Alþýðublaðið - 22.10.1948, Qupperneq 7
Föstudagur 22. okt. 1948.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Minningarorð.
ÍSLEIFUR JÓNSSON
gjaldkeri andaðist að heimili
sínu Bergstaðastræti 3. s- 1.
sunnudag, 17. þ. m. Æði
mörgum bæjarbúum mun
finnast skarð fyrir skildi við
fráfall hans, svo kunnur var
hann bæjarbúum eftir 28 ár.a
starf við Sjúkrasamlag
Reykjavíkur. Það eru aðeins
3 ár siðan ég ritaði stutta
grein í Alþýðublaðið í til-
efni af því, að þá átti 'ísleif-
ur 60 ára afmæli og 25 ára
starfsafmæli. í þessari grein
réyndi ég að sýna fram á,
hverl lán það var fyrir þessa
slofnun að fá ísleif Jónsson
og konu hans til starfa þegar
á þeim árum, sem það átti
erfiðast uppdráttar, — hvern
ig þau hjónin fórnuðu starfs-
kröftum og húsrúmi fyrir
þessa vanburða stofnun, og
hvernig þeim ásamt stjórn-
inni lókist að fleyta S R. gegn
um alla erfiðleika og veroa
með því fjölda manns að liði
þegar mest lá við. Ég ætla
sem minnst að endurtaka af
því, sem ég sagði þá. En mig
langar til, með fáeinum orð-
um, þó fáíækleg verði, að
minnasl ísleifs Jónssonar
eins og hann kom mér fyrir
sjónir, og færa honum
hinnstu kveðju og þakkarorð
frá Sjúkrasamlagi Reykjavík
ur og mér sjálfum.
Þegar við höfum starfað
tugi ára með ágætum mönn-
um, og þeir svo hverfa af
sjónarsviðinu, þá fer oft svo,
að okkur verði orðfátt. Oklcur
finnst skarð þeirra vandfýllt,
og það sækir að okkur
hryggð og kvíði. Svo hefur
mér að minnsta kosti farið
við fráfall ísleifs Jónssonar.
Eftir að hafa haft nærri þvi
daglegt samneyti við hann
. nærri þrjá tugi ára, — og
alltaf vimsamlegt, og alllaf
öruggt, þá er sízt að undrast,
þótt hans sé saknað, og það
þrátt fyrir, að nokkuð er
langt síðan varla var hægt
að búast við honum aííur til
starfa.
En það var ekki að skapi
íisleifs að fatast við gang lífs
né dauða. Hann myndi helzt
kjósa, að allt það bezta af
störfum hans yrði tekið til
fyrirmyndar, og þeim öllum
haldið áfram á sama grur.d-
að
ísleifur Jónsson-
efa, þá er óhætt að fullyrða,
að ísleifur Jónsson hafi verið
mikilmenni í þeim efnum. Ég
held að mér sé óhætt að full-
yrða, að við allir sem lengst
áltum samstarf með honum,
höfum aldrei orðið ósáttir.við
hann, né hann við okkur,
meira að segja aldrei orðið
þess varir, að hann reilddist-
Ekki er þó svo að skilja að
hann væri alltaf ánægður
með allt, eða að honum
fyndist alltaf nógu vel ganga
og engu áfátt. Fjarri fer því.
En þegar vir.na þurfti betur,
þegar greiða þurfti úr erfið
leikunum, eða ekki var allt
í því lagi, sem hann taldi
nauðsynlegt, þá lýsti það sér
í sársaukakenndri vanlíðan;
og dugði það að minni mein-
ingu betur, en átölur eða
reiði hefði gert; og dugði
enda ætíð vel. Enginn sam-
starfsmaður, vildi verða þess
valdandi að baka honum van
líðan, svo vir.sæll var hann.
Ég veit ekki, hvort allrr þeir,
er þekktu hann, eru mér sam
mála um þetta, eða hafa tek-
ið eftir því. Ég tel það jafn
örugglega rétt eigi .að síður,
og það er ekki laust við, að
mér þyki vænt um, að ég tel
mig öðrum fremur hafa haft
tækifæri til að verða þess
var.
