Alþýðublaðið - 26.11.1948, Page 6

Alþýðublaðið - 26.11.1948, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Föstudagur 26. nóv- 1948. barasta, barasta — — Ég' las í blaðinu i gær, að þetta svokallaða siðmenntaða fólk teldi siðferðisnauðsyn, að allir byggju í siðferðistryggum íbúðum, — það er að segja að minnsta kosti fimm herbergj- um eða sex fyrir utan eldhús og bað og önnur nauðsynlegheit barasta. Og allur þe^si her- bergjafjöldi átti fyrst og fremst að vera til þess að tryggja að krakkarnir lærðu ekki ósiðsemi af foreldrum sínum og ekki til annars barasta. Ég segi nú ekki annað en barasta, barasta og spýti í sjötíu gráðu horn hart á stjór! Ef unglingarnir lærðu ekki aðra ósiðsemi en þá, sem þeir læra heima hjá sér, þá stæð ihún betur á vegi en hún stæðu þeir betur á vegi en þeir gera nú, það ætla ég að segja barasta, því að enda þótt heimil- in séu ekki öll upp á það bezta, þá munu foreldrarnir ekki svona yfirleitt sýna daðurs- kvikmyndir í heimahúsum, kenna króum sínum að lesa í kynferðisritum, eða hafa kok- teilbar í borðsofunni, barasta. Þetta kann allt að vera til svona á heimili og heimili, en ekki svona almennt og yfirleitt bar- asta. Ef nokkurt ráð á að duga barasta, þá er það barasta það, að hvert hús standi í fimm mílna fjarlægð frá götunni og með fimm mílna millibili og fimm sinnum fimmtíu mílur frá kvikmyndahúsum, daðurs- dansknæpum og bílstöðvum barasta, — og barasta það dygði barasta! Ef það er hins vegar barasta nokkuð, sem að mínum dómi réttlætir fimm herbergja íbúð- ir frá siðferðilegu sjónarmiði, er það barasta það, að börnin hafi þá síður ljótt og ósæmilegt fyrir foreldrum sínum; — já barasta. Ég þori nefnilega að hengja mig upp á það barasta, að enda þótt við eldri karlarnir höfum verið svona og svona fínir í muninum og fengið okk- ur neðan í því og allt það bar- asta og verið breyskir á öðrum sviðum barasta, þá sunduðum við barasta ekki ósiðsemina eins og vísindalega fræðigrein, — enda. var þá barasta enga kvikmyndatilsögn á því sviði að fá, — litli og stóri voru ekk- ert svoleiðis, — og ekki urðu neinir bókaútgáfusnápar þá stórauðugir á því að gefa út ná- kvæmar kennslubækur varð- andi barasta öll hugsanleg at- riði ósiðseminnar, — óirei, bar- asta. Sérfræði á öllum sviðum, — og svei því öllu barasta. —' Barasta, barasta-----! ÆSKAN HEFUR ORÐIÖ Fullorðna fólkið segir. að æsk an sé löt, drykkfelld, lauslát, eyðslusöm og hugsjónalaus. Þetta er rakalaus óhróður, sprottinn af því, að fullorðna fólkið öfundar okkur af tæki- færinu tíl þess að taka lífið létt. Æskan er einmitt skarpdugleg og iðin, samanber Bretavinn- una; bindindissöm á allan hátt, samanber Borgina og fleiri skemmtistaði; siðsöm með af- brigðum, samanber hagskýrsl- urnar og ástandið sáluga; spar- söm fram úr hófi, samanber sjoppurnar og bílstöðvarnar, — og hugsjónaríkari heldur en æskan er 1 einu og öllu til fyrir sinni áður verið, — samanher æskulýðshöllina. Sé svo, að ein- hver æskumaður finnist, sem lýsing þessi á ekki við í einu og öllu, þá er hann áreiðanlega ekki í neinum skóla. — Nei, ég get trúað ykk\~ fyrir því, að æska ner í einu og öllu til fyrir myndar, og svo félagsleg að af ber. Og þeir smávegis gallar, sem æskuna lýta, eins og til dæmis leti drykkjuhneigð, lauslæti eyðslusemi og hugsjónaskortur, er ekki henni sjálfri að kenna, heldur uppeldinu og fordæmi fullorðna fólksins. Æskan hef ur verið látin of sjálfráð, — og eina ráðið til að ráða bót á þessu, er að