. EUWE, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, kemur
hingað til Ileykjavíknr um
eða efíir miðjan næsta mán
uð. Mun hann tefla við ís-
lenzka skákmenn og fiytja
hér fyrirlestra um skákmál-
Ðr. Euwe bauð Skáksam-
bandi íslands að koma hing
að þessara erinda, og þar sem
tilboð hans er mjög hag-
sætt, hefur stjórn skáksam-
bandsins, að fengnu leyfi við
skiptanefndar, ákveðið að
taka því.
Dr. Euwe mun dveljast
hér á landi um þriggja vjkna
skeið- Ekki er enn fullráðið,
hvernig skákmótum í sam-
bandi við komu þessa nafn-
togaða. skákmeistara verður
hagað, en lögð verður áherzla
á, að sem flestir fái tækifæri
i,il að sjá list hans og revna.
Héðan fer dr. Euwe vestur
um haf til Bandaríkjanna.
Dr. ' Euwe fæddist árið
1901. Hann er ddktor í stærð
fræði og hefur fram á síðustu
á gegnt kennslustörfum í
þeirri grein, en mun nú vera
atvinnuskákmiaður- Heims-
meistari í skák varð hann ár
ið 1934, er hann sigraðj dr.
Aljechin í einvígi, en hann
tapaði heimsmeistaratitlin-
um aflur í hendur sama
manns tveim árum síðar. Dr.
Euwe hefur um 20 ára skeið
verið talinn í röð allra
fremstu skákmanna heims-
áns-
Segist telja sig óbundinn af lögum
andsins, íari nommúnisfar í sfjórn
CHARLES DE GAULLE hershöfðingi flutti ræðu
á blaðatnannafundi í gær og krafðist við það tækifæri
nýrra kosninga í Frakklanai og sagði, að núverandi
ástand í stjórnmálum landsins hlyti fvrr eða síðar að
leiða til stjórnleysis. Aðspurður um, hvað hann gerði,
ef kommúnistar kæmust í stjórn á Frakklandi, svaraði
hershöfðinginn, að hann teldi sig þá óbundinn af lög-
um landsins og myndi grípa til þeirra ráðstafana, sem
hann teldi nauðsynlegar.
Hershöfðing'inn flutti. ræðu*“
þessa á fundi 400 franskra
og erlendra fréttaritara, sem
hanai hafði stefnt lil sín. Réð
isí de Gaulla harkalega á nú
verandi stjórn Frakklands og
sagði, að hún. hefði láti.ð
fresta bæjar- og isveitarstjórn
arkosningunum af því að hún
'vissi, að hún væri í minni
hluta með þjóðinni. Kvað
hann það.ejna ráðið til lausn
ar á stjórnmálaöngþveitinu í
Frakklandi, að orðið yrði við
kröfu hans ctm, að fulltrúa
deild fraruska þingsins yrðl
send heim og efnt til nýrra
almennra kosninga í landinu.
Sagði hann, að Frakkar væru
orðnir þreyttir á núverandi
stjórnmálaástandi og vildu
styðja ,,sterka stjórn“ til
valda.
Charles de' Gaulle kvaðst
mundu binda enda á verkföll
in í Frakklandi, ef hann
kæmst til valda. Hann sagði,
Frarnh. á 7. síðu.
þau a
stJérniíiálaneftracSar alisherjarþirsgslns
------------------------♦---------
HARÐAB DEILUR urSu um kjarnorkumáiin á fundum
síjórnmálanefndar allsherjarþings bandalags hinna sameinuðu
þjóða í gær milli Vishinskys, fulltrúa Rússa, og Vicíor Mc
Neil, varautam-íkismáiaráðherra Rreta. Sagðj Mc Neil, að
Rússar væru andvígir allri samvinnu þjóðanna um kjarnorku-
málin og vildu láta vísa þessu viðkvæma deilumáli til örygg-
isráðsins til að geta hindrað aliar raunhæfar aðgerðir í skjóli
neitunarvaldsins.
Mc Nejl kvað lýðræðisþjóð
irnar reiðubúnar til sam
vinnu um kjarnorkumálin,
þar eð fyrir þeim vekti, að
þessi stórfellda uppgötvun
yrði tekin í notkun friðsam
legra vísinda og tækr.i og
stefnt að því, að kjarnorkan
yki farsæld mannkynsins í
sitað þess að valda eyðilegg
ingu, sem leitt gæti til tortím
ingar. En ef svo færi, að
kjarnorkusprengjan yrði not
uð í slyrjöld með.öllum þeim
ósköpum, seih því hlytu að
fylgja, þyrfti enginn að vera
í vafa um, hvers væri sökin.
