Alþýðublaðið - 19.10.1948, Síða 1
Forsætisráðiiíerriar brezk'a ssmwiii#ns eru nú á .f.ur.di í London og var passi mynd tekin af
þe:m úti fyrir breaka íorsætisiáckerrabústað 'um, Down.laj Sírcet 10, þar ésm ráðstefnan
er baldin. Á myrjdinni sjást, talið frá vinstri: Peter Frssér (Nýja Sjálar.d), Pardit Ne'hru
(Hindústan), Eric Louw (Suðm-Afríka), Herfcsrt Evatt (Ástraiía), Cl-em-ent Attlee (Bret
land), Norm.an Robertson (Kanada), Stepfcen Senanayake (Ceyion), Liaquat Aii Khan
(Pakistan) og Godfrey Huggins (Suður-Rhodesia).
Kommúnistár höfðu gert slvöry úr hót-
un ssoni ©g vato og gas var þegar byrjað
streyma isio í námornar,
Ekki farið í nein-
ar felur lengur
með iilganginn.
Skorað á verka-
iýðsfélögin að
gerast verkfæri
Rússlandso
FRANSKIR KOMMÚN-
ISTAR, sem fara með
stjórn gamla franska Al-
þýðusambandinu, CGT,
létu faglegu grímuna al-
veg faila í lok ársþings þess
í París í vikunni, sem leið.
Aðalályktun sambands-
þingsins varð áskorun til
frönsku verkalýðsfélag-
anna um að binda enda á
aðild Frakldands í Mar-
shalláætluninni og Vestur-
Evrópubandalaginu og
fylkja sér um Sovét-Rúss-
land og „friðarpólitík“ þess!
Milljónir verkamanna
hafa þegar g<jngið úr gamla,
franska Alþýðusambandinu
!)g myyndað með sér ný alls
ierjarsamtök.
rundvelli Marshallhjálparinnar
Urn 17 miíljörðum krórsa verSor varið í
oýsköpun til þess að auka afkos^t út-
flotningsiðnaðar og spara gjaldeyrL
STJÓRNMÁLANEFND
allsherjarþingsins í París
ræddi kjarnorkumálin enn á
ný í gær, og liggur nú fyrir
lienni tillaga frá full-
trúa Kanada um að stórveld-
in fimm og Kanada haldi með
sér sérstakan viðræðufund til
þess að reyna að ná samkomu
lagi um kjarnorkumálin.
Sir Alexander . Cadogan,
fulltrúi. Breta, studdi þessa
tillögu í gær, f lj'
NORSKA STJÓRNIN hefur nú lagt fram umfangsmikla
fjögurra ára áætlun um nýsköpun í sambandi við efnasags
samvinnu Evrópulandanna og Marshalllijálpina. Síefnir áætl
un þessi að því að auka stórlega afköst útflutningsiðnaðarins
eða iðngreina, sem spara gjaldeyri. Er hér alls um að ræða
fjárfestingu á fjórum árum sem nemur 16,8 milljörðum norskra
króna.
Skipting þessarar miklu^_______________________________
fjárfestingar verður sem hér
segir, samkvæmt áætlun
norisku stjórnarinnar:
Landbúnaður 1200 millj-
Skógarhögg 108 -—-
Fiskveiðar 585 —
Hvalveiðar 240 -—-
Iðnaður og handv. 3000 —
Raforkuver 684 —
Kaupskip 3700 —
Aðrar samgöngur 2689 —
íbúðir 2250 —
Ýmisíegt annað 2360 —
Norðmenn leggja eina meg-
ináherzluna á að auka kaup-
skipaflota sinn, en hann var
beim áður mikil gjaldeyris-
lind. Þá ætla þeir að auka
kolaíramleiðslu á Svalharða
auka málmframleiðslu í land-
inu. auka fiskveiðar og fisk
iðnað. stórfjölga raforkuver-
um. leggja mikið í bætta vegi
og betri járnbrautir. Land-
búnaðurinn verður aukinn
með mttklum vélakaupum og
haldið verður áfram með
miklar íbúðabyggingar.
Ásetlun þessi er í samræmi
(Frh. á 7. síðu.)