í daglegri umgengni og
hóp samstarfsmanna var ís-
leifur glaður og skemintinn
og átti til saklausa kímni, sem
létti mörgum skap frá dag-
legu strili og örðugleikum.
ísleifur Jónsson byrjaði
slörf sín sem kennari og síð
ar skólastjóri. Ég get fátt eitt
sagt af þeim störfum hans; þó
hef ég oft orðið þess var, að
börnurn og æskumönnum er
nutu hans tilsagnar, þóttj allt
af vænt um hann síðan. —
velii, og skal það vonað,
svo verði.
Ísleiíur var maður greind
ur vel, hægur • og pruður í
íramgöngu, og kunni vel að
stilla skap sitt. Einhvers stað
ar stendur, að'sá, sem stjórn-
ar geði sínu, sé meiri en sá, Mætti það merkilegt vera, að
er flytur fjöll. Sé sú fullyrð-1 maður með hans gáfur, góð-
ing rétt, sem ég ætla ekki að lyndi og lipurð hafði.ékki ver
ið góður fræðari. Hann vann
lengi og vel að ýmsum félags-
og umbótamálum, og eins og
áður er sagt starfaði hann í
28 ár sem aðalgjaldkeri við
Sjúkrasamlag Reykjavíkur,
og það starf hygg ég að mest
hafi reynt á manngildi hans
og bezt sýr.t, hversu miklu
starfsþreki, skilningi og prúð
mennsku hann réði yfir.
Framan af var S.R. lílið,
en áíti því erfiðara uppdrátt
ar. S. 1. 13 ár var það fjöl-
mennt- Ég hygg, að frá flest-
um heimilum hér í bæ hafi
fólk rekið erindi sín við S.R.
og mikill íjöldi þess eða vel
flest verið afgreitt af ísleifi
að einhverju leyti- Auk þess
veitti hann mörgum viðtal
utan skrifstofutíma, sérstak-
lega meðan S.R. var til húsa
hjá honum, — og þá sérstak-
lega því fólki. sem erfiðast
átti og mest þurfti úrlausnar
við; því fólki var honum sér-
stök ánægja að liðsinna.
Eftir að skyldutryggingin
kom fyrst í gildi var S.R.
ekki vinsælt hjá öllum, og
því varð starfsfólkið að svara
þeim óánægðu sem hinum
sem ánægðir voru; og kom
það skiljanlega mjög oft í
hluf ísleifs að greiða úr vand
kvæðum í því sambandi, en
það tókst honum j.afnvel og
öll önnur störf. Aldrei veit ég
til, að borizt hafi kvörtun né
óánægja til stjórnar S-R. eða
annarra út af ströfum hans.
En ánægju með þau hef ég
heyrt hvaðanæfa. Þessa get
ég til sönnunar því, er ég þeg
ar hefi sagt.
Allir, sem þekktu ísleif
vel, urðu snortnir af velvilja
hans og samhyggð, ef eitt-
hvað bjátaði á; og þeir er öðl
uðust vináltu hans áttu hana
óskipta síðan.
ísleifur Jónsson var gæfu-
maður, hann átti miklum vin
sældum að fagna og verð-
skuldaðri tiltrú. Og hann
hafði við hlið sér hálfa æfina
trausta og trygga konu. — 27.
maí 1916 giftist hann Hólm-
fríði Þorláksdóttur, og stóð
hún ótrauð og örugg við hlið
hans við gtörf hans og hugð-
arefni. Og síðast en ekki sízl
veitti hún honum hjúkrun og
hjálp i meira en sex mánaða
erfiðum og þjáningafullum
veikindum; það starf eins og
önr.ur rækti hún eins og þær
konur einar geta rækt, sem
fæddar eru hjúkrunarkonur
og fórna öllu fyrir heimili
sitt og ástvini.