byggja æskulýðshöll. þar sem æskan fær að vera alger lega sjálfráð. Hún hefur fram að þessu aðeins átt-völ á óheilbrigð um skemmtunum, vegna þess, að hún hefur fengið að velja sér sínar skemmtanir eftir eigin höfði, en í aeskulýðshöllinni verður þetta allt öðru vísi, því að þar fær hún sjálf að ráða skemmtunum sínum. Það þýðir heldur ekkert að banna æsk unni að drekka áfengi því að þá drekkur hún bara meira, eina ráðið er að hana hætti að langa í það, því að þá hættir hún að drekka. Svo er útvarpið með als konar fróðleik og annað drep göfugt efni, sem enginn ungur maður getur hlustað á! Eina ráð ið er að hafa allt efni þannig, að það sé göfgandi og fróðlegt, og þá skulið þið sjá að æskan hlust ar á útvarpið. Ég segi svo ekki meira í þess um tíma, en vona að allir ha.fi 'Matthildur lauk við þessa nákvæmu rannsókn og and- varpaði: „Ég þarf engu að kvíða, hvað þetta snertir.“ „En það er alls ekki það. Jafnvel þó að þú værir ekki falleg, þá væri það alveg sama.“ Þegar hann hafði sagt þetta einn dag í veiðimannakofanum, hafði hún svarað: ,,Þá get ég elzt við hlið þér án þess að þurfa að kvíða.“ Hún hugsaði: Þó er ég fegin, að þetta hefur allt gengið svona vel. „Ekkert gæti skilið okkur nú, Matthildur“. , Hún lét sumarkjólinn sinii falla úr hendi sér og stóð hreyfingarlaus, því að hún vissi það allt í einu, að fjarlægðin milli hennar og Westons var vegna framkomu hennar. — Þetta kom henni svo á óvart, að hún gleymdi að klæða sig. Henni hitnaði í framan. Hún^ settist niður nakin í hæginda- stólinn, og fór í fyrsta sinn að íhuga það, hvers vegna hún hefði fjarlægzt hann svo und- anfarna mánuði; og hún varð döpur og vandræðaleg, af því að hún vissi ekki ástæðuna. Síðan byrjaði hún, eins og læknir, sem er að kveða á um sjúkdóm á því að útiloka allt, sem ekki gat hafa haft áhrif á framkomu hennar. Hún elskaði hann. Þó að ekkert væri eftir nema minningin um hann þá hlaut hún að elska minning- una um hann til æviloka. Svo að ekki var það það. Og óttinn um það, að líkami hennar væri ekki lengur nógu fallegur var heldur ekki ástæðan. Því að auðvitað vissi hún, að hann mundi ekkert síður elska hana, þó að á henni sæist hrukka. — En hver var þá ástæðan? Hún hætti að hugsa. Hún hallaði sér aftur á bak í stól- inn, svo máttlaus, að höfuð hennar hné ósjálfrátt niður á öxl hennar. Jafnvel hugmynd- irnar komu sjálfkrafa. Hún sá Weston koma inn eins og mann, sem veit að hann er elskaður. Ég hef verið gift honum hér um bil í ár núna, hugsaði hún. Ár er langur tími, þegar fólk sést á hverjum degi. Það venst því. Auðvitað getur það verið hættulegt. Andartak fannst henni sem sannfærzt um, að æskan hafi verið óhróðri borin. Gitti Bugg. fyrir hinni breyttu framkomu fyrir hinni breyttu framokmu hennar. En á hverjum degi sá hún; að hún var honum ekki síður kær nú, • en þegar þau voru í veiðimannakofanum. Hvers var henni þá vant? Hún var elskuð og hún átti hraust og indælt barn. Hún var gift kona í hamingjusömu hjóna- bandi. Auðvitað var hún ekki lengur sama konan og hún hafði verið í veiðimannakofanum. Hún brosti. Hún var vissu-' lega ekki lengur blómknappur. Hún hafði orðið barnshafandi og alið barn. Það breytir miklu. Þáð breytir allri persónu kon- urinar. Allt í einu lagði hún vísifing ur á lærið á sér, eins og þar væíte-bietturinn, sem fæli í sér alía skýringu. Hvað, ástin varð auS.