HERLIÐ OG VOPNUÐ LÖGREGLA íók kolanámur
MÍ5-Frakklands á sitt vald í gær, er kommúnistar geröu al-
vöru úr hótun sinni um verkfall gæzlumamia þeirra er var-
ið hafa námurnar vatni og gasi. Aðeins á einum síað kom til
árekstra, þegar verkfalSsmenn reyndu að ná einni námunni
aftur á sitt vald og lögreglan beitti táragasi.
Kommúnistar hótuðu því í
lok vikunnar, sem leið, að
láta gæzlumenn í kolanámun
um hætla störfum, ef hsr og
lögregla, sern stjórnin hefur
sent tii kolahéraðanna, yrði
ekki flutt þaðan hið bráðasta.
Gerðu þeir alvöru úr þessu í
gær og byrjaði vatn og gas
þá þegar að streyma inn í
námurnar- Var fyrirsjáanlegt,
að námurnar myndu af þeim
ástæðum verða óstarfrækslu-
hæfar innan skamms, ef þessu
verkfalli yrði haldið áfram,
og lét stjórnirj því þegar til
skarat skriða í námuhéruð-
um Mið-F(rakklands í gær og
tóku hermennirnir og lögregl
an námurnar þar á sitt vald.
Engar fregnir höfðu borizt
í gærkveldi frá kolanámuhér-
uðurum á Norðu'r-Frakk
landi.
DR. BRAMUGLIA, forseti
öryggisráðsins, ræddi í gær
Berlínardeiluna enn einu
sinr.i við Vishinski, en eftir
það ætlaði hann að. hafa tal
af fuHtrúum smáþjóðanna í
öryggisráðinu 1 '
Óvíst var enn í gærkveldi,
hvenær r.æsti fundur örygg-
isráðsins um Berlínardeiluna
yrði haldinn.
I
Frá fréttaritar A'lþbl.
KHÖFN í gær.
TALIÐ ER NÚ VÍST, að
forsætisráðherrar fjögurra
Norðurlanda, Danmerkur, ís-
lands, Noregs og Svíþjóðar,
muni hittast í Stoldíhólmi í
lok þessa mánaðar, í sambandi
við fundarhöld samvimiu-
nefndar norrænna alþýðusam-
taka, sem fara fram þar í borg
inni tvo síðustu daga mánað-
arins. Hins vegar er enn tal-
ið óvíst, hvort forsætisráð-
herra Finnlands getur komið.
Ekkert spurzt til þess síðan 6. október.
Frá fréttaritara Alþbl. KHÖFN í gær
MENN ÓTTAST að danska eftirlitsskipið „Alken“ hafi
farizt með allri áhöfn úti fyrir austurströnd Grænlands. Eft-
irlitsskipið fór frá Kangerslugssuak á leiðis til Angmagssalik
6. október með átta danska sjóliðsmenn og einn grænlenzkan
hafnsögujmann rnn borð; og síðan hefur ekkert frá því heyrzt.
Eftirlitsskipsins hefur ver-
ið leitað af flugvélum og
þremur skipum síðan 12. okt.
en árangurslaust.
Ein af flugvélunum, sem
þátt hafa tekið.í leitinni, er
Catahnaflugbátur, sem er
eign danska floíans, og hefur
hann leitað frá Keflavíkur-
flugvelli og Reykjavíkurflug-
velli; en þaðan er löng leið
þangað, sem eftirlitsskipið
ætti að vera að finna fé það
væri ofansjávar.
Töluverður ís er sagður
vera við austurströnd Græn-
lands á leiðinni milli Kanger-
slugssuak og Angmagsiik.
SKULDABRÉFIÐ, sem 75
þúsund króna vinningurinn
kom upp á, var selt í Lands
bankanum í Reykjavík, en
ekki er enn vitað, hver hand
hafi þess er, þar eð enn er
ekki byrjað að greiða vinn-
ingana, en það mun verða
gert eftir nokkra daga.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið hefur fengið hjá
fjármálaráðuneytinu, hafa
þegar nokkrir, sem hlotið
hafa vinning, gefið sig fram,
en útborgun á vinningunum
mun ekki hefjast fyrr en
prentuð hefur verið vinninga
skrá.
Hér í Reykjavík verða
vinningarnir greiddir hjá rík
isféhirði í Amarhvoli, en úti
á landi verða þeir greiddir
hjá sýslumönnum og bæjar-
fógetum, og verður að senda
þeim vinningaskrána áður en
hægt er að fara að greiða
vinningana.