Þær e:_u þrjár konurnar,
sem fráfall ísleifs gengur
næst móðir hans r.íræð, kon-
an hans og stjúpdóttir- Marg
ir munu senda þeim hlýjar
hluttekningarkveðjur; það er
það eina ,sem kunningjarnir
geta gert. En minningarnar
um manninn, sem þær unnu,
mun duga þeim bezt-
Jarðarför móður minnar
GuMinny Jdrísdéttur,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, laugardaginn 23. þ.
m., og hefst með bæn að heimili mínu Vesturgötu 32
Hafnarfirði kl. 2 s. d.
Fyrir hönd okkar stystkinanna
Hrefna Eggerisdóttir.
vegna jarðarfarar ísleifs Jónssonar,
aðalgjaldkera.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Stjórnendur S.R. fyrr og
síðar og starfsfólk, mun
geyma minninguna um ís-
leif Jónsson með virðingu og
þakklæti.
Felix Guðmundsson.
Krýsuvíkurvegur
Frh. af 3. síðu.
við fjárskorti bæjarins til að
leggja fram lán til Krýsuvík-
urvegarins, en nú byggðist
andslaða hans á því, að valin
hefði verið röng leið. Hins
vegar sagðist Pálmi fullyrða,
að þótt draumurinn eða hug-
myndin um Þrengslaleiðina
væri kannski ágæt, þá myndi
Krýsuvíkurvegurinn lengur
fær í snjóum heldur en heið-
arvegurinn, enda væri það
auðskilið mál, þar eð Krýsu-
víkurleiðin lægi mun lægra,
og væri þar því snjóléttara.
,,Það væri gaman að kevra
Krýsuvíkurveginn á morg
un!“ greip borg.arstjóri fram
í. — ,,Já, og ganga svo um
þrengslin með borgarstjóran
um á eftir — til er ég!“ mælti
Pálmi.
Með því lauk umræðunum,
og var dagskrártillaga borgar
stjóra borin undir atkvæði og
samþykkt með 8 atkvæðum
gegn 7.
Qeirðir á Frakklandi
Farmhald af 1.. síðu.
Bsthune.á Norður Frakklandi,
særðust 20 lögregluþjónar, en
á hinum, í Mið Frakklandi,
særðust 30 lö'gregluþjónar, þar
af 10 alvarlega. Um það, hve
GUÐSPEKINEMAR.
Stúkan' Septíma iheldur fund
í fcvöld fcl. 8.30. Erindi:
Þeíkfcing og blekking, flutt
af Gretari Pells. — Gestir
velkomnir.
VALUR.
Aðalfundur félagsins verður
hald'inn að Hlíðaremda, föstu-
daiginn 29. ofct. 'bl. 8,30.
Stjórnin.
U.M.F.R.
Vi'kivakaæfing í kvöld kl. 9
í fimleifcasal Menntaskólans.
Þeh-, sean æfðu vikivafca hjá
félaginu' s.l. vetur, ieru vin-
samlega beðnir að mæta í
kvöld, ef þeh' geta, svo og
laðrir, siem kynnu að vilja
æfa vikivaka.
margir hefðu særst alf hinum,
var efcki vitað í Lomdon í gær
kve’ldi'.
A tveimur stöðum', í Rouen
og Dunfcerque, neituðu hafn
arverkamenn í gær, samkvæmt
fyrirsfcipim sambands síns,
sem ier stjórn.að af kommún
istum, að sfcipa upp amerísfc
um fcoluCTi, sem sfend hafa ver
ið til Frafcklands.
Nú eru síðustu forvöð að fá íslendingasögurnar á áskriftarverðinu — kr.
428,50. — Eftir mánaðamótin fást þær aðeins á bókhlöðuverði kr. 520,00.
Áskrifendur: Vitjið strax bókanna í afgreiðslu útgáfunnar eða látið senda
þær heim til yðar.
íslendingasagnaútgáfan,
Pósthólf 73. KIRKJUHVOLI. Sími 7508.