Ábyrgðin væri hjá þeirri
þjóð, sem aldrei hefði léð
máls á samvinnu um kjarn-
orkumálin, en reyndi svo í
pólitískum áróðri sínum að
skella skuldinni á aðra.
Tilefni þessara umræðna í
stjórnmálanefndinni var
skýrsla og tillögur kjarn-
orkumálanefndar bandalags
hir.na sameinuðu þjóða-
Hafði hún orðið ásátt um til
lögur varðandi eftirlit með
framleiðslu kjarnorkunnar
og not hennar í friðsamlegu
uppbyggingarstarfi þjóðar.na.
Lagði fulltrúí Kanada til, að
stjórnmálanefndin samþykkti
tillögur kjarnorkumálanefnd
arinnar, en Vishinsky mælti
Báru ekki við að stilia upp fulitrúaefni
í Verkamannaféiaginu Valur í Bárðardai
i .......
KOMMÚNISTAR biðu í fyrradag herfilegan ósigur við
tulltrúakjörið til Alþýðusambandsþings í Verkalýðsfélagi
Stykkishólms. Voru frambjóðendur lýðræðissimia kjörnir þar
með 65 og 63 atkvæðum, en fulltrúaefni kommúnista fengu
aðeins 34 og 7 atkvæði! Verkalýðsfélag Stykkishólms sendi
tvo kommúnista á síðasta Alþýðusambandsþing.
í Verkalýðsfélagi Stykkis
hólms voru kosnir Guðmund-
ur Ágústsson með 65 atkvæð-
um og Kristinn Gíslason með
63 atkvæðum.
I fyrradag kaus Verka-
mannafélagið Valur í Búðardal
einnig fulltrúa sinn á Alþýðu-
sambandsþing. Var frambjpð-
andi lýðræðissinna, Sæmimd-
ur Bjarnason, kosinn með 27
atkvæðum. Kommúnistar voru
þar svo vonlausir, að þeir báru
ekki við að hafa mann í kjöri!
á móti því og krafðist þess,
að öryggisráðið fengi kjarn
orkmálin til meðferðar. Sagði
hann, að Rússar gætu ekki
fallizt á þetta fyrirhugaða eft
irlit með framleiðslu kjarn
orkunnar vegna of ríkra
ííaka Bar.daríkjanna í hinni
væntanlegu eftirlitsnefnd.
Utanríkismálaráðherra Pól
lands tók í sama streng- og
Vishinsky í þessum umræð-
um sem öðrum.
Nýr sipr brezka
álþýðuílokksins
við aukakosningar
BREZKI Alþýðuflokkur-
inn vann í gær nýjan glæsi-
legan sigur í aukakosningum
í Glasgow. Var frambjóðandi
hans kosinn með miklum
meirihluta, en þetta var eitt
þeirra kjördæma, sem Al-
þýðuflokkurinn vann í hin-
um sigursælu kosningum
1945.
Frambjóðandi Alþýðu-
flokksins, sem kjörinn var
þingmaður kjördæmisi.ns við
aukakosningar þessar hlaut
14 000 atkvæði, en frambjóð
andi íhaldsflokksins 7000 at'
kvæði og frambjóðandi
Kommúnis t af lokksins 4000
atkvæði.
Við aukakosningar bær,
sem fram hafa> far.ið á Bret
landi síðan jafnaðarmanna-
stjórnin tók við völdum, hef
ur brezki Albýðuflokkurinn
haldið 27 kjördæmum, en
tapað , aðeins einu. Ihalds-
flokkurinn hefur við auka-
kosningarnar á kjörtímabil-
inu haldið 11 kjördæmum,
en tapað bremur. Eru sigrar
brezka Alþýðuflokksins við
aukakosningar þessar algert
einsdæmi um stjórnarflokk á
Bretlandi-
- ...
■'’V' ^ -'iýj
Hitaveitan óvirk
HITAVEITUGEYMARNIR
tæmdust í gær um tvöleyt-
ið og var hitalaust á veitu-
svæðinu til kl. 7 síðdegis, en
þá hafði tekizt að lagfæra hil
un þá á háspemiulínunni að
Reykjum, sem olli þar dælu
stöðvun. t