\y.taö,..að breytast líka, ef allt áttJ að ganga vel. Ég á við, að rfferætti hann ekki að búast við að finna í mér brúðina eins og á hveiibrauðsdögunum, eins og á hveitibrauðsdögunum; hann ætti að elslta mig eins og ég er núna. Þar í liggur það Henni létti; hún stóð upp og hrópaði: „í stuttu máli, hin unga móðir hélt honum frá sér vegna þess, að hún vildi láta hann biðla til sín að nýju, og á allt annan hátt nú.“ Hún tók upp ljósa sumar- kjólinn sinn. Guð minn góður, hugsaði hún; þarna í Þýzka- landi eru þeir að eyðileggja allt, en hér stend ég og er að fárast yfir, hvernig ég eigi að halda ást hans. En skyldu ekki konur í Þýzkalandi hugsa um hvernig þær eigi að forðast að missa elskhuga sína — jafnvel þótt þær lifi mitt í þessari blóð- ugu vitfirringu, sem ógnar öllu með tortímingu? En við hugs- um alltaf meira um örlög sjálfra okkar en um hlutina í heild. Jafnvel þótt allur heimurinn væri í björtu báli, mundi hver og einn hugsa meira um matinn sinn og þá veru, sem hann elsk- aði. Þannig erum við verð. Það er þýðingarlaust að reyna að blekkja sjálfa sig. Ur blómvendinum á snyrti- bórði sínu valdi hún nokkur hvít blóm til að skreyta með Ijósgræna kjólinn sinn, sem var hvítblómstraður. Það var eins og engi, sem stráð var hvítum blómum. K-jöllinn náði henni aðeins niður að hnjám. Hið fagra, stillilega andlit hennar var eins og alvarleg mynd eftir gamlan meistara. Þegar Weston, sem sat við skrifborðið í vinnustofu sinni, heyrði fótatak hennar, þá hætti hann alveg við níundu öldina og gekk inn í dagstofuna. Hún heilsaði honum hjartan- lega, en þó án þess að nálgast hann meira, og á þann veg, að hún hélt áfram þessu yfirskins- stríði, sem konan gerir sér leik að að heyja, því að hún veit meira en hún vill vera láta. Hann horfði á hana, þar sem hún gekk fram og aftur, lag- færandi blómin í vösunum og sessurnar í stólúnum, án þess að gruna það, að hreyfingar henn- ar voru öðru vísi en þær hefðu verið, ef maðurinn, sem hún vildi heilla, hefði ekki staðið við gluggann. Weston var í vandræðum. En nú ætluðu þau að borða morg- unverð á svölunum, og þá yrðu þau ein og ótrufluð saman þá stund, og þá ætlaði hann að spyrja Matthildi, sem vissi allt, sem varðaði hann, miklu betur en hann sjálfur, vegna þess hve tilfinninganæm hún var, hver væri orsök hinnar breyttu framkomu hennar. Það virtist hún líka vita, hafa skynjað það með tilfinn- ingum sínum. Því að stuttu seinna sat hann ásamt lienni og eldastúlkunni við hreint, gróft beykiviðarborðið í eldhúsinu. Hann hefði ekki getað komið í veg fyrir það án þess að virðast vera þver. Það var ekkert nýtt. Þar sem honum þótti gaman að tala við ungu konuna, sem var ættuð úr sama dal og Matt- hildur og var eins og Fjóla búin að koma sér vel fyrir í lífinu, höfðu þau oft borðað saman í hvíta, hreinlega eldhúsinu. María og Matthildur höfðu leikið sér saman, þegar þær voru börn, og kölluðu enn þá hvor aðra fornöfnum. Weston var ekki viss um, hvort Matthildur hafði af á- settu ráði breytt um og borðað í eldhúsinu, til þes að losna við að vera ein með honum meðan þau borðuðu. Jafnvel síðustu mánuðina hafði hún aldrei af á- settu ráði haldið honum frá sér. Að þetta bil á milli þeirra væri henni jafn eðlilegt og bilið á milli tveggja trjáa var það, sem olli honum mests óróa. Hún talaði við Maríu meðan hún saddi hungur sitt, um allt annað en það, að hún heíði gert MYNDASAGA ALÞYÐUBLAÐSSNS SOLDÁNINN: Við flytjum ykkur út á eyðimörkina og látum ykkur \ farast úr hungri. Segið þið eitthvað! KÁRI: Þökk fyrir mig!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.